Morgunblaðið - 31.12.2021, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14
25
ára
1996-2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Þrjú ný farsóttarhús
- 350-400 gestir í einangrun í farsóttarhúsum um áramótin - Með þremur nýjum
hótelum verður hægt að hafa 600 gesti eða svipaðan fjölda og býr á Eyrarbakka
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Starfsfólk farsóttarhúsa var í gær í
óðaönn að kalla inn gesti í einangrun
í nýtt hótel sem Rauði krossinn hef-
ur fengið til afnota í þeim tilgangi.
Myndast hafði biðlisti en Gylfi Þór
Þorsteinsson, umsjónarmaður far-
sóttarhúsa, von-
aðist í gær til þess
að ný aðstaða
dygði til að
hreinsa upp bið-
listann. Búast má
við að 350-400
manns gisti þar
um áramótin en
það svarar til
íbúafjölda Hellis-
sands.
Sjúkratrygg-
ingar hafa samið við ferðaþjónustu-
fyrirtæki um að fá 200 herbergja
hótel til notkunar fyrir fólk sem
sýkst hefur af kórónuveirunni. Álma
með 100 herbergjum var tekin í
notkun í gær og fyrradag og önnur
hundrað herbergi komast í gagnið
næstkomandi mánudag. Enn eru al-
mennir gestir á hótelinu en þeir
verða fluttir á önnur hótel.
Húsin fyllast jafnóðum
Gylfi Þór sagði í gærmorgun að
reiknað væri með því að nýja aðstað-
an myndi fyllast í gær, meðal annars
með því að taka alla inn sem voru
komnir á biðlista. Bjóst hann við því
að nýr biðlisti myndi myndast um
helgina en væntanlega yrði hægt að
leysa úr þeim vanda á mánudaginn,
þegar seinni helmingur hótelsins
bætist við. Gylfi segir að fólk sem
dvelur í farsóttarhúsum sé að meiri-
hluta til Íslendingar en í vaxandi
mæli erlendir ferðamenn sem grein-
ast með Covid við skimum fyrir flug
frá landinu. Gestirnir eru á öllum
aldri. Þannig var yngsti gesturinn
sem von var á í gær 20 mánaða gam-
alt barn.
Þegar nýja hótelið hefur verið tek-
ið í notkun að fullu verða farsóttar-
húsin með fjögur hótel undir á höf-
uðborgarsvæðinu og eitt á Akureyri,
með alls 455 herbergjum. Í fyrstu
viku janúarmánaðar bætast síðan við
tvö hótel til viðbótar þannig að
gestafjöldinn getur náð um 600
manns. Samsvarar það íbúafjölda
Eyrarbakka. „Þetta ræðst af smit-
tölum og við verðum svolítið að elta
skottið á okkur þangað til við fáum
viðbótina í janúar,“ segir Gylfi Þór.
Reynt að fjölga starfsfólki
35 starfsmenn eru hjá farsóttar-
húsum og er verið að ráða fólk til við-
bótar og þjálfa það upp. Gylfi Þór
segir að þetta séu tímabundin störf
og gangi hægt að fá fólk til starfa. Í
staðinn aukist álagið á núverandi
starfsfólk. Telur hann að þörf verði á
að hafa tvöfalt fleiri starfsmenn en
nú eru í vinnu.
Hann segir að það taki stuttan
tíma að koma starfsemi nýrra hótela
í gang. Aðeins þurfi að flytja þangað
búnað, breyta tölvukerfi og koma
sóttvörnum í lag. Þjálfun starfsfólks
miðist einkum við að tryggja sótt-
varnir hjá því og þeim hótelstarfs-
mönnum sem vinna með því.
Morgunblaðið/Eggert
Farsóttarhús Hægt gengur að fá fleira fólk til starfa og þarf starfsfólkið
sem fyrir er að hlaupa hraðar og bæta við sig vöktum til að hafa undan.
Gylfi Þór
Þorsteinsson
Nú í árslok eru 43 Íslendingar á lífi
sem hafa náð hundrað ára aldri. Er
það svipaður fjöldi og fyrir einu ári.
Aðeins átta karlar eru í þessum
hópi. Kemur þetta fram í samantekt
Jónasar Ragnarsonar sem heldur úti
síðunni Langlífi á Facebook.
Dóra Ólafsdóttir, sem býr á hjúkr-
unarheimilinu Skjóli í Reykjavík, er
elst en hún varð 109 ára í júlí og hef-
ur lifað 110 jól. Hún hefur náð hærri
aldri en nokkur annar hér á landi en
hún fæddist 6. júlí 1912 í Suður-
Þingeyjarsýslu. Nanna Franklíns-
dóttir á Siglufirði er næstelst, hún
varð 105 ára í maí. Þórdís Filippus-
dóttir í Reykjavík er í þriðja sæti,
varð 104 ára í maí. Snæbjörn Gísla-
son á Akranesi er elstur karla, hann
varð 103 ára í febrúar.
Alls eru 37 núna 99 ára og hafa
aldrei verið fleiri. Hlutfall karla er
40% og hefur það ekki áður verið svo
hátt, hefur yfirleitt verið á bilinu 20
til 25%.
Elstu tvíburar í sögunni
Elstu núlifandi tvíburarnir eru
Hlaðgerður og Svanhildur Snæ-
björnsdætur úr Bárðardal en þær
eru báðar búsettar í Reykjavík. Þær
urðu 99 ára í október síðastliðnum
en engir aðrir íslenskir tvíburar hafa
náð svo háum aldri.
Finnbogi Jónasson og Sesselja El-
ísabet Þorvaldsdóttir í Hafnarfirði
hafa verið lengst í hjónabandi, í 75
ár. Hann er 97 ára, hún 96 ára.
helgi@mbl.is
Elsti Íslendingurinn hef-
ur nú lifað 110 jólahátíðir
- 43 Íslendingar eru 100 ára eða eldri - 37 eru 99 ára
Morgunblaðið/Eggert
Elst Dóra Ólafsdóttir slær Íslands-
met í aldri á hverjum degi.
„Ég held að við
eigum að hafa
þetta eins stutt
og kostur er. Þá
erum við að fórna
minni hags-
munum fyrir
meiri, myndi ég
segja,“ sagði
Runólfur Páls-
son, fram-
kvæmdastjóri meðferðasviðs og yf-
irmaður Covid-göngudeildar
Landspítalans, í samtali við mbl.is í
gærkvöldi.
Willum Þór Þórsson heilbrigð-
isráðherra hafði fyrr um daginn
ákveðið að stytta einangrunartíma
þeirra, sem eru með staðfest kór-
ónuveirusmit, úr tíu dögum í sjö.
„Eins og gögn virðast benda til, þá
er mjög lítill hluti sem er enn smit-
andi eftir fimm daga,“ sagði Run-
ólfur, spurður hvort hann væri
hlynntur því að einangrunartímabil-
ið yrði stytt enn frekar, eða niður í
fimm daga.
Sagði hann líkurnar á að ein-
kennalaus einstaklingur smiti aðra
mjög litlar, einkum ef viðkomandi
fari varlega, beri grímu og stundi
persónubundnar sóttvarnir eftir
fimm daga einangrun, eins og sótt-
varnastofnun Bandaríkjanna ráð-
leggur.
Vill stytta
einangrun
enn frekar
Runólfur Pálsson
- Einangrun verði
eins stutt og kostur er
Morgunblaðið kemur næst út
mánudaginn 3. janúar. Að
venju verður öflug fréttaþjón-
usta á fréttavef Morgunblaðs-
ins, mbl.is, yfir áramótin.
Hægt er að senda inn fréttir á
netfangið netfrett@mbl.is.
Áskrifendaþjónustan er
opin í dag, gamlársdag, frá
klukkan 8-12. Lokað er á nýj-
ársdag og 2. janúar.
Netfang áskrifendaþjónust-
unnar er askrift@mbl.is og
síminn er 569-1100. Áskrif-
endaþjónustan verður opnuð
aftur mánudaginn 3. janúar kl
7. Hægt er að bóka dánar-
tilkynningar á mbl.is.
Fréttaþjónusta
mbl.is. um áramót
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Áætlað er að hefja árlegan leiðangur
með rannsóknarskipum Hafrann-
sóknastofnunar
til að mæla veiði-
stofn loðnu hinn
10. janúar. Að
þessu sinni verða
tvö skip stofnun-
arinnar í leiðangr-
inum en engin
veiðiskip til að-
stoðar enda er
meira en nóg að
gera hjá þeim við að veiða loðnu
vegna hins mikla kvóta sem í boði er.
Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, segir að
fyrirvari sé settur við þessa dagsetn-
ingu. Ekki verði farið af stað fyrr en
tryggt er að loðnan sé komin til
landsins og hægt að mæla hana. Svo
ráðist tímasetningin einnig af veðri.
Upplýsingar nýtast
Þorsteinn neitar því aðspurður að
það dragi úr áreiðanleika mælingar-
innar að ekki verður hægt að fá að-
stoð veiðiskipa að þessu sinni. Nefna
má að fimm veiðiskip komu til aðstoð-
ar í janúarleiðangri Hafró á síðasta
ári en aðstæður voru þá aðrar, rann-
sóknin fólst mikið í því að leita að
loðnu. Þorsteinn segir að vissulega
væri hægt að flýta mælingunni með
fleiri skipum en bendir jafnframt á að
oft hafi aðeins eitt rannsóknaskip
annast mælinguna en nú verði bæði
skipin notuð. Átt er við rannsóknar-
skip Hafrannsóknastofnunar, Bjarna
Sæmundsson og Árna Friðriksson.
Þorsteinn nefnir einnig að þótt
veiðiskipin verði ekki með í leiðangr-
inum að þessu sinni viti hann að út-
gerðirnar verði tilbúnar til að veita
aðstoð, ef sú staða kemur upp að það
reynist nauðsynlegt. Þá nýtist upp-
lýsingar sjómannanna sem eru að
veiðum við að fylgjast með loðnu-
göngum, sömuleiðis upplýsingar frá
skipstjórum frystitogara.
Sjávarútvegsráðherra gaf í haust
út 904 þúsund tonna loðnukvóta fyrir
vertíðina sem er meira en verið hefur
í tæpa tvo áratugi. Endanlegur kvóti
ræðst síðan af mælingu veiðistofns-
ins í leiðangrinum í janúar og febr-
úar.
Engin veiðiskip til aðstoðar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorsteinn
Sigurðsson
- Stefnt að loðnuleiðangri 10. janúar - Loðnuskipin eru upptekin við veiðar