Morgunblaðið - 04.12.2021, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 04.12.2021, Qupperneq 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021 NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Heilsa &útivist –– Meira fyrir lesendur Nú er tíminn til að huga að betri heilsu og bættum lífstíl. Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl. PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir fimmtudaginn 23. desember. fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 4. janúar SÉRBLAÐ Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Forvitnileg sýning með ljós- myndum Jóns Kaldals af verkum eftir Mugg verður opnuð í dag, laugardag. Sýningin hefur verið sett upp á Fjölnisvegi 7 og er opin frá kl. 14 til 18. Um er að ræða sölusýningu á vegum Sveins Þór- hallssonar og stendur hún til 13. desember. Sýningin samanstendur af fjöru- tíu ljósmyndum af myndverkum Guðmundar Thorsteinssonar – Muggs (1891-1924), sem Jón Kal- dal ljósmyndari (1896-1981) var fenginn til að taka árið 1926 eða skömmu eftir að hann hóf störf sem ljósmyndari í Reykjavík. Honum var falið að mynda verk Muggs fyrir útgáfu bókar um listamanninn eftir Poul Uttenreit- ter sem þá var í smíðum og kom síðan út árið 1930. Myndirnar eftir Kaldal fundust árið 2019 við uppgjör á dánarbúi Sverris Schevings Thorsteinssonar og Sveinn festi síðan kaup á þeim. Þær hafa verið í geymslu síðan 1926 og því fyrst til sýnis núna. Þess má geta að um þessar mundir má sjá veglega yfirlitssýn- ingu á verkum Muggs á Listasafni Íslands og eru mörg verkanna sem Kaldal myndaði á þeirri sýn- ingu. Í kynningartexta um sýn- inguna á Listasafninu segir að á stuttum ferli hafi Muggur náð „að skapa einstakan og persónulegan myndheim. Stíll hans var natúral- ískur og frásögn oftar en ekki í fyrirrúmi, verk hans einkennast af fjölbreytileika og leit að listrænu frelsi.“ Muggur var fjölhæfur listamaður og starfaði bæði sem leikari og söngvari. Hann lék með- al annars aðalhlutverkið í kvik- myndinni Saga Borgarættarinnar sem frumsýnd var árið 1920. Jón Kaldal var einn þekktasti ljósmyndari þjóðarinnar og rak ljósmyndastofu við Laugaveg í 49 ár. Eftir hann liggja meðal annars portrettmyndir af mörgum merk- um Íslendingum og ekki síst lista- mönnum, til dæmis af Jóhannesi S. Kjarval, Steini Steinarr, Finni Jónssyni og Ástu Sigurðardóttur. Hvað varðar þessar ljósmyndir hans af verkum eftir Mugg er hins vegar um iðnaðarljósmyndun af hans hálfu að ræða. Myndirnar eru þó allar áritaðar af Kaldal. Sýnir Muggsmyndir Kaldals Morgunblaðið/Unnur Karen Ljósmyndir Sveinn Þórhallsson heldur sölusýningu á Fjölnisvegi 7 með Muggsmyndum Jóns Kaldals. Þær eignaðist hann eftir uppgjör á dánarbúi. - Sölusýning opn- uð á Fjölnisvegi Vetrarlogn er heiti sýningar sem Jóna Hlíf Halldórsdóttir opnar í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í dag kl. 14. Samtímis kemur út bók- in Brim Hvít Sýn sem fjallar um myndlist Jónu Hlífar, textaverk og innsetningar. Textaverk, tilraunir með efni og innsetningar eru kjarninn í mynd- rænni tjáningu verka Jónu Hlífar. Texti sem áferð og sem leið til að birta hugsanir en Jóna Hlíf hefur meðal annars fengist við fyrirbærin kjarna, tíma og ímynd sögunnar. Jóna Hlíf sýnir í Hofi Textaverk Hluti eins verkanna á sýningu Jónu Hlífar í Hofi. Þrjár sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri kl. 12 í dag, laugardag: Erling Klingenberg – punktur, punktur, punktur, Karl Guðmundsson – Lífslínur og yfirlits- sýning á verkum úr Listasafni ASÍ, Gjöfin til íslenzkrar alþýðu. Myndlistarmaðurinn Erling T.V. Klingenberg birtist oft sjálfur í list- sögulegum tilvísunum í eigin verk- um, tilvísunum sem notaðar eru til að ná fram hlutlægri framsetningu og huglægum ímyndum. Vinnuað- ferðir hans eru sagðar sveiflast á milli þess óþægilega og þess einlæga en ágengar tilfinningar eru einnig algengt viðfangsefni. Í verkunum á sýningunni má sjá hvernig Erling setur hugmyndina um listamanninn gjarnan í óvænt og skoplegt sam- hengi, eins og endurspeglast í slag- orðinu „Það er erfitt að vera lista- maður í líkama rokkstjörnu“. Karl Guðmundsson er mál- og hreyfihamlaður en listferill hans spannar nú rúmlega tvo áratugi og er úrval verka has á sýningunni Lífslínur. Karl hefur haldið einka- sýningar frá 2000 og jafnframt tekið þátt í fjölda samsýninga. Hann hóf nám í Myndlistaskólanum á Akur- eyri fimm ára gamall undir hand- leiðslu Rósu Kristínar Júlíusdóttur og hafa þau unnið saman síðan. Sam- starfsfélagar Karls á sýningunni eru Rósa Kristín og Arna Valsdóttir. Á þriðju sýningunni, Listasafn ASÍ - Gjöfin til íslenzkrar alþýðu, er úrval verka eftir þá þekktu íslensku myndlistarmenn sem mynduðu kjarnann í stofngjöf Ragnars Jóns- sonar í Smára, Ásgrím Jónsson, Jó- hannes S. Kjarval, Jón Stefánsson, Gunnlaug Scheving og Þorvald Skúlason. Sýningarstjóri er Kristín G. Guðnadóttir listfræðingur. Ljósmynd/Arna Valsdóttir Lífslínur Listamaðurinn Karl Guðmundsson hefur haldið margar sýningar. Þrjár ólíkar sýningar - Verk Erlings Klingenberg, Karls Guðmundssonar og úr Listasafni ASÍ Listamaðurinn Eitt verkanna á sýningu Erlings T.V. Klingenberg. „Um íslensku jólafólin: Grýlu, Leppalúða og jólasveinana“ er yfir- skrift erindis sem Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur heldur í Landnámssýningunni við Austur- stræti í dag, laugardag, kl. 15. Þar segir hún frá óhugnanlegum sögum og þjóðtrú sem umlykur hina hræðilegu jólafjölskyldu Grýlu, en eins og minnt er á í til- kynningu þá eru þau svo sannar- lega ekki öll þar sem þau eru séð. Í erindinu mun Dagrún segja frá þessari furðulegu fjölskyldu. Sögur af ævintýrum þeirra eru oft skemmtilegar, en stundum svolítið hræðilegar og henta því ekki mjög ungum börnum og viðkvæmum sál- um. Þá mun hún einnig fjalla um þær breytingar sem hafa orðið hjá þessum jólavættum frá þjóðsögum og fram til dagsins í dag. Af Grýlu og óhugnanlegu hyski hennar Morgunblaðið/Kristinn Skessa Grýla geiflar sig í Þjóðminjasafni. Jólatónleikar Kammerkórs Reykja- víkur verða í Laugarneskirkju á morgun, sunnudag, kl. 16. Sigurður Bragason stjórnar. Gestakór á tón- leikunum verður Kór Laugarnes- kirkju undir stjórn Elísabetar Þórðardóttur. Flutt verða íslensk og erlend jólalög og meðal annars verða frumflutt tvö ný lög eftir Sigurð Bragason. Einsöngvarar á tónleik- unum eru Vilborg Helgadóttir, Erla Gígja Garðarsdóttir, Davíð Viðars- son, Smári Vífilsson og Þorsteinn Þorsteinsson. Píanóleikari er Jón Sigurðsson. Gestir þurfa að framvísa neikvæðu Covid-19-hraðprófi. Jólatónleikar Kammerkór Reykjavíkur og Sigurður Bragason stjórnandi. Tónleikar kammerkórs

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.