Morgunblaðið - 31.12.2021, Page 12

Morgunblaðið - 31.12.2021, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021 Starfsfólk Höfða fasteignasölu Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum árs og friðar á nýju ári. Þökkum viðskiptin á liðnu ári. Suðurlandsbraut 52 Sími 533 6050 www.hofdi.is Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is H ér í Laugarási var tekið vel á móti okkur þegar við fluttum hingað fyrir þrjátíu árum, það var einstakt. Þetta hafa verið virkilega yndisleg ár, enda var það eins og að vera komin heim, þegar við duttum hingað inn. Þetta var alveg æðisleg tilfinning, því á hinum stöðunum sem við höfðum búið á, í Hveragerði, á Sólheimum og í Gnúpverjahreppi, þá leið okkur eins og við værum allt- af á leiðinni eitthvað annað. Hér á Akri fundum við strax að við vorum komin til að vera,“ segir Þórður Halldórsson garðyrkjubóndi en hann og kona hans Karólína Gunn- arsdóttir eiga og reka garðyrkju- stöðina Akur í Laugarási í Biskups- tungum. Þar hafa þau Tóti og Kalla, eins og þau eru oftast kölluð, stund- að lífræna ræktun frá upphafi, enda menntuð á því sviði. Þau voru miklir frumkvöðlar fyrsta áratuginn sinn á Akri. ,,Þegar við byrjuðum hér í líf- rænni ræktun, þá var enginn að selja lífrænt og stórmarkaðirnir tóku ekki í mál að kaupa slíkar vörur af okkur til að selja í sínum verslun- um. Aðeins örfáar búðir gerðu það, Heilsuhúsið, Yggdrasill og Blóma- val, en samt var hellingur af fólki sem vildi kaupa lífrænt. Við brugð- umst við þessari þörf fólks og sett- um upp þjónustu sem kallaðist Grænmeti í áskrift. Þetta var sölu- kerfi þar sem afurðin var seld beint til neytandans og virkaði þannig að við fengum tölvupóst frá fólki um hvað það vildi kaupa, afgreiddum það í poka og svo var fólk í Reykja- vík sem tók á móti þeim pokum og þangað kom fólk til þeirra að sækja. Við vorum með „dílera“ úti um allan bæ,“ segir Tóti og hlær. Vorum alltaf á Hellisheiðinni ,,Við komum hingað 1991 en það var ekki fyrr en um áratug seinna sem Hagkaup vildi selja okkar líf- rænt ræktuðu vörur, fyrsti stór- markaðurinn sem reið á vaðið. Fljót- lega fylgdu hinar búðirnar eftir og við fórum í framhaldinu út í stór- innflutning á lífrænt ræktuðu græn- meti og ávöxtum og vorum að dreifa í stóru búðirnar, Hagkaup, Krónuna, Nettó og Melabúðina. Þegar þetta fór að ganga vel, þá gerðu stórmark- aðirnir það sem þeir gera alltaf: klöppuðu okkur á bakið, þökkuðu okkur fyrir og tóku yfir. Við vorum reyndar líka þakklát fyrir það, því þetta var á þeim tíma sem mest var að gera hjá okkur, við vorum alltaf á Hellisheiðinni, annaðhvort á leiðinni í bæinn eða á leiðinni hingað heim, fram og til baka. Við vorum með annað fyrirtæki í bænum sem sá um dreifingu og lager, þetta var risa- batterí með mörgu starfsfólki.“ Tóku við rekstri Frú Laugu Tóti og Kalla ráku líka lífræna heilsuvörubúð, Bændur í bænum, sérvörumarkað sem var meðal ann- ars á Grensásvegi. ,Á þeim tíma sem við misstum það húsnæði var frú Lauga að aug- lýsa eftir fólki til að reka þá búð, svo við sameinuðumst, slógum okkur saman við þá eigendur. Við Kalla tókum svo alveg við Frú Laugu fyr- ir tæpu ári síðan,“ segir Tóti og bætir við að netverslunin baend- uribaenum.is hafi fylgt þeim alla tíð og að þau séu enn með hana. ,,Við höfum allan þennan tíma haldið tryggð við hollenskt fyrir- tæki, Eosta, við flytjum enn inn beint frá þeim. Þetta er hrein- ræktað lífrænt fyrirtæki sem hóf starfsemi sína á níunda áratugnum. Þau voru frumkvöðlar á sínu sviði, þau versla úti um allan heim og eru samfélagslega meðvituð, þau styrkja öll nærsamfélög sem rækta fyrir þau, sérstaklega í þriðja heim- inum. Viðskiptavinir þeirra geta farið inn á heimasíðuna og flett upp viðkomandi framleiðanda, hvar sem hann er í heiminum og fræðst um hann. Þú getur til dæmis séð hvaðan sá ananas er sem þú kaupir hér hjá mér á markaðinum á Akri.“ Við viljum engu henda Þegar Tóti og Kalla fluttu að Akri á sínum tíma, tóku þau til við að byggja upp. ,,Gróðrastöðin var 1100 fermetrar þegar við keyptum en við byggðum við 1.100 fermetra gróð- urhús í viðbót og við byggðum líka stóra skemmu. Aðalræktun okkar fer fram í nýju gróðurhúsunum, það- an kemur meginuppskeran, tómat- ar, gúrkur, paprika og pipar, sem fer á markaðinn, en Krónan er stærsti kaupandinn hjá okkur. Við settum líka upp vinnslueldhús því við höfum verið að mjólkursýra, þurrka, sjóða og gera alls konar með afurðirnar okkar, því við viljum engu henda. Við erum með dýra lífræna ræktun og alveg frá upphafi höfum við full- nýtt allar okkar afurðir.“ Frá því í haust hafa Tóti og Kalla verið með markað einu sinni í viku heima á Akri, þangað sem fólk getur komið og keypt beint af bænd- um í lausu, lífrænt ræktað grænmeti og ávexti. ,,Viðbrögðin hafa verið góð, fólk kemur hér úr nærumhverfinu, þeir sem búa í Laugarási og fólkið í upp- sveitunum. Með þessum markaði vildum við opna nýjan möguleika fyrir fólk í nágrenninu. Við hugs- uðum sem svo að fyrst allar þessar vörur eru komnar hingað að Akri, hvers vegna ekki að leyfa fólki líka að koma hingað í skemmuna og kaupa beint af okkur. Við settum því upp þennan markað sem er aðeins opinn á þriðjudögum, því vörurnar stoppa aðeins í einn dag hér hjá okk- ur, áður en við pökkum þeim og flytjum í bæinn til Frú Laugu,“ segir Tóti og bætir við að nú séu þau að fara í samstarf við AHA. ,,Þá getum við verið með dagvöruverslun á net- inu, fólk getur hringt og pantað og fengið sent heim, eða sótt, ferskt grænmeti og ávexti.“ Við unnum byltinguna Nú eru vatnaskil hjá þeim Tóta og Köllu, því þau hafa sett Akur á sölu. ,,Við erum komin vel yfir sex- tugt og þurfum fleira og fleira fólk til að sjá um vinnuna okkar, svo það er kominn tími til að setja þetta í annarra hendur. Til stóð að hér á Akri yrðu kynslóðaskipti og sonur okkar og hans fjölskylda voru hér með okkur í rekstrinum þrjú ár, með það í huga að taka við þessu öllu saman. En niðurstaðan varð sú að þau fluttu aftur til Noregs,“ segir Tóti og bætir við að hugarfarið og umhverfið í tengslum við lífræna ræktun hafi breyst ótrúlega mikið á þeim þrjátíu árum sem liðin eru frá því þau Kalla keyptu Akur. ,,Okkur finnst það sérlega ánægjulegt. Við unnum byltinguna.“ Þegar hann er spurður hvort rekstur gróðr- arstöðvar og Frú Laugu, krefjist þess ekki að þau séu alltaf í vinn- unni, er hann fljótur til svars: ,,Nei, það er alltaf sunnudagur hjá okkur. Ég er alltaf að leika mér. Þetta eru þrjátíu ára forréttindi.“ Hjá okkur er alltaf sunnudagur ,,Þegar við byrjuðum hér í lífrænni ræktun, þá var enginn að selja lífrænt og stórmarkaðirnir tóku ekki í mál að kaupa slík- ar vörur af okkur til að selja í sínum verslunum, segir Tóti á Akri um að- stæðurnar fyrir 30 árum. xxx Kalla og Tóti Hér eru þau hjónin hjá bananaplöntunum sínum sem gefa af sér gómsæta banana. Notalegt Aðkoman að Akri er notaleg, þar er allt vel gróið, mikið af trjám og húsin einkar snyrtileg. Vikumarkaður Inni í skemmu á Akri getur fólk komið á þriðjudögum og verslað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.