Morgunblaðið - 31.12.2021, Síða 24
Heildarmarkaðsvirði félaga í Kauphöllinni Markaðsvirði skráðra félaga
Sl. 12 mánuði, ma.kr. í lok hvers mánaðar
Úrvalsvísitalan sl. 12 mánuði
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
3.500
3.250
3.000
2.750
2.500
2020 2021
1.563
1.703
2.169
2.402
2.543
des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des.
30. desember 2020 29. desember 2021
2.555
3.401
Félag 30.12.2020 29.12.2021 Breyting
ARION 95,00 190,50 101%
EIM 258,00 505,00 96%
ORIGO 39,90 72,00 80%
SVN* 59,00 101,00 71%
SYN 39,00 65,50 68%
KALD 1,20 2,00 67%
ISB** 79,00 126,20 60%
SKEL 8,97 14,20 58%
BRIM 50,10 78,00 56%
KVIKA 17,30 26,80 55%
SIMINN 8,02 12,00 50%
REGINN 22,80 33,20 46%
VIS 14,41 20,40 42%
SJOVA 27,35 38,00 39%
SFS B 1,20 1,65 38%
HAMP 84,00 116,00 38%
EIK 9,27 12,30 33%
FESTI 172,50 226,00 31%
PLAY* 19 23,20 22%
REITIR 70,80 85,00 20%
ICESEA 12,60 14,80 17%
HAGA 60,10 67,50 12%
ICEAIR 1,64 1,82 11%
MAREL 788,00 874,00 11%
KLAPP B 14,50 14,50 0%
SOLID** 12,5 9,18 -27%
Úrvalsvísitalan 2.555,4 3.400,6 33%
*Miðað við meðalútboðsverð. **Miðað við útboðsverð.
33% hækkun
á árinu
63% hækkun
á árinu
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Árið 2021 hefur verið bæði anna-
samt og viðburðaríkt í Kauphöll Ís-
lands og segir Magnús Harðarson,
forstjóri Nasdaq Iceland, að erfitt
sé nefna eitthvað eitt sem staðið
hafi upp úr.
„Á meðal hápunkta ársins eru
auðvitað fjórar nýskráningar fyr-
irtækja í Kauphöllina og frábær-
lega vel heppnuð hlutafjárútboð.
Nægir þar að nefna risaútboð Ís-
landsbanka snemma í sumar,“ segir
Magnús.
Það sem Magnús telur einna
markverðast á árinu er aukin
virkni, sem sjáist best á því að
hlutabréfaviðskipti jukust um 75%
frá árinu á undan.
Ákveðin vitundarvakning
„Það sem mér finnst bera hæst
er ákveðin vitundarvakning hjá
mismunandi hópum og almenningi
sem er að koma gríðarlega sterkur
inn sem þátttakandi á markaðnum.
Ég held að þessi aukna virkni muni
þjóna almenningi vel í framtíðinni,
því maður finnur samhliða fyrir
auknum áhuga fyrirtækja á að skrá
sig. Það skiptir fyrirtækin miklu
máli að finna að hlutabréfamark-
aðurinn sé orðinn alvöruvalkostur í
fjármögnun. Þarna er það þátttaka
almennings sem skiptir miklu
máli.“
Með þessu á Magnús við að já-
kvæð hringrás skapist með virkari
þátttöku almennings. Með henni
kalli almenningur fram fleiri fjár-
festingarkosti fyrir sjálfan sig.
Umræðan jákvæð
Annað sem Magnús nefnir er hve
umræðan um hlutabréfamarkaðinn
er orðin jákvæð. „Þetta kemur fram
til dæmis í stjórnmálunum og því
sem stjórnvöld hafa gert nú þegar
og eru með á takteinum.“
Nefnir hann þar skattalega með-
ferð hlutabréfa sem sé orðin til
jafns á við skattlagningu vaxta-
tekna og aukið frítekjumark. „Ef
maður rýnir í stjórnarsáttmála
nýrrar ríkisstjórnar verður maður
var við aukinn skilning á mikilvægi
hlutabréfamarkaðar. Þar má nefna
að stefnt er að því auka frelsi í ráð-
stöfun viðbótarlífeyrissparnaðar,
sem er mjög mikilvægt. Enn frem-
ur er í sáttmálanum rætt um frek-
ari sölu á hlut ríkisins í viðskipta-
bönkunum. Í þriðja lagi er nefnt
aukið gagnsæi í sjávarútvegi. Þar
gæti hlutabréfamarkaðurinn ein-
mitt leikið stórt hlutverk.“
Viðurkenning á markaðnum
Magnús segir að hin jákvæða og
yfirvegaða umræða um markaðinn
sé viðurkenning á honum sem mik-
ilvægum innviðum.
Spurður um ástæður fyrir hinni
jákvæðu þróun telur Magnús að
traustið hafi aukist jafnt og þétt
síðasta áratug. „Þetta er sígandi
lukka.“
Spurður um innkomu nýju fyr-
irtækjanna á árinu, Play, Solid Clo-
uds, Íslandsbanka og Síldarvinnsl-
unnar, segir Magnús að hann hafi
orðið var við almenna ánægju frá
forsvarsmönnum félaganna, enda
hafi þau fengið góðar viðtökur. Sú
reynsla smiti út frá sér.
Þá segir Magnús að horfurnar
fyrir næstu tvö ár séu góðar. „Ég
verð fyrir vonbrigðum ef við náum
ekki 5 – 6 nýjum félögum inn í
Kauphöllina á næsta ári.“ Aðspurð-
ur segir hann að fjölbreytni muni
aukast. „Við komum vonandi til
með að sjá Ölgerðina, Alvotech,
Arctic Adventures og fleiri félög
sem ég get ekki nefnt á nafn enn
þá. Þetta eru félög sem eru ekki af
því tagi sem eru á markaðnum nú
þegar og eru mörg hver með fína
vaxtarmöguleika.“
Aukin dreifing fjármagnstekna
Aukin dreifing fjármagnstekna
verður einnig með aukinni þátttöku
almennings að sögn Magnúsar.
„Það er oft verið að rýna í tölur um
það hvað fjármagnstekjur dreifast á
fáar hendur og aðeins á þá tekju-
hærri. Með þessari auknu þátttöku
almennings felst aukin dreifing á
arðinum úr atvinnulífinu. Þarna fær
almenningur að njóta þess ef vel
gengur sem óbeinir atvinnurekend-
ur.“
Annað sem Magnús nefnir mark-
vert á árinu er væntanleg hækkun
á gæðaflokkun íslenska hlutabréfa-
markaðarins hjá vísitölufyrirtækinu
FTSE Russell úr vaxtarmarkaði í
nýmarkaðsflokk sem og flokkun
vísitölufyrirtækisins MSCI.
„Þetta styður við aukna fjárfest-
ingu erlendra aðila hér á landi.
Þátttaka þeirra er enn sem komið
er ekkert óskaplega mikil en það
eru mikil tækifæri til aukningar.
Það er einnig mikilvægt að laða
hingað inn meira erlent fjármagn
til mótvægis við það ef lífeyrissjóðir
fá auknar heimildir til fjárfestinga
erlendis.“
Leifar gjaldeyrishafta
Að lokum segir Magnús það hafa
skipt miklu máli upp á trúverð-
ugleika markaðarins þegar síðustu
leifar gjaldeyrishaftanna voru fjar-
lægðar síðasta vor. „Það eykur
traust. Allt sem kemur erlendum
fjárfestum spánskt fyrir sjónir á
markaðnum getur fælt þá frá,“ seg-
ir Magnús að lokum.
Hlutabréfaviðskipti jukust um 75%
Morgunblaðið/Eggert
Þróun Magnús Harðarson forstjóri segir að traustið á Kauphöllinni hafi
aukist jafnt og þétt síðasta áratug og umræðan orðið sífellt jákvæðari.
- Viðburðaríkt ár að baki í Kauphöll - Fjórar nýskráningar - Vitundarvakning meðal einstaklinga
og mismunandi hópa - Yfirveguð umræða viðurkenning á markaðnum sem mikilvægum innviðum
24 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
31. desember 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 130.41
Sterlingspund 175.24
Kanadadalur 101.75
Dönsk króna 19.821
Norsk króna 14.757
Sænsk króna 14.365
Svissn. franki 142.0
Japanskt jen 1.1341
SDR 182.35
Evra 147.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.5698