Morgunblaðið - 04.12.2021, Page 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021
50 ÁRA Víðir er Dalvíkingur
að uppruna, fæddist þar og ólst
upp en býr í Garðabæ. Hann er
með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði
frá Háskólanum á Bifröst og
MBA frá ESIC í Madríd. Hann
er fasteignasali og annar eig-
enda fasteignasölunnar Domus-
nova ásamt Óskari Má Alfreðs-
syni. „Domusnova var keypt árið
2013. Þetta er búið að ganga
mjög vel, í upphafi vorum við
tveir starfsmenn en í dag eru
starfsmenn orðnir 32 talsins.
Það er farið að hægjast töluvert
á fasteignamarkaði vegna minna
framboðs enda búið að ganga
mikið á síðustu ár.“
Víðir situr í stjórn Geðvernd-
arfélags Íslands og starfar fyrir
góðgerðasamtökin Röddin mín.
„Það er nýtt verkefni sem snýst um að safna fyrir gerð svokallaðs hljóð-
gervils sem gerir fólki, sem sér fram á að missa rödd sína vegna sjúk-
dóms, kleift að lesa inn sína eigin rödd sem svo er notuð af talgervli.“
Hægt er að fræðast nánar um verkefnið á Facebook-síðunni Röddin mín
styrktarsjóður.
Áhugamál Víðis eru ferðalög, siglingar og fjölskyldan „Ég held ég hafi
sjaldan ferðast eins mikið erlendis og eftir covid. Ég var til að mynda í
góðra vina hópi sem fór til Króatíu í sumar og við sigldum þar á skútu.
Lögðum upp frá Split og þar út frá eru fimm til sex eyjar sem við sigldum
á milli. Frábær staður og gaman að sigla þarna.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Víðis er Sigríður Þorbjörg Sigurjónsdóttir, f.
1971, förðunarfræðingur. Börn þeirra eru Mikael Nói, f. 2002, Oliver
Tumi, f. 2005, og Nadía Mist, f. 2010. Dóttir Víðis af fyrra sambandi er
Margrét Ósk, f. 1992. Foreldrar Víðis eru Kristján Jónsson, f. 1945, fv.
verkstjóri, og Inga Margrét Ingólfsdóttir, f. 1949, fv. skrifstofumaður.
Þau eru búsett í Hveragerði.
Víðir Arnar Kristjánsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þér er alveg óhætt að njóta þess
að þér hefur tekist að ljúka við vandasamt
verkefni á tilsettum tíma. Leyfðu þér að
slaka aðeins á, þú átt það skilið.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þér finnst eins og ráðist sé að þér úr
öllum áttum og kannski er það satt.
Breyttu viðhorfi þínu til erfiðrar aðstöðu og
haltu ótrauður áfram.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er mikilvægt að einfalda
hlutina og taka til í skápum og geymslum.
Flýttu þér hægt því tíminn vinnur með þér.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Gættu þín í umgengni við aðra,
einkum þá sem þú hefur ekki ástæðu til að
telja á þínu bandi. Það gengur ekki allt upp
eins og þú hafðir spáð.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Umræðuefnið sem þú bryddar upp á
á eftir að hafa mikil áhrif á það sem gerist.
Líttu á þetta sem tækifæri til að leysa úr
gömlum hnútum.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Hafðu ekki of miklar áhyggjur af
öðru fólki því þú þarft að hafa tíma fyrir
sjálfan þig. Láttu þig dreyma! Ekki þykjast
vita hvað fólk er að hugsa í kvöld.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú ert ekki alveg með báða fætur á
jörðinni þessa dagana. Reyndu að gefa þér
tíma til einveru á næstu vikum.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Dagurinn í dag er kjörinn til
þess að losa sig við alls kyns drasl sem
safnast hefur fyrir. Vertu óhræddur við að
kanna nýjar leiðir og taka einhverja áhættu.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Gættu þess að sækja mál þitt
ekki of fast því þá getur allt farið úr bönd-
um. Allir þurfa að eiga sér undankomuleið,
hvernig sem viðrar í mannlífinu.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Einhverjir eru að reyna að rugla
þig í ríminu. Hæfileiki þinn til að vera
sveigjanlegur vekur hrifningu hjá sam-
starfsfélögum og sjálfum þér.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Gættu þess að tala tæpitungu-
laust svo enginn þurfi að fara í grafgötur
um hvað það er sem þú vilt. Bjóddu þeim
sem þú hefur augastað á út.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er affarasælast að vita gjörla
með hverjum maður deilir sínum innstu
skoðunum. Að öðrum kosti verðurðu óvin-
sæll meðal vina þinna.
Grænland, norðan við Svalbarða,
það er nánast allt Atlantshaf undir.“
Eiríkur fer út á sjó í byrjun jan-
úar, en hann er oftast eini Íslending-
urinn í áhöfninni. „Við erum stund-
um tveir en restin af áhöfninni er frá
Eistlandi og Úkraínu. Þetta eru öfl-
ugir og traustir menn. Þeir bera
óttablandna virðingu fyrir skipstjór-
anum og gera það sem þeim er sagt
og röfla ekkert yfir því.“
Áhugamál Eiríks eru íþróttir, úti-
vist og veiðiskapur af öllu tagi. „Ég
hef alla ævi reynt að vera í góðu
þeirri útgerð í meira en fimmtán ár.
Eiríkur nær að halda jólin heima hjá
fjölskyldu sinni í fyrsta skipti í mörg
ár, en erlendis eru nánast hvergi
reglur um að ekki skuli sigla á jól-
unum. „Maður má vera úti hvenær
sem er og hve lengi sem er. Það hef-
ur komið fyrir að ég hafi verið alveg
upp í fjóra mánuði á sjó án þess að
koma heim. En þetta er spennandi
umhverfi, fyrir fiskimann þá er gam-
an að geta verið meira en bara á Ís-
landsmiðum. Við erum alls staðar,
við Kanada, Vestur- og Austur-
E
iríkur Sigurðsson
fæddist 4. desember
1961 á Húsavík og bjó
þar þangað til hann
flutti til Reykjavíkur
árið 1995. „Lífið hefur alltaf snúist
um sjóinn og ég hef aldrei unnið ær-
legt handtak í landi. Var byrjaður að
beita línu sem smástrákur og farinn
að róa á trillu með pabba og fleirum
fyrir fermingu. Þegar ég var 14 ára
var ég ráðinn háseti á hið fræga afla-
skip Gísla Árna RE 375 með skip-
stjórunum Eggerti Gíslasyni og Sig-
urði Sigurðssyni, föður mínum. Það
var mikil reynsla fyrir ungan dreng
en hrikalega erfitt og ég hef aldrei
síðar á ævinni verið eins þreyttur og
þá. Sofnaði stundum standandi.“
Eiríkur var í grunnskóla á Húsa-
vík og þegar hann hafði aldur til fór
hann í Stýrimannaskólann og lauk
honum í Vestmannaeyjum árið 1982
með hæstu einkunn sem tekin hefur
verið úr þeim skóla frá upphafi.
Fljótlega eftir námið var Eiríkur
orðinn skipstjóri og hefur verið það
síðan á ýmsum skipum en mest
frystitogurum. Hann var t.d. skip-
stjóri á Hágangi II á tímum Sval-
barðadeilna þegar norska freigátan
Senja skaut á skipið árið 1994. Skrif-
aði Eiríkur grein um málið í Viku-
blaðið árið 2015.
Þegar Eiríkur var skipstjóri á
Pétri Jónssyni RE 69 bjargaði hann
og áhöfn hans 15 manna áhöfn af
sökkvandi skipinu Gideon á
Flæmska hattinum árið 2005, en
ekki var þó allt með felldu hvernig
það skip sökk. „Rannsóknarnefnd
sjóslysa í Lettlandi, en skipið var
skráð þar, þótt eigendurnir væru ís-
lenskir, fullyrti að skipinu hefði verið
sökkt. En skipið er á mörg hundruð
metra dýpi og það er ekki hægt að
kafa eftir sönnunargögnunum. Það
náðist því að svindla á trygginga-
félögunum, en það vita allir að
Gideon var sökkt.“ Eiríkur hefur
einnig skrifað grein um þetta mál, en
hann hefur skrifað margar greinar í
sjómannablöðin og fleiri blöð.
Síðustu tíu ár hefur Eiríkur verið
skipstjóri á eistneska togaranum
Reval Viking sem Reval Seafood
gerir út, en hann hefur unnið hjá
formi og stundað allskonar hreyf-
ingu. Var í fótbolta í Völsungi á
Húsavík þangað til ég fór á sjóinn
en hef síðan stundað skíðagöngu af
kappi, hljóp mikið á tímabili og hef
stundað fjallgöngur. Ég hef tekið
þátt í ýmsum löngum skíða-
göngukeppnum eins og t.d. hinni
90 km löngu Vasagöng í Svíþjóð.
Hef líka verið mikið að kenna á
skíðagöngunámskeiðum hjá Ulli,
skíðagöngufélagi höfuðborgar-
svæðisins. Annars er helsta áhuga-
málið að fylgja dætrunum eftir í
Eiríkur Sigurðsson skipstjóri – 60 ára
Fjölskyldan Eiríkur, Guðrún og dætur í skíðaferð í Chamonix við Mont Blanc árið 2019.
Á sjónum í nærri hálfa öld
Mæðgurnar Þrjár systur í fyrsta skipti á Íslandi í byrjunarliði í Meistara-
deild Evrópu, árið 2020. Guðrún móðir þeirra og Bryndís yngsta systirin
voru starfsmenn. F.v. Arna, Málfríður Anna, Guðrún, Bryndís og Hlín. Skipstjórinn Eiríkur Sigurðsson.
Til hamingju með daginn