Morgunblaðið - 13.12.2021, Side 12
Raðfrumkvöðullinn Elon Musk birti tíst í síð-
ustu viku þar sem hann viðraði möguleikann
á að segja upp störfum sínum og gerast í
staðinn áhrifavaldur á samfélagsmiðlum.
Musk er í dag ríkasti maður heims og eru
auðæfi hans metin á rúmlega 265 milljarða
dala. Hann er þekktur fyrir mikla vinnusemi
og afköst en hann stýrir bæði rafbílaframleið-
andanum Tesla, geimflaugafyrirtækinu
SpaceX, innviðafyrirtækinu The Boring
Company og líftæknifyrirtækinu Neuralink.
Reuters bendir á að Musk eigi það til að slá
á létta strengi á samfélagsmiðlum en þó sé
ekki hægt að segja til um það með vissu hvort
hann hafi verið að grínast.
Musk hefur látið hafa eftir sér að honum
þætti gaman að hafa meiri frítíma, í stað þess
að vinna frá morgni til kvölds sjö daga vik-
unnar.
Það vakti mikla athygli í nóvember þegar
Musk spurði fylgjendur sína á Twitter hvort
hann ætti að selja 10% af eignarhlut sínum í
Tesla. Setti hann spurninguna fram í formi
könnunar og lofaði að fylgja niðurstöðunni.
Úr varð að naumur meirihluti netverja hvatti
hann til að selja og síðan þá hefur Musk selt
frá sér hlutabréf fyrir nærri 12 milljarða
dala.
Verður að teljast ósennilegt að Musk láti af
störfum í bráð en á netfundi í janúar sagðist
hann reikna með að halda áfram að stýra
Tesla í mörg ár til viðbótar. ai@mbl.is
AFP
Lúinn Elon Musk er með mörg járn í eldinum.
Musk gantast með að hætta
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2021
Bætt
hreinlæti
í nýjum heimi
Fáðu ráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki
www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is
13. desember 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 131.11
Sterlingspund 173.16
Kanadadalur 103.07
Dönsk króna 19.876
Norsk króna 14.585
Sænsk króna 14.425
Svissn. franki 141.79
Japanskt jen 1.1529
SDR 183.07
Evra 147.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.781
« Samkvæmt nýj-
ustu tölum hækk-
aði verð á neyt-
endavörum í
Bandaríkjunum
um 0,8% í nóv-
ember og er það
ögn minna en sú
0,9% hækkun
sem mældist í
október. Á tólf
mánaða tímabili
til og með nóvember hefur vísitala
neysluverðs í Bandaríkjunum hækkað
um 6,8% og er það mesta árs-
verðbólga sem mælst hefur þar í landi
síðan í júní 1982. Í október mældist
verðbólga á tólf mánaða tímabili
6,2%.
Verðbólgan í nóvember var umfram
spár hagfræðinga sem reiknuðu að
jafnaði með 0,7% verðbólgu á milli
mánaða, að sögn Reuters.
Á sama tíma fer atvinnuleysi
minnkandi vestanhafs og mældist
4,2% í nóvember og hefur ekki verið
lægri í 21 mánuð. Nýjum umsóknum
um atvinnuleysisbætur hefur fækkað
mikið og voru þær svo fáar í liðinni
viku að leita þarf 52 ár aftur í tímann
til að finna sambærilegar tölur.
Seðlabanki Bandaríkjanna mun
ákveða um miðja þessa viku hvort
tímabært sé að draga úr skuldabréfa-
kaupum og jafnvel hækka stýrivexti.
Þykja verðbólgutölur auka líkurnar á
að seðlabankinn hækki stýrivexti von
bráðar. ai@mbl.is
Verðbólga ekki mælst
meiri í BNA síðan 1982
Dýrtíð Bangsar til
sölu í verslun.
STUTT
Á hluthafafundi olíufélagsins Ro-
yal Dutch Shell á föstudag sam-
þykktu meira en 99% hluthafa til-
lögu þess efnis að flytja
höfuðstöðvar félagsins alfarið til
Bretlands. Fram til þessa hefur
fyrirtækið verið rekið með höfuð-
stöðvar bæði í Haag og í Lund-
únum og verið skráð á verðbréfa-
markað í nafni tveggja fyrirtækja
(e. dual-listed company) þrátt fyrir
að starfa sem ein heild.
Með því að færa reksturinn al-
farið til Bretlands væntir stjórn
Shell að gera megi félagið sam-
keppnishæfara og einfalda arð-
greiðslur og endurkaup eigin
hlutabréfa. Greinir Reuters frá að
tillagan hafi þurft að lágmarki 75%
atkvæða til að verða að veruleika.
Gagnrýnendur telja flutninginn
a.m.k. að hluta til ráðast af úr-
skurði hollensks dómstóls sem í
maí skikkaði Shell til að minnka
koltvísýringsútblástur fyrirtækis-
ins um 45% fyrir árið 2030. Shell
hefur áfrýjað dómnum og svarað
gagnrýnendum með því að um-
hverfisstefna félagsins muni hald-
ast óbreytt þótt höfuðstöðvarnar
færist alfarið til Bretlands.
Breytingin mun líka létta skatt-
byrði félagsins og hluthafa því
Holland leggur allt að 15% afdrátt-
arskatt á arðgreiðslur en það gerir
Bretland ekki.
Yfirvofandi flutningur Shell hef-
ur valdið miklum titringi í hol-
lenskum stjórnmálum og hefur rík-
isstjórn landsins lýst yfir
vonbrigðum sínum með ákvörð-
unina. Þá freistaði flokkur græn-
ingja þess að leggja fram frum-
varp um sérstakan útgönguskatt á
fyrirtækið en sú hugmynd hlaut
ekki hljómgrunn á þingi. ai@mbl.is
Hluthafar Shell fylgjandi
flutningi til Lundúna
AFP
Gremja Smár hópur mótmælenda lét heyra í sér á hluthafafundinum.
Flutningur Shell hefur valdið hollensku ríkisstjórninni vonbrigðum.
- Tillagan samþykkt með nær öllum atkvæðum - Á að bæta samkeppnishæfni
Meirihluti stjórnar seðlabanka Jap-
ans hallast að því að draga úr kaup-
um á skuldabréfum fyrirtækja og
draga einnig úr stuðningi við smærri
japönsk fyrirtæki. Þetta hefur Reut-
ers eftir fjórum ónafngreindum
heimildarmönnum sem þekkja vel til
málsins. Um er að ræða skammtíma-
úrræði sem seðlabankinn hefur beitt
til að styðja við japanskt atvinnulíf í
kórónuveirufaraldrinum.
Þessi inngrip seðlabankans eiga að
renna sitt skeið á enda í mars á næsta
ári en óvíst þótti hvort stuðnings-
verkefnið yrði framlengt. Segja
heimildarmenn að bankinn muni ekki
hvika frá gildandi lágvaxtastefnu en
að fjármögnunarumhverfi japanskra
fyrirtækja hafi farið batnandi og því
ekki ástæða fyrir seðlabankann að
styðja áfram með sama hætti við
þennan hluta hagkerfisins. Stýrivext-
ir langtímalána í Japan eru í dag um
0% og stýrivextir skammtímalána
-0,1%.
Hugsanlegt þykir að stuðningi við
smærri fyrirtæki verið haldið áfram,
í einhverri mynd, þar eð japanskir
neytendur halda enn fast um pyngj-
una.
Heimildarmenn Reuters segja þó
að framhald kunni að verða á örvun-
araðgerðunum ef stjórn seðlabank-
ans þykir líklegt að ómíkrón-afbrigði
kórónuveirunnar valdi óskunda í al-
þjóðahagkerfinu eða verði til þess að
japönsk stjórnvöld grípi til harka-
legra smitvarnaaðgerða. ai@mbl.is
AFP
Byrði Japanskt efnahagslíf hefur
farið sæmilega út úr faraldrinum.
Japansbanki vill
tipla á bremsuna
- Líklegt þykir
að seðlabanki
Japans dragi úr
örvunaraðgerðum