Morgunblaðið - 13.12.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.12.2021, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2021 ✝ Guðrún Mar- geirsdóttir fæddist 25. ágúst 1929 í Vestmanna- eyjum. Hún lést 1. desember 2021 á Hjúkrunarheim- ilinu Eir. Foreldrar hennar voru Mar- geir Guðmundur Rögnvaldsson verkamaður í Vestmannaeyjum, f. 10. júní 1898 í Hnífsdal, d. 20. nóvember 1930, og Anna Gíslína Gísladóttir húsmóðir og verka- kona í Vestmannaeyjum, f. 6. júlí 1898, d. 11. september 1984. Systkini Guðrúnar eru Sig- urþór Margeirsson bifvéla- virkjameistari og forstjóri Hafrafells, f. 27. október 1925 á Kalastöðum á Stokkseyri, d. 22. Guðrún lauk námi í Hjúkr- unarskóla Íslands 1951. Hún vann m.a. við Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum 1951-1952, Kleppsspítalann 1953, Sa- hlgrenska sjúkrahúsið í Gauta- borg 1953-1954 og á fæðing- ardeild Landspítalans 1954-1957. Þá vann hún á Midway Hospital í St. Paul í Minnesota 1957-1963, á Landa- kotsspítala 1964-1968 en síðan á Landspítalanum þar sem hún lauk námi í svæfingahjúkrun 1970. Guðrún var svæfinga- hjúkrunarkona á Landspít- alanum frá 1970 og deildarstjóri frá 1976 og fram á tíunda ára- tuginn. Hún var ógift og barn- laus. Útför Guðrúnar verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag, 13. desember 2021, og hefst athöfn- in klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu að- standendur viðstaddir athöfn- ina. Athöfninni verður streymt á youtubesíðu Grafar- vogskirkju. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat ágúst 2002, og Sig- urður Valdimar Ragnar Margeirsson, f. 17. september 1928, d. 5. mars 1931. Hálfsystkini, sam- mæðra, eru Trausti Sigurðsson vélstjóri, stýrimaður og starfs- maður ÍSALS, f. 14. desember 1932 á Hæli, d. 22. maí 2019, og Brynja Sigurðar- dóttir húsmóðir og verkakona, f. 20. júní 1934 á Hæli, d. 23. september 2011. Guðrún ólst upp með móður sinni og Sigurði Sigurðssyni járnsmíðameistara, f. 11.5. 1889 í Kirkjulandshjáleigu í Austur-Landeyjum, d. 24.4. 1974, stjúpföður sínum á Hæli við Brekastíg 10 í Vest- mannaeyjum. Gunna frænka, samferða mér í 34 ár. Hvað dettur mér fyrst í hug: Stjórnsöm, gjafmild, vinur vina sinna, ræktarsöm, hann- yrðakona, svæfingahjúkka. Fyrstu minningarnar eru mat- arboð, matarboð, matarboð, jóla- boð, kaffiboð, vöfflur og pönnu- kökur. Alltaf meira en nóg af öllu og oftar en ekki sendur heim með nesti. Gunna frænka var systir tengdamömmu og miðpunktur fjölskyldunnar. Gunna frænka var ekki allra en þú áttir hauk í horni ef þú varst í sama liði. Gummi, við erum boðin í mat til Gunnu frænku og gjarnan fylgdi með „biddu hann að taka með sér borvélina“. Hún leitaði oft til mín með alls konar viðvik stór og smá. Alltaf kurteis en kunni upp á 10 að ýta á réttu takkana. Gunna reyndist mörgum í fjöl- skyldunni afar vel og við sem þekktum hana best nutum góðs af því. Á aðfangadag fékk ég það hlutverk að sækja Gunnu frænku og alla jólapakkana. Ekki mátti á milli sjá hvor væri spenntari fyrir pökkunum Gunna eða krakkarnir. Helst vildi hún að pakkarnir frá henni yrðu opnaðir fyrst af öllum. Takk fyrir samfylgdina Gunna mín og ég ætla að leyfa mér að segja að lokum: Blessuð sé minning Gunnu frá Hæl. Guðmundur Karl Bergmann. Gunna frænka er látin. Það er margs að minnast. Hún átti langt og gott líf og lifði lífinu lif- andi. Faðir Gunnu og bróðir dóu báðir úr berklum þegar hún var á öðru ári og hún og Sigurþór, bróðir hennar, glímdu einnig við berkla. Hún var því talsvert frá í skóla vegna veikinda og auðvelt er að ímynda sér óttann sem veikindin ollu í ljósi afdrifa föður og bróður. Sigurþór ólst upp hjá móðurömmu og afa en Gunna fylgdi móður sinni og síðan stjúpföður, Sigurði, þau bjuggu á Hæli við Brekastíg í Vestmanna- eyjum. Hún eignaðist þar tvö yngri systkini, Trausta og Brynju Sigurðarbörn. Gunna lauk námi í Hjúkrunar- skóla Íslands 1951 og bætti síðan við sig í menntun og reynslu bæði í Svíþjóð og Bandaríkjun- um en einnig síðar hér heima. Á þeim tíma, á sjötta áratug síð- ustu aldar, var það ekki svo al- gengt að fólk færi utan til náms eða til vinnu enda fannst frænd- fólkinu ekki amalegt að eiga frænku í henni Ameríku. Systk- inabörnin glöddust líka innilega þegar hún kom í heimsókn með fulla tösku af glæsilegum gjöfum sem ekki voru fáanlegar á Ís- landi. Það var alltaf spenningur í loftinu þegar von var á Gunnu frænku í heimsókn til Eyja. Eftir gos hélt hún heimili fyrir móður sína og stjúpföður í Reykjavík. Gunna frænka hafði alltaf nóg fyrir stafni, fór gjarnan í leikhús og á tónleika o.fl. með vinkon- unum sem nóg var af enda var hún alltaf ræktarsöm. Hún var í rauninni aldrei ein og leiddist aldrei. Gunna var gríðarleg hannyrðakona, saumaði út, prjónaði og skar út í tré. Hún gaf nánast allt sem hún gerði og gripir frá henni prýða ótal heim- ili vina og vandamanna. Þá eru hin fjölmörgu matar- og kaffiboð hennar, sem hún hélt fram eftir öllu, einnig eftirminnileg. Þá var Gunna betri en engin í að að- stoða fólk við að fá læknishjálp og komast að í aðgerðir. Gunna frænka átti afar gott bókasafn og las alla tíð mjög mikið, hafði t.d. mikinn áhuga á ættfræði og sagnfræði. Hún var afskaplega vel að sér um margt, virtist muna allt sem hún hafði lesið og sagði endalaust sögur af því sem hún rifjaði upp, fannst skemmtilegt að segja sögur frá gömlum tíma, sérstaklega frá Eyjum. Það er mikill missir að geta ekki lengur flett upp í Gunnu frænku sem allt vissi. Hún sótti fjölda námskeiða í HÍ um Íslendingasögurnar o.fl. og ferðaðist samfara því á fornar slóðir sagnanna, bæði hér heima og um Bretlandseyjar og Frakk- land. Gunna ferðaðist raunar alla tíð mjög mikið, bæði um Ísland og Evrópu og Ameríku og var fróð um málefni Vestur-Íslend- inga. Hún var jafnframt afar sjálfstæð og sterk kona en gat einnig verið stjórnsöm og gert mannamun þegar sá gállinn var á henni enda hafði hún sterkar skoðanir á mönnum og málefn- um. Umræður og rökræður urðu oft mjög skemmtilegar. Útför Gunnu verður gerð frá Grafarvogskirkju mánudaginn 13. desember. Hennar ósk var að fá að hvíla hjá litla bróður sínum, Ragnari, sem dó svo ungur og þar verður duftkeri hennar kom- ið fyrir. Blessuð sé minning Gunnu frænku. Anna, Sigurður, Helga, Hugrún og Jóhann Ingi. Árið 1922 byggðu vinirnir Hannes og Sigurður parhús við Brekastíg í Vestmannaeyjum. Þeir nefndu húsið Hæli, því að það skyldi verða sannkallað hæli. Hannes og Vilborg kona hans bjuggu austanmegin með dætr- um sínum, Möggu, Jónu og Ástu. Sigurður var einhleypur en kvæntist síðar Önnu, ekkju Mar- geirs. Anna kom með þrjú börn, þ.á m. Guðrúnu, inn í hjónaband- ið. Hér hefst einstakur vinskapur Ástu Hannesdóttur og Guðrúnar Margeirsdóttur, báðar fæddar 1929. Snemma morguns opnar Gunna dyrnar inn í austurhlut- ann og kallar: Gunngunn komin! Stelpurnar á Hæli mega leika sér og er oft glatt á hjalla, sung- ið, spilað og trallað. Vinskapur þeirra endist til æviloka eða rúm 90 ár. En lífið er ekki bara leikur. Gunna missir pabba sinn þegar hún er á öðru ári og Ásta mömmu sína þegar hún er á þriðja ári, þarna eiga þær sam- eiginlega sorg en strengurinn milli þeirra því enn sterkari. Þær eru samskóla en síðan fer Ásta í húsmæðraskóla og Gunna í hjúkrunarnám. Í hvítum stífuðum kjól með hvítan stífaðan kappa vann glæsileg Gunna Mar á Sjúkra- húsinu í Eyjum 1951-1952, á Kleppsspítala 1953, á Sa- hlgrenska sjúkrahúsinu í Gauta- borg til 1954 og á fæðingadeild Landspítala til 1957. Í BNA á Midway Hospital, St. Paul í Minnesota til 1963, á Landakoti til 1968, þá á Landspítala og lauk námi í svæfingahjúkrun 1970. 1976 varð hún deildarstjóri. Hún flaug oft til BNA til að heimsækja vini. Komin þaðan eitt sinn opnaði hún ferða- töskuna og upp reis ilmský af guðdómlegri Youth-Dew-angan. Við heilluðumst og notum enn í dag. Gunna sagði sögur úr BNA, t.d. þessa: Vinnukona læknis- hjóna hafði lengi dáðst að öllu kampavíni þeirra og langaði svo að baða sig í því. Dag einn tæmdi hún flöskurnar ofan í kar- ið, baðaði sig og hvílík nautn! En, úff, ekki gat hún hellt víninu ofan í niðurfallið og allar flösk- urnar tómar? Nei, þá myndi hún tapa vinnunni! Því hellti hún öllu kampavíninu aftur á flöskurnar og tókst m.a.s. að setja kork- tappana aftur í. Það þótti svo mikið afrek að hún var ekki rek- in. Þegar Gunna hló hristist hún af hlátri, svo smitandi að við hlógum þar til við stóðum á önd- inni. Á meðan Ásta og Guðmundur maki hennar búa í Keflavík með Hönnu, f. 1948, stoppar Gunna í nokkra daga. Í þá daga tók það þrjá tíma að aka aðra leið frá Reykjavík. 1955 fæddist Ragnar, sem Gunna kallar bússabarn, og hún kyssir hann mikið. Gunna: „Fyrst kom postulínsdúkkan Hanna og svo þetta krútt, með þessar yndislegu kinnar!“ 1956 gekk lömunarveiki. Ásta veikist og er sett á spítala. Gunna passar börnin á meðan. Gullfallegur Matthías, fæddur 1958, bjargar heilsu mömmu sinnar, 1960 fæðist Margrét Rún eða Gagga Ún. Gunna er einhleyp, því erum við líka hennar börn. Hún gefur okkur ópal og súkkulaði. Síðar koma tertur, rjóma- eða sykur- pönnukökur. Í frístundum vinn- ur hún að hannyrðum svo full- komnum að þær ættu heima á safni. Hún gefur okkur dúka, teppi, föt og handsaumaðar brúður. Og bækur. Vinkonurnar frá Hæli höfðu hvern dag lífsins samband. Þín verður því sárt saknað. Elsku Gunna, ástarþakkir fyr- ir allt! Guð blessi þig og verndi alla tíð. F.h. Ástu Hannesdóttur, Hanna, Ragnar, Matthías og Margrét Guðmundar- og Ástubörn. Nú er brotið blað í lífsins bók Guðrúnar Margeirsdóttur eða Gunnu Margeirs, eins og við kölluðum hana alltaf. Og fram streyma minningar alveg frá því að við vorum litlar stelpur í Hvassaleitinu. Minningar eins og hlátursköstin sem þær fengu hún og mamma að okkur fannst út af engu. Estée Lauder-ilm- vatnslyktin sem okkur fannst svo góð og vissum þá að Gunna var komin í heimsókn. Það gust- aði af henni og aldrei nein logn- molla í kringum hana. Í gegnum árin höfum við verið svo heppnar að eiga margar góðar stundir með henni ásamt foreldrum okk- ar eins og lautarferðir með alls konar góðgæti í tösku og svo sumarbústaðarferðir í hjúkrun- arkvennabústaðinn í Munaðar- nesi. En þær mamma voru báðar hjúkrunarkonur með stóru Hái. Gunna var bókhneigð og mik- ill lestrarhestur og er mjög sterkt í minningunni umræður um bækur og bókmenntir. Hún var ótrúlega flink í handavinnu og erum við svo heppnar að eiga ýmislegt fallegt handverk eftir hana. Við og börnin okkar höfð- um mikla matarást á Gunnu, hún var svo dugleg að bjóða okkur heim, og fannst allt gott sem hún eldaði og pönnsurnar hennar þær bestu. Fyrir okkur átti Gunna stórt líf, það var fjöl- skyldan hennar sem henni var mjög annt um og svo var það allt fólkið hennar í Minnesota. Já hún var heimsdama, alltaf svo fín og flott. Hún Gunna var stór- vinkona fjölskyldunnar og reyndist okkur svo ómetanlega vel í blíðu og stríðu og tók þátt í lífi okkar, stóru jafnt sem smáu. Með virðingu og þökk fyrir allt og allt elsku Gunnar okkar. Hulda og Rannveig (Ranna). Guðrún Margeirsdóttir ✝ Hjörtur Ein- arsson fæddist í Reykjavík 20. sept- ember 1965. Hann lést af slysförum 10. nóvember 2021. Hjörtur var yngstur af fjórum börnum hjónanna Helgu Láru Jóns- dóttur, f. 13.3. 1940, og Einars Sigurðs- sonar, f. 2.12. 1934, d. 7.12. 2006. Systkini hans eru: Alexandra, f. 16.11. 1960, Jón Þór, f. 18.9. 1962, og Guðbjörg, f. 7.9. 1963. Hjörtur var í sambúð með Rakel Svövu Einarsdóttur, f. 21.3. 1975, og átti stjúpson, Ein- ar Ágúst Sveinsson, f. 27.12. 2008. Hjörtur bjó um skeið á Hvammstanga uns hann fluttist til Reykjavíkur. Hann varð áber- andi innan líkamsræktarhreyf- ingarinnar, keppti á mörgum vaxtarræktarmótum og starfaði í World Class í Laugardal um tíu ára skeið. Á kafla var hann við störf á Flórída en hin síðari misseri var hann starfsmaður Krísuvík- ursamtakanna og starfaði hjá Gistiskýlinu Lindargötu fram að dánardegi. Útför hans fór fram frá Laug- arneskirkju 7. desember 2021. Hjörtur gekk að eiga Hólmfríði Ósk Guðbjörnsdóttur, f. 13.9. 1966, og sam- an eignuðust þau dótturina Guð- björgu, f. 16.9. 1986. Sambýlis- maður Guðbjargar er Elvar Már Sig- urgíslason, f. 9.10. 1979. Saman eiga þau nýfæddan dreng, f. 17.11. 2021, en börn hans eru Gabríel Már, f. 2.1. 2003, Óliver Már, f. 9.6. 2005, og Sóldís Birna, f. 1.4. 2011. Það hendir að við rekumst á sama fólkið á svipuðum tíma, á ákveðnum stað, oft í viku. Stund- um daglega. Í sundi, í ræktinni, á kaffihúsum eða hvar sem er. Við kinkum kolli eða spjöllum og áður en við vitum af erum við farin að gera ráð fyrir því að hitta viðkomandi, jafnvel þótt við höfum ekki hugmynd um hvað hann eða hún heitir. Eða við hvað viðkomandi starfar. Það er aukaatriði af því það getur verið notalegt að vera hér og nú, eiga samskipti sem tilheyra augna- blikinu eingöngu, hlusta og með- taka. Einn er sá kappi sem ég hef rekist á í ræktinni árum saman eða nánast frá því ég hóf að stunda líkamsrækt reglulega. Hann bar þess merki að vera sjóaður í bransanum, hafði ýmsa fjöruna sopið, reynslubolti, tók almennilega á því, gaf engan af- slátt og var með rétta einbeit- ingu, þrautseigju og dugnað til að ná árangri. Alltaf kátur, yfir- vegaður og gaf mikið af sér. Mörgum árum eftir að ég kynntist kappanum, eða kynntist honum ekki, komst ég að því hvaða nafn hann bar. Og hann þekkti ekki mitt til að byrja með. Samskipti okkar hófust með léttum „skotum“ og fífla- skap en fljótlega áttuðum við okkur á því að við höfðum svip- aða lífssýn og deildum áþekkum skoðunum. Hann bar hag þeirra fyrir brjósti sem minna máttu sín og starfaði á þeim vettvangi. Og hann minnti mig reglulega á að engir tveir einstaklingar væru eins og að við ættum að bera virðingu fyrir öllum. Fyrirvaralaust var Hjörtur Einarsson horfinn úr lífi okkar. Hann lést af slysförum. Hver dagur er dýrmætur og samskipti okkar við aðra skipta máli. Við vitum aldrei hvenær kallið kem- ur. Áhrifin sem við höfum á aðra eru eitt það dýrmætasta sem til er. Það mun aldrei líða mér úr minni hversu fallega Hjörtur kom fram við aðra. Ég votta fjölskyldu hans, vin- um og ættingjum samúð mína. Hans verður sárt saknað á „okk- ar“ stað og minningin um ein- stakan dreng mun lifa. Þorgrímur Þráinsson. Hjörtur Einarsson Það var snemma árs 2014 sem ég kem inn á skrifstofu PwC á Húsavík sem þá var, líkt og tæp 40 ár á undan, stýrt af Birni St. Haraldssyni. Guðbrandur Sigurðarson, þáver- andi framkvæmdastjóri PwC, hafði mögulega náð að sannfæra mig um að það gæti verið gott tækifæri að taka við skrifstofu PwC á Akureyri og vinna náið með Birni að framgangi skrif- stofanna á Akureyri og Húsavík svo og að leysa Björn af hólmi þegar að starfslokum hans kæmi. Fyrsti fundur okkar Björns var mér eftirminnilegur. Skrif- stofa PwC var þá til húsa á Garðarsbraut 15 og óhætt að segja að skrifstofan hafi haft heimilislegt yfirbragð þar sem Margrét, eiginkona Björns, réð ríkjum og tók vel á móti mér líkt og um væri að ræða hennar eigið heimili, og eftir að hafa farið yfir Björn Steindór Haraldsson ✝ Björn Steindór Haraldsson fæddist 27. sept- ember 1950. Hann lést 27. nóvember 2021. Útför Björns fór fram 7. desem- ber 2021. helstu mál, ætt- fræði o.fl., var mér vísað inn á skrif- stofu Björns. Þarna sat fyrir framan mig maður á 64. aldursári sem var í betra formi en ég sjálfur og ég rétt um þrítugt. Björn tók á móti mér með sínum hætti, fór yfir rekstur skrif- stofunnar í grófum dráttum og hóf síðan að rekja úr mér garn- irnar um hin ýmsu mál. Skemmst er frá því að segja að þessi fundur okkar gekk vel, þótt Björn hefði nú aldrei við- urkennt það, og ég sannfærður um að rétta skrefið væri að starfa með Birni að því sem síð- ar varð PwC á Norðurlandi. Samstarf okkar Björns og ekki síður Margrétar var far- sælt, og er það ómetanleg reynsla að hafa fengið að njóta leiðsagnar þeirra sem fagfólks með sín gildi um heiðarleika og hreinskiptni að leiðarljósi. Að geta leitað til þeirra með hin ýmsu mál var alltaf auðsótt og samtölin mörg. Björn var þó ekki endilega að orðlengja sam- tölin og oftar en ekki þegar búið var að leysa úr málinu hafði Björn á orði „var það eitthvað fleira?“ til vísbendingar um að samtalinu væri nú lokið og tími til kominn að snúa sér að öðru. Litið til baka finnst mér eins og samstarf okkar Björns hafi varað í fjölmörg ár en í reynd störfuðum við einungis saman í um eitt og hálft ár. Er það til marks um hve lærdómsríkur tími það hafi verið, fyrir mig. Björn ákvað á vormánuðum 2015 að nú væri nóg komið í þessu starfi, stóð upp úr skrifstofu- stólnum og afhenti mér lyklana að skrifstofunni. Ég túlkaði það sem svo að nú væri mér treyst- andi fyrir skrifstofunni hans, þótt Björn hefði nú sennilega aldrei viðurkennt það. Til þess að skiptin myndu ganga betur fyrir sig ákvað Margrét að starfa áfram um nokkurra mánaða skeið á skrifstofunni á Húsavík og fyrir það er ég henni ævin- lega þakklátur. Það var og er ánægjuefni að upplifa þá virðingu sem Björn hafði unnið sér inn hjá viðskipta- vinum skrifstofunnar á Húsavík og samferðarmönnum. Sú upp- lifun kom mér að sjálfsögðu ekki á óvart. Björn var sporgöngu- maður í víðasta skilningi þess orðs og var það og er vandasamt verk að fylgja hans spori og lík- ast til það eina sem maður getur gert er að passa að hrasa ekki. Takk fyrir allt og allt Björn. Elsku Margrét, innilegar sam- úðarkveðjur til þín og fjölskyld- unnar. Rúnar Bjarnason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.