Morgunblaðið - 22.12.2021, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 22.12.2021, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2021 Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Hátíðar hnetusteik Lífrænt - Vegan - Glúteinlaust Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Nettó, Vegan búðin, Fiskkompaní, Iceland verslanir, Heimkaup, Kjörbúðin, Frú Lauga og Matarbúr Kaju á Akranesi „GIFSTU MÉR OG ÉG SKAL GEFA ÞÉR FLATSKJÁ.“ „VIÐ ERUM MEÐ TVÆR GERÐIR AF BÖKUM: HÁLFHRÁAR OG OFELDAÐAR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera í öruggum höndum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann NEI, ÞÚ MÁTT EKKI AUGLÝSA HUNDASJAMPÓ „KÆRA SPYRÐU HUNDINN, HVERNIG AFBERÐU AÐ VERÐA ÚTBÍAÐUR ÞEGAR ÞÚ GREFUR HOLUR?“ ÞETTA ER GÓÐUR NÁTTSTAÐUR, HRÓLFUR! HANN STENDUR HÁTT OG HÉR ER RENNANDI VATNOG SKJÓL FYRIR VINDINUM! HANN EROF GÓÐUR! matarboð eða partí sem endar með karókísöng og dansi. Ég hlakka til þegar faraldurinn verður yfirstaðinn og hægt verður að endurvekja þá hefð í fjörugu fimmtugsafmæli.“ Ásta Sóllilja er að heiman á afmæl- isdaginn og heldur upp á tímamótin með eiginmanni og börnum í Mið- Ameríku, á ströndum Kosta Ríka. Fjölskylda Eiginmaður Ástu er Kjartan Örn Ólafsson, f. 25.10. 1972, fram- kvæmdastjóri. Þau búa í Þingholt- unum í Reykjavík. Foreldrar Kjart- ans eru Elín Bergs, f. 11.6. 1949, bókaútgefandi, búsett í Kópavogi, og Ólafur Ragnarsson, f. 8.9. 1944, d. 27.3. 2008, útgefandi og sjónvarps- maður. Þau voru gift frá 1968. Börn Ástu og Kjartans eru 1) Val- týr Örn, f. 31.10. 1997, viðmótshönn- uður og forritari hjá Inch, búsettur í Reykjavík; 2) Elín Halla, f. 23.8. 1999, hagfræðinemi við Háskóla Ís- lands, búsett í Reykjavík; 3) Ólafur Helgi, f. 1.6. 2007, gagnfræðaskóla- nemi, búsettur í Reykjavík. Systkini Ástu eru 1) Ingólfur Guð- mundsson, f. 16.8. 1975, sérfræð- ingur í tæknibrellum hjá RVX ehf., áður í Los Angeles í Bandaríkj- unum, nú í Reykjavík; 2) Gyða Val- dís Guðmundsdóttir, f. 12.1. 1982, barnahjúkunarfræðingur á Barna- spítalanum, búsett í Reykjavík. Foreldrar Ástu eru Halla Hauks- dóttir, f. 21.5. 1946 í Reykjavík, líf- eindafræðingur, búsett í Kópavogi, og Guðmundur Ingólfsson, f. 28.4. 1946 í Reykjavík, ljósmyndari og eigandi ljósmyndastofunnar Ímynd- ar, búsettur í Kópavogi. Þau hafa verið gift frá 1973. Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir Guðmundur Einarsson skipstjóri og seglasaumari í Reykjavík, stofnandi SeglagerðarinnarÆgis Helga Guðmundsdóttir húsmóðir í Reykjavík Ingólfur Guðmundsson flugvélstjóri og flugvirki í Reykjavík Ásta Ingibjörg Þorsteinsdóttir hattagerðardama, húsmóðir og matráður í Reykjavík Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari, búsettur í Kópavogi Þorsteinn Guðlaugsson sjómaður og verkamaður í Reykjavík Ástríður Oddsdóttir húsmóðir í Reykjavík Þorleifur Jónsson óðalsbóndi, hreppstjóri og alþingismaður í Hólum Sigurborg Sigurðardóttir húsmóðir í Hólum í Nesjum,A-Skaft. Haukur Þorleifsson aðalbókari Búnaðar- bankans í Reykjavík Ásthildur Gyða Egilson ritari og þýðandi í Reykjavík Gunnar Þorsteinsson Egilson, stjórnarerindreki Íslands á Spáni og víðar. Síðast bús. í Reykjavík Guðrún Pétursdóttir Egilson, fædd Thorsteinsson húsmóðir, síðast í Reykjavík Ætt Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur Halla Hauksdóttir lífeindafræðingur, búsett í Kópavogi Tómas Tómasson sendi mér hug- leiðingu um heimsmeistara í handbolta kvenna: Hyllum eftir hörkustyr heimsmeistara núna. Íslands-Bersar áður fyr aldrei misstu trúna. Noregs varð þá næsta von natinn Selfyssingur. Heiðrum Þóri Hergeirsson hann um bolta syngur. Indriði Aðalsteinsson á Skjald- fönn yrkir um „Fengitíð“: Nú er í fjárhúsum fjarri því rótt, en feiknlegur hasar um krærnar. Mér hafðist að klára, kræfur í nótt, að koma hrútum í ærnar. Og bætti við að „mjög margar gengu og ætti burður því að byrja 11.-13. maí“: Magnús Halldórsson skrifar í Boðnarmjöð: „Þegar ég sem ungur maður reið með Tungnamönnum til fjalls að hausti, þá í eftirsafn sem kallað var, þ.e. aðra leit, vorum við vanir að syngja og tralla alla leiðina inn í Hvítárnes, bara fimmtíu til sextíu kílómetrar hjá flestum. Orðnir nokkuð kenndir stundum þegar inn úr var komið, ekki þó til vansa, enda var oft stoppað. Aldrei vissi ég hvort Þórður Kárason orti stökuna, sem gjarnan var sungin þegar líða tók á dag. Nema ég sé gjörsamlega farinn að tapa minni“: Veginn ríðum við í kveld, varðir kvíða’ og trega. Okkur líður að ég held, alveg prýðilega. Enn skrifar Magnús og tekur úr fréttum: „Landvernd furðar sig á þeirri ósk forsetans að bara helm- ingur Bessastaðatjarnar verði frið- aður.“ Við Bessastaða búsforráð, býsn er Guðni hollur. Þó hlotið aðeins hafi náð, hálfur drullupollur Sigurlín Hermannsdóttir skrifar: „Ekki er fyrr kominn tími hinna þjófóttu sveina en endalausar ásak- anir birtast um (rit)stuld“: Þeir stela’ öllu steini léttara og stimpast um hvað sé réttara; orðfæri, kvæðin og alþýðufræðin svo flýgur um allt þessi frétt bara. Guðrún Guðmundsdóttir orti: Margt er klungur mæðunnar meir en ungur hyggur. Einhver drungi ömunar á mér þungur liggur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af heimsmeistara og vetrarvesen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.