Morgunblaðið - 13.12.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2021
595 1000
Jólagjafabréf Heimsferða komin í sölu!
10.000 og færð 15.000
20.000 og færð 30.000
40.000 og færð 60.000
Gefðu góðar minningar
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Siðanefnd Háskóla Íslands kannar í
dag hvort mál Ásgeirs Jónssonar,
seðlabankastjóra og fyrrverandi dós-
ents við skólann, verði tekið fyrir efn-
islega hjá nefndinni.
Mál Ásgeirs lýtur að meintum rit-
stuldi en rithöfundurinn Bergsveinn
Birgisson hefur sakað hann um að
hafa byggt á bók sinni, Leitin að
svarta víkingnum, í nýútkominni bók
Ásgeirs, Eyjan hans Ingólfs, án þess
að geta heimilda.
Rektor tekur ákvörðun
Bergsveinn vísaði málinu til siða-
nefndar háskólans en Skúli Skúlason,
formaður nefndarinnar, segir alls
óvíst að málið hljóti efnislega umfjöll-
un hjá nefndinni. Fyrst þurfi hún að
leggja mat á það hvort Ásgeir heyri
enn undir háskólann. Ásgeir starfaði
við hagfræðideild Háskóla Íslands
frá árinu 2004 og var þar deildarfor-
seti frá árinu 2015. Hann tók við emb-
ætti seðlabankastjóra 20. ágúst 2019.
Ef nefndin kemst að þeirri niður-
stöðu að hún geti tekið málið til efnis-
legrar umfjöllunar mun hún rann-
saka það og gefa málsaðilum kost á
andmælum. Þá getur nefndin einnig
leitað eftir sátt í málinu á milli máls-
aðila. Ef ekki næst sátt skilar nefndin
niðurstöðu sinni til rektors Háskóla
Íslands. Er það í hans höndum að
taka afstöðu til niðurstöðunnar og
grípa til viðeigandi ráðstafana.
Bergsveinn svarar Finnboga
Í viðtali við Morgunblaðið á laug-
ardag sakaði rithöfundurinn Finn-
bogi Hermannsson Bergsvein um að
hafa stolið orðalagi úr bók sinni. Á
laugardagskvöld svaraði Bergsveinn
þeim ásökunum Finnboga í grein á
Vísi og sagði hann skorta frumlega
hugsun. Hann sagðist einnig hafa
svarað Finnboga hvað þetta varðar
árið 2010 en að Finnbogi virtist hafa
gleymt því. Forsaga málsins er sú að
árið 2003 sendi Finnbogi frá sér bók-
ina Einræður Steinólfs, sem var ævi-
saga Steinólfs Lárussonar, bónda í
Ytri-Fagradal á Skarðsströnd í Döl-
um, jafnhliða því að vera lýsing á
ýmsum staðháttum þar um slóðir.
Þykir Finnboga sem Bergsveinn hafi
stolið orðalagi þaðan þegar hann
skrifaði svo bók sína, Svar við bréfi
Helgu.
Bergsveinn segist ekki hafa fengið
orðin frá Finnboga heldur beint úr
frásagnargleði Steinólfs, frænda síns,
og að hann hafi getið þess í athuga-
semdum aftast í bókinni.
„Sá sem á umrædd orð var nefni-
lega gæddur nokkru sem Finnbogi
Hermannsson hefur farið á mis við,
en það er frumleg hugsun. Bera orðin
sjálf því vitni af hvers rótum þau
renna. Kröfu Finnboga um eignar-
rétt á orðum Steinólfs mætti helst
líkja við það, að ef einhver sem tæki
þátt í að gefa út ljóð Einars Bene-
diktssonar myndi eigna sér ljóð Ein-
ars Benediktssonar.“
Bergsveinn vakti einnig athygli á
því að Finnbogi hefði gefið út ævisög-
una að afkomendum og frændfólki
Steinólfs forspurðu og að hann til-
einkaði sjálfum sér eignarréttinn.
Svar við bréfi Bergsveins
Í aðsendri grein á vef Vísis í gær
svaraði Finnbogi svo ásökunum
Bergsveins og sagði Steinólf sjálfan
hafa beðið sig að rita ævisöguna árið
2002. Það hefði hann gert og bókin
selst vel. Því hefði hann ákveðið að
gefa hana út aftur árið 2019 og birti
mynd því til sönnunar að hann einn
ætti ekki höfundarrétt að bókinni
heldur Steinólfur líka.
Óvíst hvort siðanefnd skoði málið
- Nefndin athugar hvort málið verði tekið til efnislegrar umfjöllunar - Kemur saman til fundar í dag
- Bergsveinn svarar ásökunum um ritstuld og segist taka orðalag í bók sinni beint frá frænda sínum
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Umfjöllun Málið fer fyrir siðanefnd.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Verkhönnun á síðasta áfanga Arnarnesvegar er að hefj-
ast hjá Vegagerðinni og reiknað er með því að Kópavogs-
bær og Reykjavíkurborg afgreiði tillögur að nýju deili-
skipulagi til kynningar í næstu viku.
Kynningin á deiliskipulagstillögunni tekur sex vikur
og gefst íbúum kostur á að gera athugasemdir. Bryndís
Friðriksdóttir, svæðisstjóri höfuðborgarsvæðisins hjá
Vegagerðinni, reiknar með að verkhönnun ljúki í febr-
úar. Framkvæmdin geti farið í útboð um leið og deili-
skipulag hefur verið afgreitt.
Hætt við mislæg gatnamót
Verkfræðistofan Efla vann tillögur að deiliskipulagi
fyrir Kópavogsbæ og Reykjavíkurborg og lagði fram í
síðasta mánuði. Þær eru nú til umfjöllunar hjá nefndum
sveitarfélaganna.
Þriðji áfangi Arnarnesvegar er um 1,3 km langur og
liggur frá enda núverandi vegar við Rjúpnaveg og inn á
Breiðholtsbraut. Þar verður vegurinn lagður á brú yfir
Breiðholtsbrautina og inn á brautina aftur á ljósastýrð-
um gatnamótum. Fallið var frá fyrri hugmyndum um full
mislæg gatnamót. Á veginum verða tvö ný hringtorg,
annars vegar gagnvart Rjúpnavegi og hins vegar við
Vatnsendaveg.
Samhliða er gert ráð fyrir stofnstíg, aðskildum hjóla-
og göngustíg, frá Rjúpnavegi og að Elliðaárdal ásamt
tengistígum inn í íbúðarhverfin sem og meðfram Breið-
holtsbrautinni og undir fyrirhugaðri brú. Jafnframt er
gert ráð fyrir göngubrú yfir veginn á völdum stað og
tvennum undirgöngum.
Deiliskipulag kynnt fljótlega
- Síðasti áfangi Arnarnesvegar boðinn út eftir áramót
Morgunblaðið/Eggert
Varúð Tveir fyrri hlutar vegarins nýtast ekki til fulls.
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Líftæknifyrirtækið Ísteka ætlar að
efla fræðslu á meðal allra þeirra
starfsmanna sem koma að blóðgjöf-
um hryssa. Þannig munu bændur,
dýralæknar og öryggisverðir hljóta
formlega þjálfun á starfsstað.
Fyrirtækið greindi í síðustu viku
frá því að samningum við tvo bænd-
ur hefði verið rift á grundvelli dýra-
velferðarfrávika. Ástæðan fyrir rift-
un samninga er sú meðferð sem sást
í myndbandi svissneskra dýra-
velferðarsamtaka sem gefið var út í
nóvember.
Dýralæknar taka blóðið
Aðgerðir Ísteka nú miða meðal
annars að því að vanda betur valið á
þeim hryssum sem gefa blóð. Þá
verður skapgerð hverrar hryssu fyr-
ir sig metin og hryssur sem sýni
óeðlileg streituviðbrögð útilokaðar.
Þetta kemur fram í aðgerðaáætlun
Ísteka sem framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, Arnþór Guðlaugsson, hef-
ur sent Morgunblaðinu.
Gætt verður að því að starfsmenn
læri rétta hegðun við blóðgjafirnar
og þeim kennt hvernig nálgast megi
dýrin með ró. Nú þegar eru allar
blóðgjafir framkvæmdar af dýra-
læknum og á starfsemin að vera und-
ir eftirliti bæði Matvælastofnunar og
Ísteka þar sem sérstakur dýra-
velferðarfulltrúi starfar.
Í umbótaáætlun Ísteka er einnig
gert ráð fyrir að myndavélar verði
settar upp þar sem blóðgjafir fara
fram og því verði upplýsingum frá
hverjum bæ safnað og þær geymdar
í ákveðinn fjölda ára.
Þá verði fengnir sérfræðingar til
að rýna í upplýsingarnar með reglu-
bundnum hætti. Gerðar verði verk-
lagsreglur og þær verði aðgengileg-
ar á öllum bæjum, hjá dýralæknum
og öryggisvörðum.
Ísteka herðir eftirlitið
- Eflir fræðslu hjá dýralæknum, bændum og öryggisvörðum
- Skapgerð hverrar hryssu metin - Eftirlitsmyndavélar
Morgunblaðið/Eggert
Blóðgjafir Eftirlit með blóðgjöfum hryssa verður stórlega aukið.
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Í dag tekur friðlýsing Dranga í Ár-
neshreppi gildi. Guðlaugur Þór
Þórðarson, nýskipaður umhverfis-,
orku- og loftslagsráðherra, segir
ekkert hafa komið fram sem bendi
til þess að friðlýsingin hafi ekki verið
unnin samkvæmt núgildandi
reglum.
„Ég lét skoða þetta eftir að at-
hygli mín var vakin á því. Ég sendi
upplýsingar um málið til formanns
umhverfisnefndar. Þetta er búið að
vera í gangi í langan tíma og virðist
hafa verið gert í góðri sátt,“ sagði
Guðlaugur í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Hann stefnir ekki að
því að gera frekari athugasemdir um
málið.
Nokkuð fjörlegar umræður voru á
Alþingi í síðustu viku um friðlýs-
inguna. Gagnrýndu þar Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, formaður Mið-
flokksins, og Bergþór Ólason, þing-
maður flokksins, friðlýsinguna og
sögðu hana hafa mikil áhrif á virkj-
anakosti á svæðinu. Þá var einnig
gagnrýnt að Guðmundur Ingi Guð-
brandsson, þáverandi umhverfis-
ráðherra, hefði friðlýst Dranga á ell-
eftu stundu, tveimur dögum áður en
ný ríkisstjórn var kynnt.
Drangar í Árnes-
hreppi friðlýstir
- Guðlaugur Þór lét skoða vinnubrögð
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Drangar Ekkert bendir til þess að ekki hafi verið farið eftir reglum.