Morgunblaðið - 31.12.2021, Blaðsíða 49
DÆGRADVÖL 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021
577-1515 • Ve
veVe
Traust og fa
„ÞÚ MUNT NÁ HEIM TIL ÞÍN – EN ALGER-
LEGA Á GUFUNUM. FLESTIR STOPPA NÚ
Á BENSÍNSTÖÐ. ÞÚ HLÝTUR AÐ NJÓTA
ÞESS AÐ STORKA ÖRLÖGUNUM.“
„ÉG ER EKKI AÐ ÆSA MIG. ÉG VIL BARA
VITA HVAÐ ÞÚ ÁTT VIÐ MEÐ „ÞRÍBURAR“.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að stíga skrefið til
fulls.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞÚ HEFUR
BREYST
JAMM, ÉG
MINNKAÐI
MEGRUN?
NEI.
ÞURRKAR-
INN!
SÚPUSKÁLIN ÞÍN, HERRA MINN! SÚPAN MÍN ER BLAUT!
FÆÐINGARDEILD
stúku, Hrafnkeli Freysgoða, sem
hann tók þátt í að stofna árið 2010
þegar hann bjó fyrir austan, á Fá-
skrúðsfirði. „Svo er ég í félagsskap
sem heitir Stormur. Þetta eru 14
æskufélagar úr Keflavík sem hafa
hist hver heima hjá öðrum fyrsta
miðvikudag í hverjum mánuði í 36
ár.“
Fjölskylda
Sambýliskona Björns er Rakel
Linda Kristjánsdóttir, f. 29.7. 1969,
sérkennari. Þau eru búsett í Reykja-
vík. Foreldrar Rakelar eru hjónin
Kristján Þ. Jónsson, f. 29.5. 1948, fv.
skipherra hjá Landhelgisgæslunni,
og Sveinbjörg Guðmarsdóttir, f. 15.9.
1951, fv. bankastarfsmaður. Björn
var áður kvæntur Önnu Berglindi
Magnúsdóttur, f. 24.5. 1961, sjúkra-
liða, og Jónu Kristínu Þorvalds-
dóttur, f. 26.9. 1959, sóknarpresti.
Börn Björns og Önnu eru: 1) Erna,
f. 12.3. 1985, lögfræðingur, búsett í
Reykjavík. Maki: Elmar Ásbjörns-
son, framkvæmdastjóri hjá Seðla-
banka Íslands. Börn Ernu og Elmars
eru Eik, f. 2008, Embla, f. 2012, og
Emil, f. 2019; 2) Aron Grétar, f.
14.11. 1990, rafvirki og tölvumaður
hjá Alvotech, búsettur í Reykjavík;
3) Knútur Magnús, f. 5.4. 1995, hag-
fræðingur, búsettur í Reykjavík.
Maki: Jóhanna Hafsteinsdóttir.
Systkini Björns eru Ólafur Reynir
Sigurjónsson sammæðra, f. 6.8.
1944, Atli Rafn Kristinsson sam-
feðra, f. 7.2. 1947, Guðmann M. Héð-
insson uppeldisbróðir, f. 25.7. 1953,
María Knútsdóttir Bengtsson, al-
systir, f. 8.5. 1954, Ólafía Héðins-
dóttir uppeldissystir, f. 27.12. 1956,
Tómas Knútsson albróðir, f. 22.3.
1957, Sigurjón Héðinsson uppeld-
isbróðir, f. 28.7. 1958, og Margrét
Elísabet Knútsdóttir samfeðra, f.
23.1. 1973.
Foreldrar Björns voru Knútur
Höiriis, f. 22.5. 1922, d. 20.4. 1993,
stöðvarstjóri Essó á Keflavíkur-
flugvelli, bjó í Keflavík, og Anna
Nikulásdóttir, f. 5.9. 1924, d. 12.4.
2007, talsímakona í Anderslöv í Sví-
þjóð frá 1974. Stjúpmóðir Björns og
seinni kona Knúts er Elín Guð-
mannsdóttir, f. 29.7. 1934, fv. skrif-
stofukona, búsett í Reykjanesbæ.
Björn Ingi
Knútsson
Höiriis
Helga Bjarnadóttir
húsfreyja á Hreinsstöðum
Helgi Árnason
bóndi á Hreinsstöðum
í Norðurárdal, Borgarfirði
Jónína Guðbjörg Helgadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Nikulás Árni Halldórsson
trésmiður í Reykjavík
Anna Nikulásdóttir
talsímakona í Anderslöv
í Svíþjóð
Þórdís Nikulásdóttir
húsfreyja á Þóroddsstöðum
Halldór Þorsteinn
Halldórsson
bóndi á Þóroddsstöðum í
Grímsnesi
Arnold Andersen
Margrét Elísabet Höiriis
verslunarstjóri í Reykjavík
Juliane Höiriis
húsfreyja í Oxvigaard
Thomas Höiriis
bóndi í Oxvigaard á Jótlandi
Ætt Björns Inga Knútssonar
Knútur Höiriis
stöðvarstjóri á
Keflavíkurflugvelli
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
sendi „Gamlárskveðju 1937“:
Gyðja, er lætur gamlársdegi
góða nótt í té – í kveld,
felur nú í fold og legi
fyrir handan tjaldið eld.
Ótta! Þó að bresti borgun,
blástu í glæður, vertu snör.
Fljúga láttu af fingri á morgun –
fingri hverjum – geisla-ör.
Og þessu erindi fylgir „Nýjárs-
dagsvísa 1938“:
Sólargang lengir, sunnanblærinn hlýn-
ar.
Svellrunnið hjarn í brekkuslakka dvínar.
Uppi á himni opnar hallir sínar
eilífðin. – Heyrðu! Kysstu varir mínar!
Stephan G. Stephansson sendi
síra Rögnvaldi Péturssyni nýárs-
kveðju:
Um þig árið ið nýja
vil að annt láti sér. –
Leggist hamingja og heilsa
í hömina á þér!
Páll Ólafsson orti almanaks-vísu
1878:
Byrjar stríð með ári enn,
ævin líður svona;
einhvers bíða allir menn,
óska, kvíða og vona.
Jón Bjarnason frá Garðsvík orti:
Gaman er á gamlárskvöld
að gá til allra vega.
Skyggnast bak við tímans tjöld
og tala spámannlega.
Mun sú spurning mest um verð:
Mætum við því fári
að mistök verði verri gerð
en var á liðnu ári?
Ingólfur Ómar skrifaði mér og
sagði: „Mér datt í hug að lauma að
þér tveimur vísum. Nú er maður
búinn að troða í sig kræsingum og
það er ekki vanþörf á að fara að
hreyfa sig“:
Eintóm leti aftrar mér
allra síst er natinn.
Vambsíður nú orðinn er
eftir jólamatinn.
Á matarfíkn er lítið lát
loforð skammt þó duga.
Meiri hreyfing, minna át
mér er efst í huga.
Pétur Stefánsson skrifar mér og
segir að það sé um að gera að fara
varlega nú um áramótin:
Um áramót er mengun ljót,
menn hér skjóta blysum.
Rignir dóti, reyk og sót.
Raun er af ótal slysum.
Lifnar tál og liðkast mál
lífs á hálum grundum.
Vermir sálu vín í skál
þó valdi brjáli stundum.
Halldór Blöndal
(halldorblondal@simnet.is)
Vísnahorn
Bak við tímans tjöld