Morgunblaðið - 04.12.2021, Page 48
Árlegir jólatónleikar Söngfjelagsins verða í Langholts-
kirkju á morgun, sunnudag, klukkan 16 og 20. Um er að
ræða tíu ára jólatónleika Söngfjelagsins, sem er 60
manna kór undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar
organista. Yfirskrift tónleikanna er „Balkanjól“ og er
rauði þráðurinn á tónleikunum þjóðlagatónlist sem
byggist á sterkum hefðum. Auk kórsins kemur fram
hópur innlendra og erlendra listamanna: Hljómsveitin
Skuggamyndir frá Býsans, tríóið Trëi frá Basel í Sviss
og söngkonan Rumyana Filkova frá Búlgaríu ásamt
Borislav Zgurovski harmonikuleikara.
„Balkanjól“ Söngfjelagsins á tvenn-
um jólatónleikum í Langholtskirkju
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 338. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Phil Döhler, þýskur markvörður toppliðs FH í úrvals-
deild karla í handknattleik, Olísdeildinni, er á sínu
þriðja tímabili með Hafnarfjarð-
arliðinu. Í samtali við
Morgunblaðið kveðst Döhler
hæstánægður með dvölina
á Íslandi enda elski hann
land og þjóð.
Döhler vinnur með börn-
um, bæði í Áslandsskóla og
sem markmannsþjálfari
hjá FH, og kann því
afar vel. Segir
hann yngstu
börnin í skól-
anum hafa kennt
sér alla þá ís-
lensku sem
hann hafi lært
til þessa. »40
Nýtur þess að spila handbolta með
toppliðinu og vinna með börnum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Hönnunin hefur fært Kristínu
ómælda gleði. Ákaflega gaman hafi
verið að gera merki og bókarkápur.
Gerð íslenska vegabréfsins, sem
hjónin hönnuðu 1998, hafi líka verið
skemmtileg, en Kristleifur Daðason,
sonarsonur þeirra, sá um tölvu-
vinnslu og frágang tillagna. Hún hafi
svo lokið hönnuninni í prentsmiðj-
unni í Kanada. „Viðfangsefnið var í
raun hnattstaða Íslands; straumar
umhverfis landið, bæði haf- og loft-
straumar. Ég sá ákaflega eftir því
þegar vegabréfinu var skipt út fyrir
annað fyrir nokkrum árum.“
Hönnun íslenskra peningaseðla
var líka mikil áskorun fyrir Kristínu
og Stephen Fairbairn, einn helsta
samstarfsmann hennar. „10.000
króna seðillinn er í raun minningar-
verk um Jónas Hallgrímsson,“ segir
hún. Hönnunin hafi kostað mikla
heimildavinnu og hún hafi m.a. notið
góðs af nýútkominni ævisögu um
skáldið eftir Pál Valsson. Hún hafi
líka unnið með frábæru samstarfs-
fólki eins og Stephen Fairbairn og
fengið hann til liðs við sig í seðla-
hönnuninni.
Vill endurvekja merkið
Mörg skilti og merki Kristínar
hafa vakið verðskuldaða athygli og
einna stoltust er hún af merkinu sem
hjónin gerðu fyrir Náttúruverndar-
ráð 1967. „Það er frábært merki og
við Íslendingar höfum verið öfund-
aðir af því í áratugi,“ staðhæfir
Kristín. „Mér sýnist það vera að
hverfa úr notkun og það er óskiljan-
legt, því betra tákn um náttúru-
vernd er vandfundið. Ég þrái að
endurvekja merkið, þetta tákn um
náttúruvernd Íslendinga.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Verk Kristínar Þorkelsdóttur,
myndlistarmanns og grafísks hönn-
uðar, eru eins fjölbreytt og þau eru
mörg, en hún steig fyrst fram opin-
berlega á sviðið 1955. „Lífið þarf að
vera svolítið gaman,“ segir Kristín,
sem er 85 ára í dag. „Gleðin er lykil-
atriði og hjá mér felst hún í að vinna
skapandi starf.“
Yfirlitssýning á verkum Kristínar
hefur verið í Hönnunarsafni Íslands
í Garðabæ frá því í maí og verður til
áramóta. Í tengslum við sýninguna
kom út bókin Kristín Þorkelsdóttir
eftir Bryndísi Björgvinsdóttur og
Birnu Geirfinnsdóttur þar sem þær
rekja hönnunarsögu hennar í máli
og myndum. „Mér hefur verið hoss-
að mikið á árinu,“ segir handhafi
heiðursverðlauna Hönnunarverð-
launa Íslands 2020, sem úthlutað var
fyrr á árinu, en nýjasta verk hennar
er myndskreyting bókarinnar Hug-
leiðingar Vilborgar, sem kom út fyr-
ir skömmu. „Vilborg bað mig að
mála óræðar myndir við hugleiðing-
arnar og mér þótti afskaplega vænt
um að fá þessa beiðni, sagði já án
þess að hugsa mig um.“
Hjónin Kristín og Hörður Rafn
Daníelsson seldu Auglýsingastofu
Kristínar 1994. Hún segir að þá hafi
þau farið að ferðast um landið í
auknum mæli, hann að ljósmynda
það í breiðmyndaformi og hún að
vatnslita landslag. „Mér finnst ís-
lensk náttúra ákaflega hvetjandi og
nærandi fyrirbæri. Ég uppgötvaði
landslagsmálverkið og vatnslitina
úti í móa á Þingvöllum 1984 og síðan
þá hefur mig hvorki langað til né hef
ég getað hætt að mála landslag.“
Allt nema frímerki
Í Myndlista- og handíðaskólanum
málaði Kristín abstrakt en eftir út-
skrift sneri hún sér að grafískri
hönnun. Hún hefur hannað skilti,
merki, umbúðir, bækur, peninga-
seðla, dagatöl og vegabréf, en hvað
ekki? „Ég hef ekki gert frímerki,“
svarar hún og bætir við að hún hafi
ekki verið beðin um það. Fyrir
margt löngu hafi hún þó verið í frí-
merkjanefnd og þá hafi Þröstur
Magnússon verið aðalhönnuður frí-
merkjanna. „Hann gerði frábæra
hluti.“
Gleðin er í sköpuninni
- Kristín Þorkelsdóttir lítur yfir farinn veg á 85 ára afmælinu
Morgunblaðið/Eggert
Fjölhæf Kristín Þorkelsdóttir hefur einbeitt sér að málverkinu undanfarna
áratugi eftir að hafa verið í fararbroddi í fjölbreyttri grafískri hönnun.
Best Náttúruverndarmerki Íslands.