Morgunblaðið - 04.12.2021, Síða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021
4.$--3795.$
England
B-deild:
Fulham – Bournemouth .......................... 1:1
Staða efstu liða:
Fulham 21 13 5 3 50:17 44
Bournemouth 21 12 7 2 37:17 43
QPR 20 10 5 5 33:25 35
WBA 20 9 7 4 27:16 34
Blackburn 20 9 6 5 34:27 33
Coventry 20 9 6 5 27:23 33
Stoke City 20 9 4 7 24:21 31
Huddersfield 20 8 4 8 23:23 28
Swansea 20 7 6 7 25:26 27
Millwall 20 6 9 5 20:21 27
Blackpool 20 7 6 7 20:22 27
Middlesbrough 20 7 5 8 23:23 26
Sheffield Utd 20 7 5 8 25:26 26
Birmingham 20 7 5 8 19:21 26
Þýskaland
Eintracht Frankfurt – Potsdam ............ 3:3
- Alexandra Jóhannsdóttir var ónotaður
varamaður hjá Eintracht Frankfurt.
Staðan:
Wolfsburg 9 7 1 1 24:7 22
E. Frankfurt 10 7 1 2 25:11 22
Bayern München 9 7 0 2 31:6 21
Hoffenheim 9 6 2 1 24:12 20
Turbine Potsdam 10 6 2 2 25:15 20
Leverkusen 9 5 0 4 17:15 15
Freiburg 9 3 1 5 13:14 10
Essen 9 2 2 5 11:16 8
Köln 9 2 2 5 9:22 8
Werder Bremen 9 2 2 5 3:20 8
Carl Zeiss Jena 9 0 2 7 3:30 2
Sand 9 0 1 8 2:19 1
Frakkland
B-deild:
Rodez – Nimes.......................................... 1:0
- Elías Már Ómarsson lék fyrstu 78 mín-
úturnar með Nimes.
Danmörk
B-deild:
Fredericia – Horsens .............................. 0:2
- Aron Sigurðarson lék fyrstu 65 mínút-
urnar með Horsens og skoraði, Ágúst Eð-
vald Hlynsson kom inn á sem varamaður á
87. mínútu.
Freyja Birkisdóttir vann til brons-
verðlauna í 400 m skriðsundi
kvenna á Norðurlandameistara-
mótinu í sundi í gær en mótið fer
fram í Våsby í Svíþjóð. Freyja synti
á tímanum 4:20,19 en Thilda Häll
frá Svíþjóð kom fyrst í mark á tím-
anum 4:13,32. Þá synti Eva Margrét
Falsdóttir 200 m bringusund á tím-
anum 2:32,94 og varð fjórða en það
munaði aðeins 23/100 á fjórða og
þriðja sætinu. Steingerður Hauks-
dóttir synti einnig í úrslitum í 50 m
baksundi í gærkvöldi og varð í
fimmta sæti.
Freyja fékk
brons í Våsby
Ljósmynd/Sundsamband Íslands
3 Freyja Birkisdóttir hafnaði í
þriðja sæti í 400 m skriðsundi.
Handknattleiksmaðurinn Arnór
Þór Gunnarsson hefur ákveðið að
leggja landsliðsskóna á hilluna eftir
langan og farsælan feril þar sem
hann tók þátt í níu stórmótum. Arn-
ór Þór, sem er 34 ára gamall, var
fyrirliði íslenska liðsins á HM 2020 í
Egyptalandi en hann var fyrst val-
inn í landsliðið árið 2008. Arnór
Þór er í 35 manna æfingahópi
landsliðsins fyrir EM 2021 og ætlar
að vera til taks ef hinir þrír hægri
hornamennirnir heltast úr lestinni,
að öðru leyti gefur hann ekki kost á
sér í mótið.
Hættur að leika
með landsliðinu
Morgunblaðið/Eggert
Hættur Arnór hefur ákveðið að
leggja landsliðsskóna á hilluna.
HANDBOLTI
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Karlalið FH fór á topp úrvalsdeild-
arinnar í handknattleik, Olís-
deildarinnar, með sterkum 28:24-sigri
gegn erkifjendum sínum og nágrönn-
um í Haukum síðastliðinn miðviku-
dag. Fyrir leikinn voru Haukar í efsta
sætinu og sigurinn því sérstaklega
sætur. Eftir fremur hæga byrjun þar
sem tveir af fyrstu þremur leikjunum
töpuðust hafa FH-ingar tekið afar vel
við sér með því að vinna sjö og gera
eitt jafntefli í næstu átta leikjum.
„Við erum með nýtt lið. Einar
[Rafn Eiðsson] og Freysi [Arnar
Freyr Ársælsson] fóru í KA. Þetta
eru miklu yngri strákar núna. Þetta
var erfið byrjun í deildinni þar sem
við töpuðum á móti Selfossi og ÍBV.
Við skoruðum ekki nógu mikið af
mörkum í þessum leikjum og töp-
uðum svo stórt heima á móti Minsk í
Evrópukeppni. Eftir þann leik sáum
við að við þyrftum að vera sterkari
líkamlega.
Til þess að undirbúa okkur sem
best fyrir seinni leikinn í Minsk æfð-
um við í fimm daga. Það var ekkert
hugsað um þeirra lið, það var bara
fókus á handbolta og bara á okkar lið.
Þetta var mjög góður tími fyrir liðið.
Svo unnum við Minsk í seinni leiknum
og allir hafa eftir það tekið næstu
skref leik fyrir leik. Þannig höfum við
bætt okkur,“ sagði Phil Döhler, þýsk-
ur markvörður FH, í samtali við
Morgunblaðið, spurður hvað hefði
lagt grunn að góðu gengi liðsins und-
anfarið.
Var í miklu stuði
Döhler fór á kostum í leiknum með
Haukum þar sem hann varði 20 skot.
„Ég missti af leiknum gegn Stjörn-
unni, ég æfði ekki handbolta í tíu
daga og var því mjög mótiveraður að
fá að spila handbolta aftur. Ég kom
aftur í leiknum gegn Fram og svo
spilaði ég líka næsta leik gegn Aftur-
eldingu. Gegn Haukum var ég bara
heitur, ég var í þvílíku stuði þar sem
ég vil bara spila handbolta og aftur
handbolta. Þessa tíu daga sem ég var
frá saknaði ég þess mjög mikið. Það
var mikilvægt að vinna þessa leiki á
undan Haukum en leikurinn gegn
þeim er sá stærsti fyrir okkur. Eitt af
því fyrsta sem allir sögðu við mig
þegar ég kom til FH var: „Við verð-
um að vinna Hauka.““
Spurður hvernig það hafi verið að
taka þátt í Hafnarfjarðarslögum þeg-
ar samkomutakmarkanir eru við lýði
sagði Döhler: „Í mínum fyrsta leik
gegn Haukum þegar við unnum þá í
deildinni voru 100, kannski 200 áhorf-
endur. Svo í næsta leik gegn þeim
voru um 1.000 áhorfendur og ég
hugsaði bara: „Úff, þetta er FH –
Haukar!“ Ég hef saknað áhorfend-
anna þegar það hafa verið takmark-
anir á þessum Covid-tíma. Ég hef séð
það að undanförnu að áhorfendur
voru komnir aftur að horfa á leiki í
Þýskalandi og það hvetur mann sér-
staklega mikið til dáða. Allir FH-
krakkarnir úr Áslandsskóla voru
mættir í Krikann á miðvikudag að
öskra „Áfram FH!“ og það gefur
manni byr undir báða vængi.
Þessi rígur er sambærilegur rígn-
um á milli Kiel og Flensburg í þýsku
1. deildinni. Í hvert skipti eru tvö af
bestu liðum deildarinnar að spila
hvert við annað. Ég vinn í Áslands-
skóla og þar er meira um Hauka-
krakka en FH-krakka en allir voru
þeir alltaf að spyrja mig: „Hvenær er
leikurinn á móti Haukum?“ og „Hve-
nær er næsti leikur á móti Haukum?“
Það eru fleiri Haukakrakkar í skól-
anum en núna eru yngri og yngri
krakkar að byrja að æfa handbolta
með FH. Ég vinn meira með yngri
krökkum í skólanum og er líka með
markmannsþjálfun fyrir yngri
krakka í FH. Það er mjög gaman,“
sagði hann.
Krakkarnir kenna mér íslensku
Döhler sagði starfið í Áslandsskóla
hafa verið sér dýrmætt og nefndi þar
sem dæmi að nemendurnir, þeir
yngstu á grunnskólastigi, hefðu kennt
sér íslensku. Viðtalið fór einmitt fram
á íslensku. „Ég vinn á föstudögum
með krökkum í skólanum sem starfs-
maður, seinni hluta dagsins í frístund.
Öll íslenskan sem ég hef lært hingað
til er frá krökkunum í skólanum. Ég
var í námi í Þýskalandi en eftir 3-4
mánuði áttaði ég mig á því að það
nám væri ekki rétt fyrir mig. Svo í
Magdeburg fór ég að læra margmiðl-
unarfræði og þá komst ég að þeirri
niðurstöðu að ég vildi vinna með
krökkum þar sem mér finnst það
mjög gaman.
Magdeburg sendi mig stundum í
leikskóla og ég vann þar. Þá vissi ég
hvað ég vildi læra; ég vil læra leik-
skólakennarann. Þegar ég kom til Ís-
lands var reynt að útvega mér starf í
leikskóla en mér var þá sagt að það
yrði erfitt þar sem ég talaði ekki
mikla íslensku. Svo kemur Áslands-
skóli, sem er grunnskóli, til skjalanna
og þar var mér sagt að það væri ekk-
ert mál þótt ég talaði ekki íslensku.
Ég er með krakka sem eru í 1. og 2.
bekk og þeir hafa kennt mér ís-
lensku,“ sagði hann.
Ég elska Ísland
Hann skrifaði á dögunum undir
nýjan tveggja ára samning við FH og
er á sínu þriðja tímabili með Hafn-
arfjarðarliðinu eftir að hafa komið frá
Magdeburg. Döhler er enda afar hrif-
inn af Íslandi og því ekkert fararsnið
á honum. „Já, mér líkar vel á Íslandi.
Það eina sem ég hafði heyrt um Ís-
land var að það væri skjannahvítt,
með snjó alla daga og líka kalt allan
daginn. Svo kom ég til Íslands og það
var allt grænt og mjög fallegt. Ég var
búinn að vera aðeins einn mánuð á Ís-
landi þegar ég hugsaði með mér: „Ég
elska Ísland.“ Mér líkar vel við fólkið
hérna, mér líkar hugsunarháttur
þess, hann er frábrugðinn hugsunar-
hætti Þjóðverja. Mér líkar svo vel að
vera hérna og það að vinna með
krökkum í skólanum er mjög gott fyr-
ir mig.“
En hvernig kom það til að Döhler
endaði á Íslandi? „Ég vildi alltaf
reyna fyrir mér einhvers staðar ann-
ars staðar en í Þýskalandi. Ég hélt að
ég myndi enda á Spáni en endaði svo
á Íslandi. Ég talaði við kærustuna
mína um að flytja eitthvað annað og
hún var til í það og ég gat þannig farið
að einbeita mér að sjálfum mér. Við
ræddum að ég gæti farið hingað og
þangað og ég fór svo á reynslu hér á
Íslandi.
Fyrst var ég með ÍBV en var bara
boðið að æfa en ekki spila. Á þeim
tíma sem ég var að æfa með ÍBV voru
önnur félög farin að hringja, þar á
meðal FH. Þar var mér fyrst boðið að
æfa í tvo daga og sjá hvernig gengi
þar sem FH gæti þurft á markverði
að halda. Strax í byrjun þegar ég var
hérna í Kaplakrika hugsaði ég með
mér að þetta væri indælis félag. Eftir
að hafa æft á reynslu með þeim í viku
var ég orðinn mjög hrifinn af landinu
og fannst allir svo vingjarnlegir og
góðir. Það er alveg stórkostlegt,“
sagði hann að lokum við Morg-
unblaðið.
Ver mark toppliðsins og
lærir íslensku af börnum
- Phil Döhler líkar lífið vel á Íslandi - Hefur átt frábært tímabil með FH
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Einbeittur Phil Döhler hefur leikið vel í marki FH og varði síðast 20 skot í Hafnarfjarðarslagnum gegn Haukum.
4"5'*2)0-#
Subway-deild karla
Njarðvík – Vestri.................................. 98:69
Tindastóll – ÍR...................................... 98:77
Valur – Þór Þ. ....................................... 86:75
KR – Keflavík ..................................... 88:108
Staðan:
Keflavík 8 7 1 714:654 14
Þór Þ. 8 6 2 762:718 12
Tindastóll 8 6 2 702:666 12
Njarðvík 8 5 3 751:678 10
Grindavík 7 5 2 580:551 10
Valur 8 5 3 634:628 10
KR 8 4 4 739:745 8
Stjarnan 7 3 4 620:609 6
ÍR 8 2 6 709:750 4
Vestri 8 2 6 642:700 4
Breiðablik 7 1 6 738:761 2
Þór Ak. 7 0 7 495:626 0
1. deild karla
Fjölnir – Skallagrímur......................... 98:86
Sindri – Haukar .................................... 92:93
Danmörk
Falcon – Sisu ........................................ 51:44
- Þóra Kristín Jónsdóttir skoraði þrjú stig
fyrir Falcon, tók sjö fráköst og gaf tvær
stoðsendingar á 26 mínútum.
Grill 66-deild karla
Hörður – Afturedling U....................... 36:24
ÍR – Kórdrengir ................................... 34:24
Grill 66 deild kvenna
Grótta – FH .......................................... 18:19
ÍR – Stjarnan U.................................... 36:24
HM kvenna
Leikið á Spáni:
A-RIÐILL:
Frakkland – Angóla ............................. 30:20
Svartfjallaland – Slóvenía.................... 18:28
B-RIÐILL:
Rússland – Kamerún ........................... 40:18
Serbía – Pólland.................................... 25:21
C-RIÐILL:
Rúmenía – Íran..................................... 39:11
Noregur – Kasakstan.......................... 46:18
- Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg.
D-RIÐILL:
Holland – Púertó Ríkó ......................... 55:15
Svíþjóð – Úsbekistan ........................... 46:15
Danmörk
Ringsted – Kolding.............................. 34:34
- Ágúst Elí Björgvinsson varði tvö skot í
marki Kolding.
B-deild:
Valence – Nice ..................................... 22:25
- Grétar Ari Guðjónsson varði 15 skot í
marki Nice.
Austurríki
Alpla Hard – HSG Graz ...................... 35:22
- Hannes Jón Jónsson þjálfar Alpla Hard.
%$.62)0-#