Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 35
STJÓRNMÁL 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021 M argir töldu eflaust að með snjóflóðum, heims- faraldri og aurskriðum ársins 2020 væri nóg komið. Náttúran var hins vegar fljót að minna á sig að nýju. Eftir nokkurra mánaða skjálftahrinu hófst eldgos á Reykjanesi í mars. Blessunarlega hlaust tak- markaður skaði af, en sjónarspilið varð þeim mun meira. Og nú nokkrum mánuðum eftir að ró var komin yfir gosstöðv- arnar skelfur jörðin á ný af miklum krafti. Hræringar ársins voru þó víðar en í iðrum jarðar. Árið 2021 var uppgjörsár í stjórnmálunum, þegar fyrsta þriggja flokka ríkisstjórnin lauk heilu kjörtímabili. Þessi breiða stjórn var mynduð um stöðugleika í samfélaginu, samstarf sem sumum þótti ólíklegt til árangurs en skilaði góðu verki. Síðustu ár voru ár sóknar í nýsköpun og fjárfestingu. Ár lægri skatta og lágra vaxta. Kaupmáttur heimilanna jókst verulega og at- vinnustarfseminni óx þróttur. Hagur ríkissjóðs fór batnandi og allt þetta skipti miklu máli þegar heimsfaraldurinn skall á. Þá stóðum við á traustum grunni og gátum markað þá stefnu að vaxa út úr vandanum. Að standa með heimilum og fyrirtækjum í stað þess að ráðast í skattahækkanir og niður- skurð. Frá upphafi var deilt um margt varðandi útfærsluna. Var nóg að gert eða var jafnvel teflt á tæpasta vað? Í öllu falli var ljóst að efnahagsstefnan krafðist þess að veita háar fjár- hæðir úr ríkissjóði í fjölbreyttar stuðningsaðgerðir í þeirri trú að ávinningur allra yrði meiri að lokum. Áætlunin gekk upp Óhætt er að fullyrða að stefnan hafi gengið upp. Frá síð- ustu áramótum hefur atvinnuleysi minnkað hratt og er á svip- uðum slóðum og fyrir faraldurinn. Störf eru 20 þúsund fleiri nú en í upphafi árs. Þrátt fyrir áfallið hefur kaupmáttur hald- ið áfram að vaxa og aldrei verið meiri. Vextir eru lágir í sögu- legu samhengi og tekist hefur að halda verðbólgu innan þol- anlegra marka. Meiri umsvif, sterk einkaneysla og fleiri störf skila sér í því að afkoma ríkissjóðs batnar um ríflega 100 milljarða milli ára. Skuldahorfur eru um 300 milljörðum betri til næstu fimm ára en áður var áætlað. Við stigum stórt skref með sölu hluta eignar ríkisins í Ís- landsbanka í sumar. Með sölunni tókst að tryggja gott verð, dreifða eignaraðild og aðkomu almennings. Verðmæti eftir- standandi hlutar ríkisins jókst síðan umtalsvert fram eftir árinu. Með áframhaldandi sölu færum við almannafé úr áhætturekstri yfir í uppbyggingu innviða og niðurgreiðslu skulda um leið og bankaumhverfið færist nær því sem þekkist í nágrannaríkjum okkar. Vel heppnað söluferli er áminning um að ríkisrekstur á ekki heima þar sem samkeppni getur þrifist. Á fjármálamarkaði á ríkið að setja reglur og skapa umgjörð fyrir heilbrigt um- hverfi, en eftirláta öðrum að taka áhættuna og keppa um við- skiptavinina. Regluverk hefur tekið stakkaskiptum síðastlið- inn áratug og með auknum kröfum til fyrirtækja og eigenda þeirra hefur verið dregið verulega úr áhættu fyrir stöðugleika í landinu. Enn eru dæmi um ríkisrekstur þar sem frjáls sam- keppni gæti hæglega tekið keflið og ríkið um leið beint kröft- um sínum í annan farveg. Lýðræðisveisla um land allt Í aðdraganda kosninga blésum við til lýðræðisveislu þar sem á þriðja tug þúsunda sjálfstæðisfólks stillti upp sigur- liðum í prófkjörum sumarsins. Sjálfboðaliðar um land allt lyftu grettistaki og sýndu í verki að flokkurinn er hin eina sanna breiðfylking stjórnmálanna. Með sama krafti eigum við mikið inni fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Máttur breið- fylkingarinnar skilaði sér í kjörkassana þar sem flokkurinn er langstærsta stjórnmálaaflið á Alþingi. Það sem meira er; ríkisstjórnin í heild bætti við sig fylgi og stendur enn sterkar að vígi en áður. Sjálfstæðisflokkurinn sótti fram undir slagorðinu Land tækifæranna og í þeim anda mynduðum við stjórn nýrra tæki- færa í nóvember. Stjórn nýrra tækifæra í tækni og nýsköpun, grænu orkubyltingunni og framlagi okkar í baráttu við lofts- lagsbreytingar. En ekki síður stjórn jafnra tækifæra, þar sem allir geta sótt fram og skapað sína framtíð á eigin forsendum. Þessar áherslur endurspeglast í fyrsta fjárlagafrumvarpi nýrrar stjórnar. Haldið verður áfram að stórefla heilbrigðis- kerfið; Landspítalann, heilbrigðisstofnanir um land allt, heilsugæsluna og sérhæfða þjónustu. Frítekjumark atvinnu- tekna hjá ellilífeyrisþegum hefur verið tvöfaldað, bætur ör- orkulífeyrisþega hækka umfram almennar prósentuhækkanir og barnabætur halda áfram að hækka. Við erum að reisa nýtt þjóðarsjúkrahús, munum fjölga hjúkrunarheimilum, bæta samgöngur og halda áfram að fjárfesta í Stafrænu Íslandi. Markmiðið er að byggja enn öflugra, heilbrigðara, grænna og stafrænna samfélag. Ræktum garðinn Við finnum það öll að lágir vextir, hófleg verðbólga og hátt atvinnustig eru stærstu hagsmunamál heimilanna í landinu. Þetta þarf að hafa í huga á nýju ári, bæði í komandi kjara- viðræðum og ákvörðunum um útgjöld hins opinbera næstu misseri. Áherslan má ekki vera á skammtímaávinning á kostnað velferðar til lengri tíma. Með samstilltu átaki getum við stuðlað að bættu umhverfi og raunverulegum framförum, öllum til hagsbóta. Verkefnið nú er að rækta garðinn áfram. Stuðla að vexti, tryggja velferð, stöðugleika og verðmætasköpun, bæði til að byggja og bæta en ekki síður til að vera búin undir ófyrir- séðar áskoranir framtíðar. Það er auðvelt að leggja til ný og aukin útgjöld, en meira verk að standa undir þeim. Hugmynd- irnar þurfa að hverfast um ný tækifæri til að skapa verðmæti og betri lífskjör. Í þeim anda höfum við lagt ríka áherslu á að fjölga stoð- unum í íslenskri atvinnustarfsemi. Sú ánægjulega þróun hef- ur orðið að hugverkadrifinn iðnaður myndar óðum nýja og öfluga stoð undir efnahag landsins. Útflutningstekjur í grein- inni hafa tvöfaldast, úr tæpum 80 milljörðum árið 2013 í um 160 milljarða 2020. Ef haldið er rétt á spilunum getur vöxt- urinn orðið enn meiri, samhliða áframhaldandi sókn í sjávar- útvegi, iðnaði, ferðaþjónustu og landbúnaði. Með öflugt at- vinnulíf eru allar forsendur til að auka velferð enn meira á komandi árum. Ný afrek Það verður ekki hjá því komist að nefna að nú lifum við önnur jól í skugga hafta á eðlilegt líf. Höft eiga ekki að verða viðtekið eða viðvarandi ástand og á nýju ári er brýnt að end- urheimta allt sem við höfum gefið eftir. Með útbreiddum bólusetningum og afbrigðum sem valda minni veikindum sjáum við vonandi fyrir endann á ástandinu. Mannlegt sam- félag snýst allt í senn um líkamlega og andlega heilsu, velferð, atvinnu og tækifæri fólks til að freista gæfunnar. Við megum aldrei missa sjónar á heildarmyndinni og aldrei gefast upp þótt baráttan reyni á þolmörk okkar. Það er ærið tilefni til að þakka heilbrigðisstarfsfólki og öðr- um sem staðið hafa vaktina fyrir ómetanlegt framlag. Sömu- leiðis má hrósa öllum sem unnu stór afrek við erfiðar að- stæður. Við sóttum heims- og Evrópumeistaratitla allt frá badmintonvellinum yfir í lyftinga- og fimleikasali. Blika- stelpur léku í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu og hand- boltafólkið okkar gerði garðinn frægan um víðan völl. Menn- ingarlífið blómstraði þrátt fyrir miklar áskoranir og hæfi- leikaríkir Íslendingar heilluðu fólk á sviðum íslenskra leikhúsa, í listasöfnum Moskvu og á sjónvarpsskjám um allan heim. Áfram mætti lengi telja. Það er enginn skortur á hæfileikum í íslensku samfélagi og með bjartsýni og elju að vopni verður 2022 ár nýrra afreka. Gleðilegt nýtt ár. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Við áramót Lágir vextir, hófleg verðbólga og hátt atvinnustig eru stærstu hagsmunamál heimilanna í landinu. Þetta þarf að hafa í huga á nýju ári, bæði í kom- andi kjaraviðræðum og ákvörðunum um útgjöld hins opinbera.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.