Morgunblaðið - 04.12.2021, Síða 14

Morgunblaðið - 04.12.2021, Síða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Á stæðan fyrir því að ég valdi að vinna heimildar- verkefni um utangarðsfólk er sú að fósturbróðir minn tók sitt eigið líf í fangaklefa á Hverf- isgötunni árið 2006. Hann var mjög illa farinn af sínum veikindum sem fíkill, en auk þess hef ég sjálfur þurft að takast á við alkóhólisma, en náði tökum á því á sínum tíma,“ segir Gísli Hjálmar Svendsen ljósmyndari, en bók hans Utangarðs kom út á dög- unum. Bókin geymir ljósmyndir af utangarðsfólki í Reykjavík sem Gísli tók yfir margra ára tímabil. „Þessi myndasería er hluti af lokaverkefni mínu í námi hjá Ljós- myndaskólanum. Ég byrjaði að mynda þennan hóp fólks árið 2009 þegar ég var enn áhugaljósmyndari og ég hélt mig fast við þetta verkefni þegar ég var í Ljósmyndaskólanum. Ég reyndi að finna flöt á því að sýna hvernig líf utangarðsfólks er, og þá með fullri virðingu fyrir sjúkdómn- um, viðkomandi einstaklingum og aðstæðum. Aðallega til að koma því á framfæri að alkóhólismi og önnur fíkn er gríðarlega alvarlegur sjúk- dómur sem þarfnast annarra við- bragða af samfélaginu en að skaffa fólki aðstöðu í gámum og rétta því Bónuspoka með matvælum. Virkir fíklar þurfa að fá efnin sín, sama hvað tautar og raular. En það er til lausn, og hana má m.a. finna í meðferðum, sem stofnanir og félaga- samtök bjóða upp á. Það er alltof oft verið að hringla með þetta helsjúka fólk í po- púlískum útfærslum yfirvalda. Það er sorglegt og nýjasta dæmið er smá- hýsi sem verið er að planta hér og þar. Þetta er fáránleg hugmynd að mínu mati, bæði fyrir umhverfið og sérstaklega þessa einstaklinga, sem eru veikir og þurfa heilbrigðisþjón- ustu en ekki smáhýsi eða önnur úr- ræði sem einkennast meira af því að koma viðkomandi einstaklingum frá almannasjónum en að taka heild- stætt á vanda þeirra. Ef það er eitt- hvað sem bókin lýsir vel, þá er það einmitt framangreint.“ Jói tók alltaf öllum vel Bókin er um erfitt málefni og myndirnar eru á köflum grimmar, en þær opinbera líka ofur- viðkvæmni þessa fólks. Gísli segir að vissulega hafi tekið tíma að vinna sér traust og fá að vera fluga á vegg hjá þeim og taka myndir. „Þar sem ég er sjálfur með þennan sjúkdóm og var virkur alkó- hólisti á sínum tíma, þá þekkti ég til aðalsögupersónu bókarinnar, hans Jóhanns Vísis Gunnarssonar, sem er hetja þessarar bókar. Hann tók alltaf öllum rosalega vel, þar á meðal mér. Þó að fólk sé svona veikt, þá vill það félagsskap og félagsskapur einhvers sem er edrú er kærkominn, því þá er hægt að tala við einhvern sem er sæmilega í lagi. Ég var fyrir vikið frekar vinsæll í hópnum, en auðvitað þurfti ég stundum að forða mér þeg- ar menn fóru að rífa upp hnífa,“ segir Gísli og bætir við að félagar hans hafi ekki verið viðkvæmir fyrir því að myndir af þeim birtust almenningi. „Það var ekki vandamál, ég var með uppáskrifað leyfi frá þeim öllum og þau voru tiltölulega í lagi þegar þau gáfu samþykki sitt. Ég gerði þeim grein fyrir um hvað þetta sner- ist og þau voru flest mjög áhugasöm um verkefnið, að ég væri að vinna heimildarverk um utangarðsfólk í gegnum ljósmyndir. Auðvitað kynnt- ist ég sumum vel, til dæmis Bjarna og Erlu konu hans, en þau eru edrú núna og við höldum góðu sambandi. Ég bað um að fá að mynda brúðkaup þeirra og gaf þeim ljósmyndabók af því í brúðkaupsgjöf. Ég fylgdi þessu fólki sumu eftir og ég er enn að vinna að verkefni um hann Atla minn, sem er einn þeirra sem myndir eru af í bókinni,“ segir Gísli og bætir við að honum þyki vænt um þetta fólk, al- veg sérstaklega um Jóa. „Því miður eru fáir enn á lífi úr hópi þessa fólks og þegar birtast myndir af þeim í þeirra ömurlegu að- stæðum, þá er það erfitt og mjög við- kvæmt mál fyrir alla sem tengjast þeim. Eftir að Jói lést átti ég góðan fund með einni dóttur hans, við fór- um yfir þetta allt áður en ég tók end- anlega ákvörðun um að gefa bókina út. Hún var sátt við bókina en hafði vissulega áhyggjur af börnum sínum, þegar þau sæju þessar myndir af afa sínum, en henni fannst boðskapurinn skipta meira máli en svo að hún léti það stoppa verkefnið. Með útgáfu bókarinnar verður fólk vonandi meira upplýst um hvað alkóhólismi og fíkn er skelfilegur sjúkdómur, hvað þetta er stórt samfélagsmál og að það er ekki nóg að setja niður íbúðargáma hér og þar og leyfa fólk- inu að vera þar. Það þarf eitthvað meira að koma til og bókin er von- andi hluti af því.“ Beint úr fangelsi á versta stað Gísli segir að fyrir honum sé þetta miklu meira en myndir af ógæfufólki, eða snúist um hann sem ljósmyndara. „Flestir vita að heimildarljós- myndun snýst um að koma myndefni á framfæri, skrásetja og gefa sýn inn í heim sem flestir eiga ekki aðgang að. Þetta snýst um málefnið. Þetta var viðkvæmt og ég átti erfitt með að velja myndirnar. Ég ákvað að sleppa myndum af fólki sem af einhverjum ástæðum var of viðkvæmt að birta, eða ef það þjónaði ekki tilgangi verk- efnisins. Ég sá og upplifði gríðarlega mikla sorg og eymd hjá þessu fólki,“ segir Gísli og bætir við að það hafi verið erfitt að horfa upp á það þegar ungir menn komu edrú úr fangelsi og mættu í smáhýsin. „Þeir höfðu ekki í önnur hús að venda og umbreyttust á nokkrum dögum úr manneskju í eitthvað sem ég veit ekki hvaða nafn ég á að gefa. Þeir týndu sér alveg, hurfu inn í sárs- auka og myrkur.“ Þegar Gísli er spurður að því hvað hafi komið honum mest á óvart við að fá innsýn í heim utangarðs- fólks, segir hann það hafa verið hversu átakanlega sorglegt þetta allt er. „Því það er til það sem við köll- um lausnir. Allt þetta fólk sem ég tengdist í gegnum þetta verkefni og er núna dáið, það átti möguleika á að komast til lífsins aftur, en það virðist vera sem fólk fari á einhverjum tíma- punkti yfir ákveðinn þröskuld þar sem það verður svo viti firrt af neyslu að það gerir sér enga grein fyrir eig- in stöðu. Þá er ekki leið til baka á for- sendum viðkomandi, heldur þarf ein- hver annar að grípa inn í og taka viðkomandi úr aðstæðunum, en það var aldrei í boði. Þegar þessir vesa- lings félagar mínir vildu komast í úr- ræði, þá var það ekki í boði. Sem dæmi þá vildi Jói margoft leggjast inn á Vog í áfengis- og fíknimeðferð, en hann fékk yfirleitt sama svarið, að hann væri búinn að koma svo oft að hann yrði að bíða. Á endanum dó Jói, að hluta til má kenna um úrræða- leysi, þar sem hann náði aldrei tök- um á ástandi sínu, eða komst í með- ferðarúrræði þegar hann virkilega vildi það,“ segir Gísli og bætir við að hann skili frá sér myndunum í bók- inni, en það sé undir hverjum og ein- um komið hvað hann vill gera með það. „Ég fullyrði að nánast engin fjölskylda á Íslandi komist hjá því að takast á við svona mál í einhverri mynd. Margir tala um rónana okkar sem fyllibyttur eða dópista, en þetta er bara fárveikt fólk með allar sömu tilfinningar og réttindi og annað fólk, en það vill oft gleymast í umræðunni og viðhorfum.“ Fylgir transgender konu Gísli hefur einbeitt sér að heim- ildarljósmyndun í sínum verkefnum, hann hefur m.a. myndað „ladyboys“ í Taílandi, og nú er hann staddur í því landi, þar sem hann vinnur að heim- ildarverkefni sem hófst 2014. „Ég er að fylgja eftir og mynda transgender konu sem smitaðist af eyðni við vændisstörf. Ég hef fylgt henni eftir frá því hún var kosin feg- urðardrottning Ladyboy í keppni sem haldin var í Asíu og þar til allt hrundi hjá henni við sjúkdómsgrein- inguna. Hana langar til að ljúka æv- inni með því að fara í búddaklaustur af virðingu við fjölskyldu sína. Klaustrin eru kynskipt og þar sem hún er fædd karlmaður og skráð karlmaður í kerfinu, þá þarf hún að láta taka úr sér brjóstapúðana, en það vill enginn skera hana upp, af því hún er HIV-smituð og transgender.“ Gísli segist sækja í að vinna verkefni sem fjalla um jaðarmál vegna þess að þau fái yfirleitt ekki heiðarlega eða sanngjarna umfjöll- um, hvort sem er í fjölmiðlum eða al- mennt á meðal fólks. „Fyrir vikið snýst umræðan meira um annarra viðhorf og lífsstíl, sem oft eru lituð af fordómum og vanþekkingu. Slík umgjörð hjálpar engum. Ég er einn af þeim sem hafa þurft að taka rækilega til í sínum málum hvað þetta varðar. Sennilega hefur það valdið mér mestum vand- ræðum við að koma þessum verk- efnum frá mér á nógu hlutlægan hátt, hversu litaður ég er af umrædd- um fordómum og lífsstíl,“ segir Gísli og tekur fram að hann sé þakklátur Einari Má Guðmundssyni rithöfundi fyrir að hafa skrifað formála bók- arinnar. „Það er sérlega vel skrifað og lýsir geðveiki sjúkdómsins alkóhól- isma alveg einstaklega vel.“ Heimasíða: www.ghs.is Listrænn Jói, aðalpersóna bókarinnar, var iðinn við að mála. Félagar Þeir bágstöddu í íslensku samfélagi halda hópinn. Brotinn Jói lést á meðan hann beið eftir að komast í meðferð. Erfið sýn inn í líf utangarðsfólks „Alkóhólismi og önnur fíkn er gríðarlega alvar- legur sjúkdómur sem þarfnast annarra við- bragða af samfélaginu en að skaffa fólki aðstöðu í gámum og rétta því Bónuspoka með mat- vælum,“ segir Gísli, höf- undur ljósmyndabók- arinnar Utangarðs. Vinir Gísli smellir kossi á Bjarna vin sinn á þeim tíma sem hann var að mynda fyrir bókina. Bjarni er edrú í dag og þeir halda sambandi. Ljósmyndir/Gísli Hjálmar Svendsen Utangarðs Þær eru átakanlegar aðstæður fólksins á jaðrinum sem og ástand fólks sem er með fíknisjúkdóm.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.