Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Þegar árið
2021 rann
upp voru að-
eins fáeinir dagar
síðan bólusetn-
ingar hófust hér á
landi. Þróun bólu-
efna var afar hröð en bólusetn-
ingar hófust þó vonum seinna
hér á landi og fóru rólega af
stað. En svo var slegið í klárinn
og árangurinn varð mikill, þjóð-
in nánast fullbólusett um mitt
ár.
Rétt eins og sumarið 2020
greip um sig bjartsýni á liðnu
sumri þó að engar væru orðu-
veitingarnar í þetta skiptið.
Sigur væri unninn og þjóðin
gæti snúið sér að öðru. Sumar-
frí og veirulaus framtíð.
En aftur stóð gamanið stutt,
veiran braust í gegnum bólu-
setningarnar og fljótlega var
farið að ræða örvunarskammta
og sumarið ekki liðið þegar þeir
hófust og svo settur krafur í þá
í haust og undir lok árs. Enn er
ekki útséð með hvernig þeir
munu duga, en þó bendir allt til
að þeir slái á verstu einkennin
þó að því verði vart haldið fram
að þeir slái mikið á smitin þegar
tölur og þróun þeirra síðustu
daga eru skoðaðar.
Það eru þó sjúkdóms-
einkennin, veikindin og þá helst
þau alvarlegustu, sem mestu
skipta, og þau eru tiltölulega
mun minni en áður. Líklega
helst þar í hendur að Ómíkron-
afbrigðið, sem umdeilt er hvort
telja á nýja veiru eða afbrigði,
virðist vægara en hin fyrri, og
að bólusetningarnar hjálpa,
einkum þeim sem veikari voru
fyrir veirunni.
Landsmenn geta velt því
fyrir sér nú hvort ástæða er til
bjartsýni í baráttunni við veir-
una. Sú bjartsýni sem hingað til
hefur gripið um sig hefur illu
heilli reynst tálvon, en þar með
er ekki sagt að til einskis hafi
verið barist eða að sigur vinnist
aldrei. Bólusetningarnar virð-
ast hjálpa mikið og örvunar-
skammtar virðast gera það
einnig. Hversu margir þeir
þurfa að verða áður en yfir lýk-
ur er óvíst, sumir segja að bólu-
setja þurfi landsmenn árlega
hér eftir. Um það verður ekkert
fullyrt á þessari stundu. Svo
eru frekari bóluefni í þróun og
nokkrar vonir bundnar við það
sem Bandaríkjaher er að þróa.
Mögulega kemur hann til
bjargar eina ferðina enn þótt
með nýjum hætti væri.
Segja má að það væri ekki al-
veg óviðeigandi. Baráttan við
kórónuveiruna hefur verið
þannig að hálfgert stríðsástand
hefur ríkt um allan heim. Þetta
hefur ekki aðeins birst í því að
víða hefur orðið töluvert mann-
fall og álag á heilbrigðiskerfi
verið mikið, heldur einnig í því
að framleiðslugeta hagkerfisins
hefur skaðast og flutningsgetan
ekki síður. Þetta
hefur birst með
áberandi hætti í því
að hægt hefur á
framleiðslu raf-
eindabúnaðar sem
aftur hefur minnt á
hve allt er orðið háð örgjörvum.
Ólíklegustu tæki krefjast þess
að í þeim sé þessi litli raf-
magnsheili og segir það sitt um
hraða tækniþróun síðustu ára.
Bílar virka ekki án slíkra raf-
hluta, en einföldustu tæki heim-
ilisins eru undir sömu sök seld.
Þetta er áminning um mikla
þýðingu slíkra smáhluta og á
líklega sinn þátt í að sjónir hafa
beinst enn frekar að því en áður
hve heimurinn, ekki síst Banda-
ríkin og Vesturlönd, er háður
fáeinum verksmiðjum í fjar-
lægum löndum. Þar fer Taívan
fremst, en á sama tíma býr
eyjan við vaxandi þrýsting frá
meginlandinu, sem er síst til
þess fallinn að róa umheiminn.
Ekki er það þó aðeins fram-
leiðslan sem hefur hökt, því að
flutningarnir hafa ekki síður
valdið vanda og hefur það
minnt á hve heimurinn er orð-
inn háður alþjóðlegum við-
skiptum en er um leið við-
kvæmur fyrir því þegar eitt-
hvað kemur upp á í flutninga-
keðjunni. Þetta þýðir ekki að
draga eigi úr alþjóðlegum við-
skiptum, enda hafa þau reynst
hagfelld, en þetta felur þó í sér
að endurskoða þarf þær ráð-
stafanir sem gerðar eru, svo
sem þegar kemur að birgða-
haldi eða framleiðslu á helstu
nauðsynjum.
Blikur eru á lofti í efnahags-
málum heimsins þó að þær hafi
ekki sést á hlutabréfamörk-
uðum, enda peningamagn mik-
ið, eignaverð hækkar og verð-
bólgan því miður einnig. Verð
hrávöru hækkar sömuleiðis og
það kemur að ýmsu leyti við
fyrirtæki og almenning hér á
landi. Meðal þessara hrávara
eru olíuvörur en á sama tíma
gerist það að raforkufram-
leiðsla Íslands stendur ekki
undir eftirspurn og treysta þarf
frekar á innflutta orku en eðli-
legt væri. Sú sérkennilega
staða hlýtur að vera meðal þess
helsta sem landsmenn reyna að
læra af á því ári sem nú er að
líða. Landið býður upp á mikil
gæði frá náttúrunnar hendi, en
við verðum að hafa vilja og getu
til að nýta þau. Annað væri
mikið óráð og áhætta til fram-
tíðar horft. Þess vegna er full
ástæða til að ætla að samstaða
náist um eðlilega nýtingu þess-
ara gæða í góðri sátt við sjálf-
sögð sjónarmið um að ganga um
landið af varúð og af fullri virð-
ingu fyrir fegurð þess og undr-
um.
Morgunblaðið óskar les-
endum sínum gleðilegs árs og
þakkar samfylgdina á liðnum
árum.
Landsmenn geta
dregið margvíslegan
lærdóm af árinu
sem er að líða}
Reynslunni ríkari
Ó
tti er magnað fyrirbæri. Það er svo
margt sem þrífst í skjóli óttans,
sem er sjaldnast á öðrum rökum
reist en möguleikanum á að eitt-
hvað hræðilegt geti gerst. Það
tekur langan tíma að vinda ofan af djúp-
stæðum ótta enda auðveldara að láta undan
honum en að hafa hugrekkið til að takast á við
hann.
Óttinn skilaði okkur stórkostlegum hömlum
varðandi flugsamgöngur fyrir um tuttugu ár-
um, í kjölfar hryðjuverka í Bandaríkjunum.
Enn í dag eru öryggiskröfurnar þær sömu og
þá, veitandi falskt öryggi á hverjum degi.
Varla dropi af vökva sem keyptur er utan flug-
stöðvar má t.d. koma inn í flugvélina – allan
vökva þarf að kaupa í flugstöðinni. Gott fyrir
viðskipti þeirra fyrirtækja sem selja hluti í
vökvaformi milli öryggishliðs og flugvélar en óljóst hvaða
flugöryggi það skapar. Á 20 árum hefur ekki tekist að
vinda ofan af þessu.
Óttinn skilar okkur í dag einum víðtækustu frelsis-
skerðingum seinni tíma, skerðingum á alla anga dag-
legrar tilveru og frelsi fólks. Óttinn við mögulega alvarleg
veikindi af völdum Covid-19. Óttinn er svo sterkur að
hann yfirtekur alla skynsemi, mylur hornsteina frelsis og
mannréttinda án gagna, röksemda eða svo mikið sem
opinberrar umræðu þar sem öll sjónarmið fá að heyrast
án upphrópana. Óttinn svo víðtækur að sérfræðingar og
vísindamenn hér á landi veigra sér við að tjá sig og sína
skoðun og handfylli fólks stýrir allri umræðu
og upplýsingum.
Það er auðvelt að sjá í hendi sér að þessar
frelsisskerðingar munu ekki ganga til baka á
næstunni og þaðan af síður jafn hnökralaust
og þær voru innleiddar.
Fyrsta skrefið væri að tryggja að við völd
væri ekki stjórnlynt fólk, eða fólk sem ófært
er að standa í lappirnar þegar mikið liggur við
– eins og til dæmis frelsi samlanda þeirra.
Þessu má breyta með lýðræðislegum hætti og
tækifæri munu gefast til þess.
Þangað til má vona að fregnir af lífi og
heilsu fólks undir þessum hörðu skerðingum
veki fólkið sem situr við völd í dag. Fréttir af
tugum sjálfsvíga, fréttir af blæðandi atvinnu-
lífi sem er lamað vegna tugþúsunda í sóttkví
eða einkennalausri einangrun, fréttir af
hundruðum ungmenna sem hafa farið algerlega á mis við
lífsmarkandi skólagöngu og félagslíf, fréttir af fólki sem
fékk ekki greiningar eða nauðsynlega heilbrigðisþjónustu
af ótta við álag á spítalanum vegna Covid-19 – álag sem er
í raun ekki sligandi, nema þá helst á göngudeild Covid.
Ísland á að vera leiðandi í því að tryggja landsmönnum
eðlilegt líf og hafa hugrekki til að læra að lifa með þessari
veiru eins og öllum hinum sem herja iðulega á heims-
byggðina og bólusett er fyrir árlega.
bergthorola@althingi.is
Bergþór
Ólason
Pistill
Fáum við frelsið aftur 2022?
Höfundur er þingmaður Miðflokksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
D
onald Trump Bandaríkja-
forseti var ekki orðlagður
fyrir nákvæmni í orða-
vali, var raunar iðulega
sakaður um ósannsögli og upplýs-
ingaóreiðu, en svo rammt kvað að
þessu að ýmsir bandarískir fjöl-
miðlar höfðu sérstaka stað-
reyndavakt um allt sem frá forset-
anum kom.
Að hluta var það framtak vafa-
laust af pólitískum rótum runnið;
margir höfðu ímugust á forsetanum
og málflutningi hans, en fjölmiðla-
stéttin vestra hefur um áratugaskeið
hallast til vinstri og mikill meirihluti
bandarískra dagblaða styður demó-
krata í kosningum.
Það breytir ekki hinu, að það er
einmitt snar þáttur í hinu sérstaka
hlutverki fjölmiðla að halda vald-
höfum við efnið, sannreyna staðhæf-
ingar þeirra og eftir atvikum afhjúpa
rangfærslur, mistök og lygimál.
Á dögum drepsóttar skiptir auð-
vitað enn meira máli að kjörnir emb-
ættismenn upplýsi almenning af
skynsemi, yfirvegun og sannsögli.
Trump var margt annað betur gefið.
Nýr húsbóndi í Hvíta húsinu
Í kosningabaráttu Demókrata á
liðnu ári var sú framganga sögð
embættinu ósamboðin og að orð-
háknum yrði að úthýsa. Miðað við
kosningaúrslit virtust að vísu fjöl-
margir kjósendur kæra sig kollótta,
en Biden hafði samt sigur og því var
afdráttarlausra umskipta vænst.
Það hefur nú gengið svona og
svona, þótt Biden hafi vissulega
sparað gífuryrðin og hafi enn ekki
átt sína Covfefe-stund á Twitter.
Hins vegar virðist hann oft utan
gátta, jafnvel ruglandi, gleymir orð-
um og tapar þræði, svo sumir hafa
spurt hvort verið geti að hinum 79
ára gamla forseta sé farið að förlast
eða hvort hið krefjandi embætti sé
honum um megn. Það hefur þó ekki
verið tekið upp með opinberum hætti
vestra, hvorki af stjórnmálamönnum
né fréttadeildum fjölmiðla, þótt
imprað hafi verið á því í stöku skoð-
anadálki.
Það væri grafalvarlegt mál
reyndist eitthvað hæft í því; leiðtogi
voldugasta ríkis heims þarf að vera
með öllum mjalla öllum stundum.
Það varðar ekki aðeins Bandaríkja-
menn, heldur einnig bandamenn
þeirra og heimsbyggðina alla. En
þrátt fyrir að ekki skorti dæmin um
að forsetinn sé mögulega á barmi
elliglapa veigra fjölmiðlar sér við að
fjalla um það vestanhafs.
Rangfærslur úr forsetastóli
Hitt á hins vegar að heita dag-
legt brauð fjölmiðla, að þeir brjóti
orð stjórnmálamanna til mergjar, en
sú virðist þó ekki raunin.
Nú á mánudag sendi Biden
þannig frá sér tíst á Twitter, þar sem
hann fullyrti að bandarískt hagkerfi
hefði verið að hruni komið þegar
hann tók við embætti. Sú fullyrðing
er einfaldlega og augljóslega röng.
Eftir kórónukreppuna óx
bandarískt hagkerfi um 33,4% á
þriðja ársfjórðungi 2020 og hélt
áfram að vaxa um 4% á fjórða árs-
fjórðungi ef marka má opinberar töl-
ur. Í ársbyrjun 2021 tók hlutabréfa-
markaðurinn svo hressilega við sér
og enginn ágreiningur um að hag-
kerfið vestra væri að koma býsna
bratt út úr faraldrinum.
Samt gerði enginn fjölmiðill at-
hugasemdir við orð Bidens nú í vik-
unni. Ekki frekar en í maí síðast-
liðnum þegar hann viðhafði svipuð
orð í ræðu í Hvíta húsinu.
Nú er svo sem ekki nýtt að
stjórnmálamenn segist hafa tekið við
búi í kaldakoli, svo þeir geti síðar
hreykt sér af því að hafa bjargað því,
en þá er það einmitt hlutverk fjöl-
miðla að leiðrétta fleiprið. En geri
þeir það ekki og leyfi stjórnarherr-
unum að komast upp með falsið, þá
geta menn sveiað sér upp á að vald-
hafarnir gangi á lagið. Þá fyrst kárn-
ar nú gamanið, þegar þeir fá að velja
sér „staðreyndir“ athugasemdalaust.
Mörg dæmi en engar fréttar
Þetta er því miður ekki eins-
dæmi hjá Biden. Fyrr í þessum mán-
uði gerði hann lítið úr því að skim-
anir hefðu ekki verið auknar fyrr á
árinu, en í síðustu viku kenndi hann
hinu „ófyrirsjáanlega“ Ómíkron um,
sem sérfræðingar hafa vænst í meira
en ár. Á síðustu vikum hefur hann
líka haldið fram alls konar rang-
færslum um að hin stórkostlega fjár-
freka endurreisnaráætlun hans (Bu-
ild Back Better) sé fullfjármögnuð,
muni ekki auka fjárlagahalla og að
skattar muni ekki hækka á neina
nema fólk með ofurtekjur. Sem er
allt ósatt. Að ógleymdum hættu-
legum og endurteknum rang-
færslum hans um að bólusett fólk
geti ekki borið kórónuveirusmit á
milli.
Almennir fréttamiðlar hafa ekki
vakið athygli á neinu af ofangreindu,
hvað þá leiðrétt rangfærslurnar. Það
er slæmt þegar valdhafarnir eru í
ruglinu, en hálfu verra ef fjölmiðl-
arnir veita þeim af einhverri ástæðu
ekki aðhald.
Rangfærslur og rugl
úr Hvíta húsinu
AFP
Washington Joe Biden Bandaríkjaforseti á fréttamannafundi í borðsal
Hvíta hússins á aðventu. Fleiri klóra sér í höfðinu vegna fullyrðinga hans.