Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 18
18 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Mál sem lúta að vinnslu heilsufars-
upplýsinga í hvers konar snjall-
lausnum eða hugbúnaðarkerfum
eru efst í forgangsröðun verkefna
hjá Persónuvernd að því er Helga
Þórisdóttir, forstjóri stofnunarinn-
ar, segir. Minnir hún á að heilsu-
farsupplýsingar séu skilgreindar
sem viðkvæmar persónuupplýsing-
ar. Einnig er vinnsla persónu-
upplýsinga barna í hvers konar
snjalllausnum
eða hugbúnaðar-
kerfum í for-
gangi.
Sagt var frá
ársskýrslu Per-
sónuverndar fyr-
ir árið 2020 hér í
blaðinu á mið-
vikudaginn. Kom
fram að heildar-
fjöldi mála í fyrra
var rúmlega 3.100 en nýskráð mál
það ár rúmlega 2.500. Helga býst
við að málafjöldinn í ár verði svip-
aður.
Á þessu ári hefur Persónuvernd
fjórum sinnum beitt því úrræði að
leggja sektir á aðila vegna slaks
framgangs í persónuverndarmálum.
Það var gert tvívegis í fyrra. Þetta
eru atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið og fyrirtækið YAY
vegna ferðagjafar stjórnvalda,
fyrirtækið Infomentor vegna örygg-
isbrests og ísbúðin Huppa vegna
óleyfilegrar vöktunar með eftirlits-
myndavélum í starfsmannarými.
Af stórum málum sem Persónu-
vernd hefur fengist við nýlega nefn-
ir Helga ákvörðun stofnunarinnar
um notkun Seesaw-nemendakerfis-
ins í grunnskólum Reykjavíkur, en
þar leiddi rannsókn Persónuvernd-
ar m.a. í ljós að persónuupplýsingar
íslenskra grunnskólabarna hafa
verið sendar til Bandaríkjanna, þar
sem takmarkaðrar persónuverndar
gætir. Var fyrirmælum beint til
borgaryfirvalda um að loka reikn-
ingum skólabarna í Seesaw og sjá
til þess að öllum persónuupplýsing-
um þeirra yrði eytt úr kerfinu en þó
ekki áður en tekin hefðu verið afrit
af upplýsingunum til að afhenda
börnunum eða, eftir atvikum, til
varðveislu í skólunum.
Þá segir forstjóri Persónuvernd-
ar að stefnt sé að því að ljúka bráð-
lega frumkvæðisathugun á stöðu
viðkvæmra persónuupplýsinga í
netbirtingu dóma. Helga segir að
gera megi ráð fyrir að mál vegna
öryggis persónuupplýsinga á netinu
verði fyrirferðarmikil á komandi
ári.
Heilsumál í forgangi Persónuverndar
- Vinnsla heilsufarsupplýsinga efst á blaði í ár - Fjögur sektarmál - Sjónum beint að dómum á netinu
Helga
Þórisdóttir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB) telur löngu tímabært að
breyta vegalögum þannig að
ábyrgð veghaldara verði aukin á
tjóni eða slysum sem vegfarendur
verða fyrir vegna lélegs ástands
vega.
„Við teljum það eðlilegt í nútíma-
samfélagi og er í samræmi við það
sem gengur og gerist í nágranna-
löndum, til dæmis í Noregi. Við
erum enn svolítið í gamla hesta-
slóðafarinu,“ segir Runólfur Ólafs-
son, framkvæmdastjóri FÍB.
FÍB fær oft tilkynningar og mál
til meðferðar vegna tjóns á öku-
tækjum sem verða þegar hvörf eða
djúpar holur eru í vegum eða göt-
um eða ófullnægjandi frágangur er
við framkvæmdir. Hefur félagið
sérhæfða tæknimenn og lögfræð-
inga til að rannsaka slík mál og
fylgja eftir. Þá er á vefsíðu félags-
ins síða þar sem hægt er að skrá
holur og önnur frávik á götum og
umferðarmannvirkjum. Tilkynning-
in berst sjálfkrafa til veghaldara
sem er mikilvægt ef tjón verða síð-
ar og menn þurfa að sækja bætur á
hendur honum.
Vegfarendur um Kjalarnes hafa
orðið fyrir tjóni vegna vegafram-
kvæmda þar, eins og kom fram í
samtali við ökumann í blaðinu í
gær. Lakkið á nýlegum bíl hans er
stórskemmt en Vegagerðin og
tryggingafélag verktakans höfnuðu
kröfum um bætur.
Þarf að sanna sök
Vegagerðin vísar í ákvæði vega-
laga þegar spurt er um bótaskyldu
veghaldara í slíkum málum. Veg-
haldari þurfi að hafa sýnt af sér
sök en auk þess þurfi vegfarandi að
hafa sýnt eðlilega varkárni. Fram
kemur í svari stofnunarinnar að
Vegagerðin bregðist við eins fljótt
og unnt er, ef tilkynnt er um hættu
á vegi. Hafi Vegagerðin brugðist
nægilega fljótt við sé að jafnaði
ekki um bótaskyldu að ræða.
Eins og fram kemur hér að
framan vill FÍB gera ríkari kröfur
til veghaldara en gert er ráð fyrir í
núverandi lögum. Runólfur Ólafs-
son segir að um leið og ábyrgð veg-
haldara sé aukin skapist innri hvat-
ar til að gera betur. Hann segir að
stundum sé torsótt að sækja bætur
þótt það hafi gengið í ákveðnum
málum, til dæmis vegna ófullnægj-
andi frágangs á vegsvæðum sem
valdið hafi tjóni hjá vegfarendum.
Vilja auka ábyrgð veg-
haldara á ástandi vega
- Hægt að tilkynna galla á vegum og götum á vef FÍB
Morgunblaðið/Hari
Varúð Veghaldari getur fríað sig ábyrgð með því að merkja holur og hvörf.
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Það hefur kyngt niður snjó á
svæðinu, við munum búa lengi að
honum,“ segir Brynjar Helgi Ás-
geirsson, forstöðumaður á skíða-
svæðinu í Hlíðarfjalli við Akureyri.
Skíðatíðin hefur farið ágætlega af
stað nyrðra og aðsókn verið mátu-
lega mikil. Nokkuð er um erlenda
og innlenda ferðamenn sem dvelja
á Akureyri og nágrenni um ára-
mótin. Hótelstjóri á Hótel KEA
lætur vel af stöð-
unni.
Skíðasvæðið í
Hlíðarfjalli hefur
verið opið í tvær
vikur, var opnað
18. desember síð-
astliðinn og segir
Brynjar Helgi að
fremur snjólítið
hafi verið til að
byrja með. Hægt
var að framleiða
snjó til að bæta það upp þar sem
nægt frost var þá ríkjandi.
Nú í vikunni milli jóla og nýárs
gerði mikla snjókomu norðan heiða
og er nú verulega mikill snjór um
allt skíðasvæðið.
Mátuleg aðsókn fyrstu dagana
„Það kyngdi niður snjó hjá okkur
í vikunni og það er mjög jákvætt,
þessi snjór hefur fyllt upp í læki og
gil og miðað við veðurspá er þessi
snjór ekki á förum neitt strax,“
segir hann. Snjómagnið geri líka að
verkum að hægt er að opna fleiri
skíðasvæði í fjallinu.
Aðsókn hefur verið þægileg að
sögn Brynjars Helga, ekki of mikil
og heldur ekki of lítil.
„Þetta hefur verið alveg mátu-
legt hjá okkur, ekki það margir að
raðir hafi myndast í lyfturnar, en
við höldum tveggja metra reglunni
ef til þess kemur og fólk er með
grímur þar sem það á við,“ segir
hann. „Nýja árið mun byrja vel hjá
okkur hvað snjóinn varðar, það er
nóg af honum, en erfitt að spá um
hvort eða hvernig faraldurinn setji
strik í reikninginn.“
Alltaf einhver á ferðinni
„Það er dágóður hópur í gistingu
hjá okkur um áramótin, blanda af
Íslendingum og útlendingum,“ seg-
ir Aron Pálsson, hótelstjóri á Hótel
KEA á Akureyri. Sama var uppi á
teningunum yfir jólin en þá var
einnig talsvert af fólki sem gisti á
hótelinu yfir hátíðina.
Fullbókað var á veitingastaðnum
Múlabergi á aðfangadagskvöld, en
hann er rekinn í tengslum við hót-
elið. Þeim sem voru á síðasta snún-
ingi var bjargað með brottnáms-
bökkum. Hann segir að breyting
hafi orðið á frá því sem áður var og
í vaxandi mæli kýs fólk að fara út
að borða á aðfangadagskvöld.
„Það sama virðist í uppsiglingu
með gamlárskvöld, það er þétt-
bókað og stefnir í að verða fullt,“
sagði Aron síðdegis í gær.
Hann segir að yfirleitt séu ekki
stórir hópar ferðamanna norðan
heiða um jól og áramót og árstím-
inn fremur rólegur alla jafna.
„En það eru alltaf einhverjir á
ferðinni, við erum með útlendinga
sem ætla að freista þess að sjá
norðurljós og Íslendingar sem hér
gista eru gjarnan að heimsækja
ættingja og vini á Akureyri og
dvelja hjá okkur. Það hefur orðið
nokkur breyting á í þá veru að í
stað heimagistinga fer fólk á hótel
eða gistiheimili,“ segir Aron.
Á Hótel Kea hefur markvisst
verið unnið að því að byggja upp á
meðan á heimsfaraldri hefur staðið
og á það við um bæði gæði og þjón-
ustu en einnig má nefna að nú
stendur yfir uppbygging á líkams-
ræktarstöð á hótelinu. Eins hefur
markaðssetningu verið sinnt mark-
visst t.d. varðandi skíðaferðir og
innanlandsmarkað. Aron segir ár-
angur góðan og á fyrstu mánuðum
ársins er fólk í skíðaferðum áber-
andi í gestahópnum.
Flestar helgar í janúar, febrúar
og mars eru yfirleitt fullbókaðar á
hótelinu og líkur á að svo verði
einnig nú á komandi ári. Í boði eru
rúmgóðar skíðageymslur og þá hef-
ur áhersla verið lögð á námskeið,
hvort sem fólk er á gönguskíðum,
svigskíðum eða fjallaskíðum, en
þau síðasttöldu hafa mælst vel fyr-
ir. Þá hafa hópar af höfuðborg-
arsvæðinu gert sér dagamun með
því að heimsækja höfuðstað Norð-
urlands og Aron segir að íbúar á
Austurlandi séu góðir viðskiptavinir
hótelsins.
„Svo framarlega sem Ómíkron-
afbrigði kórónuveirunnar setur
ekki allt í lás á nýju ári erum við
bjartsýn á gott ár í ferðaþjónust-
unni norðan heiða,“ segir Aron.
Dágóður hópur ferðamanna nyrðra
- Skíðatíðin í Hlíðarfjalli fer ágætlega
af stað - Uppselt á Múlabergi á að-
fangadagskvöld - Þéttbókað í kvöld
Ljósmynd/Brynjar Helgi
Hlíðarfjall Skíðasvæði eru víða opin um áramótin, eins og í Hlíðarfjalli en þar hefur kyngt niður snjó.
Akureyri Aron Pálsson er hótelstjóri á Hótel KEA, í hjarta miðbæjarins.
Brynjar Helgi
Ásgeirsson