Morgunblaðið - 04.12.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 04.12.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021 Skipholti 29b • S. 551 4422 Skoðið laxdal.is TRAUST Í 80 ÁR Vetraryfirhafnir í úrvali Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Opið 11-15 í dag Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 Við erum á facebook Velúrgallar frá Verð 16.990,- Str. S-XXL Fræðibækur, ekki skáldsögur Ranglega sagði í grein um Tyrkja- ránin í Morgunblaðinu sl. fimmtu- dag að Karl Smári Hreinsson og Adam Nichons hefðu skrifað skáld- sögur um Tyrkjaránin. Rétt er að það voru fræðibækur. LEIÐRÉTT Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Okkur finnst þetta vera makalaust. Pabbi er höfundur verksins en hans er getið sem einhvers konar ráðgjafa. Við höfum því farið fram á að að hans sé getið sem höfundar á öllum merk- ingum við verkið og í allra umfjöllun um það en þeim kröfum hefur ekki verið svarað,“ segir Gunnhildur Hauksdóttir myndlistarmaður. Gunnhildur hefur tekið að sér að gæta hagsmuna föður síns, myndlist- armannsins Hauks Halldórssonar, varðandi aðkomu hans að Heim- skautsgerðinu sem stendur við Rauf- arhöfn. Um er að ræða stærsta úti- listaverk á Íslandi sem vakið hefur verðskuldaða athygli ferðamanna á síðustu árum. Hvatamaður að verk- inu var Erlingur B. Thoroddsen, hót- elstjóri á Raufarhöfn. Fjölskylda listamannsins Hauks segir að Er- lingi, sem lést árið 2015, hafi á síð- ustu árum verið eignað verkið að nær fullu en rétt sé að Haukur sé höf- undur þess. Í umfjöllun á heimasíðu Heimskautsgerðisins segir að Hauk- ur hafi tekið þátt í hugmyndavinnu með Erlingi, gert skissur og líkan sem stuðst sé við. Skrifaði bréf til ráðuneyta Gunnhildur segir við Morgun- blaðið að fjölskyldan geri engar at- hugasemdir við að Erlingur sé titl- aður frumkvöðull eða hvatamaður að verkinu. Ólíðandi sé þó að Hauks sé ekki getið í sömu andrá sem höf- undar. Telur fjölskyldan að með þessu sé brotið á sæmdarrétti lista- mannsins og hefur hún leitað til Myndstefs og sent bréf til tveggja ráðuneyta, mennta- og menningar- ráðuneytis og iðnaðar- og nýsköp- unarráðuneytisins sem áður hétu, auk Ferðamálastofu vegna þessa. Gunnhildur fundaði með stjórn fé- lagsins, sem heldur utan um rekstur Heimskautsgerðisins, sumarið 2020 og kveðst hafa farið af þeim fundi með von í brjósti um að orðið yrði við óskum um úrbætur. Í kjölfarið hafi beiðni um að stjórnin myndi rita und- ir yfirlýsingu þess efnis ekki verið svarað og ekkert hafi heyrst frá stjórninni. Því hafi hún séð sig til- neydda til að hafa samband við Myndstef og áðurnefnd ráðuneyti og Ferðamálastofu. „Faðir minn hefur haft það að ævi- starfi að koma goðafræði og íslenskri þjóðtrú í myndir og mannvirki og það leikur ekki vafi á því að hann er höf- undur verksins, enda kemur það fram í samningi um kaup á hönnun verksins,“ segir í bréfi Gunnhildar þar sem þess er getið að verkið hafi meðal annars verið á fjárlögum í tví- gang. „Ég hef farið þess ítrekað á leit við ábyrgðar- og framkvæmdaraðila verksins að föður míns sé skýlaust getið sem höfundar verksins í um- fjöllun og merkingum við verkið og farið þess á leit að platti sem festur er á verkið með nafni Erlings sé fjar- lægður af verkinu,“ segir þar enn- fremur. Í bréfi Myndstefs til félagsins Heimskautsgerðið á Raufarhöfn seg- ir að af gögnum málsins verði ekki séð að ábyrgðaraðili verksins hafi virt höfundarrétt Hauks. „Er þar einkum átt við sæmdarrétt, nánar til- tekið nafngreiningarrétt,“ segir þar og beinir Myndstef þeim kröfum til ábyrgðaraðilans að „bæta úr meintu broti á sæmdarrétti eins fljótt og kostur er“ og að gerður verði al- mennur samningur milli höfundarins og ábyrgðaraðila um útilistaverkið og framtíð þess verks hvað varðar höfundarrétt. Í bréfi Gunnhildar kemur fram að engin svör hafi borist vegna erindis Myndstefs. „Við erum ekki að standa í þessu vegna fjárhagslegs ávinnings. Pabbi er orðinn 85 ára og þetta særir hann mjög mikið,“ segir Gunnhildur. Segir að reynt hafi verið að leita sátta um árabil Guðný Hrund Karlsdóttir, formað- ur stjórnar félagsins Heimskauts- gerðið á Raufarhöfn, segir að hug- myndafræðin á bak við verkið sé stórkostleg og aðkoma Hauks hafi verið frábær. Hún kveðst harma að mál hafi þróast með þeim hætti sem þau hafi gert en reynt hafi verið að leita sátta um árabil. „Erlingur sagði alla tíð að hlutur Hauks hefði verið gríðarlega mikilvægur og í öllum kynningum höfum við reynt að sjá til þess að Haukur og hans mikilvæga framlag sé nefnt. Staðreyndin er hins vegar sú að það var gerður samn- ingur um hönnun verksins en það kom aldrei neitt frá Hauki. Við höf- um þurft að kalla til hönnuði og verk- fræðinga til að Heimskautsgerðið yrði að veruleika og þess vegna vilj- um við ekki samþykkja að hann sé eini hugmyndasmiður og hönnuður verksins.“ Varðandi sáttaumleitanir fjöl- skyldu Hauks segir Guðný að stjórn- in hafi fagnað þeim og sáttafundinum sumarið 2020. „Við vorum vongóð líka og héldum að loksins kæmist ein- hver niðurstaða í þetta. Það er hins vegar erfitt að ná samkomulagi þeg- ar fólk segir bara að maður eigi að gera eins og það vill.“ Telja brotið á sæmdarrétti - Fjölskylda Hauks Halldórssonar vill að hans verði getið sem höfundar Heim- skautsgerðisins á Raufarhöfn - Sáttaumleitanir við heimamenn árangurslausar Ljósmynd/Dagný Ríkharðsdóttir Tignarlegt Heimskautsgerðið á Raufarhöfn er stærsta útilistaverk á Íslandi. Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Í gær var óvissustigi vegna eldgoss- ins í Geldingadölum formlega aflýst. Eldgosið hófst hinn 19. mars síðast- liðinn og var þá strax lýst yfir neyð- arstigi á svæðinu, en áður hafði verið í gildi óvissustig vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Degi eftir að eld- gosið hófst var almannavarnastig lækkað úr neyðarstigi í hættustig enda varð öllum mjög fljótlega ljóst að ekki væri um að ræða stórt skað- ræðisgos auk þess sem gosið var fjarri þéttbýli og helstu mannvirkj- um. Fjórum vikum eftir að síðast sást til elds í Geldingadölum var al- mannavarnastig fært aftur niður á óvissustig. Engin merki um að kvika færist upp Hraunflæði frá gígnum hefur ekki sést frá 18. september og þær jarð- skjálftahrinur sem hafa orðið síðan hafa ekki leitt til frekari atburða. Engin merki eru nú um að grunn- stæð kvika sé á ferðinni, né að kvika sem liggur á um 15 kílómetra dýpi sé að leita upp. Áfram verður þó fylgst vel með þróun atburða og almanna- varnastig reglulega endurmetið. Almannavarnir benda samt á að varhugavert geti verið að fara inn á hraunbreiðuna og að gígum. Hraun- ið geti verið töluverðan tíma að kólna og yfirborð þess og gígar enn óstöð- ugir. Hættan á hruni eða sprungu- myndun er því enn fyrir hendi. Óvissustigi við gosið í Geldingadölum aflýst - Ekki sést til hraunflæðis í gígnum síðan í september Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson Lítið en fallegt Þrátt fyrir að um hálfgerðan gosstubb hafi verið að ræða var gosið í Geldingadölum mikið sjónarspil þegar mest lét.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.