Morgunblaðið - 13.12.2021, Page 2

Morgunblaðið - 13.12.2021, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2021 ANNA LEA OG BRÓI TAKA ÁMÓTI ÞÉR Á KANARÍ Fararstjórarnir okkar á Kanarí eru þau Anna Lea og Brói, en þau taka vel ámóti farþegumÚrval Útsýn og bjóða upp á skemmtilega dagskrá fyrir þá sem vilja. Þau eru bæði íþróttakennarar. Þau hafa starfað sem fararstjórar erlendis frá 2005. FLUG OG GISTING Á JARDIN ATLANTICO VERÐ FRÁ 76.500 KR VERÐ Á MANN M.V. 2 FULLORVÐNA OG 2 BÖRN. JANÚAR OG FEBRÚAR KANARÍ Íslendingar hafa sótt í dásamlegar strendur Gran Canaria áratugum saman og hefur eyjan verið einn vinsælasti áfangastaður Úrvals Útsýnar. Betri stað í sólarfrí er erfitt að finna, fyrir unga sem aldna. Stöðugt hitastig, þægilegt loftslag, hreinar strendur og stórbrotið landslag er eitthvað sem heillar alla!VINSÆLT HÓTEL HJ Á ÚRVAL ÚT SÝN ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Ekkert bendir til þess að gos fari af stað á næstu dögum vegna jökul- hlaups í Grímsvötnum. „Við sjáum bara engin merki. Það eru engir skjálftar sem benda til þess að kvika sé að brjótast af stað,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræð- ingur en bætir við að vísindamenn geti ekki borið ábyrgð á því hverju eldfjöllin kunni að taka upp á. Magnús rifjar upp eldgos í Gríms- vötnum árið 2004, en það kom í kjöl- far jökulhlaups. Margt hafi þó áður bent til gossins, svo sem óróahviður, jarðskjálftar og aukin gufuvirkni. „Svo fer hlaup af stað og þá brýst gosið út. Þetta var ekki stórt gos en þetta var gosmökkur sem reis um 10 til 11 kílómetra og varði það í rúman sólarhring. En þarna var alveg víst að gos myndi koma og hlaupið hleypti því af stað. Nú eru aðstæður þannig að Grímsvötn voru ekki nógu nærri því að gjósa til þess að hlaupið dygði til að hleypa því af stað,“ út- skýrir hann. Þegar fyrst var greint frá hlaup- inu í Grímsvötnum nú í nóvember ýjuðu sérfræðingar að því að eldgos gæti komið í kjölfarið. Hefur það leg- ið fyrir? „Við getum sagt að við gefum þessu smá tíma. En ég myndi segja að ef það færi af stað gos núna á næstu dögum væri það óbein afleið- ing af hlaupinu,“ segir hann og bætir við að engin merki bendi til þess að kvika sé í þann mund að brjóta sér leið gegnum jarðskorpuna. „Það sem var athyglisvert við þetta hlaup er að það mynduðust tveir sigkatlar nærri hlauprásinni og annar ketillinn er 60 metra djúpur.“ Flugvél Isavia flaug yfir á föstu- dag og er stefnt að því að birta myndefni þaðan í dag. Ekkert bendir til goss eftir hlaupið - Athyglisverðir sigkatlar myndast Ljósmynd/Jón Grétar Sigurðsson Hlaupið Magnús Tumi segir að gos myndi tengjast hlaupinu óbeint. Andrés Magnússon andres@mbl.is Framkvæmdastjóri miðla hjá Sím- anum segist ekkert botna í tillögum um stóraukin framlög úr ríkissjóði til Ríkisútvarpsins (Rúv.) á sama tíma og dregið sé úr styrkjum til einkarekinna miðla, sem þó hafi verið teknir upp til þess að jafna rekstrarstöðu miðlanna. „Ég held að lækkunin á fram- lögum til frjálsu fjölmiðlanna sé nefnd aðhaldskrafa. Það er óskiljanlegt að það sé ekki gerð sambærileg aðhaldskrafa á Ríkisútvarpið, heldur þvert á móti verið að hækka framlögin,“ segir Magnús Ragnarsson, framkvæmda- stjóri miðla hjá Símanum, í samtali við Morgunblaðið. Í fjárlagafrumvarpi fyrir 2022 er lagt til að framlög til Ríkisútvarpsins verði aukin um 430 milljónir króna milli ára. Þau námu 4,655 milljörðum króna á árinu sem er að líða, en verði frumvarpið samþykkt óbreytt munu framlög úr ríkissjóði alls nema 5,085 milljörðum króna, sem er liðlega 9% hækkun milli ára. Gert er ráð fyrir að framlögin haldi áfram að hækka á næstu árum, um 4% á ári. Í fjárlagafrumvarpinu er og gert ráð fyrir styrk til einkarekinna fjöl- miðla, alls 384,3 milljónum króna, sem er um 2% lækkun frá því sem var á þessu ári, en gert er ráð fyrir að sá styrkur muni áfram lækka á komandi árum. Magnús bendir á að auglýsinga- tekjur allra fjölmiðla í landinu hafa lækkað um 6-10% á ári að undan- förnu, en hlutfallslega þó minnst hjá Ríkisútvarpinu, sem hafi í krafti stærðar sinnar náð að auka hlutdeild sína. Nægt rými til hagræðingar „Ég er með öllu á móti þessum rík- isstyrkjum og hlægilegt að nánast hver einasti fjölmiðill í landinu sé kominn á ríkisjötuna,“ segir Magn- ús. „Ríkisvaldið sjálft virðist strax á fyrsta ári hafa áttað sig á því hvað þetta er heimskulegt og þess vegna farið að draga úr þessum styrkjum aftur. Alls staðar nema hjá eigin miðli, Ríkisútvarpinu, þar sem er nægt rými til hagræðingar.“ Hann bendir á að ríkismiðillinn fá- ist við fjölmargt umfram lögboðnar skyldur og því næg tækifæri til hag- ræðingar þar. En er ekki eitthvað í rekstri Rúv. sem kallar á auknar fjárveitingar? „Nei, ekki hjá Ríkisútvarpinu um- fram aðra miðla í landinu. Auðvitað hefur gengisþróun ekki verið hag- stæð varðandi kaup á erlendu efni, en er það hlutverk hins opinbera að kaupa erlent skemmtiefni? Það hafa allir fundið fyrir launaþróun í land- inu, en frjálsir fjölmiðlar geta ekki knúið dyra hjá fjármálaráðuneytinu til þess að biðja um meiri pening, þeir verða að hagræða eða finna nýj- ar tekjur.“ Magnús segir að tekjufall ís- lenskra miðla sé ekki vegna þess að auglýsingamarkaðurinn hafi minnk- að, þvert á móti, heldur leiti hann til erlendra miðla í auknum mæli. Rík- isútvarpið hefur hins vegar aukið hlutdeildina hér í krafti stærðar og sívaxandi framlaga úr ríkissjóði. Hann tekur fram að Síminn flytji ekki fréttir og sé því ekki styrkhæf- ur. Samt sem áður sé hann í harðri samkeppni við miðla sem þiggi rík- isstyrki, en engan þó í sama mæli og Ríkisútvarpið. „Það er erfitt að keppa við það.“ Engin aðhaldskrafa gerð á Ríkisútvarpið - Stóraukin framlög til Rúv. - Dregið úr styrk til einkamiðla Morgunblaðið/Eggert Ríkisútvarpið Samkvæmt fjárlagafrumvarpi eiga framlög úr ríkissjóði til þess að aukast um 9% milli ára, en styrkir til einkarekinna miðla að lækka. Magnús Ragnarsson Bólusetning gegn Covid-19, sem hingað til hefur að mestu leyti farið fram í Laugardalshöll, verður færð á annan stað eftir áramót. Er þetta vegna framkvæmda sem eru fyrir- hugaðar í höllinni en fyrir liggur að setja þarf nýtt gólf og nýjan ljósa- búnað í salinn, sem orðinn er borg- arbúum vel kunnur. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir óákveðið hvenær bólusetning- arnar verða færðar í annað húsnæði en það fari eftir því hvenær fram- kvæmdir fari í gang. „Við verðum í anddyrinu í höllinni núna fram að áramótum. Við förum ekki inn í sal- inn vegna þess að það eru ekki margir að koma en svona verður þetta fram að áramótum,“ segir hún. Ekki hefur verið ákveðið hvar bólusetningarnar munu fara fram þegar framkvæmdir hefjast. Húsið verður opið næstu vikuna á milli kl. 10 og 15 en frá 10 til 12 á milli jóla og nýárs. Lokað verður 17. desember vegna tónleika í höllinni. Hvernig hefur mætingin verið í örvunarbólusetningu hingað til? „Ég er ekki alveg með þær tölur á hreinu en tilfinningin er þokka- lega góð. Það eru náttúrlega margir búnir að fá Covid núna og síðan eru stórir hópar sem á eftir að boða,“ segir hún. Almennt eiga sex mán- uðir að líða á milli síðari skammts og örvunarbólusetningar en þrír mánuðir nægja hjá fólki yfir sjö- tugu. Samkvæmt tölfræði á vefnum covid.is hefur 135.891 einstaklingur fengið örvunarskammt en alls eru 282.199 fullbólusettir, þ.e. búnir að fá tvo skammta. Þeir sem voru boð- aðir í seinni bólusetningu 7. júlí og fyrr hafa nú fengið boð í örvunar- bólusetningu að sögn Ragnheiðar. Nú fari síðan mesta púðrið í að út- færa hvernig bólusetningu sex til 11 ára barna skuli háttað, fari hún á annað borð fram. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Höllin Bólusetning við Covid-19 mun fara fram annars staðar en í höllinni þegar framkvæmdir hefjast. Óvíst er með staðsetningu að sögn Ragnheiðar. Bólusetningin færist úr höllinni - Skipta þarf um gólf og ljósabúnað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.