Morgunblaðið - 22.12.2021, Side 6

Morgunblaðið - 22.12.2021, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Á síðasta fundi borgarráðs voru kynntar niðurstöður starfshópa um uppbyggingu tveggja íþróttamann- virkja í Laugardal, þ.e. tennishúss og viðbyggingu við Skautahöllina. Starfshópur um tennishús legg- ur til að byggt verði á lóð TBR, gegnt Glæsibæ, 2.500 fermetra hús með fjórum tennivöllum ásamt 900 fermetra viðbyggingu á tveimur hæðum auk kjallara. Fyrir eru á lóð- inni tvö hús með badmintonvöllum. Áætlaður kostnaður við þessar byggingar er 985 milljónir króna. Einnig leggur starfshópurinn til að byggðir verði fjórir tennisvellir á núverandi grasæfingasvæði Þrótt- ar en félagið mun skila svæðinu til borgarinnar þegar byggðir hafa ver- ið tveir nýir gervigrasvellir í Laug- ardal. Þrjú félög í Reykjavík eru með tennisdeildir, Fjölnir, Víkingur og Þróttur. Nýlega lauk endurgerð á tveimur völlum á svæði Víkings í Fossvogi. Þörfin fyrir aðstöðu hefur vaxið hröðum skrefum og í dag leigir borgin aðstöðu fyrir félögin þrjú í Tennishöllinni í Kópavogi og greiðir fyrir um 16 milljónir króna árlega. Á sama fundi borgarráðs voru kynntar hugmyndir Íþrótta- bandalags Reykjavíkur um stækkun Skautahallarinnar í Laugardal. Í greinargerð kemur fram að um nokkurra ára skeið hafi verið unnið að tillögum um endurbætur og ný- framkvæmdir við Skautahöllina. Mikil þörf sé á fjölgun æfingatíma á ís enda séu skautaíþróttir stundaðar hjá þremur félögum í Reykjavík og það fjórða sé á leiðinni. Einnig sé kominn tími á ýmiss konar viðhald á mannvirkinu, m.a. á anddyri. Þá liggi fyrir óskir um aukna aðstöðu, svo sem þrek- og danssali og félags- aðstöðu ásamt því að koma fyrir keilusal. Yfirbyggt æfingasvell mætti mögulega nýta á sumrin fyrir viðburði, svo sem tónleika, leiklist, markaði o.þ.h. „Lagt er til að farið verði í framkvæmdir í samræmi við fyr- irliggjandi tillögur. Heildar- fermetrafjöldi nýbyggingar er 1.960, þar af 870 fm keilusalur. Gera má ráð fyrir að með endurbótum sem þarf að gera á eldra húsnæði sé heildarkostnaður um 850 milljónir króna (600 milljónir án keilusalar),“ segir í greinargerðinni. Nýtt tennishús og Skautahöll stækkuð Tölvumynd/THG arkitektar Skautahöllin Svona gæti viðbyggingin litið út. Þetta eru frumdrög og útlitið gæti breyst við frekari útfærslu. - Reykjavíkurborg undirbýr íþróttamannvirki í Laugardal Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Íslandsmótið Tennisíþróttin hefur átt vaxandi vinsældum að fagna. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mikill fjöldi Íslendinga dvelur á sól- arströndum nú um jól og áramót. Margir verða til dæmis á Kanarí- eyjum, Tenerife og Gran Canaria, og eru í pakkaferðum íslenskra ferðaskrifstofa. Segja má raunar að síðustu daga hafi verið loftbrú milli Íslands og Gran Canaria, með flugi á mánudag og síðasta vélin fyrir jól fer utan í dag. Tæplega 200 farþeg- ar hafa verið með hverri ferð, heim- an og heim. „Ég var úti á flugvelli núna rétt áðan að sækja hóp, alls 184 farþega, fólkið sem verður hér fram til 3. jan- úar. Hingað er fólk komið til þess að halda gleðileg jól og vera kann að hangikjöt sé í ferðatöskum ein- hverra,“ segir Karl Rafnsson, far- arstjóri hjá Vita. Hann telur að nokkuð á annað þúsund Íslendinga verði á Gran Canaria um jól og ára- mót, margir til dæmis á Ensku ströndinni og í Maspalomas, sem er syðst á eyjunni. „Fólk er áfram um að komast í sólina og hjá okkur er vel bókað, bæði á hótel og í flug,“ segir Þórunn Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Úr- vals-Útsýnar. „Okkar áfangastaðir á Spáni núna yfir veturinn eru Tener- ife á Kanaríeyjum og aðrir staðir þar. Staðan til næstu vikna litið er góð. Að vísu koma áhuginn og bók- anir í bylgjum, sem fylgir því hver staðan á Covid er. Þegar ný bylgja faraldursins rís detta bókanir aðeins niður, en svo jafnast þetta út á nokkrum dögum. Fyrirkomulag sóttvarna ytra er gott og fólk aðlag- ast vel reglum þar.“ Þægilegt hitastig Meðal Íslendinga sem eru á Ten- erife um þessar mundir er Gísli Gíslason landslagsarkitekt sem dvelst með fjölskyldu sinni í bænum El Chorillo, nokkru fyrir utan höfuð- borgina Santa Cruz „Hitastig hér er núna 20-23 gráð- ur, sem er mjög þægilegt. Við erum hér í stóru húsi og út af fyrir okkur, en vitum af fjölda Íslendinga hér í grenndinni. Vissulega finnur fólk hér vel fyrir veirunni og ýmsum ráð- stöfunum sem gilda hennar vegna. Í verslunum er grímuskylda og á veit- ingastöðum mega ekki fleiri en sex sitja saman við borð. Þá er víða spurt um bólusetningarvottorð, sem gott er að hafa alltaf tilbúið.“ Ljósmynd/Gísli Gíslason Tenerife Svamlað í sælu á Los Silos, sem er lítið þorp nyrst á sólareyjunni. Halda nú jól í sól suður á Tenerife - Á annað þúsund Íslendinga á svæðinu SPORTÍS DÚNALOGN SKE I FAN 1 1 1 08 REYKJAV ÍK S POR T I S . I S 520-1000 Meira en þriðjungur umsókna um al- þjóðlega vernd á Íslandi fyrstu 11 mánuði ársins kom frá Venesúela- búum. Umsóknir þeirra voru 254 en heildarfjöldi umsókna 720. Næst- flestar umsóknir, 85, komu frá Pal- estínumönnum og svo 71 umsókn frá fólki frá Afganistan. Útlendingastofnun tilkynnti 17. desember sl. „um breytta stjórn- sýsluframkvæmd við mat á þörf rík- isborgara Venesúela fyrir viðbótar- vernd. Breytingin felst í því að lagt verður einstaklingsbundið mat á um- sóknir ríkisborgara Venesúela um vernd hér á landi og hefur í för með sér að þeir fá ekki lengur skilyrðis- laust viðbótarvernd á grundvelli al- mennra aðstæðna í heimalandi.“ Stofnunin tekur upp breytt verk- lag 1. janúar 2022 og verður þá lagt einstaklingsbundið mat á hverja um- sókn frá einstaklingum með venesú- elskt ríkisfang með vísan til sjónar- miða um viðbótarvernd. Undanfarin misseri hafa umsækjendur frá Vene- súela fengið viðbótarvernd með vís- an til almennra aðstæðna í heima- landinu óháð einstaklingsbundnum aðstæðum. Í rökstuðningi fyrir breyttri framkvæmd segir m.a.: „Fyrir liggur að yfirgnæfandi meirihluti umsækjenda um alþjóð- lega vernd frá Venesúela ber fyrir sig efnahagslegar aðstæður og óöryggi í heimalandi. Þá hefur stofn- unin fengið upplýsingar um ríkis- borgara Venesúela sem hafa fengið vernd hér á landi en hafa kosið að fara aftur til heimalands í lengri eða skemmri tíma og með því nýtt sér vernd heimaríkis á ný. Slíkt getur verið grundvöllur afturköllunar á vernd þar sem verndin er veitt á þeirri forsendu að öryggi flótta- manns sé í hættu í heimalandi. Snúi hann þangað aftur gefur það í skyn að flóttamaðurinn þurfi ekki á al- þjóðlegri vernd að halda.“ Útlendingastofnun telur því ekki forsvaranlegt að beita ákvæði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga þannig að umsóknir allra umsækjenda frá Venesúela „falli skilyrðislaust innan ramma viðbótarverndar skv. ákvæð- inu, án þess að skoðað sé sérstaklega hvernig almennar aðstæður horfi við þeim umsækjanda sem um ræðir í hverju tilviki fyrir sig“. Verklagið verður innleitt í skref- um og verður ekki beitt afturvirkt. Breytingarnar eru einnig til sam- ræmis við framkvæmd í nágranna- ríkjum okkar. gudni@mbl.is Breyta mati á þörf fyrir vernd - Fjöldi hælisleitenda frá Venesúela

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.