Morgunblaðið - 13.12.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2021
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*
-�-"%
,�rKu!,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þegar fólk ætlar að róa á ný
mið og flytja á nýjan stað vakna
eðlilega margar spurningar um
meðal annars aðstæður og sam-
félagið. Auðvitað er allur gangur
á því hvernig mismunandi upp-
lýsingar fást. Að minnsta kosti
er mikilvægt að einhver sé til
svara og því kalli erum við að
svara nú,“ segir Linda Lea Boga-
dóttir, flutningsfulltrúi Fjalla-
byggðar.
Titillinn vekur athygli, en
þetta er nýtt starf hjá sveitar-
félaginu sem stofnað var til nú
fyrr í mánuðinum.
Alltaf bætast
nýir hópar í skörðin
Fjallabyggð er fyrsta og
eina sveitarfélagið á landinu sem
hefur flutningsfulltrúa á sínum
snærum, þar sem fólk er leitt í
gegnum flutninga í ný heim-
kynni. Getur á einn stað sent er-
indi og fyrirspurnir viðvíkjandi
flutningunum og fengið svör svo
fljótt sem verða má. Ætla verður
að þetta sé nauðsynleg þjónusta.
Fjallabyggð er mynduð af
tveimur byggðakjörnum; annars
vegar Ólafsfirði þar sem um 780
manns búa og Siglufirði þar sem
íbúarnir eru um 1.200. Saman-
lagður fjöldi íbúa í sveitar-
félaginu hefur síðustu árin hald-
ist nokkuð stöðugur eða um
2.000 manns. Alltaf og eðlilega
er þó nokkur hreyfing. Fólk
kemur og fer og „alltaf bætast
nýir hópar í skörðin“ eins og
skáldið orti. Og þeir sem nýir
koma eru einmitt hópurinn sem
flutningsfulltrúanum er ætlað að
sinna.
Hagstætt húsnæðisverð
„Þegar fólk stefnir á flutn-
inga á nýjan stað þarf finna sér
húsnæði. Í Fjallabyggð er ýmiss
konar íbúðarhúsnæði í boði, af
öllum stærðum og gerðum, til
leigu og sölu, svo allir ættu að
geta fundið sér húsnæði við hæfi.
Einnig er gott framboð á lóðum
fyrir þá sem hafa hug á að
byggja sitt eigið. Almennt er
húsnæðisverð hér hagstætt,“
segir Linda sem einnig er mark-
aðs- og menningarfulltrúi Fjalla-
byggðar. Nánari kynning á þjón-
ustu flutningsfulltrúa er að finna
á nýjum upplýsingavef Fjalla-
byggðar fagnar.is.
„Fyrir utan atvinnu- og hús-
næðismál er fólk líka með spurn-
ingar um skólamálin, möguleika
til nýsköpunar og svo mál tengd
frítíma, afþreyingu og útivist,“
segir Linda. „Á nýjum stað er
mikilvægt að komast sem fyrst
inn í samfélagið með virkri þátt-
töku í félagsstarfi. Þá búum við
svo vel hér í Fjallabyggð, því
mannlíf bæjarins er fjölbreytt og
félags- og menningarstarf blóm-
legt. Hér er öflugt tónlistarlíf,
íþróttastarf fyrir alla aldurs-
hópa, tveir golfvellir, sundlaug-
ar, golfvellir og skíðasvæði svo
eitthvað sé nefnt. Þetta er fjöl-
skylduvænt samfélag.“
Fjarvinnsla færist í vöxt
Á seinni árum hefur verið
talsvert um að utanbæjarfólk
festi kaup á húsnæði og noti sem
sumarhús. Sérstaklega á þetta
við á Siglufirði, sem á velmekt-
artíma síldaráranna var vel hýst
stórborg. Á seinni árum hafa
mörg hús í bænum verið endur-
gerð sem prýði þykir að.
„Alls eru þessi sumarhús í
bæjarfélaginu um 160 talsins,
flest á Siglufirði. Fólk er mikið í
þessum húsum sínum yfir sum-
arið – og raunar er talsvert um
að fólk dvelji hér yfir sumarið
við ýmiskonar störf. Þar get ég
til dæmis nefnt ungt listafólk í
ýmsum greinum og einnig er
eitthvað um það að fólk komi
hingað tímabundið að vinna og
setjist svo að til lengri tíma. Svo
höfum við öll lært eitt gott af
kórónuveirunni, það er að vinna
að heiman. Þá hafa möguleikar
til fjarvinnu fyrir ýmis fyrirtæki
og stofnanir á höfuðborgarsvæð-
inu og víðar aukist stórlega og
við höfum orðið vör við það að
fólk komi hingað og vinni héðan
um lengri eða skemmri tíma.“
Viljum skapandi fólk
En hverjir eru atvinnumögu-
leikarnir í Fjallabyggð að öðru
leyti? Jú, þar er vinnu að hafa
fyrir þá sem sækjast eftir því,
segir Linda Lea en tekur fram
að eðlilega sé breidd og úrval
starfa ekki hið sama og á fjöl-
mennari stöðum.
„En hér er pláss fyrir sér-
menntað fólk á flestum sviðum
og hingað viljum við fá skapandi
fólk líka. Atvinnumöguleikar
geta verið óþrjótandi; hér er fjöl-
breytt starfsemi í hefðbundnum
greinum, líf- og hátæknifyr-
irtæki og vaxtarbroddur í ferða-
þjónustu og afþreyingu. Fjöl-
mörg störf á almenna
vinnumarkaðnum eru þó aldrei
auglýst laus til umsóknar. Ann-
ars er atvinnulífið í örri þróun
og margir einfaldlega skapa sér
vinnu í því sem kannski var ekki
fyrirséð. Tæknin hefur gjör-
breytt öllu og hér í Fjallabyggð
hefur nýsköpun jafnframt verið
áhersluatriði í atvinnumálum.“
Flutningsfulltrúi greiðir leiðina fyrir nýja íbúa í Fjallabyggð
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Nýmæli Tæknin hefur gjörbreytt öllu – og hér í Fjallabyggð hefur ný-
sköpun jafnframt verið áhersluatriði í atvinnumálum, segir Linda Lea.
Skapandi fólk og
möguleikar óþrjótandi
- Linda Lea Bogadóttir fædd-
ist árið 1968. Viðskiptafræð-
ingur frá Háskólanum á Akur-
eyri og með meistaragráðu í
menningarstjórnun úr Háskól-
anum á Bifröst. Var fyrr á árum
sérfræðingur hjá Landsneti hf.
á sviði viðskiptatengsla, mark-
aðsmála og kerfisstjórnar.
- Linda Lea á ættir að rekja til
Siglufjarðar en þangað flutti
hún árið 2016 og gerðist mark-
aðs- og menningarfulltrúi
Fjallabyggðar. Hún býr nyrðra
með tíu ára dóttur sinni, en
fyrir sunnan á hún fjögur upp-
komin börn og fimm barna-
börn.
Hver er hún?
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ólafsfjörður Annar tveggja þéttbýliskjarna í Fjallabyggð. Ólafsfirð-
ingar eru í dag um 780, talsvert færri en á velmektartíma forðum.
Siglufjörður Hótelið, höfnin og
Hólshyrnan á fallegum degi.
Mannvirkin í Úlfarsárdal eru á
heimsmælikvarða og fyrir börnin í
hverfinu skapa þau einstök skilyrði;
skóli jafnt sem íþróttaaðstaða.
Svæðið verður eftirsóknarvert til
búsetu með þessari viðbót sem jafn-
framt mun laða að ferðamenn.
Þetta sagði Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri í Reykjavík þegar
hann opnaði sl. laugardag nýja
hverfismiðstöð í Úlfarsárdal. Alls er
byggingin um 18.000 fermetrar að
flatarmáli og þegar er aðstaða leik-
og grunnskóla komin í gagnið. Í
þeim hluta hennar sem tekinn var í
notkun um helgina eru sundlaug og
bókasafn.
Í húsinu er einnig félagsmiðstöð-
in Fellið sem samastaður barna og
unglinga í hverfinu. Á næsta ári
bætast svo við íþróttahús og keppn-
isvöllur Fram og með því flyst öll
starfsemi félagsins úr Safamýri í
Úlfarsárdal.
Eftir að borgarstjóri hafði með
hjálp barna í Úlfarsárdal klippt á
borða, og með því opnað hverf-
ismiðstöðina formlega, brá hann sér
í sund á staðnum.
Dalslaugin er áttunda almenn-
ingssundlaugin í Reykjavík. Laugin
er vel útbúin með sex brauta úti-
laug, pottum, vaðlaug og eimbaði.
Einnig er innilaug sem nýtist vel til
kennslu og æfinga en hingað til
hafa börnin í Dalskóla þurft að fara
út fyrir hverfið í skólasund. Gert er
ráð fyrir stórri rennibraut sem
kemur næsta haust. Heildaraðsókn
í sundlaugar Reykjavíkur hefur
verið rúmlega 2,3 milljónir gesta á
ári og er Dalslaugin sögð góð viðbót
í ört stækkandi hverfum í austur-
hluta borgarinnar.
Hverfismiðstöðinni er ætlað að
þjóna íbúum í Úlfarsárdal og Graf-
arholti, sem eru um 8.000 talsins.
Alls hafa framkvæmdir við borg-
arhúsið í Úlfarsárdal tekið um sex
ár og er kostnaður við verkefnið um
14 milljarðar kr. VA arkitektar
voru aðalhönnuðir hússins. Í þeim
undirbúningi var lögð áhersla á at-
riði sem stuðla að heilsusamlegra
umhverfi fyrir notendur bygging-
arinnar. Miðað er við að fólk noti
sem mest umhverfisvænar sam-
göngur til og frá hverfismiðstöð-
inni, enda miðast áætlun strætis-
vagna og fjöldi hjóla- og
hlaupahjólastæða við þá viðleitini.
Nauðsynleg aðstaða
Við opnunarathöfnina í Úlfars-
árdal sagði borgarstjóri mikilvægt
að í hverfum borgarinnar væri
nauðsynleg aðstaða, svo sem fyrir
íþróttir og menningu. Í uppvexti
sínum í Árbæjarhverfi fyrir um 30
árum hefðu þar hvorki verið sund-
laug né bókasafn. Fólk hefði orðið
að gera sér að góðu að fara í laugar
í öðrum hverfum og notfæra sér
þjónustu bókabílsins. „Nú er þessi
þjónusta öll komin í Úlfársárdal og
ég er stoltur af því hvernig borgin
hefur staðið að uppbyggingu hér,“
sagði borgarstjóri. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bygging Hugsað var fyrir fjölþættum þörfum íbúa í hverfismiðstöðinni sem
er eitt stærsta fjárfestingarverkefni Reykjavíkurborgar í afar langan tíma.
Dalurinn verður
eftirsóknarverður
- Fjárfestingin um 14 milljarðar kr.
Opnun Borðaklipping borgarstjóra
var á endanum margra manna tak.