Morgunblaðið - 04.12.2021, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 04.12.2021, Qupperneq 41
ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021 Hafa knattspyrnumenn minna jafnvægi en aðrir íþróttamenn? Eru knattspyrnumenn meira eða minna að glíma við einhvers kon- ar ójafnvægi vegna innra eyra eða eitthvað þess háttar? Ég held að það hljóti að vera úti- lokað en þegar tveir fullorðnir menn í blóma lífsins eru uppi- standandi, og annar stjakar við hinum, þá er óeðlilegt að við- komandi falli til jarðar. Meira þarf til eins og við sjáum í öðrum íþróttum. Ef hrinding væri nóg til að missa jafnvægi væru körfu- boltamenn og handboltamenn í gólfinu heilu leikina. Þetta virðist eingöngu gerast í knattspyrn- unni, að menn endi í jörðinni við minnstu snertingu. Sama má segja um mann sem er á hlaupum og maður fyrir aft- an snertir handlegg þess sem er fyrir framan. Það er með öllu óeðlilegt viðbragð að maður skelli í grasinu þegar sá sem er fyrir aftan kemur við annan handlegginn. Ef fingralangur maður tæki á sprett út úr Mela- búðinni með lambalæri, þá myndi hann ekki fara í gang- stéttina þótt starfsmaður versl- unarinnar rétt næði að slæma hendi í annan handleginn. Hvað segir þetta okkur? Þetta er í það minnsta sterk vísbend- ing um að kerfisbundinn óheið- arleiki hafi hreiðrað um sig í knattspyrnunni. Íþrótt sem eitt sinn var kölluð hinn fallegi leikur. Með sama áframhaldi verður íþróttin kölluð leikhús fáránleik- ans. Nú er búið að normalísera alls kyns leikaraskap, sem á sér enga stoð í eðlisfræðinni. Þetta þarf ekki að vera svona. Nýlega sá ég Martin Keown segja frá því að hann sparkaði Mark Hughes niður látlaust í 90 mín- útur í rimmum Arsenal og Man- chester United. Sagði hann Hughes hafa bara staðið upp jafnharðan og að leiknum lokn- um tókust þeir í hendur. Þá virtust menn ekki vilja sýna andstæðingi veikleikamerki. Nú virðast menn vilja sýna öllum heiminum veikleikamerki. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Norska kvennalandsliðið í hand- knattleik, sem Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson þjálfar, lenti ekki í neinum vandræðum í fyrsta leik sín- um á HM á Spáni þegar liðið mætti Kasakstan í C-riðlinum. Noregur vann með 28 marka mun, 46:18. Staðan var 24:10 í hálfleik og leikurinn því algjört formsatriði fyr- ir liðið. Markaskorun dreifðist jafnt á milli leikmanna þar sem Emilie Hov- den skoraði sjö mörk, Camilla Her- rem sex og þær Kari Dale, Marit Ja- cobsen og Sanna Solberg fimm hver. 28 marka sigur í fyrsta leik AFP Auðvelt Þórir þurfti ekki að hafa miklar áhyggjur í leiknum í gær. Davíð Þór Viðarsson hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá FH. Davíð Þór, sem er 37 ára gamall, var aðstoðarþjálfari karla- liðs FH á síðustu leiktíð en lét af störfum að henni lokinni. Fyrst var hann Loga Ólafssyni til aðstoðar og svo Ólafi Jóhannessyni, sem stýrir liðinu áfram næstu tvö tímabil. Davíð Þór lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2019 en alls lék hann 240 leiki með liðinu í efstu deild, þar sem hann skoraði tíu mörk. Alls varð hann sjö sinnum Íslandsmeist- ari með FH. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Yfirmaður Davíð Þór er tekinn við nýju starfi hjá uppeldisfélaginu. Fær nýtt hlut- verk hjá FH KÖRFUBOLTINN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Kristófer Acox átti stórleik fyrir Val þegar liðið vann ellefu stiga sigur gegn Íslandsmeisturum Þórs frá Þorlákshöfn í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Subway-deildinni, í Origo-höllinni á Hlíðarenda í átt- undu umferð deildarinnar í gær. Leiknum lauk með 86:75-sigri Valsmanna en Kristófer skoraði 18 stig í leiknum og tók 14 fráköst. Valsmenn byrjuðu leikinn betur og leiddu með tveimur stigum eftir fyrsta leikhluta, 14:12. Þórsurum tókst hins vegar að snúa leiknum sér í vil og leiddu með sjö stigum í hálf- leik, 43:36. Staðan var jöfn eftir þriðja leik- hluta, 59:59, en í fjórða leikhluta varð algjört hrun hjá Þórsurum sem skoruðu einungis 13 stig gegn 27 stigum Valsmanna. Pablo Bertone skoraði 21 stig og gaf sjö stoðsendingar í liði Vals og þá skoraði Callum Lawson 15 stig gegn sínum gömlu liðsfélögum. Glynn Watson og Davíð Arnar Ágústsson voru stigahæstir Þórsara með 16 stig hvor. Valur er með 10 stig í sjötta sæti deildarinnar en Þórsarar eru í öðru sætinu með 12 stig. Fór á kostum í Vesturbæ David Okeke fór mikinn fyrir Keflavík þegar liðið vann 20 stiga sigur gegn KR á Meistaravöllum í Vesturbæ. Okeke skoraði 24 stig og tók tólf fráköst en leiknum lauk með 108:88-sigri Keflavíkur. KR-ingar byrjuðu leikinn betur og leiddu 31:25 eftir fyrsta leikhluta. Keflvíkingar sneru leiknum sér í vil í öðrum leikhluta og voru fimm stig- um yfir í hálfleik, 55:50. Keflavík leiddi með níu stigum eftir þriðja leikhluta og lét forystuna aldrei af hendi í þeim fjórða. Dominykas Milka skoraði 23 stig og tók níu fráköst fyrir Keflavík og Jaka Brodnik skoraði 17 stig. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var stigahæstur KR-inga með 21 stig. Keflavík er nú með tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar, með 14 stig í efsta sætinu, en KR er með átta stig í sjöunda sætinu. Sterkari á lokamínútunum Taiwo Badmus skoraði 29 stig fyr- ir Tindastól þegar liðið vann nokkuð þægilegan 21 stigs sigur gegn ÍR í Síkinu á Sauðárkróki. Þá tók Bad- mus einnig sex fráköst í leiknum, sem lauk með 98:77-sigri Tindastóls. Tindastóll leiddi með tveimur stigum eftir fyrsta leikhluta, 22:20, og jók forskot sitt hægt og rólega í öðrum leikhluta en staðan í hálfleik var 47:34, Tindastól í vil. ÍR-ingum tókst að laga stöðuna í þriðja leikhluta í 59:70 og tókst að minnka forskot Tindastóls í fjögur stig í fjórða leikhluta, 71:75, þegar sex mínútur voru til leiksloka. Lengra komust ÍR-ingar hins vegar ekki og Tindastóll stakk af á loka- mínútum leiksins. Javon Bess skoraði 22 stig fyrir Tindastól og þá skoraði Sigurður Gunnar Þorsteinsson 15 stig og tók tíu fráköst. Hjá ÍR skoruðu þeir Sig- valdi Eggertsson, Triston Simpson og Collin Pryor allir 16 stig hver. Tindastóll er með 12 stig í þriðja sætinu en ÍR er með fjögur stig í ní- unda sætinu. Stórsigur í Njarðvík Veigar Páll Alexandersson var stigahæstur Njarðvíkinga þegar lið- ið vann stórsigur gegn Vestra í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Leiknum lauk með 98:69-sigri Njarðvíkinga en Veigar Páll skoraði 21 stig í leiknum, tók tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Leikurinn var aldrei spennandi en Njarðvíkingar leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leikhluta, 27:20. Þeir juku forskot sitt jafnt og þétt í öðr- um leikhluta þar sem Vestra tókst einungis að skora 12 stig gegn 25 stigum Njarðvíkinga. Njarðvík leiddi 52:32 í hálfleik og leikmenn Vestra voru aldrei líklegir til þess að snúa leiknum sér í vil í síðari hálf- leik. Landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson var að leika sinn fyrsta leik fyrir Njarðvík á tímabilinu en hann skoraði tvö stig, tók tvö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar á sautján mínútum. Alejandro Rubiera var stigahæstur Vestra-manna með 12 stig og níu fráköst. Njarðvík er með 10 stig í fimmta sætinu en Vestri er í því tíunda með fjögur stig. Morgunblaðið/Árni Sæberg 15 Callum Lawson í baráttunni við Ronaldas Rutkauskas í Origo-höllinni á Hlíðarenda í gærkvöldi. Lawson skoraði 15 stig gegn sínum gömlu félögum í Þór frá Þorlákshöfn þegar Valur hafði betur í hörkuleik. Stórleikur gegn meisturunum - Keflavík tyllti sér á toppinn eftir öruggan sigur gegn KR í Vesturbæ HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Origo-höllin: Valur – HK ....................... L14 TM-höllin: Stjarnan – KA/Þór .............. L16 Framhús: Fram – Haukar ..................... L18 Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Eyjar: ÍBV – HK .................................... L16 Origo-höllin: Valur – Selfoss.................. L16 Framhús: Fram – Afturelding .............. L20 Víkin: Víkingur – Stjarnan..................... S18 KA-heimilið: KA – Grótta ...................... S18 Evrópubikar kk., 32-liða, seinni leikur: Ásvellir: Haukar – Foscani.................... L16 1. deild karla, Grill 66-deildin: Origo-höllin: Valur U – Fjölnir ............. L18 Set-höllin: Selfoss U – Þór Ak. .............. S16 Ásvellir: Haukar U – Berserkir............. S17 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Origo-höll: Valur U – Fjöl./Fylk. .......... L20 Kórinn: HK U – Fram U ........................ S13 Set-höllin: Selfoss – Víkingur ........... S18.15 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: Smárinn: Breiðablik – Þór Ak. .............. L18 Grindav.: Grindavík – Stjarnan........ L20.15 Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Dalhús: Fjölnir – Haukar.................. S18.15 Smárinn: Breiðablik – Skallagrímur S19.15 Grindav.: Grindavík – Keflavík......... S20.15 Origo-höll: Valur – Njarðvík ............. S20.15 1. deild kvenna: Stykkish.: Snæfell – Fjölnir B............... L15 Garðabær: Stjarnan – Aþena ........... L15.30 TM-hellir: ÍR – Þór Ak. ......................... L17 Vesturbær: KR – Hamar-Þór ............... L18 Sauðárkrókur: Tindastóll – Ármann .... L18 UM HELGINA! Stúlknalandslið Íslands í hópfim- leikum hafnaði í öðru sæti og krækti þannig í silfurverðlaun á Evrópumeistaramótinu í hópfim- leikum sem fer fram um þessar mundir í Guimares í Portúgal. Að- eins munaði 0,1 stigi á liði Íslands og Svíþjóðar og fóru Svíar því að lokum með sigur af hólmi. Íslenska liðið fékk 16.850 í ein- kunn fyrir æfingar sínar á dýnu og 16.450 í einkunn fyrir æfingar á trampólíni. Ísland fékk hæstu ein- kunn allra fyrir gólfæfingar sínar eða 20.900 og var samanlögð ein- kunn íslenska liðsins 54.200 stig. Blandað lið Íslands í unglinga- flokki, skipað stúlkum og piltum, hafnaði þá í þriðja sæti og vann þannig til bronsverðlauna á mótinu. Íslenska liðið fékk 49.450 stig í heildareinkunn og var skammt á eftir Svíþjóð sem var með heildar- einkunn upp á 50.050 og krækti í silfur. Bretland stóð uppi sem sig- urvegari og nældi í gullverðlaun með 52.425 í heildareinkunn. Silfur hjá stúlkunum og brons hjá blandaða liðinu Ljósmynd/Fimleikasamband Íslands Silfur Stúlknalandsliðið í hópfimleikum stóð sig frábærlega og vann til silfurverðlauna á Evrópumeistaramótinu í hópfimleikum í Portúgal í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.