Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 51
ÍÞRÓTTIR 51 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021 _ Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari kvennaliðs Selfoss í knattspyrnu, auk þess sem hún verður sjúkraþjálfari liðsins. Bára Kristbjörg kemur til Selfoss frá Kristi- anstad í Svíþjóð þar sem hún þjálfaði U17 og U19 ára lið félagsins og var sjúkraþjálfari meistaraflokks. Áður en hún fór til Svíþjóðar hafði hún þjálfað hér heima, meðal annars hjá Augna- bliki, FH, Val og Stjörnunni. Hún mun aðstoða Björn Sigurbjörnsson sem tók við Selfossliðinu í byrjun október. Selfoss endaði í fimmta sæti úrvals- deildarinnar á síðustu leiktíð með 25 stig. _ Keppni á heimsmeistaramóti karla 20 ára og yngri í íshokkí sem staðið hefur yfir í Edmonton í Kanada síðustu daga hefur verið hætt vegna kór- ónuveirusmita í keppnisliðunum. Eftir að fresta hafði þurft tveimur leikjum vegna smita, Sviss – Banda- ríkin og Finnland – Tékkland, og ljóst varð að fresta þurfti þeim þriðja milli Rússa og Slóvaka vegna smita í rúss- neska liðinu ákvað Alþjóðaíshokkí- sambandið að keppni skyldi hætt. Mótinu átti að ljúka með úrslitaleik 5. janúar. _ Víkingar úr Reykjavík hefja titilvörn sína á Íslandsmóti karla í knattspyrnu á öðrum degi páska, 18. apríl, sam- kvæmt drögum að mótinu sem Knatt- spyrnusamband Íslands birti í gær. Víkingar taka þá á móti FH á Víkings- vellinum og það verður eini leikurinn á fyrsta degi mótsins. Fyrsti leikurinn kvennamegin verður viðureign ÍBV og Stjörnunnar í Vestmannaeyjum 26. apríl en Íslandsmeistarar Vals hefja leik gegn Þrótti á Hlíðarenda sama dag. Þá fer bikarúrslitaleikurinn fram kvennamegin hinn 27. ágúst en bik- arúrslitin karlamegin fara fram 1. október. _ Tíu leikmenn knattspyrnuliðs Barcelona hafa fengið kórónuveiruna síðustu daga og staðan er erfið hjá lið- inu sem á að bregða sér til sólareyj- unnar Mallorca á sunnudaginn kemur, 2. janúar, til að mæta heimamönnum í Real Mallorca í spænsku 1. deildinni. Barcelona skýrði frá því í gær að Phil- ippe Coutinho, Sergino Dest og Ez Abde hefðu allir greinst með kór- ónuveiruna en í gær voru sömu fréttir af Ousmane Démbélé, Samuel Umtiti og Gavi. Þá greindust þeir Clement Lenglet, Dani Alves, Jordi Alba og Alejandro Balde allir með veiruna fyrr í þessari viku. _ Danski knattspyrnumaðurinn Christian Eriksen er kominn til Sviss þar sem hann æfir þessa dagana einn síns liðs á heimavelli Chiasso. Eriksen, sem býr í Óðinsvéum í Danmörku, hef- ur að undanförnu æft á velli danska liðsins OB, sem er hans uppeldisfélag, en ekki liggur fyrir hvort hann stígur af alvöru inn á knatt- spyrnuvöllinn á ný. Er- iksen fór sem kunnugt er í hjartastopp í leik Danmerkur og Finnlands í lokakeppni EM á Parken síðasta sumar og er búinn að ganga frá samnings- lokum hjá ítalska meistaraliðinu Inter Mílanó. Eitt ogannað Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Maður lærði heilan helling á þessu ári enda eru íþróttafréttamenn vanir að skrifa um hluti sem eiga sér stað innan vallar, ekki utan hans,“ sagði Hörður Snævar Jóns- son, íþróttafréttastjóri hjá Torgi, í íþróttauppgjöri Dagmála, frétta- og menningarlífsþáttar Morgun- blaðsins. Heilt yfir var íþróttaárið 2021 frábært en árið var einnig litað af bæði kórónuveirufaraldrinum og svo hneykslismálum í kringum Knattspyrnusamband Íslands. Árið var því óhefðbundið að mörgu leyti fyrir íþróttafrétta- mennina Hörð Snævar og þær Evu Björk Benediktsdóttur og Krist- jönu Arnarsdóttur á RÚV sem gerðu upp íþróttaárið í Dagmálum. „Maður hefur einhvern veginn dýpri skilning á viðkvæmari málum í dag,“ sagði Eva Björk. „Horfandi til baka á þetta ár þá held ég að íþróttafréttamenn hafi fjallað mikið um mál sem snúast ekki beint um íþróttir,“ sagði Krist- jana. „Mál eins og aðstöðuleysi, fjár- magn til afreksíþrótta og svo auð- vitað kynferðis- og ofbeldisbrot. Það fór mikið púður í þessa um- ræðu og þetta ár var fyrst og fremst mikill lærdómur fyrir okkur sem erum vön því að starfa mest með lokatölur og úrslit,“ bætti Kristjana við. Mikið púður í mál ótengd íþróttum Morgunblaðið/Eggert KSÍ Hneykslismál í kringum KSÍ voru í brennidepli á árinu 2021. „Samningurinn rennur út í júní og þetta eru því svolítið skrítnir tímar en skemmtilegir. Þeir hjá CSKA ræddu þessi mál aðeins við mig áður en ég meiddist. Þeir settu það á ís þegar ég meiddist og vildu leyfa mér að komast aftur í gang áður en rætt yrði við mig aftur. Það er ekkert stress hjá félaginu varðandi þetta. Þeir vilja sjá að ég sé heill og byrj- aður að spila með liðinu áður en lengra er haldið og maður skilur það alveg. En þegar samningurinn er að renna út geta önnur lið komið inn í myndina. Þeir vilja væntanlega ekki missa mig frá sér á frjálsri sölu og ég býst því við að þessi mál verði rædd í janúar. Mér líður rosa vel hjá félaginu enda hef ég spilað alla leiki. Ég hef ekki haft yfir neinu að kvarta enda er allt tipptopp hjá félaginu og ég kann vel við mig í borginni,“ segir Hörður. Litlar takmarkanir Spurður um hvernig lífið í Moskvu hafi verið á tímum heims- faraldursins segir Hörður að ekki hafi verið gripið til umfangsmikilla samkomutakmarkana. „Rússarnir gera lítið úr þessu. Þeir eru með grímuskyldu en loka engu. Smittölurnar eru gríðarlega háar, sem er ekki gott. Staðan er erfið í Rússlandi og erfitt að halda veirunni niðri. Maður hefur fundið fyrir því á vellinum að jafnvel fleir- um er hleypt á völlum en leyfilegt er. Þá er ég að tala um öll félög í Rússlandi og þau hafa mörg fengið sektir út af því. Þetta hefur verið mikið jójó varðandi boltann. Áhorf- endur hafa aldrei verið bannaðir og við höfum því alltaf haft einhverja stuðningsmenn á leikjum. En höfum heldur ekki spilað fyrir fullum velli því áhorfendafjöldinn hefur verið takmarkaður,“ segir Hörður en hann varð fyrir því að smitast af veirunni í fyrstu bylgjunni. Fjallað um smitið í blöðunum „Ég fékk kórónuveiruna í Rúss- landi í stærstu bylgjunni og varð fárveikur í viku. Arnór [Sigurðsson] smitaðist einnig en hann missti bara bragð- og lyktarskyn. Hann varð ekki eins veikur. Mig minnir að við höfum verið fyrstu leikmennirnir í Rússlandi sem sagt var frá að hefðu smitast. Okkur var svolítið brugðið að vera nafngreindir út af þessu í blöðunum. Það var sérstakt að upp- lifa. Ég fékk í lungun og þá verður erfiðara að ná þessu úr sér. En ég var heppinn að það sat ekki lengi í mér. Ég slapp vel frá því. Hvíldi bara í viku og æfði svo á fullu. Það var fínt að komast vel út úr þessu. Ég hef ekki enn þá fengið bólu- setningu. Það er svolítið flókið mál. Rússarnir eru með spútnik- bóluefnið og þetta er því svolítið öðruvísi. Ég bíð eftir að læknarnir ákveði hvað þeir vilja að ég geri en ég beið eftir því að fá bólusetningu, sem breyttist þegar ég meiddist. Það er mjög mismunandi hvort leik- menn séu bólusettir í Rússlandi. Ef ég fengi spútnik þá yrði það ekki viðurkennt alls staðar í Evrópu. Rússarnir sjálfir virðast ekki treysta þessu og margir sem hafa ekki viljað bólusetningu. Ég er hins vegar með mótefni og nota vottorðið um það til að ferðast.“ Vildi dragast gegn Rússum Dregið var í riðla í Þjóðadeildinni á dögunum og Ísland er í riðli með Rússlandi, Ísrael og Albaníu. „Þetta verður skemmtilegt og ég vonaðist eftir þessu. Ég er rosalega spenntur að mæta Rússum. Þeir eru með skemmtilegt lið og margir í lið- inu sem ég þekki. Að spila á móti rússneskum stuðningsmönnum verður áhugavert því þá kemur í ljós hvort þeir klappa fyrir manni eða ekki. Rússarnir eru harðir í öllu, hvort sem það er í íþróttum eða stjórnmálum. Þeir eru með gott lið og við erum með nýtt lið. Ég missti af átta mánuðum hjá landsliðinu og á meðan gerbreyttist liðið. Ég verð aftur hálfgerður nýliði í landsliðinu,“ segir Hörður en á miðvikudaginn var tilkynnt að Ísland fengi vináttu- landsleik gegn stórliði Spánverja í mars. „Það er náttúrlega bara stórt verkefni sem verður gott próf fyrir okkar lið. Prógrammið verður hálf- galið hjá landsliðinu í júní og því gott að fá lið eins og Spán til að hita upp á móti. Við erum með nýtt lið og gott að ungir leikmenn fái sem flesta leiki. Ég er bara bjartsýnn varðandi landsliðið,“ sagði Hörður Björgvin í samtali við Morgunblaðið. Gott útlit hjá Herði - Er kominn á fulla ferð eftir að hafa slitið hásin á árinu - Spenntur fyrir því að mæta Rússum í Þjóðadeildinni - Verður aftur hálfgerður nýliði í landsliðinu Ljósmynd/Szilvia Micheller Landslið Hörður Björgvin Magnússon lék tvo landsleiki í mars en hefur síð- an verið frá keppni. Hann á að baki 36 landsleiki og hefur skorað tvö mörk. Rússland » Hörður Björgvin er 28 ára og kom til CSKA Moskvu frá Bri- stol City árið 2018. » Hörður hefur leikið 72 deild- arleiki fyrir CSKA og skorað fimm mörk. » Hann er eini Íslendingurinn í rússnesku deildinni á þessu keppnistímabili en um tíma voru nokkrir íslenskir knatt- spyrnumenn í Rússlandi. » Arnór Sigurðsson er enn fé- lagsbundinn CSKA en var lán- aður til Venezia í vetur. RÚSSLAND Kristján Jónsson kris@mbl.is Hörður Björgvin Magnússon, landsliðsmaður í knattspyrnu, lætur vel af sér um þessar mundir. Árið sem er að líða var reyndar ekki skemmtilegt fyrir hann í boltanum því Hörður sleit hásin í apríl. Að- gerðin og endurhæfingin heppnaðist vel og hann mun geta æft af fullum krafti með CSKA Moskvu þegar lið- ið hittist í janúar og undirbýr sig fyrir síðari hluta keppnistímabilsins. „Ég fór í aðgerð í Finnlandi 9. apríl og þar var sérfræðingur í há- sinameiðslum sem skar mig upp. Hann þykir einn sá besti í meiðslum eins og þessum og er með sambönd við stærstu félögin í Evrópu. Ousm- ane Dembélé var hjá honum mánuði fyrr sem dæmi. Ég get alveg mælt með þessum lækni núna því ég finn ekki fyrir neinu. Þetta gekk betur en ég vonaðist eftir og það kom ekk- ert bakslag í endurhæfingunni. Ég fór líka rólega í alla hluti,“ segir Hörður sem gat notað tækifærið og verið heima á Íslandi í nokkra mán- uði. „Ég var hér heima í fjóra mánuði í endurhæfingunni. Ég var úti fyrsta mánuðinn eftir aðgerðina en þá var að koma sumarfrí og ég flaug heim tveimur dögum fyrir síðasta leikinn fyrir sumarfríið. Þá tók ég fjóra mánuði hér heima og æfði alla daga með Rúnari [Pálmarssyni] sjúkra- þjálfara landsliðsins. Það var þægi- legt að vera í sínu umhverfi hér heima. Það er léttara að vera nær sínu fólki og auðvelt að komast í hluti sem maður þarf á að halda. Maður á ekki marga að úti í Moskvu. Þegar ég kom aftur út var mér sagt að það yrði erfiðasti tíminn vegna þess að þá skapast hætta á öðrum meiðslum. Það gerðist ekki og ég er því mjög sáttur. Ég var í raun leikfær fyrir síðasta leikinn fyrir vetrarfríið en það var ákveðið að sleppa því. Ég útskrif- aðist fimm dögum fyrir síðasta leik sem var 11. desember. Leikurinn var spilaður í 16 gráðu frosti og því voru engir sénsar teknir. Í janúar fer eins og hálfs mánaðar undirbún- ingstímabil í gang áður en deildin byrjar 24. febrúar. Ég næ að halda mér við í ræktinni fram að því og hitta fjölskylduna hér heima. Ég get því látið mér líða vel um hátíðirnar. Ég er alveg 100% og þeir vilja að ég fari með í æfingaferðina. Ég fer fyrst til Moskvu í læknisskoðun og við fljúgum þaðan til Spánar.“ Samningurinn að renna út Samningur Harðar við CSKA rennur út næsta sumar og því er óljóst hvar hann leikur á næsta tímabili. Hörður býst við því að forráðamenn CSKA ræði við hann um nýjan samning í janúar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.