Morgunblaðið - 22.12.2021, Side 14

Morgunblaðið - 22.12.2021, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2021 Það fór eins og búist var við heilbrigð- isráðherra gerði minnisblað sótt- varnalæknis að til- lögum sínum. Þannig hefur það verið í tæp tvö ár og enn er ekkert sem bendir til að breyt- ing verði á. Sóttvarnalækni er í raun treyst fyrir því að taka allar ákvarðanir og umræðan um það hvernig þessum málum skuli háttað til framtíðar bíður enn. Þetta fyrirkomulag kann að hafa verið óhjákvæmilegt þeg- ar farsóttin skall skyndilega á og enginn vissi við hvað var að fást eða hversu lengi glíman stæði. Fljótlega greip um sig mikil bjartsýni hér á landi, svo mikil að einhverjir töldu sigur í höfn og útdeildu fálkaorðum til þeirra sem staðið höfðu í eldlín- unni. Skömmu síðar kom í ljós að veiran var ekki farin, hún fór bara í sumarfrí. Við tók ný bylgja, svo önnur, enn önnur og svo framvegis. Og nú er komin enn ein og enn eitt afbrigðið, sem sagt er betra en hin fyrri en þá eru þeir jafnvel til sem telja það verra. En hvort sem það er betra eða verra að afbrigðið sé betra, þá er í það minnsta allt sem bendir til að nýjasta afbrigðið verði mun færri að fjörtjóni en hin fyrri og að það breiðist hraðar út, sem ætti að þýða að það geti tekið yfir, sem ætti að vera af hinu góða. Í þessu eru vitaskuld mörg álitaefni og þekking að auki ófullkomin, eins og sést af því hve skoðanir þeirra sem fara fyrir þessum málum breytast með tímanum. Áður var talið að tvær sprautur af bólusetningu yrðu til að slá veiruna kalda, en það gerðist ekki. Nú er því jafnvel haldið fram að þessar tvær sprautur hafi lítið að segja og fyrri smit sömuleiðis, en að þriðja sprautan geri út- slagið. Landsmenn hafa al- mennt tekið þessu vel og drifið sig í þriðju sprautuna, sem von- andi verður til að draga úr út- breiðslu smitanna og umfram allt alvarlegum veikindum. En er hægt að ganga að því vísu? Getur ekki verið að fljót- lega komi afbrigði sem kalli á fjórðu eða fimmtu sprautuna? Enn vægara afbrigði en enn meira smitandi. Hvað gerum við þá? Verður öllu skellt í lás á ný? Við slíkum vangaveltum hafa aldrei fengist svör og til þess vísað að ekki sé hægt að segja neitt um aðgerðir fyrr en á hólminn er komið. En er það ásættanlegt? Getum við búið við slíkt fyrirkomulag til fram- búðar? Og þá hve lengi? Veiran virðist ekkert á förum og gæti, í ýmsum afbrigðum, fylgt okk- ur árum saman. Bjarni Bene- diktsson fjár- málaráðherra vék að þessu í gær og sagði að kallað væri eftir því „að á sama tíma og við bregðumst við ástandinu á grundvelli upplýsinga sem breytast frá degi til dags, þá verðum við á sama tíma að teikna upp nýja framtíðarsýn, eitthvað plan um það hvernig við hyggjumst tryggja sem fyrst að fólk endurheimti eðli- legt líf“. Fleiri hafa sett fram svip- aðar athugasemdir, til að mynda Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, sem segir það ríka skoðun innan þingflokksins að svona víðtækar frelsisskerðingar í þetta langan tíma án þess að fyrir liggi einhver áætlun eða markmið „um hvernig við ætl- um að stefna að því að lifa með veirunni, að það þurfi að koma eitthvað meira til til þess að rökstyðja svona harðar tak- markanir“. Nauðsynlegt er að þingið taki þessi mál til rækilegrar umræðu. Það má aldrei verða léttvægt að skerða frelsi fólks og þó að það kunni að vera nauðsynlegt við ákveðnar að- stæður og til skamms tíma, til að mynda þegar farsótt skellur skyndilega á hér á landi og um heiminn allan, þá hljóta allt önnur lögmál að gilda þegar mánuðir og ár líða og allt útlit er fyrir að ástandið vari lengi enn. Skiljanlegt er að margir hafi fengið það á tilfinninguna að undanförnu að minna þurfi til nú en fyrir tveimur árum að stjórnvöld grípi til íþyngjandi aðgerða. Sterkar vísbendingar eru um að veiran hafi mun minni áhrif á heilsufar almenn- ings en áður, hvort sem þar er að þakka vægari afbrigðum, út- breiddum bólusetningum, meiri þekkingu eða betri lyfjum, eða, sem ekki er ósennilegt, að sam- bland þessara þátta ráði já- kvæðri þróun. Efast má um að fyrir tveimur árum hefði verið gripið til jafn umfangsmikilla aðgerða og nú er gert við þá hættu sem virðist á ferðum. Ekki er með því verið að gera lítið úr því að veira virðist dreifa sér nokkuð hratt, en sem betur fer hefur hún ekki valdið þeim heilsufarsvanda sem vart varð í fyrri bylgjum. Sagt er að það ástand kunni að koma upp síðar, en ekki verður séð að gögn styðji þann ótta. Þá er vísað til þess að spít- alinn ráði mögulega ekki við vandann sem upp kunni að koma. Nær tveimur árum eftir að faraldurinn gerði vart við sig hér er það tæpast ásætt- anlegt og hlýtur að kalla á sér- staka athugun og aðgerðir. Ekki er hægt að búa við skammtíma- ástand árum saman} Framtíð með faraldri BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is S koðunarstöðvarnar hafa barist við kerfið vegna þessarar Evróputilskip- unar sem verið er að inn- leiða hér. Því miður hefur stefnan verið sú að taka hana nánast hráa upp og lítið samráð verið haft við skoðunarstöðvarnar,“ segir Ómar Pálmason, framkvæmdastjóri Aðal- skoðunar, um reglur um skoðun ökutækja sem taka gildi 1. janúar. „Ef vantar annað núm- erisljósið þá mun það kalla á end- urskoðun, þótt þetta hafi ekki áhrif á umferðaröryggi. Skoðunarstöðv- arnar eru óánægðar með þetta og mörg fleiri atriði sem eru ekki fólki til hagsbóta, heldur þvert á móti.“ Taki nýju reglurnar gildi óbreyttar er ljóst að notkun bíla verður oftar bönnuð en hingað til þar til bætt hefur verið úr göllum sem finnast við skoðun. „Með þessu er verið að gera fólki óleik, að mínu mati. Kerfið hefur alveg virkað hingað til,“ seg- ir Ómar. „Svo virðist sem sam- gönguyfirvöld hafi ekki nýtt sér neinar undanþáguleiðir til að sníða þetta að íslenskum aðstæðum og gera mildara fyrir almenning. Margar aðrar þjóðir hafa nýtt sér slíkar undanþágur.“ Ómar bendir á að hingað til hafi verið hægt að framlengja frest vegna endurskoð- unar á ökutækjum, sem hafi oft komið sér vel. Nú á að þrengja það svigrúm og bætist það við vand- ræði sem hafa skapast vegna skorts á varahlutum og erfiðleikum við að fá tíma á verkstæði. „Ef fólk kemur svo með bílinn í endurskoðun á tilsettum tíma og það er ekki búið að gera við öll at- riðin sem athugasemd var gerð við í skoðuninni verður notkun bílsins einfaldlega bönnuð. Þarna vantar einhvern sveigjanleika,“ segir Óm- ar. Ljóst þykir að hertar reglur um ökutækjaskoðun geti orðið erf- iðar þeim sem eiga um langan veg að fara til að láta skoða bílinn sinn. Þyki ástandi bílsins ábótavant í mörgum atriðum, þótt það varði ekki umferðaröryggi, hefur fólk hingað til haft svigrúm til að koma bílnum í viðgerð. Á nýju ári má það einungis fara beint frá skoð- unarstöð á verkstæði en ekki er víst að það sé gerlegt fyrir þá sem búa langt frá verkstæði og skoð- unarstöð. Starfsmenn skoðunarstöðva eru þegar farnir að fá hótanir frá óánægðum bíleigendum vegna væntanlegra breytinga á reglum um skoðun, sem stöðvarnar ráða þó engu um. Ómar kveðst vona að reglurnar verði lagaðar áður en þær taka gildi, þótt fyrirvarinn sé stuttur. Hann segir ýmislegt til bóta í hinu nýja regluverki og skoðunarstöðvarnar ekki gert neinar athugasemdir við þau atriði. FÍB segir sumt til bóta Félag íslenskra bifreiðaeig- enda (FÍB) segir á heimasíðu sinni að félagið fagni nokkrum breyting- anna í nýju reglugerðinni. M.a. tíð- ari skoðun bílaleigubíla en þeim er yfirleitt ekið mun meira en einka- bílum. Einnig verður skerpt á skoðunartíðni annarra þjónustu- bíla. Fylgst verður sérstaklega með óeðlilegum breytingum á stöðu akstursmælis, t.d. ef eknum kíló- metrum fjölgar ekki á milli skoð- ana. Ökutæki sem einkum eru not- uð yfir sumarið, eins og bifhjól, húsbílar, hjólhýsi, fellihýsi, tjald- vagnar og fornbílar, á framvegis að skoða í maí. Bíla sem notaðir eru til ökukennslu, skólabíla og at- vinnubíla sem flytja hreyfihamlaða á að skoða oftar en áður. Umdeildar breyting- ar á ökutækjaskoðun Morgunblaðið/Ernir Bifreiðaskoðun Nýjar reglur taka gildi 1. janúar og þykja þær strangar. Breytingar verða á skoð- un ökutækja 1. janúar næstkomandi. Þá taka gildi ákveðin atriði nýrrar reglu- gerðar um skoðun öku- tækja (414/ 2021). Með breytingunni er verið að upp- færa kröfur og heimildir sam- kvæmt tilskipun Evrópusam- bandsins. Samgöngustofa birti frétt 7. desember sl. um reglugerðina. Þar segir m.a. að ýmis nýmæli og breytingar fylgi reglugerð- inni. Sumt á erindi við alla eig- endur og umráðamenn öku- tækja en annað snýr að tilteknum gerðum ökutækja. Ný og breytt skoðunarhand- bók vegna skoðunar ökutækja hafði ekki verið birt í gær. Við- mælendur sem rætt var við voru margir tregir til að tjá sig fyrr en hún liggur fyrir. Talsverðar breytingar 1. JANÚAR 2021 Ómar Pálmason Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þ að er ómetanlegt fyrir fjölskyldu í einangrun vegna kórónuveitus- mits að finna velvild fjölskyldu og vina sem leggja óhikað alls kyns lykkjur á leið sína til að aðstoða og gleðja. Það skiptir engu hvort um er að ræða aðstoð við jólagjafakaup eða matarinn- kaup, bakstur eða ísgerð, boð um afþreying- arefni á borð við púsluspil eða bækur eða aðr- ar útréttingar. Við erum fámenn og samheldin þjóð og sem betur fer eiga flest okkar góða bakhjarla þeg- ar á móti blæs. Það er hins vegar mikilvægt í erli dagsins að muna eftir þeim sem ekki eiga marga að. Okkur er öllum hollt að staldra við og athuga hvort við getum einhvers staðar boðið fram hjálparhönd. Þannig styrkjum við og eflum það samfélag sem við viljum búa okkur og börnum okkar til frambúðar. Eitt fallegasta einkenni íslensks samfélags eru félögin sem við eigum um allt land og hafa tekið sér það hlutverk að starfa að björgun, leit og gæslu í þágu almennings. Björgunar- og hjálparsveitir sem bjarga bæði manns- lífum og verðmætum, alla daga ársins sama hvað á geng- ur. Við leitum til þeirra vegna óveðurs eða björgunar úr sjávarháska og snjóflóðum, þegar fólk týnist, þegar að- stoða þarf fórnarlömb náttúruhamfara og við gæslu á stórviðburðum svo fátt eitt sé talið. Félagar björgunarsveitanna eru sjálfboðaliðar sem verja ómældum tíma og orku í þjálfun og undirbúning auk þess að nýta stóran hluta frítíma síns, þar með talin sumar- og jólafrí, í verkefni sem tengjast þessu mikilvæga og óeigingjarna hjálparstarfi í okkar þágu. Eitt af stóru verk- efnunum er fjáröflun, því öll þessi starfsemi kostar pening þótt björgunarsveitarfélagar gefi eigin vinnu. Heimakstur á jólatrjám Jól og áramót eru annatími hjá björg- unarsveitunum. Þetta er líka sá tími ársins sem alla jafna hefur gefið vel í fjáröflun margra þeirra. Fyrst og fremst með sölu jóla- trjáa og flugelda. Það segir sitt um útsjón- arsemina og kraftinn að nú þegar fjöldi heim- ila er í kórónuveirueinangrun og fjölskyldur eiga þess vegna erfitt með að nálgast jólatré, þá bjóða sveitirnar upp á heimakstur á jóla- trjám og greni. Okkar jólatré er þannig komið í hús. Við fjölskyldan verðum vonandi komin á ról á milli jóla og nýárs til að geta sjálf mætt á okkar vanalega stað í Öskjuhlíðinni að kaupa flugelda af björgunarsveitinni okkar. Ég treysti því góða fólki sem þar starfar til að ráðleggja okkur við kaupin með umhverfissjónarmið í huga. Við ætlum okkur að minnsta kosti að finna áfram leið til að styrkja björgunarsveitir. Gleðilega jólahátíð kæru lesendur. hannakatrin@althingi.is Hanna Katrín Friðriksson Pistill Þau sem bjarga Höfundur er þingflokksformaður Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.