Morgunblaðið - 04.12.2021, Side 24

Morgunblaðið - 04.12.2021, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sú spurning vaknar við fréttir um að Landsvirkjun þurfi vegna skorts að tak- marka afhendingu á raforku til fiskimjölsverksmiðja í janúar hvort við Íslendingar höf- um málað okkur út í horn í orku- málum. Í frétt í Morgunblaðinu í gær kemur fram að eftirspurn eftir orku hefur verið mun meiri en gert var ráð fyrir og eigi það við um allar greinar, hvort sem það er framleiðsla á áli og kísilmálmi eða starfemi gagnavera. Sgeir Tinna Traustadóttir, fram- kvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun, að við- skiptavinir Landsvirkjunar full- nýti nú almennt raforkusamn- inga sína og biðji um að fá meira. Þar við bætist að vatnsbúskap- urinn á hálendinu hefur verið slakur. Fyrir vikið þurfa þeir við- skiptavinir fyrirtækisins, sem samið hafa um kaup á skerð- anlegri orku, að sæta skerð- ingum sé orkan ekki næg. Á þetta meðal annars við um fiski- mjölsverksmiðjur, fiskþurrkanir og fjarvarmaveitur. Þá eru samn- ingar við stórnotendur einnig með ákvæði um skerðingar. Á þessi ákvæði hefur ekki reynt ár- um saman, en nú er öldin önnur. Nú er í aðsigi stærsta loðnu- vertíð í nokkurn tíma og fer sá hluti aflans, sem ekki er notaður til manneldis, í orkufreka bræðslu. Komi til skömmtunar mun þurfa að reka bræðsluna með innfluttri olíu og það væri kaldhæðnislegt afturhvarf mitt í átaki til þess að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis með það að mark- miði að hverfa alfar- ið frá henni. Það er til lítils að rafvæða bílaflota landsins ef olíuvæða á framleiðsl- una. Hér er ef til vill um undan- tekningarástand að ræða. Eft- irspurnin eftir rafmagni fer í topp á sama tíma og vatnsborð lóna er lágt. En það kemur fleira til. Ekki bætir úr skák að sums staðar er flutningsgeta á orku á milli svæða minni en æskilegt væri. Það eru því innbyggðir flösku- hálsar í kerfinu. Orkumál eru spurning um þjóðaröryggi. Þeim þarf að haga þannig að nóg sé fyrir hendi af orku til að reka þjóðarbúið, sinna þörfum bæði atvinnulífs og heim- ila. Lítið hefur bæst við upp á síð- kastið og eins og kemur fram í máli Tinnu Traustadóttur hafa engar ákvarðanir verið teknar um nýjar framkvæmdir. Innviðir eru mikið til umræðu þessa dagana. Það getur kostað sitt að vanrækja innviðina. Þessu hafa Bandaríkjamenn kynnst með þjóðvegakerfi í molum og í Þýskalandi er orðið að stór- pólitísku máli hvað netvæðing er skammt á veg komin. Íslendingar geta ekki leyft sér að vanrækja orkumálin. Átak í orkumálum snýst ekki um að setja náttúruna í annað sætið. Það snýst um að nýta þessa mik- ilvægu auðlind til þess að tryggja hér velmegun og hagsæld í sátt við náttúruna. Íslendingar geta ekki leyft sér að vanrækja orkumálin} Máluð út í horn? Efnahagslíf Kúbu er aðþrengt og krafan um breyt- ingar á eyjunni verður sífellt há- værari. Undanfarið ár hefur farið for- dæmalaus alda mót- mæla um landið og eyjarskeggjar skella skuldinni af öllu sem á bjátar á komm- únistaflokkinn. Þetta er staðan á Kúbu fimm árum eftir andlát Fidels Castros, sem leiddi byltinguna á eyjunni árið 1959. Á Kúbu er komin fram ný kyn- slóð, sem kölluð er barnabörn byltingarinnar, og hún krefst meira frelsis og réttinda, lýð- ræðis og efnahagslegra tæki- færa. Netið og félagsmiðlar, sem héldu innreið sína fyrir þremur árum, eiga sinn þátt í þeirri sprengingu, sem orðið hefur á Kúbu. Yfirvöld taka enn harkalega á andófsmönnum. Í nóvember flúði Yunior Garcia, sem leitt hefur mótmæli gegn kúbönskum yfir- völdum, til Spánar vegna þrýst- ings stjórnvalda. Hann játti því að brottför sín væri áfall fyrir stjórnarandstöðuna í landinu, en hann hefði yfirgefið Kúbu af því að við sér hefði blasað „lifandi dauði“ og bætti við: „Ég mun að endingu fyrirgefa sjálfum mér fyrir að hafa ekki haft hugrekki til að verða að steini eða breytast í brons- styttu,“ sagði hann. Garcia hafði setið undir linnu- lausum árásum í kúbönskum rík- isfjölmiðlum og í bloggi vinveittu stjórnvöldum vegna mótmæla, sem hann hafði skipulagt. Mót- mælin voru bönnuð og þegar hann hugðist ganga einn síns liðs var honum meinuð útganga úr íbúð sinni. Konu hans var hótað að hún myndi missa vinnu sína. Íbúar Kúbu hafa þurft að ganga í gegnum margar hremm- ingar vegna stjórnarfarsins í landinu. Kommúnistaflokkurinn heldur áfram að stjórna í krafti kúgunar og yfirgangs. Það er kominn tími til þess að hann átti sig á því að byltingin er í öng- stræti, losi um tökin og leyfi nýrri kynslóð að njóta sín frekar en að hrekja hana úr landi. Kommúnistaflokk- urinn á Kúbu heldur áfram að stjórna í krafti kúgunar og yfirgangs} Bylting í öngstræti Þ að var hátíðleg stund á Alþingi í vik- unni þegar fyrsta stefnuræða kjör- tímabilsins var flutt á fullveldisdegi okkar Íslendinga hinn 1. desember. Stefnuræðan markar ávallt ákveðin tímamót sem gefa okkur kjörnum fulltrúum tækifæri til þess að líta yfir farinn veg og horfa til framtíðar. Undanfarin fjögur ár hefur margt áunnist á fjölmörgum sviðum samfélagsins og boðar nýr stjórnarsáttmáli áframhaldandi fram- farir. Gert hærra undir höfði Liður í þeim breytingum sem kynntar hafa verið er hið nýja ráðuneyti ferða-, menningar- og viðskiptamála sem undirrituð mun fara fyrir. Breytingarnar eru tímabærar enda eru tugþús- undir sem starfa við menningu, skapandi grein- ar og ferðaþjónustu sem fléttast saman með ýmsu móti, auka aðdráttarafl Íslands og skapa gríðarleg verðmæti fyr- ir þjóðarbúið. Greinarnar eru ekki síður mikilvægar til þess að skapa Íslandi ákveðinn sess í samfélagi þjóðanna með hinu mjúka valdi og jákvæðum hughrifum sem þeim fylgja. Öflug menning og ferðaþjónusta eru einnig mik- ilvægur hluti samfélaganna hringinn í kringum landið og hafa á undanförnum árum gætt ýmis svæði nýju lífi. Áframhaldandi menningarsókn Á síðasta kjörtímabili var grunnur menningar styrktur verulega. Þannig hefur nýtt stuðningskerfi við bókaútgáfu skilað 36% aukningu í útgefnum bókum, starfslaunum var fjölgað, fyrstu sviðslistalögin sett, hópum listamanna tryggðir kjarasamningar, listmenntun efld, ný menningar- hús fjármögnuð, nýjar kvikmynda- og bóka- menntastefnur settar fram ásamt aðgerðaáætl- un í menningarmálum svo að fá dæmi séu tekin. Byggt verður á þessum góða grunni næstu fjögur ár og strax á næsta ári verður rúmum milljarði varið í nýja kvikmyndastefnu og til aukinna endurgreiðslna í kvikmyndagerð, nýjar myndlistar- og tónlistastefnur kláraðar og ný Sviðslistamiðstöð hefja starfsemi svo stiklað sé á stóru. Ferðaþjónusta á heimsmælikvarða Ferðaþjónustan verður áfram stór þáttur í íslensku efnahagslífi og er mikilvægt að hún fái tækifæri til uppbyggingar eftir áföll heimsfar- aldursins. Lögð verður áhersla á að ferðaþjón- usta á Íslandi sé arðsöm og samkeppnishæf at- vinnugrein í sátt við náttúru og íslenska menningu. Við viljum að Ísland sé í fararbroddi í sjálfbærri þróun og nýsköpun í ferðaþjónustu. Á kjörtímabilinu verð- ur áfram unnið að uppbyggingu innviða í takt við fjölgun ferðamanna, stefnu í ferðaþjónustu til 2030 sem mótuð var á síðasta kjörtímabili í góðri samvinnu hagaðila verður fylgt eftir ásamt heildstæðri aðgerðaáætlun. Framtíðin er björt Fullt tilefni er til þess að líta björtum augum til fram- tíðar og er ég full tilhlökkunar að takast á við ný verkefni. Ég heiti því að leggja mig alla fram í þágu minna mála- flokka – hinna gjöfulu greina. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Hinar gjöfulu greinar Höfundur er menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sjö af tólf fjölmennustu sveitar- félögum landsins lækka álagningar- prósentu fasteignaskatts á íbúðar- húsnæði á næsta ári til að koma til móts við íbúa vegna hækkunar fast- eignamats. Fimm sveitarfélaganna lækka álagningarprósentu fasteigna- skatts á atvinnuhúsnæði. Kemur þetta fram í samantekt Félags atvinnurek- enda sem birt er hér að ofan. „Það eru ákveðin vonbrigði að fleiri sveitarfélög í hópi þeirra stærstu hafi ekki haft tækifæri til að hreyfa sig í þessa átt. Það á sérstaklega við um Reykjavíkurborg sem leggur fast- eignaskatt á rúmlega helming alls at- vinnuhúsnæðis í landinu. Sérstaða borgarinnar er sláandi, hún er í hópi þeirra sveitarfélaga sem leggja hæstu skattprósentuna á atvinnuhúsnæði. Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir borgarstjórnarmeirihluta sem vill hlúa vel að atvinnulífi,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Fé- lags atvinnurekenda. Hæstu álögur í Fjarðabyggð Fjarðabyggð verður með hæsta fasteignaskattinn af þessum tólf sveit- arfélögum, bæði á íbúðar- og atvinnu- húsnæði, þótt bæjarstjórn hafi ákveðið að lækka skattprósentuna á íbúðar- húsnæði. Seltjarnanesbær er og verð- ur með lægstu skattprósentuna í báð- um fasteignaflokkum. Miðast allar tölur við fjárhagsásætlun eða frum- varp að fjárhagsáætlun næsta árs og er hugsanlegt að einhverjar tölur breytist í meðförum bæjarstjórna. Þótt Seltjarnanes sé með lægstu skattprósentuna á íbúðarhúsnæði hækka tekjur sveitarsjóðs þess mest, eða um 9,6%, frá yfirstandandi ári. Er það vegna hækkunar fasteignamats. Aftur á móti hefur lækkun prósentu í Reykjanesbæ þau áhrif að tekjur af fasteignaskatti af íbúðarhúsnæði lækka um 3,4% á næsta ári. Árborg heldur sinni álagningu óbreyttri og aukast skatttekjur af atvinnuhúsnæði mest þar, eða um 10,8%. Vegna lækk- unar á álagningu Vestmannaeyja- bæjar lækka skatttekjur þess sveitar- félags af atvinnuhúsnæði um 1,4%. Ólafur segir að Félag atvinnurek- enda velti vöngum yfir því að sveit- arfélög sem sjá ástæðu til að lækka álagningarprósentu á íbúðir til að koma til móts við íbúa vegna hækk- unar fasteignamats geri ekki það sama varðandi atvinnuhúsnæði. Hann segist ekki sjá rökin fyrir því. Rifjar Ólafur upp að frá árinu 2015, þegar núverandi fasteigna- matskerfi var tekið upp, og til ársins 2020 hafi skattgreiðslur fyrirtækjanna vegna atvinnuhúsnæðis hækkað um 11,5 milljarða eða um 68%. Sveit- arfélögin hafi því fengið miklar tekjur á þessum tíma. Hafi þessi innheimta sveitarfélaganna ekki alltaf endur- speglað gengi atvinnulífsins. Sérstök ástæða sé til að sýna sanngirni nú og lækka prósentuna vegna erfiðleika í vissum greinum atvinnulífsins, eins og til dæmis ferða- og veitingaþjónustu þar sem mörg dæmi séu um skertar tekjur og jafnvel litlar tekjur af eign- um. Mörg sveitarfélög lækka skatt af íbúðum Félag atvinnurekenda hefur undanfarin ár þrýst á um lækkun fasteigna- skatta af atvinnuhúsnæði. „Við hófum þessa baráttu fyrir fimm árum vegna þess að okkur fannst hækkanir fasteignaskatts á fyrirtæki komnar út í öfgar. Flest sveitarfélög voru að innheimta lögleyft hámark. Nú er að- eins eitt sveitarfélag eftir, af tólf stærstu, sem er í hámarkinu (Fjarða- byggð) og þetta þokast niður á við. Baráttan ber einhvern árangur þótt okkur finnist að hún mætti ganga betur,“ segir Ólafur Stephensen. Mætti ganga betur BARÁTTA Í FIMM ÁR Álagning fasteignaskatta 2021 og 2022 – 12 stærstu sveitarfélögin *Skv. frumvörpum að fjárhagsáætlun 2022. **Heimild: Þjóðskrá, Fasteignamat 2022. ÍBÚÐARHÚSNÆÐI ATVINNUHÚSNÆÐI Álagningarhlutfall Hækkun 2021-2022 Álagningarhlutfall Hækkun 2021-2022 2021 2022* Án aðgerða** M.v. áætlun*** 2021 2022* Án aðgerða** M.v. áætlun*** Reykjavík 0,1800% 0,1800% 7,7% 7,7% 1,6000% 1,6000% 5,0% 5,0% Kópavogur 0,2120% 0,2000% 11,7% 1,1% 1,4700% 1,4400% 8,0% 5,8% Seltjarnarnes 0,1750% 0,1750% 9,6% 9,6% 1,1875% 1,1875% 8,0% 8,0% Garðabær 0,1850% 0,1790% 10,5% 6,9% 1,5900% 1,5500% 7,0% 4,3% Hafnarfjörður 0,2580% 0,2460% 8,2% 3,2% 1,4000% 1,4000% 7,6% 7,6% Mosfellsbær 0,2070% 0,2030% 9,7% 7,6% 1,5600% 1,5400% 7,5% 6,1% Akranes 0,2514% 0,2514% 1,9% 1,9% 1,4000% 1,4000% 8,7% 8,7% Reykjanesbær 0,3200% 0,3000% 3,0% -3,4% 1,5200% 1,5000% 8,8% 7,4% Árborg 0,2544% 0,2544% 8,7% 8,7% 1,6000% 1,6000% 10,8% 10,8% Vestmannaeyjar 0,2910% 0,2810% 3,9% 0,3% 1,5500% 1,4500% 5,9% -1,4% Akureyri 0,3300% 0,3300% 1,7% 1,7% 1,6300% 1,6300% 7,5% 7,5% Fjarðabyggð 0,5000% 0,4800% 6,1% 1,9% 1,6500% 1,6500% 8,0% 8,0% ***Rauður litur þýðir lækkun frá því sem orðið hefði án breytingar á álagningarhlutfalli. Heimild: Félagi atvinnurekenda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.