Morgunblaðið - 04.12.2021, Page 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021
✝
Eggert Krist-
inn Jóhannes-
son fæddist 2.
mars 1938 í
Reykjavík. Hann
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Mörk 5.
nóvember 2021.
Foreldrar hans
voru Steinunn
Guðný Krist-
insdóttir húsmóðir
og Jóhannes Egg-
ertsson hljóðfæraleikari.
Eggert var elstur 7 systkina
en þau eru: Þorvaldur Steinar,
Halldór Helgi, látinn, Halldóra
Helga, Þorvaldur Steinar, Guð-
björg Ingibjörg og Guðbjörg.
Börn Eggerts með maka I,
Kolbrúnu Önnu Carlsen, eru:
1) Jóhannes, synir hans eru
Baldvin, Eggert Ingi og Bald-
Eggert ólst upp í Reykjavík
og bjó lengst af æsku sinnar í
Bústaðahverfinu. Fótbolti og
Knattspyrnufélagið Víkingur
átti hug hans allan. Hann byrj-
aði að þjálfa 15 ára og sá lengi
um uppbyggingu á þjálfunar-
starfi yngri flokkanna með ein-
stökum árangri. Einnig þjálf-
aði hann Meistaraflokk
Víkings í nokkur ár sem varð
bikarmeistari í fyrsta sinn und-
ir hans stjórn árið 1971.
Síðar flutti hann til Færeyja
og þjálfaði þar bæði B36 og
færeyska landsliðið.
Hann kom einnig að íslenska
landsliðinu og var stofnfélagi
Knattspyrnuþjálfarafélags Ís-
lands og formaður þess í 10 ár.
Eggert vann ýmis störf í
gegnum ævina, t.d. hjá Kók,
Andersen & Lauth, Glóbus og
Reykjavíkurborg. Einnig bar
hann Morgunblaðið út í 30 ár
ásamt eiginkonu sinni.Útför
Eggerts fór fram frá kirkju
Óháða safnaðarins 19. nóv-
ember 2021 að viðstöddum
nánustu fjölskyldu og vinum.
ur. 2) Steinunn
Björk, dætur
hennar eru Kolbún
Edda, Gunnhildur
og Elísabet. 3)
Svava María, synir
hennar eru Flóki,
Tumi og Atli. Dótt-
ir með maka II,
Guðrúnu Brynj-
ólfsdóttur, 1)
Bryndís Erla, maki
Gísli Geir Harð-
arson, börn þeirra eru Krist-
rún Lilja, Tómas og Sigurlaug.
Stjúpbörn Eggerts eru: 1) Jac-
queline, dóttir hennar er Cel-
ine og Maurice, maki Gerður
Pálmadóttir, dætur hans eru
Karitas og Kamilla.
Eftirlifandi eiginkona Egg-
erts er Gabriele Jóhannesson
en þau voru gift í 33 ár.
Eggert Jóhannesson er látinn
83 ára að aldri. Eggert á langa
sögu sem knattspyrnuþjálfari,
en hann hóf knattspyrnuþjálf-
araferil sinn hjá uppeldisfélagi
sínu Víkingi þar sem hann starf-
aði í mörg ár og átti farsælan
feril þar. Auk þess að þjálfa hjá
Víkingi kom hann víða við, fór
meðal annars til Færeyja að
þjálfa lið B-36 og var þar í
nokkurn tíma. Er heim kom
gerðist hann þjálfari hjá Víði
Garði og fleiri félögum. Ég
kynntist Eggerti náið eftir að
stofnfundur knattspyrnuþjálf-
arafélagsins (KÞÍ) var haldinn í
hátíðasal Austurbæjarskóla fyr-
ir réttum 50 árum, en á þeim
fundi sátum við Eggert ásamt
nokkrum áhugasömum knatt-
spyrnuþjálfurum. Aðalhvata-
maður að þessum stofnfundi var
Albert Guðmundsson sem þá
var formaður KSÍ. Eggert tók
við formennsku félagsins af
fyrrum formönnum KÞÍ, þeim
Sölva Óskarssyn sem var fyrsti
formaður og Þórhalli Stígssyni.
Eggert fékk undirritaðan til að
vera með sér í stjórn sem varði
í ein tíu ár. Eggert var mjög
áhugasamur um hag KÞÍ og í
hans formannstíð varð KÞÍ aðili
að stofnun Knattspyrnuþjálfara-
félags Evrópu sem var mikið
framfaraspor fyrir knattspyrnu-
þjálfara í Evrópu og ekki síst
hér á landi, en við það opnuðust
leiðir á námskeið og ráðstefnur í
ýmsum löndum. Samskipti okk-
ar Eggerts hafa alltaf verið
mikil og náin í gegnum tíðina,
eða allt til þess tíma að hann
veiktist af þeim sjúkdómi sem
felldi hann að lokum. Ég náði að
heimsækja Eggert rétt fyrir
andlát hans og var mikið af hon-
um dregið en hann hafði þó
þrek til að teikna upp nokkrar
æfingar fyrir okkur sem sýndi
hvar hugur hans lá. Ég vil að
lokum þakka Eggerti fyrir sam-
veruna og vináttuna á okkar
langa knattspyrnuþjálfaraferli.
Ég flyt kveðju frá stjórn Knatt-
spyrnuþjálfarafélags Íslands
með þökk fyrir hans mikla starf
í þágu félagsins. Ég sendi fjöl-
skyldu Eggerts mínar dýpstu
samúðarkveðjur.
Lárus Loftsson.
Eggert Kristinn Jóhannes-
son, heiðursfélagi og fv. knatt-
spyrnuþjálfari Víkings, hóf fer-
ilinn í yngri flokkunum árið
1955 og hafði þá þegar tekið
flestar þjálfunargráður sem í
boði voru hér á þeim tíma.
Þjálfaraferill hans spannaði lið-
lega 50 ár, samhliða annarri
vinnu, og var afar glæsilegur.
Áhersla hans var ekki á kraf-
taknattspyrnu þar sem þeir lík-
amlega sterkustu unnu, heldur
að leika af lipurð, snerpu og út-
sjónarsemi með boltann og taka
ætíð mið af aðstæðum á vell-
inum. Þetta hugnaðist vel strák-
unum í Víkingshverfinu á sjötta
áratug síðustu aldar, enda létu
sigrarnir ekki á sér standa.
Fyrsta mótið sem vannst, með
fádæma yfirburðum, undir
stjórn Edda var haustmót 5.
flokks árið 1959. Þá hafði félag-
ið ekki unnið titil í knattspyrnu
frá því árið 1940. Af þessum
haustmeisturum 1959 héldu sex
áfram upp í meistaraflokk fé-
lagsins undir stjórn Edda í all-
nokkur ár og og náðu góðum ár-
angri.
Félagið hafði þá ekki starfað
nema tæpan áratug í hverfinu
við heldur bágar aðstæður til
útiæfinga jafnt sem starfsemi
innanhúss og félagsheimilið var
leigt út til skólahalds í þessu
barnmarga hverfi svo að að-
gangur að því var mjög tak-
markaður mikinn hluta ársins.
Þá tók Eddi til sinna ráða og
var meðal annars með töfluæf-
ingar fyrir leiki heima hjá sér á
Sogavegi. Fyrir keppnisferðir í
leiki úti á landi leigði hann oft-
ast rútu, á góðum kjörum, og
keyrði sjálfur fram og til baka
með hópinn. Eitt sinn vorum við
á ferðalagi eftir leik við Þrótt í
Neskaupstað á leið til Akureyr-
ar, Eddi við stýrið og komin há-
nótt. Í Mývatnssveit sá hann að
lengra yrði ekki haldið áfram
með piltana, úrvinda eftir leik-
ina og hossið á malarvegunum,
stansaði við fjárrétt sem þarna
var og lét mannskapinn leggja
sig við réttarvegginn. Allir
vöknuðu svo stálslegnir um
morguninn og Eddi hélt áfram
suður með hópinn.
Víkingur komst fyrst upp í
efstu deild í knattspyrnu árið
1969. Þann viðburð í sögu fé-
lagsins þótti Edda einna vænst
um, en líka sigurinn í bikar-
keppninni í nóvember tveimur
árum síðar, eða fyrir 50 árum.
Þar var Eddi við stjórnvölinn
sem fyrr.
Eddi var heimsborgari og gat
gert sig skiljanlegan á mörgum
tungumálum. Þegar liðið fór í
Evrópukeppni bikarhafa til Var-
sjár í Pólandi 1972 átti hann
ekki í neinum vandræðum með
að gera sig skiljanlegan við Pól-
verjana, talaði við þá einhvers
konar sambland af þýsku og
Niðurlanda-flæmsku, eins og
hann orðaði það sjálfur, og allir
skellihlógu.
Sjálfur var Eddi heldur slak-
ur knattspyrnumaður, þungur
og seinn vinstri bakvörður
lengst af, en í þjálfunarhlut-
verkinu naut hann sín til fulls,
afar skipulagður, glöggur og
fljótur að átta sig. Þar naut
hann þess einnig hversu stál-
minnugur hann var á gang allra
leikja, jafnvel eftir áratugi,
hæfileiki sem vakti ætíð undrun
og má teljast snilligáfa.
Við Víkingar höfum nú kvatt
einn af bestu sonum félagsins.
Eiginkonu hans og börnum fær-
um við innilegar samúðarkveðj-
ur.
Áfram Víkingur!
Ólafur Þorsteinsson.
Eggert Kr.
Jóhannesson
✝
Elísabet Guð-
mundsdóttir
fæddist 22. júní
1924 í Rómarborg
á Ísafirði. Hún lést
á Hömrum hjúkr-
unarheimili í Mos-
fellsbæ 14. nóv-
ember 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Guðm.
Þorlákur Guð-
mundsson skip-
stjóri frá Meiribakka í Skála-
vík, f. 22. maí 1888, d. 15.
september 1944, og k.h. Mar-
grét Jónsdóttir frá Kirkjubæ
við Skutulsfjörð, f. 3. mars
1894, d. 12. maí 1966. Systkini
hennar: Páll, f. 23. ágúst 1922,
d. 1. júlí 2010, Hildur, f. 11.
ágúst 1925, d. 11. nóvember
2013, Margrét, f. 17. mars 1928,
d. 1. júlí 2010, Guðrún, f. 24.
febrúar 1932.
ínu Karlsdóttur, eiga þau fimm
börn og átta barnabörn. 2)
Helga, gift Roman Cakir, Helga
á eina dóttur og eitt barnabarn.
3) Bjarni, kvæntur Ingibjörgu
Jónu Jónsdóttur, á hann einn
fósturson og tvö barnabörn.
Eftir að Elísabet lauk námi
frá Kvennaskólanum var hún
við verslunarstörf í Ísafold og
Feldinum. Síðar keypti hún
ásamt Guðrúnu systur sinni og
Guðbjörgu Björnsdóttur Hann-
yrðaverslun Ágústu Svendsen
en ekki fylgdi nafnið. Fékk
verslunin nafnið Refill og var í
Aðalstræti 12. 1963 fór fjöl-
skyldan til Austur-Þýskalands,
þar sem Hjörtur annaðist eft-
irlit með smíði 12 fiskiskipa í
tvö ár fyrir íslenskar útgerðir.
Eftir heimkomu fór Elísabet að
vinna hjá Íslenskum heimilis-
iðnaði og lagði áherslu á gömlu
veggteppin eins og riddara-
teppin. Einnig vann hún í Nál-
inni og Antikhúsinu. Síðustu
tvö árin dvaldi hún á Hömrum
hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ.
Hún var jarðsungin 19.
nóvember 2021 frá Fossvogs-
kirkju.
Fjölskyldan
flutti til Reykjavík-
ur þegar Elísabet
var þriggja ára og
bjó á Ránargötu
8a.
Elísabet giftist
9. mars 1951 Guð-
mundi Hirti
Bjarnasyni, f. 27.
desember 1920 í
Reykjavík, d. 30.
júlí 1993. Foreldr-
ar hans voru Bjarni Sigurðsson,
f. 15. júlí 1881, frá Torfastöðum
í Jökulsárshlíð N-Múlasýslu, d.
23. apríl 1930, og k.h. Helga
Magnúsdóttir, f. 19. desember
1894, frá Svignaskarði Mýra-
sýslu, d. 28. maí 1953. Elísabet
og Hjörtur bjuggu alla tíð í
Skipholti í Reykjavík þótt hún
hafi aldrei ætlað að flytja aust-
ur yfir læk. Börn þeirra eru: 1)
Guðm. Þorlákur, kvæntur Katr-
Nú er pabbi búinn að byggja
húsið fyrir þig, mamma. Síð-
ustu árin þín, þegar heilsan
brást á stundum og læknir
spurði þig á bráðadeildinni um
lífslok, svaraðir þú alltaf: „Ég
er ekki komin hingað til að
deyja, Hjörtur er ekki búinn að
byggja húsið fyrir okkur.“ Lífs-
vonin var þér svo sterk og
hjartað gott. Varst á 98. ári. Þú
varst stolt af því að vera fædd í
Rómarborg á Ísafirði og for-
eldrarnir báðir Vestfirðingar.
Þótt þið flyttuð til Reykjavíkur
þegar þú varst þriggja ára
sagðir þú alltaf „heim til Ísa-
fjarðar“.
Fjölskylduheimilið í Reykja-
vík var á Ránargötu 8a, þar var
mjög gestkvæmt á árum áður.
Eftir Miðbæjarskólann fórstu í
Kvennaskólann og átti það vel
við þig, hannyrðir voru þitt
áhugamál. Eftir skólagöngu
fórstu að vinna í Ísafold, síðan í
Feldinum. Eftir stuttan tíma
þar sagðir þú upp og þegar
spurt var hvers vegna þá sagðir
þú: „Ég kann ekki að ljúga.
Hingað koma konur sem vilja
kaupa þessar fallegu kápur en
þær fara þeim ekki, ég get ekki
prangað þeim inn á þær, svo
segja þær út um allan bæ:
„Lísa seldi mér kápuna“.“
Þennan sama dag kom fröken
Arndís Björnsdóttir, eigandi
Hannyrðaverslunar Ágústu
Svendsen, inn, þú spurðir:
„Hvernig get ég aðstoðað yð-
ur?“ „Ég vil fá yður í vinnu hjá
mér, ég þekki til yðar, þér eruð
mikið í saumaskap og þegar þér
fáið lánað módel eruð þér fyrst-
ar allra til að skila.“ Seinna
keyptir þú, Guðrún systir þín
og Guðbjörg Björnsdóttir versl-
unina því fröken Arnheiður,
sem var nýráðin við Þjóðleik-
húsið, sagðist ekki geta verið á
ríkislaunum og verið í versl-
unarrekstri. Nafninu var breytt
í Refil.
Árið 1944 var þér erfitt; 15.
september fórst faðir þinn á sjó
og 10. nóvember fórst með
Dettifossi unnusti þinn, Hlöð-
ver Óliver Ásgrímsson, en þið
ætluðuð að gifta ykkur eftir
þennan túr. En öll él birtir upp
um síðir. Nokkrum árum seinna
hafðir þú á orði við Víví, norska
herhjúkku, vinkonu þína, að
það væri svo sætur strákur
fluttur neðar í Ránargötuna
með móður sinni og yngri bróð-
ur. Þig langaði að hafa sam-
band við hann. Víví segir: „Ég
skrifa honum!“ Víví braut svo
saman miða og skaut honum
inn um gluggann til hans með
teygjubyssu. Skilaboðin voru
skýr: „Hittu mig í Kaffihöllinni.
Lísa,“ og Hjörtur kom. Þið gift-
uð ykkur 9. mars 1951 og flutt-
uð austur yfir læk í Skipholtið
þótt þú hafir sagst aldrei ætla
að gera það.
Árið 1963 fórum við til Boi-
zenburg í Austur-Þýskalandi,
nýlega búið að loka járntjaldinu
en við gátum farið vestur yfir
að vild. Eftir nokkurn tíma á
hóteli voru tvö herbergi tekin á
leigu; ekkert baðherbergi, eld-
hús né þvottaaðstaða, kamar úti
í garði, allt kolakynt. Eitt sinn
bauð „Werftið“ til samsætis og
vildu yfirmenn bjóða þér drykk,
þú baðst um koníak. Fékkst
austurþýskt „koníak“, spurt var
hvernig bragðaðist. „Það er
eins og vatnið á Íslandi!“ Var
þetta svar þekkt um allan bæ
og við systkinin spurð hvort
þetta væri rétt.
Margar konur nutu leiðsagn-
ar þinnar við sauma og hand-
bragðs við uppsetningu vegg-
teppa og refla. Hannyrðir og
saumaskapur var þitt. Saum-
aðir upphluti á stelpurnar og
Kötu. Eftir að þú varðst ein
dvaldir þú langdvölum hjá
Helgu í Sviss en alltaf vildir þú
vera heima um jólin og njóta
aðventunnar. Varst eftirtektar-
verð kona og hafðir næmt auga
fyrir fegurð. Við fjölskyldan
þökkum þér fyrir hlýju, fórn-
fýsi, stuðning og umhyggju.
Guð blessi þig.
Þorlákur Guðmundsson.
Elsku hjartans amma Lísa,
það er mér erfitt að hefja þessi
skrif en á sama tíma er ég upp-
full af þakklæti, kærleik og
stolti.
Ég er svo þakklát fyrir það
dásamlega samband sem við
áttum og allar okkar dýrmætu
samverustundir, alveg frá barn-
æsku minni fram til þinnar
hinstu stundar. Við vorum mikl-
ar vinkonur alla tíð og eru þær
óteljandi hinar ómetanlegu
minningar sem ég á með þér,
hvort sem það voru bara við
tvær, ásamt Nonna og stelp-
unum okkar eða í enn stærri
hópi. Ég gæti skrifað margra
bóka seríu um okkar minningar
og allt sem þú kenndir mér en
það geymi ég í hjartanu og mun
ylja mér um ókomna tíð. Kær-
leikur er það sem ég finn svo
sterkt fyrir þegar ég hugsa til
þín, því þú umvafðir allt og alla
í kringum þig með kærleik og
ást. Stolt er ég líka af þér
amma, því alltaf varstu svo góð,
hlý, glöð og umfram allt þakk-
lát fyrir allt, sérstaklega fólkið
þitt. Það var líka svo dásamlegt
hvað þú hafðir mikinn húmor
og gátum við hlegið endalaust
saman í „Litla Skipholti“.
Þótt það sé svo sárt að
kveðja þig, þá er ég líka þakk-
lát fyrir að þú sért nú komin í
faðminn hans afa Hjartar, létt á
tá þar sem ég sé ykkur fyrir
mér dansandi saman á ný.
Elsku amma mín, ég elska
þig, mun ávallt sakna þín og
minning þín mun ávallt fylgja
mér og mínum. Takk fyrir allt!
Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við
dvelur
og fagrar vonir tengdir líf mitt við,
minn hugur þráir, hjartað ákaft sakn-
ar,
er horfnum stundum ljúfum dvel ég
hjá.
Heyrirðu ei, þig hjartað kallar á?
Heyrirðu ei storm er kveðju mína
ber?
Þú fagra minning eftir skildir eina,
sem aldrei gleymist meðan lífs ég er.
(Valdimar Hólm Hallstað)
Þín
Elísabet Guðmunds-
dóttir (Lísa).
Elísabet, Margrétar- og Guð-
mundardóttir er látin í hárri
elli.
Sextíu og fimm ár, 65, eru
liðin síðan ég sá Lísu fyrst –
hjá Sigríði Jónsdóttur móður-
systur hennar, sem var tengda-
mamma mín. Hún átti heima „í
leiðinni“ hjá þeim sem áttu er-
indi í miðbæinn, en við Hörður
bjuggum í skjóli Sigríðar fyrstu
þrjú hjúskaparár okkar. Sigríð-
ur var þeirrar gerðar að hún
átti alltaf til eitthvað gott með
kaffinu, (stundum of gott fyrir
mig!) enda komu ættingjar og
vinir ævinlega við á Klappar-
stígnum þegar þeir áttu leið í
bæinn, þar á meðal Hjörtur og
Lísa. Þessi unga svipmikla
kona, með dökka haddinn og
augun brúnu var flott kona.
Þetta var árið 1956 og Lísa um
þrítugt. Á efri árum Lísu fylgd-
umst við með glæsilegri hefð-
arkonu með óbrigðult minni og
mikla frásagnargáfu; og hvern-
ig sem hún fór nú að því, þá
mundi hún eftir okkur öllum og
lét í sér heyra með hamingju-
óskum þegar við áttum afmæli
og brosmild rödd hennar,
stundum utan úr heimi, tók ut-
an um okkur og hélt tengsl-
unum við. Lísa var fádæma
ræktarsöm við stórfjölskyldu
sína á þann umhyggjusama hátt
sem hennar kynslóð var í blóð
borið, hún sýndi Sigríði móð-
ursystur sinni ræktarsemi á
hennar efri árum, og man ég
vel eftir þegar hún heimsótti
mig á spítala fyrir u.þ.b. tíu ár-
um og stappaði í mig stálinu
þegar ég lenti óvænt í áfalli og
gat mig hvergi hrært.
Talandi um minni; gamlir
Vesturbæingar og Vestfirðing-
ar hefðu kunnað að meta þá
sögu Reykjavíkur sem hún bjó
yfir. Verslunar- og hannyrða-
sagan hlýtur að hafa verið
samgróin Lísu. Ég hef í huga
verslunina Refil í Aðalstræti
þar sem þær Elísabet og Guð-
rún systir Lísu ásamt starfs-
systur þeirra hösluðu sér völl
og voru óþreytandi við að þjóna
íslenskum hannyrðakonum og
skaffa mynstur og efni í þá
handavinnuhefð sem gilti um
þær mundir.
Sjálf dvaldi Elísabet löngum
við sauma í félagsskap Gunn-
hildar drottningarmóður. Mig
grunar að þeim komi vel saman
þar sem hún situr núna og
saumar sögu hennar í dúk.
Takk Lísa fyrir að vera sú
sem þú varst, blanda af Spán-
verja, Ísfirðingi og Vesturbæ-
ingi. Þú varst byrjunin á því
sem framtíðin ber í skauti sér,
þegar genin okkar sem nú er-
um uppi sameinast um að skapa
nýjar kynslóðir á okkar elskuðu
en forsómuðu Móður Jörð.
Við Hörður Rafn Daníelsson
náfrændi Elísabetar vottum
fjölskyldu og afkomendum El-
ísabetar Guðmundsdóttur sam-
úð okkar, nú, þegar þessi merk-
iskona kveður þennan heim
eftir langa og litríka ævi.
Kristín Þorkelsdóttir
Elísabet
Guðmundsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar