Morgunblaðið - 13.12.2021, Page 1
M Á N U D A G U R 1 3. D E S E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 292. tölublað . 109. árgangur .
jolamjolk.is
Stúfur
kemur í kvöld
dagar til jóla
11
Fjórar frábærar bækur!
holar@holabok.is • www.holabok.is
Fugladagbókin 2022
Glæsileg dagbók. Á undan hverri
viku er margþættur fróðleikur um
52 fugla og glæsilegar ljósmyndir
af þeim.
Spæjara-
hundurinn
Stórskemmtilegt og
spennandi ævintýri um
afar klókan hund sem
fær í loppurnar sakamálin
sem lögreglan hefur
gefist upp á.
Ekki var það
illa meint
Ljóðaúrval Hjálmars
Freysteinssonar
kemur öllum í
gott skap.
Ógn
Dulúð, spenna, kynja-
skepnur, ástir. Bók fyrir
unglinga á öllum aldri!
LYFTI 560 KÍLÓUM
OG SETTI TVÖ
EVRÓPUMET EFNIÐ LEITAÐI Á MIG
FYRSTI OG EINI
FLUTNINGSFULLTRÚI
SVEITARFÉLAGS
ÞUNG SKÝ EINARS KÁRASONAR 29 LINDA LEA 11KRISTÍN Á EM 27
_ Drangar í Árneshreppi eru nú
friðaðir. Guðlaugur Þór Þórðarson,
umhverfis-, orku- og loftslags-
ráðherra, segir ekkert benda til
þess að málið hafi ekki verið unnið
samkvæmt reglum. Forveri hans í
umhverfisráðuneytinu tilkynnti
friðlýsingu Dranga á síðustu
stundu, rétt áður en ný ríkisstjórn
var kynnt. Vinnubrögð fyrrverandi
umhverfisráðherra hafa verið
gagnrýnd, þá helst af þingmanni
Miðflokksins, Bergþóri Ólasyni,
sem sagði á Alþingi í síðustu viku
að friðlýsingin hefði veruleg áhrif á
virkjunarkosti innan svæðisins. »4
Ljósmynd/Umhverfisstofnun
Drangar í Árneshreppi Vinnubrögð fyrr-
verandi ráðherra hafa verið gagnrýnd.
Friðlýsing Dranga
tekur gildi í dag
_ Samþykkt var nær einróma á
fundi íbúasamtaka Bústaða- og
Fossvogshverfis í síðustu viku að
skora á Dag B. Eggertsson borg-
arstjóra að framlengja frest til at-
hugasemda um skipulagsbreytingu
á Bústaðavegi. Frestur til athuga-
semda rennur út 15. desember en
samtökin vilja að hann verði fram-
lengdur til 1. apríl á næsta ári.
Frá þessu greinir Gísli Kr.
Björnsson, formaður samtakanna, í
grein í Morgunblaðinu í dag. Ljóst
sé að of stuttur tími hafi verið gef-
inn til að gera athugasemdir við til-
lögur að breytingum í hverfinu. Þá
segir Björn íbúa hafa gróskumiklar
hugmyndir sem vert sé að borgar-
yfirvöld líti til. »16
Skora á borgarstjóra
að lengja frestinn
_ Þáttaröðin Stormur, þar sem
fjallað er um faraldur Covid-19 hér
á landi, verður ekki sýnd yfir hátíð-
arnar eins og vonir stóðu til.
Jóhannes Kr. Kristjánsson segir í
samtali við Morgunblaðið að enn sé
verið að vinna þættina. Auk þess
hafi hann grunað að fólk væri síður
spennt fyrir þeim, þar sem áhrifa
veirunnar gæti enn. Tökudagarnir
eru orðnir 375 talsins. »6
Tökudagarnir orðnir
375 í faraldrinum
Jólaandinn og hlýleikinn réðu ríkjum þennan
þriðja sunnudag í aðventu í Jólaþorpinu í
Hafnarfirði. Þessir skemmtilegu jólaálfar
glöddu unga sem aldna við jólatréð í þorpinu.
Árlegt jólaball sunnudagaskólans í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði var einnig haldið í gær, þar sem
Fríkirkjubandið lék fyrir dansi. Skemmtu gestir
sér vel og önduðu að sér sönnum hafnfirskum
jólaanda.
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Álfar brugðu á leik í Jólaþorpinu í Hafnarfirði
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonjasif@mbl.is
Líftæknifyrirtækið Ísteka ætlar að
ráðast í víðfeðmar umbætur á eftir-
liti með blóðgjöfum hryssa. Í skrif-
legu svari til Morgunblaðsins segir
framkvæmdastjórinn, Arnþór Guð-
laugsson, að ekki sé búið að áætla
kostnaðinn nákvæmlega en gera
megi ráð fyrir að hann hlaupi á tug-
um milljóna króna. Umbæturnar
krefjist fjárfestingar í bæði fólki og
innviðum.
Greint var frá því í síðustu viku að
Ísteka hefði rift samningi við tvo
bændur á grundvelli dýravelferðar-
frávika. Arnþór segir að samningn-
um hafi verið rift vegna þeirrar með-
ferðar sem sjá mátti í myndbandi
sem svissnesk dýraverndarsamtök
birtu í lok nóvember. Sást þar slæm
meðferð hrossa af hálfu samstarfs-
bænda Ísteka.
Verið að rannsaka myndefnið
Alls hefur Ísteka verið í samstarfi
við 119 bændur um blóðgjafir hryssa
til lyfjaframleiðslu á þessu ári. Arn-
þór segir það skipta Ísteka, sem og
viðskiptavini þeirra, miklu máli að
afurðin sem fyrirtækið kaupi sé unn-
in með velferð dýranna að leiðarljósi.
Rannsókn á myndbandinu og öðrum
atvikum og fullyrðingum í því sé enn
í gangi og niðurstaða liggi ekki fyrir.
Það sem Ísteka hyggst bæta snýr
að stórum hluta að starfsfólkinu. Það
verði frætt og vitundarvakning efld.
Þá er stefnt að því að starfsmenn,
bændur, dýralæknar og öryggis-
verðir hljóti formlega þjálfun. »4
Kostar tugi milljóna
- Ráðast í miklar umbætur eftir myndband svissneskra
dýraverndarsamtaka - Myndbandið enn til rannsóknar