Morgunblaðið - 13.12.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 13.12.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2021 110 Ve Va Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „OG ÞÚ SEGIR AÐ HJÓLIÐ ÞITT HAFI VERIÐ LÆST MEÐ KEÐJU UTAN UM ÞAÐ?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að æfa sporin fyrir hana. MORGUN- KAFFIÐ STARTKAPLAR MÓÐUR NÁTTÚRU SJÁIÐ! ÖRK! MÁ ÉG KOMA UM BORÐ? ÞVÍ MIÐUR … ÞAÐ ER EKKI PLÁSS FYRIR FLEIRI DÝR! „SVO ÞÚ MANST EKKI EFTIR ÞVÍ AÐ HAFA ÉTIÐ BANANANN NÉ ÞVÍ AÐ HAFA HENT HÝÐINU VIÐ FÆTUR FÓRNARLAMBSINS – EINGÖNGU ÖLL HLÁTRASKÖLLIN?“ unarfræðingur. Þau eru búsett í Garðabæ. Foreldrar Sveinbjargar eru hjónin Einar Jónsson, skrif- stofumaður, f. 4.1. 1935 í Hafn- arfirði, og Guðrún Einarsdóttir, húsmóðir og fv. starfsstúlka, f. 28.7. 1934 á Ormarsstöðum í Fell- um. Þau eru búsett í Reykjavík. Börn Ásgeirs og Sveinbjargar eru 1) Margeir, f. 15.1. 1986, rekstrarverkfræðingur. Í sambúð með Herdísi Ómarsdóttur rekstr- arverkfræðingi. Búsett í Garðabæ. Börn þeirra eru Valdís Eva, f. 2012, Ásgeir, f. 2014, og Ómar Atli, f. 2016; 2) Einar, f. 31.10. 1987, fóðurfræðingur og kynbóta- dómari. Kvæntur Hrönn Hafliða- dóttur landslagsarkitekt. Búsett í Hafnarfirði. Dætur þeirra eru tví- burarnir Unnur og Hlín, f. 2014, og Þóra Guðrún, f. 2019; 3) Ólafur, f. 27.2. 1992, hestafræðingur og reiðkennari. Í sambúð með Lizu Esmeröldu Karlsson, reiðkennara og skrifstofumanni. Búsett í Bor- ås, Svíþjóð. Dóttir þeirra er Íris Lilja, f. 2019. Systkini Ásgeirs: Árni Mar- geirsson, f. 29.10. 1957, d. 25.6. 1997, teiknari og útgefandi, var búsettur á Egilsstöðum; Ragnhild- ur Margeirsdóttir, f. 10.6. 1960, skrifstofumaður, búsett í Njarð- vík, og Veigar Margeirsson, f. 6.6. 1972, tónskáld. Var lengi búsettur í Los Angeles, en býr nú í Kópa- vogi. Foreldrar Ásgeirs: Hjónin Mar- geir Ásgeirsson, fiskmatsmaður frá Hnífsdal, f. 12.8. 1931, d. 20.10. 1993, og Ásthildur Árna- dóttir, fv. skrifstofumaður frá Ísa- firði, f. 2.9. 1938. Þau bjuggu í Keflavík, en Ásthildur er nú bú- sett í Njarðvík. Ásgeir Margeirsson Sigríður Jóna Þorbergsdóttir húsfreyja á Látrum í Aðalvík, síðar í Reykjavík Ólafur Helgi Hjálmarsson útvegsbóndi á Látrum í Aðalvík, síðar vélvirkjameistari í Rvík Ragnhildur „Hulda“ Ólafsdóttir skrifstofumaður og húsfreyja í Keflavík Árni Ólafsson skrifstofustjóri í Keflavík Ásthildur Árnadóttir, fv. skrifstofumaður í Keflavík, nú búsett í Njarðvík Ásthildur Sigurrós Sigurðardóttir húsfreyja á Arngerðareyri og Ísafirði Ólafur Pálsson kaupm. á Ísafirði, verslunarstjóri á Arngerðareyri og endurskoðandi í Reykjavík Elísabet Júlíana Guðnadóttir bjó í Hnífsdal Vilhjálmur Markússon sjómaður í Bolungarvík Rannveig Karlína Margrét Vilhjálmsdóttir húsfreyja í Hnífsdal Ásgeir Randver Kristjánsson, verkamaður og sjómaður í Hnífsdal Guðrún Ásgeirsdóttir, húsfreyja í Hnífsdal Kristján Björnsson verkamaður í Súðavík Ætt Ásgeirs Margeirssonar Margeir Ásgeirsson, fiskmatsmaður í Keflavík Á laugardaginn birtist hér í Vísnahorni gáta Guðmundar Arnfinnssonar: Tengja karl og konu má, kannski líka fiska tvo. Tónar streyma tíðum frá. Á töðuvelli eru svo. Eysteinn Pétursson leysti gátuna svo skemmtilega að mér finnst svar hans í heild eiga erindi í Vísnahorn: „Ég vona sannarlega að þessi lausn sé rétt, því að ég er búinn að hafa mikið fyrir þessu! Fyrst kom þetta: Maður um konu bandi brá. Batt ég ýsuband sjónum á. Tónar berast mér bandi frá. Band á túnum ég einatt sá. Svo fékk ég eftirþanka um að menn kynnu að sjá merki um of- beldi í fyrstu línunni og þá varð þetta til: Par í hjónaband hneppa má. Hengja menn keilubönd enn á rá? Tónar berast mér bandi frá. Band á túnum ég einatt sá. En svo sótti á mig efi um að fólk þekkti almennt til þeirrar skreiðar- verkunar sem ég fékkst við ungur, þegar tvær keilur (fiskar) voru spyrtar saman og hengdar unn- vörpum á rár til þerris, þær svo pressaðar saman og þeim pakkað á Nígeríumarkað. Þannig að til þess að allir mættu nú njóta skáldskaparins án mikillar fyrirhafnar setti ég að lokum þetta saman: Par í hjónaband hneppa má. Hnýtti ég ýsuband títt á sjá. Tónar berast mér bandi frá. Band á túnum ég einatt sá. Reyndar hef ég orðið þess áskynja, að ungir menn um fimm- tugt kannast ekki við orðið ýsuband – þannig að kannski er þetta allt unnið fyrir gýg! Ég ætla að leyfa þér að ráða hvort þú „tekur sjensinn“ og birtir eitthvað af þessu.“ Ég fékk góðan póst frá gömlum vini: „Hinrik Már Jónsson, sem býr á Syðstu-Grund, undir hinu fagra fjalli Glóðafeyki í Skagafirði, birtir gjarnan myndir af bæjarfjalli sínu. Nýlega birti hann mynd af fjallinu í fallegri vetrarsól. Guðmundur Sveinsson á Sauðárkróki brást þannig við: Hulinn snjó og hnakkakerrtur á himni skýjadrag. Feykirinn er furðu sperrtur fagurt er í dag. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vísur um band s og Glóðafeykir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.