Morgunblaðið - 04.12.2021, Síða 22

Morgunblaðið - 04.12.2021, Síða 22
BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í nóvembermánuði voru aðeins 12% nýskráðra fólksbýla hér á landi aðeins knúin jarðefnaelds- neyti. Undirstrikar sú staðreynd þá þróun sem orðið hefur í átt til orkuskipta á síðustu árum á bíla- markaði. Fyrir fimm árum var hlutfall hreinna dísel- og bens- ínbíla nærri 90%. Sífellt meira úrval er af bílum sem búnir eru rafmótorum að hluta eða öllu leyti og bílafram- leiðendur bjóða upp á breiðari línu bifreiða en áður sem þjón- usta ólíka hópa. Þessi þróun er að valda straumhvörfum á bílamarkaði. Gerist þetta á sama tíma og markaðurinn hefur tekið mjög vel við sér miðað við árið 2020. Á fyrstu 11 mánuðum ársins hefur nýskráningum nýrra fólks- bíla fjölgað um 34,6% milli ára. Þannig hafa alls verið nýskráðir 11.509 fólksbílar á þessu ári. Sala á raf- og tengiltvinnbílum til ein- staklinga hefur á sama tíma vaxið um ríflega 43%. Hlutfallið tvöfaldast milli ára Samkvæmt tölum Bílgreina- sambandsins má sjá að bílaleigur hafa í auknum mæli tekið við sér hvað viðkemur orkuskiptum en hingað til hefur skortur á inn- viðum fyrir hleðslu slíkra bíla staðið í vegi fyrir því að leigurnar bjóði viðskiptavinum sínum upp á bíla sem taka hvort tveggja í senn, jarðefnaeldsneyti og raf- magn. Það sem af er ári nemur hlut- deild tengiltvinn- og rafbíla í inn- kaupum bílaleiganna 43,4%. Er það gjörbylting frá fyrra ári þeg- ar hlutfallið var 21,4% og árið 2019 var það aðeins 6,4%. Jón Trausti Ólafsson, forstjóri bílaumboðsins Öskju, segir tengil- tvinn-bíla henta bílaleigunum að mörgu leyti. Innviðir hér á landi bjóði ekki strax upp á hreina raf- bíla fyrir leigurnar en staðan sé að breytast. „Auk þess eru tvinnbílarnir mjög sterkir í endursölu og þessi fyrirtæki þurfa eðli máls sam- kvæmt að horfa til þess. En stjórnvöld settu einnig skilyrði fyrir stuðningi við bílaleigurnar þegar kom að niðurfellingu vöru- gjalda og þær hafa mætt þeim kröfum með kröftugum hætti eins og þessar tölur sýna,“ segir Jón Trausti. Með 16% markaðshlutdeild Sama tölfræði sýnir að sölu- hæsta bílamerkið á Íslandi í ár er KIA með ríflega 16% markaðs- hlutdeild. Hafa bílar undir merkj- um þess selst í 1.692 eintökum. Rétt mer það Toyota sem hefur flutt inn 1.684 bíla en nokkru á eftir þeim er svo Hyundai með 1.039 bifreiðar. KIA hefur einnig vinninginn í keppni bílasmiða um fjölda seldra bíla í flokki tengiltvinn- og rafbíla. Þannig hefur fyrirtækið nýskráð 848 slíka bíla á árinu og Tesla kemur þar fast á hæla með 815 bíla. Hyundai vermir svo þriðja sætið með 525 bíla af þeirri gerð. Bílaleigurnar taka við sér - Veðja í auknum mæli á rafmagnið í innkaupum á nýjum bílum - Einstaklingar velja tengiltvinn eða hreint rafmagn í 68% tilvika - KIA söluhæst í þessum flokki - Tesla í öðru sæti og Hyundai í því þriðja Orkugjafar nýskráðra fólksbíla til einstaklinga og bílaleigubíla Hlutfall orkugjafa nýskráðra fólksbíla til einstaklinga (einka) og bílaleigubíla (leigu), % Hlutfall orkugjafa nýskráðra fólksbíla til einstaklinga,% Hlutfall orkugjafa nýskráðra bílaleigubíla, % 100% 75% 50% 25% 0% 100% 75% 50% 25% 0% Bensín og dísel samtals Hybrid, rafmagn og tengiltvinn samtals Bensín og dísel samtals Hybrid, rafmagn og tengiltvinn samtals 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021* 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021* 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021* Einka Leigu Einka Leigu Einka Leigu Einka Leigu Einka Leigu Einka Leigu Einka Leigu Einka Leigu Bensín 47 53 42 52 39 54 38 52 36 52 32 58 17 43 7 33 Dísel 50 47 47 48 43 45 37 47 33 44 25 35 15 29 10 16 Hybrid 2 0 3 0 2 0 3 0 6 0 13 1 31 7 38 8 Rafmagn 1 0 3 0 7 0 8 0 7 2 13 3 13 13 15 26 Tengiltvinn 0 0 2 0 6 0 11 0 18 1 16 3 23 8 30 18 Annað 1 0 3 0 3 0 2 0 1 0 1 0 0 0 0 0 * Fyrstu 11 mánuði ársins H ei m ild : B ílg re in as am b an d ið 51% 72% 93% 83% 67%57% 82% 33%43% 18% 17% 7% 28% 49% Jón Trausti Ólafsson 22 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Vegna sóttvarnaraðgerða er gerð krafa um neikvætt hraðpróf. Nánari upplýsingar um hraðpróf má nálgast á: https://hradprof.covid.is/skraning Allir félagar velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Félagar eru beðnir um skrá sig á fundinn á: www.efling.is Boðið verður upp á léttar veitingar Efling-stéttarfélag • Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík • Sími 510 7500 Fimmtudaginn 9. desember, kl. 19:00 í Eflingu, Guðrúnartúni 1, 4. hæð. Efling–stéttarfélag boðar til félagsfundar Kynning á nýjum stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar Önnur mál Dagskrá: 1. 2. « Olíu- og smásölufyrirtækið Skelj- ungur lækkaði um 2,8% í Kauphöll Íslands í gær. Lágu lítil viðskipti að baki flökti bréfanna eða tæpar 10 milljónir króna. Mest varð hækkun á bréfum fasteignafélagsins Eikar og nam hún 1,7% í tæplega 17 milljóna króna viðskiptum. Mest voru viðskipti með bréf Marels. Námu þau 841 milljón króna og lækkuðu bréf félags- ins um 0,2%. Skeljungur lækkar mest í Kauphöll Íslands 4. desember 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.29 Sterlingspund 172.2 Kanadadalur 100.92 Dönsk króna 19.714 Norsk króna 14.238 Sænsk króna 14.28 Svissn. franki 140.77 Japanskt jen 1.1458 SDR 181.07 Evra 146.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.5314 Í gær voru iðnaðarmenn í óðaönn að koma upp nýjum innréttingum í Hagkaup í Smáralind. Þar hefur nú verið opnað fyrir sölu á bandaríska snyrtivörumerkinu Kiehl’s. Er það í fyrsta sinn sem vörur þess eru í boði hér á landi en þær hafa lengi notið mikilla vinsælda, ekki síst meðal karlmanna. Það er heildsalan Terma sem er með umboð fyrir vöruna hér á landi. Ástrós Sigurðardóttir, vöru- merkjastjóri Kiehl’s á Íslandi, segir innreið merkisins á íslenskan mark- að mjög kærkomna og margir hafi beðið þess með óþreyju að það kæmist í sölu hér á landi. Í fyrstu verður merkið aðeins til sölu í verslun Hagkaups í Smáralind en þá mun hún einnig verða í boði í gegnum vefverslun Hagkaups sem verður opnuð á nýju ári. Stofnandi Kiehl’s var lyfjafræðingurinn John Kiehl og rekur fyrirtækið sögu sína allt aftur til ársins 1851. Fyrirtækið var í hópi hinna fyrstu sem lögðu áherslu á að fólk prófaði vörur þess áður en það keypti þær. Einkunn- arorð þess eru því m.a. „try before you buy“ eða „prófaðu áður en þú kaupir“. Eitt af einkennismerkjum Kiehl’s er apótekarastíll á umbúð- um þeirra vara sem fyrirtækið framleiðir. Heldur það með þeim hætti í ræturnar frá tímum stofn- andans. Fornfrægt merki hefur innreið sína á markaðinn - Kiehl’s með nýtt heimili í Hagkaup Morgunblaðið/Árni Sæberg Smáralind Iðnaðarmenn höfðu í nógu að snúast í gær við uppsetningu. Morgunblaðið óskaði upp- lýsinga frá fjármála- ráðherra um hvort til stæði að end- urskoða þá ákvörðun að helminga ívilnanir til handa kaup- endum tengiltvinnbíla um áramót- in en að öllu óbreyttu hækka slíkir bílar um 480 þúsund í verði 1. jan- úar. Haldi stjórnvöld sig sömuleið- is við hinn svokallaða 15 þúsund bíla kvóta mun verðið aftur hækka um 480 þúsund um miðjan febr- úar, haldi sala þessara bíla sama dampi og verið hefur. Bendir Bjarni Benediktsson á að ríkið hafi frá 2012 varið á annan tug millj- arða í ívilnanir af þessu tagi en að taka þurfi mið af breytingum sem eru að verða á markaðnum og þeirra tekjuöflunarleiða sem ríkis- sjóður hafi af bílamarkaðnum. „Það er sömuleiðis gagnlegt að líta til annarra ríkja, en við sjáum m.a. að Norðmönnum hefur geng- ið vel að byggja upp hlutdeild vist- vænna bíla. Þar beinist vsk- stuðningur nú eingöngu að svo- kölluðum hreinorkubílum, þ.e. rafmagns- og vetnisbílum sem losa ekki koltvísýring.“ Verðið hækk- ar á nýju ári EKKI FRAMLENGT Bjarni Benediktsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.