Morgunblaðið - 22.12.2021, Side 31

Morgunblaðið - 22.12.2021, Side 31
ÍÞRÓTTIR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2021 _ Spænska liðið Valencia mátti sætta sig við tap 85:97 fyrir Cedevita Olim- pija frá Slóveníu í Evrópubikar karla í körfuknattleik í gærkvöld. Valencia hefur unnið fjóra af sjö leikjum sínum í keppninni og er í fjórða sæti en fjögur lið af tíu í B-riðlinum komast áfram. Olimpija hefur unnið þrjá af fimm og á enn von um að komast áfram. Martin Hermannsson skoraði 10 stig fyrir Val- encia í gær. Hann gaf einnig 3 stoð- sendingar og tók eitt frákast. _ Knattspyrnumarkvörðurinn Guðjón Orri Sigurjónsson er kominn til liðs við uppeldisfélag sitt ÍBV og hefur samið við það til tveggja ára. Guðjón Orri er 29 ára gamall Eyjamaður og lék með ÍBV til ársins 2015, en hann varði mark liðsins í 24 leikjum í úrvalsdeild- inni. Hann lék með Stjörnunni 2016, Selfossi 2017, aftur með Stjörnunni 2018 og 2019 og með KR 2020 og 2021. Hann lék sjö úrvalsdeildarleiki með Stjörnunni og tvo með KR en alla leiki Selfoss í 1. deildinni 2017. _ Miðjumaðurinn Ernir Bjarnason er genginn til liðs við knattspyrnulið Keflavíkur. Ernir er 24 ára gamall, upp- alinn hjá Breiðabliki, en lék síðan með Fram og Vestra, og með Leikni í Reykjavík frá 2018 þar sem hann spil- aði 11 leiki í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. _ Laufey Harpa Halldórsdóttir knatt- spyrnukona frá Sauðárkróki er gengin til liðs við Breiðablik og hefur samið við félagið til tveggja ára. Laufey er 21 árs, leikur sem vinstri bakvörður, og var í stóru hlutverki hjá Tindastóli þegar liðið vann sér sæti í úrvalsdeild- inni og þegar það lék í deildinni á þessu ári en þá spilaði hún sautján af átján leikjum Skagfirðinga. _ Adana Demirspor, lið Birkis Bjarna- sonar, vann stórliðið Galatasaray í efstu deild tyrknesku knattspyrnunnar í gær. Birkir lék á miðjunni hjá Adana Demirspor sem vann 2:0 þótt Galatas- aray hafi verið meira með boltann og átt mun fleiri skottilraunir. _ Haukar unnu sannfærandi sigur á Hrunamönnum þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik, þeirri næstefstu, á Flúðum í gærkvöld. Að loknum fyrri hálfleik var staðan 69:40 og Haukar sigruðu 120:76. Jeremy Smith skoraði 32 stig fyrir Hauka en Ingvi Freyr Óskarsson 15 fyrir Hruna- menn. _ Gísli Þorgeir Kristjánsson var at- kvæðamikill þegar Magdeburg tryggði sér í gær sæti í 8-liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handknattleik. Magdeburg heimsótti Hamm og vann með fimm marka mun 31:26 en forskot Magdeburg var stærra um tíma í síðari hálfleik. Gísli skoraði fjögur mörk fyrir Magde- burg og átti að auki tvær stoð- sendingar á sam- herjana. Ómar Ingi Magnússon skor- aði þrjú mörk fyr- ir Magdeburg sem hefur gengið allt í haginn til þessa á keppnistímabilinu. Eitt ogannað Knattspyrnukonan Heiðdís Lillýj- ardóttir er nú stödd við æfingar hjá portúgölsku meisturunum Benfica. Heiðdís er 25 ára gömul og leikur sem miðvörður. Hún er uppalin hjá Hetti á Egilsstöðum, lék síðan með Selfossi en með Breiðabliki frá árinu 2017. Hún á að baki 114 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skor- að þrjú mörk. Heiðdís er samnings- bundin Breiðabliki út 2023 en er í viðræðum við Benfica um láns- samning. Heiðdís myndi svo snúa aftur til Blika næsta vor þegar tímabilið hefst á nýjan leik. Heiðdís lánuð til Benfica? Morgunblaðið/Unnur Karen Portúgal Heiðdís Lillýjardóttir gæti leikið með Benfica til vorsins. Handknattleiksþjálfarinn Ágúst Jó- hannsson verður áfram þjálfari kvennaliðs Vals til sumarsins 2025 en hann hefur nú framlengt samn- ing sinn til þess tíma. Ágúst hefur þjálfað Valsliðið frá 2017 og það varð Íslands-, deildar- og bikar- meistari undir hans stjórn 2019, deildarmeistari 2018 og lék til úr- slita um Íslandsmeistaratitilinn við KA/Þór á síðasta tímabili. Ágúst er jafnframt aðstoðarþjálfari kvenna- landsliðs Íslands og verður í þjálf- arateymi karlalandsliðsins á EM í Ungverjalandi í næsta mánuði. Ágúst samdi til ársins 2025 Morgunblaðið/Eggert Valur Ágúst Jóhannsson verður áfram á Hlíðarenda næstu árin. EM 2022 Kristján Jónsson kris@mbl.is Guðmundur Þ. Guðmundsson, lands- liðsþjálfari karla í handknattleik, til- kynnti í gær hvaða tuttugu leikmenn koma til með að verja heiður Íslands að óbreyttu í lokakeppni EM karla í Búdapest í janúar. Áður hafði Guð- mundur valið þrjátíu og fimm leik- menn og þeir sem ekki voru valdir eru gjaldgengir á mótinu ef gera þarf breytingar. Guðmundur sagði á blaðamanna- fundinum í gær að hann hefði verið í góðu sambandi við Hauk Þrast- arson, leikmann stórliðsins Kielce í Póllandi. Guðmundur metur stöðuna þannig að Haukur eigi enn nokkuð í land til að ná fyrri styrk á vellinum eftir krossbandsslit. Þar af leiðandi sé hann ekki valinn að þessu sinni en er einn þeirra sem hægt væri að kalla í ef ástæða þykir til. Haukur kom við sögu hjá Kielce á undirbún- ingstímabilinu og í upphafi tímabils- ins. Var hann smám saman að kom- ast í gang en svo kom bakslag þegar hann tognaði á ökkla og Haukur gat af þeim sökum lítið beitt sér þegar landsliðið kom saman til æfinga í nóvember. Einn hægri hornamaður Mesta athygli vekur að einungis einn hægri hornamaður er í hópnum en það er Sigvaldi Björn Guðjóns- son. Arnór Þór Gunnarsson, sem var fyrirliði á HM í Egyptalandi, gaf ekki kost á sér og virðist vera að draga sig út úr landsliðinu. Hann er þó á fyrrnefndum leikmannalista og myndi ef til vill vera tilbúinn að hlaupa í skarðið ef íslenska liðið yrði fyrir áföllum í Búdapest. Guðmundur valdi hins vegar fimm örvhenta leikmenn í hópinn en fjórir þeirra eru skyttur. Guðmundur sagði á fundinum í gær að tveir þeirra gætu leyst Sigvalda af þegar á þyrfti að halda. Þar á hann vænt- anlega við Viggó og Ómar Inga. Arnór hefur verið lengi í landsliðinu og nú er ábyrgðin alfarið hjá Sig- valda, sem hefur flest það sem góður hornamaður vill hafa eins og geysi- legan stökkkraft. Íslenska liðið býr afar vel að eiga þessar fjórar skyttur hægra megin því allir fjórir hafa staðið sig með prýði í sterkum deildum í atvinnu- mennskunni. Auk þess eru þeir nokkuð ólíkir. Ómar hefur marga kosti eins og oft hefur komið fram en þá sérstaklega yfirsýnina, leikskiln- inginn og gegnumbrotin. Kristján Örn og Teitur eru kraftmeiri og geta ógnað fyrir utan punktalínu. Viggó hefur sýnt á síðustu árum að hann finnur leiðina að markinu og getur skilað mörgum mörkum. Stóra breytingin á milli stórmóta nú er vitaskuld sú að Aron Pálmars gat ekki verið með í Egyptalandi en er nú leikfær. Aron er í sérflokki í landsliðinu um þessar mundir. Bæði hvað varðar hæfileikana en ekki síst vegna þess sem hann hefur upplifað sem handboltamaður. Þegar hann er inni á ættu aðrir leikmenn að fá meira pláss til að at- hafna sig. Í hópnum eru einmitt leik- menn sem eru stórhættulegir ef þeir fá svigrúm. Leikmenn eins og Ómar, Gísli Þorgeir og Janus Daði geta vaðið í gegnum varnirnar ef varn- armennirnir koma út á móti. Sveinn fær aftur tækifæri Markvarðastaðan er líklega sú mikilvægasta í hverju handboltaliði og Guðmundur sagði á fundinum í gær að sín tilfinning væri sú að markvörðurinn hefði orðið enn mik- ilvægari í handboltanum á síðustu árum. Björgvin Páll er í hópnum og ásamt þjálfurunum er hann sá eini sem eftir er úr liðinu sem vann til verðlauna á ÓL í Peking árið 2008. Viktor Gísli og Ágúst hafa kynnst stórmótum og því er ágæt reynsla í markvarðateyminu. Segja má að þessir þrír markverðir séu ólíkir og vega vonandi hver annan upp. Fjórir leikmenn voru valdir í stöðu línumanns en ekki síður til að vera í miðri vörninni. Þar getur Elv- ar Örn einnig leikið svo það sé tekið fram. Arnar, Ýmir og Elliði hafa ver- ið í landsliðinu og spilað mikið. Sveinn hefur af og til verið valinn og var með á EM í Svíþjóð 2020. Sveinn er mjög líkamlega sterkur og Guð- mundur hældi honum sérstaklega eftir landsleiki í vor. Fjórtán til taks Fjórtán leikmenn sem voru, auk Hákons Daða Styrmissonar, í upp- haflega 35 manna hópnum eru til taks ef skipta þarf um leikmenn. Há- kon sleit krossband á dögunum. Leikmennirnir eru: Daníel Freyr Andrésson (Guif), Grétar Ari Guðjónsson (Nice), Vign- ir Stefánsson (Val), Bjarni Ófeigur Valdimarsson (Skövde), Daníel Þór Ingason (Balingen), Einar Þorsteinn Ólafsson (Val), Óskar Ólafsson (Drammen), Andri Rúnarsson (Stuttgart), Haukur Þrastarson (Kielce), Hafþór Már Vignisson (Stjörnunni), Arnór Þór Gunnarsson (Bergischer), Finnur Ingi Stefáns- son (Val), Óðinn Þór Ríkharðsson (KA/Gummersbach) og Heimir Óli Heimisson (Haukum). Fimm örvhentir valdir í hópinn fyrir EM 2022 - Hópurinn kynntur í gær - Haukur Þrastarson missir af öðru stórmóti Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Valinn Teitur Örn Einarsson hefur leikið vel með Flensburg að undanförnu og er kominn í landsliðið á ný. MARKVERÐIR: Björgvin Páll Gústavsson, Val .................................................................. 236/16 Ágúst Elí Björgvinsson, Kolding, Danmörku............................................. 41/1 Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG, Danmörku.............................................. 25/1 HORNAMENN: Bjarki Már Elísson, Lemgo, Þýskalandi.................................................. 82/230 Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kielce, Póllandi ............................................ 39/86 Orri Freyr Þorkelsson, Elverum, Noregi...................................................... 1/1 SKYTTUR OG LEIKSTJÓRNENDUR: Aron Pálmarsson, Aalborg, Danmörku ................................................ 152/593 Ólafur Andrés Guðmundsson, Montpellier, Frakklandi..................... 133/266 Ómar Ingi Magnússon, Magdeburg, Þýskalandi ................................... 56/150 Janus Daði Smárason, Göppingen, Þýskalandi........................................ 49/69 Elvar Örn Jónsson, Melsungen, Þýskalandi ........................................... 46/120 Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg, Þýskalandi............................... 32/51 Viggó Kristjánsson, Stuttgart, Þýskalandi............................................... 21/55 Teitur Örn Einarsson, Flensburg, Þýskalandi ......................................... 21/22 Kristján Örn Kristjánsson, Aix, Frakklandi ............................................. 12/18 Elvar Ásgeirsson, Nancy, Frakklandi ........................................................... 0/0 LÍNU- OG VARNARMENN: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen, Þýskalandi .................................... 63/76 Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Necker Löwen, Þýskalandi........................... 52/23 Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach, Þýskalandi ................................. 13/14 Sveinn Jóhannsson, SönderjyskE, Danmörku ......................................... 12/24 Hópur Íslands á EM 2022

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.