Morgunblaðið - 22.12.2021, Side 16

Morgunblaðið - 22.12.2021, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2021 Ferðaskíði, brautargönguskíði og fatnaður frá Haglöfs, Craft og We Norwegians. Selásbraut 98, 110 Reykjavík, sími 419 7300, sportval.is Þú færð jólagjöfina hjá okkur Skv. matvælastofn- un Þýskalands er bannað að fram- kvæma blóðtöku á hryssu sem er fylfull eða nýbúin að kasta folaldi og er enn mjólkandi. Hvað þá ef hún er bæði nýbúin að kasta og strax orðin fylfull aftur – hvor tveggja skilyrðin til banns eru fyrir hendi – eins og gerist í blóðmerahaldi hér. Blóðtaka er þá auðvitað stranglega bönnuð. Auk þess setur þýska mat- vælastofnunin önnur skilyrði eins og þau að hryssur séu minnst þriggja ára, minnst 400 kg að þyngd og blóð sé ekki tekið oftar en á 30 daga fresti. Alls staðar virðist gilda sú regla að ekki sé farið yfir 10% af blóð- magni við blóðtöku. Ísteka hefur stundað blóðtöku úr hryssum sem bæði eru fylfullar og mjólkandi, hvort tveggja í senn, í 20 ár. Með sjö daga millibili, í ágúst og september, 15% af heild- arblóði eða meira í hvert skipti, alls átta sinnum, með fulltingi MAST og ráðherra. Þyngd ís- lenskra mera mun vera um 350 kg. Er einhver hæfa í þessu? Félagið hefur reynt að sannfæra menn um að öll þeirra starfsemi sé dýravæn, dýrunum sé engan veginn ofboðið, misþyrmingar og ofbeldi komi alls ekki til, og full- yrðir Ísteka þetta á heimsíðu sinni: „… það eru vandfundin hús- dýr sem hafa það betra en blóð- gefandi hryssur“. Á heimasíðu Ísteka er líka m.a. þessi fyrirsögn: „Fimm mínútna blóðgjöf“. MAST hefur hins vegar staðfest að blóðtakan taki jafnan 15 mín- útur, eftir að búið er að reyra meri kirfilega niður á blóðtökubás. Því miður er MAST heldur ekki með sín blóðmeramál á hreinu. Í bréfaskiptum okkar við MAST í febrúar 2020 áttu þessi orða- skipti sér stað: Jarðarvinir: „Í Suður-Ameríku eru þær (merarnar) oft knúðar inn í básana með raflosti, beittum prikum, járnstöngum, spörkum eða höggum. Gerist það líka hér?“ Svar MAST: „Nei. Því fer fjarri að „augljóslega þurfi að beita hryssurnar ofbeldi“.“ Á öðrum stað fara þessi orða- skipti fram: Jarðarvinir: „Nú eru þetta villt dýr. Er augljóst að ekki verður tappað blóði af þeim nema með heiftarlegu ofbeldi gagnvart þeim. Beðið er um lýsingu á þessum blóðtökuaðferðum.“ Svar MAST: „Blóðtökustaðan er þannig útfærð, að hryssurnar renna alla jafna átakalaust inn í blóðtökubása …“ „… renna alla jafna átakalaust …“; ekki stenst þessi lýsing, eins og myndbönd dýravernd- unarsamtakanna sýna. Hví skyldi MAST halda vernd- arhendi yfir þeirri óiðju sem blóð- merahaldið er í stað þess að verja dýrin og velferð þeirra? Er ein- hver með skýringu á þessari með- virkni, þessum verkefna- og ábyrgðarruglingi MAST? Eins og margoft hefur komið fram eru blóðmerarnar flestar ótamdar, hálf- eða alvilltar, og í útigangi allt árið. Að vetri eru flestar þeirra þann- ig settar út á „guð og gaddinn“ en umönn- un, umhirða og fóð- urgjöf bænda er oft stopul og misjöfn, stundum dögum sam- an engin. Auðvitað gildir þetta mest um ákveð- inn lítinn hóp bænda, ábyrgðarlausra slóða, en er nógu slæmt fyr- ir það. Í desember 2019 fórust 93 hryssur ásamt folöldum sínum einar og yfirgefnar á víða- vangi, í fárviðri sem þá gekk yfir Húnavatnssýslur og Skagafjörð, sennilega allt blóðmerar; krókn- uðu með hörmulegum hætti til dauða! Þarna var um útigangshross af 46 bæjum að ræða þannig að vart er hægt að flokka þennan öm- urlega hrossaskaða undir einangr- aðar undantekningar. Bændurnir sem áttu dýrin og báru ábyrgð á þeim og velferð þeirra gengu svo sumir um grenj- andi og létu eins og þeir hefðu ekkert fengið að gert til að verja og vernda dýrin, eins og þeim bar. Ef menn geta ekki tryggt ör- yggi og velferð sinna dýra, líka þegar íslenskt vetrarveður og snjóstormar geisa og klakabrynja leggst yfir jörð, ættu þeir að snúa sér að einhverju öðru. Blóðmerahaldið hefur því ekki bara eina skuggahlið heldur marg- ar. Í Morgunblaðinu 13. desember sl. eru fréttir undir fyrirsögnunum „Kostar tugi milljóna“ (á forsíðu) og „Ísteka herðir eftirlitið“. Þar er fjallað um skrif Ísteka til blaðsins þar sem fullyrt er að fyrirtækið ætli að ráðast í kostn- aðarsamar og víðfeðmar umbætur á eftirliti með blóðtöku hryssa. Eins er greint frá því að Ísteka hafi rift samningi við tvo bændur, sem á að sýna að hér sé alvara á ferð. Varla er þó hægt að taka þetta alvarlega þar sem bænd- urnir sem stunduðu blóðmerahald sl. sumar voru 119 talsins. Dýraverndunarsamtökin þýsku og svissnesku, sem að rannsókn blóðmerahaldsins hér stóðu, hafa lagt áherslu á að þessi illa meðferð hryssanna við að koma þeim í blóðtökubás og tappa af þeim fimm lítrum af blóði sé almenna reglan, ekki undantekning! Kjarni málsins er sá að Ísteka og MAST hafa þóst hafa góða stjórn á þessu blóðmerahaldi und- anfarin 10-20 ár en það hefur greinilega alls ekki verið raunin – framkvæmdin hjá Ísteka og eft- irlitið hjá MAST. Er engin ástæða til að ætla að það takist frekar nú, hvað sem öllum fréttatilkynn- ingum og yfirlýsingum líður, enda er vandinn sá að blóðmerarnar eru ótamin villt dýr í útigangi og eftir því sem meira og harðar er gengið að þeim, þau meira og lengur kvalin, þeim mun styggari og fælnari verða þau. Eftir Ole Anton Bieltvedt » Þýska matvælastofn- unin setur þau skil- yrði að hryssur séu minnst þriggja ára, minnst 400 kg að þyngd og blóð sé ekki tekið oft- ar en á 30 daga fresti. Ole Anton Bieltvedt Höfundur er stofnandi og formaður Jarðarvina. Svik og vanhöld Ísteka og MAST – píslarganga blóð- mera um vetur Heimilislæknirinn var hálfvandræða- legur á svipinn. „Þetta er bara vottur af blöðrubólgu,“ sagði hann. „Smáerting … en sko, þú verður að fara þegar þér er mál,“ bætti hann við og reyndi að ná augn- sambandi við 17 ára einhverfa dóttur mína, en hún stóð upp og strunsaði í átt að dyrunum. „Það er ekki hægt að nota klósettin í skólanum,“ sagði hún ergileg. „Strákarnir geta alltaf komið inn, það er ekkert prí- vat, svo ég verð að halda í mér þangað til ég kem heim.“ Hún skellti hurðinni á eftir sér svo veggurinn skalf og skekkti vatns- litamyndir af búfé á beit. Fáir virðast skilja praktískar af- leiðingar þess að lögleiða „sjálf- kenni kyns“. Aðallega eru það karl- ar sem hafa nýtt sér réttinn til að tékka sig inn í kvenkyn með sam- svarandi réttindamissi fyrir konur. Hér í Bandaríkjunum hafa trans- aðgerðasinnar vaðið yfir kynbundin réttindi kvenna og reisn; inn í sal- erni kvenna og búningsklefa; í kvennaíþróttir, sem hafa verið yf- irteknar af körlum í konuleik; inn í kvennafangelsi, þar sem konur verða að deila vistarverum með körlum, sama hvort þeir eru blíð- lyndir skattsvikarar og þjófar eða nauðgarar og morðingjar. Transaðgerðasinnar hafa rennt sér hratt og langt á jakkalöfum réttindahreyfingar homma og lesbía – sem einungis báðu aðra að taka sér eins og þau voru og eru. Transaðgerðasinnar krefjast þess hins vegar að aðrir taki þeim eins og þeir eru ekki. Trans á ekkert sameiginlegt með mannréttinda- hreyfingum, sem berjast fyrir að minnihlutahópar njóti sömu rétt- inda og aðrir þjóðfélagsþegnar. „Sjálfkenni kyns“ er rangnefni og öfugmæli. Það snýst um að þvinga aðra til að auðkenna og viðurkenna þig sem meðlim þess kyns sem þú segir þig vera; að aðrir staðfesti og viðurkenni þitt trúkerfi. Trans er trú og Trans-Rannsóknarrétturinn refsar villutrú á sama hátt og hinn upp- runalegi – með ofbeldi, ofsóknum og einelti sem geta kostað þig mannorð þitt og lífs- viðurværi, ef ekki lífið sjálft. Á Vesturlöndum hefur raunveruleik- anum verið afneitað til að þóknast trans- aðgerðasinnum. En það er ekki nóg. Þeir vilja tungumálið líka. Og hvers vegna ekki? Þeir þurfa ekki einu sinni að biðja um það. Stjórnmálamennirnir, stórfyr- irtækin og „kvenréttinda“hreyfing- arnar, sem telja að málfrelsi, skoð- anafrelsi og réttindi kvenna og barna séu einskis virði, vilja endi- lega gefa þeim tungumálið okkar. Á CDC krefst kvenfyrirlitningin þess að „fólk“ sé þungað og með leghálskrabbamein en karlar eru með blöðruhálskirtilskrabbamein. „Womnx og „men“ eru á TED Talks. Mannréttindastofa Reykja- víkurborgar og Kvennahreyfingin (KVENNAhreyfingin) töldu orðið „kona“ svo móðgandi að í umsögn- um með frumvarpi að lögum nr. 43/2019 um þungunarrof báðu þær löggjafann að nota önnur orð. „… í stað þess að vísa einvörð- ungu til kvenna … sé notað kona/ þungaður einstaklingur [því] í sam- félaginu eru einstaklingar með æxl- unarfæri kvenna [e.þ.s. konur] sem ekki upplifa sig sem konur.“ Í „ljósi þess að fólk með leg skil- greinir sig ekki allt sem konur verður þetta orðfæri [að vísa til „kvenna“] að teljast óþarflega tak- markandi“, sagði Þóra Kristín Þórsdóttir, „forynja Kvennahreyf- ingarinnar“ (og kjöltuhvolpur transaðgerðasinna). „Nóg er af orðum sem hægt er að nota … eins og [nýyrðin] legberar og barns- berar.“ „23 einstaklingar hafa fengið kyn sitt leiðrétt [eins og kynferði sé prentvilla] í þjóðskrá“ segir í riti Mannréttindastofu Íslands um „transgender réttindi“. Kyn- gervishugmyndafræðin er, eins og önnur hugmyndafræði sér- trúarsafnaða, þjóðfélagslega fram- leiddur, smitandi sjúkdómur („so- ciogenic illness“), svo talan nú er án efa hærri. Á Íslandi eru 180 þúsund konur. Helmingur þjóð- arinnar. Þær vita að þær eru kon- ur – rétt eins og við vitum að rign- ing er blaut – og séu þær ósáttar við „konur“ hafa þær ekki kvartað, a.m.k. ekki hátt, en Kvennahreyf- ingin, sem var stofnuð af konum fyrir konur, telur ráðlegast að losna við orðið. „Nýyrðin“, sem gætu verið úr Handbók landbúnaðarins um bú- fjárhald og fjöldaframleiðslu, sýna greinilega hvernig transaðgerð- asinnar líta á konur – ekki sem manneskjur, heldur samansafn lík- amshluta. Eiga þessir nýyrðasmiðir systkini? Börn? Ég á þrjú. Eitt er semsagt „legberi“, hin tvö eru … pungberar? Mhm, já í guðs bæn- um, losið okkur við eineltisvaldinn og orðskrípið „kona“ úr … legbera- málinu? Við skulum endilega banna orðin sem við notum til að tjá okk- ur um raunveruleikann – enda höf- um við greinilega enga þörf fyrir hann lengur – og nota í staðinn hé- giljur og falskt froðusnakk, full- komið til að lýsa lyginni sem við lifum. Kyngervishugmyndafræði er ná- kvæmlega … gervi. Lygi. Karlar eru konur. Stelpur eru strákar. Upp er niður. Svart er hvítt. Heitt er kalt. Við vitum að mannverur geta ekki skipt um kyn frekar en þær geta skipt um kynþátt. Að halda öðru fram – að láta börn og unglinga synda í „öllu þessu botn- lausa lygakviksyndi [sem] er verið að hrósa“, eins og Þórbergur sagði, er beinlínis misnotkun. Eftir Írisi Erlingsdóttur Íris Erlingsdóttir »Mannverur geta ekki skipt um kyn frekar en kynþátt. Að halda öðru fram – að láta börn synda í „þessu botn- lausa lygakviksyndi“ – er beinlínis misnotkun. Höfundur er fjölmiðlafræðingur og skoðanakrimmi. Hún býr í Bandaríkjunum. LURI24@gmail.com Dóttir mín legberinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.