Morgunblaðið - 31.12.2021, Page 36
36 STJÓRNMÁL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021
E
nn eitt árið að renna sitt skeið. Ég læt hugann reika,
horfi um öxl og tek ykkur með.
Það má segja að við lifum nú furðutíma sem fæst
okkar sáu fyrir. Ekki einu sinni í draumheimi gáf-
um við ósýnilegum óvini í formi kórónuveiru nokkurn einasta
gaum. Að tvö ár ævinnar einkenndust af baráttunni gegn veir-
unni var einfaldlega fjarstæðukennt með öllu. En spakmælið
segir okkur það sem segja þarf: „Enginn veit sína ævina fyrr
en öll er.“
Í upphafi faraldursins stóðum við þétt saman. Við lögðum
allt okkar traust á þá sem vita betur og leiðbeindu okkur eftir
fremsta megni. Fólkið í landinu sneri bökum saman, sýndi
óttablandna virðingu og um leið skynsemi gagnvart hinu
óþekkta. Við fylktum liði og fórum í tilraunabólusetninguna
sem átti að „verja okkur gegn veirunni“. Á einu ári eru spraut-
urnar orðnar þrjár og vafalaust fleiri á leiðinni. Stjórnvöld
hneigðu sig og létu sérfræðingana um sóttvarnirnar og sér-
fræðistörfin. Fæstir ráðamenn þjóðarinnar þóttust vita betur.
Ég endurtek, fæstir! Nú hins vegar horfumst við í augu við
mestan fjölda covid-smitaðra frá upphafi. Andvaraleysi og leiði
almennings hefur tekið völdin með tilheyrandi afleiðingum.
Bundnar eru vonir við að ómíkron, hið nýja afbrigði veirunnar,
eigi jafnvel eftir að leiða okkur út úr faraldrinum. Tíminn einn
segir til um það.
Hörð barátta
Þrátt fyrir allt höldum við ótrauð áfarm. Í huga mér er auð-
mýkt og djúpt þakklæti til allra þeirra sem gáfu Flokki fólks-
ins sitt dýrmæta atkvæði í síðustu alþingiskosningum. Þið
gerðuð okkur óumdeilanlega að sigurvegurum kosninganna.
Þið, kæru kjósendur, tókuð utan um baráttumálin okkar eins
og kröfuna um 350.000 króna lágmarksframfærslu skatta- og
skerðingalaust, kröfurnar um að útrýma biðlistum eftir lækn-
ishjálp, tryggja öldruðum áhyggjulaust ævikvöld, verja íslensk
heimili gegn okri, láta þjóðina njóta auðlinda sinna o.s.frv. Víst
er að við, nýkjörnir sex þingmenn Flokks fólksins, munum
berjast áfram af öllum kröftum gegn hvers kyns óréttlæti,
mismunun og fátækt.
Við þykjumst ekki ætla að gera allt fyrir alla, heldur einbeit-
um okkur að frumskyldu okkar gagnvart þeim sem þarfnast
þess mest að eiga sér öflugan málsvara á Alþingi. Við flækjum
ekki málin með fagurgala fyrir kosningar og hlaupum heldur
ekki frá loforðum okkar að þeim loknum.
Á síðasta kjörtímabili barðist enginn flokkur af jafn mikilli
einurð fyrir auknum réttindum öryrkja, eldra fólks og fólks á
lægstu laununum og Flokkur fólksins. Við lögðum fram tugi
þingmála sem miða að því að bjarga almannatryggingaþegum
úr fátæktargildrunni sem stjórnvöld hafa búið þeim. Og strax
nú á nýhöfnu kjörtímabili höfum við lagt fram enn fleiri slík
mál. Það er sérstakt fagnaðarefni að baráttumál okkar fyrir
jólabónusi handa öryrkjum, skatta- og skerðingalaust, var
samþykkt á Alþingi rétt fyrir jólin, um leið og það er virkilega
sárt að tillögu okkar um sambærilegan jólabónus fyrir þrjár
neðstu tekjutíundir eldra fólks skyldi hafnað. Mér er með öllu
fyrirmunað að skilja slíka mismunun milli einstaklinga sem all-
ir eiga virkilega bágt og ná engan veginn endum saman. Í mín-
um huga er spurningin sú hvort það sé sérstakt markmið ríkis-
stjórnarinnar að troða á eldra fólki og neita því um réttlætið
sem það hefur ekki tíma til að bíða eftir. Eftir heilt kjörtímabil
á þingi get ég ekki komist að neinni annarri niðurstöðu.
Lögmál mennsku eða frumskógar
Okkur er meðfætt að vera mannleg með kostum þess og
göllum á borð við sjálfsvitund, greind, græðgi og grimmd. En
það er meðvituð ákvörðun að vera mennsk. Að vera mennsk
snýst um það hvernig við hegðum okkur sem einstaklingar.
Það snýst um eiginleika á borð við samkennd, umhyggju fyrir
öðrum og baráttu fyrir réttlæti og sannleika.
Hæfileikinn til að setja sig í spor annarra, finna til sam-
kenndar með þeim og hjálpa þeim sem sannanlega eru hjálpar
þurfi er óendanlega mikilvægur þáttur mennskunnar. Þannig
tekur mennskan til þess hvort við virðum rétt allra til að lifa
öruggu og mannsæmandi lífi, til að hafa þak yfir höfuðið og
hafa í sig og á með sómasamlegum hætti. Krafan um að börn
upplifi ekki mismunun á grundvelli efnahags er sjálfsögð og
réttlát á mælikvarða mennskunnar. Sama gildir um að fólk fái
að eldast með reisn og að allir eigi kost á góðri heilbrigðisþjón-
ustu.
Kjarni vandans í íslenskum stjórnmálum er að hluta til
áberandi virðingarleysi stjórnvalda gagnvart aðstæðum fólks,
sérstaklega þeirra sem eiga bágt. Sumum stjórnmálamönnum
virðist hreinlega fyrirmunað að setja sig í spor annarra. Þeim
er tamt að líta bara í eina átt og snúa blinda auganu að þeim
sem virkilega þurfa á aðstoð að halda. Fólki með vonir og þrár
um betra og áhyggjulausara líf. Vonir um að þurfa ekki lengur
að bíða eftir réttlætinu. Að vera ekki líkt við lífvana súlurit eða
vísvitandi villandi excel-skjöl. Það er forgangsverkefni að
koma þessu fólki til hjálpar og hrífa það úr köldum faðmi
ómanneskjulegs og skilningsvana kerfis.
Stöndum vaktina
Stundum er talað um að mannlegur þroski sé vegferð frá því
að vera mannlegur til þess að verða mennskur. Þá er vert að
hafa í huga að mennska snýst ekki síst um að koma í veg fyrir
þjáningar og hörmungar annarra. Sú hlið mennskunnar á jafnt
við um það hvernig komið er fram við menn og dýr.
Bann við ómannúðlegri meðferð á borð við pyndingar er
alþjóðlega viðurkennt sem ófrávíkjanleg og algild lög. Bannið
er talið vera meðal æðstu laga alþjóðasamfélagsins, það varðar
því alla og gildir alls staðar á jörðinni. Pyndingar eru einfald-
lega aldrei réttlætanlegar, hvort sem menn eða aðrar lifandi
verur eru þolendur ofbeldisins.
Það er ekki að ástæðulausu sem blóðmerahald er fordæmt
víða um heim, m.a. af Evrópuþinginu, enda flokkast það undir
ómannúðlega meðferð á dýrum. Við getum ekki lokað aug-
unum fyrir slíkri fordæmingu. Blóðmerahald á vegum Ísteka
hér á landi er þeim mun fjarstæðukenndara þar sem við Ís-
lendingar leggjum mikið upp úr ímynd landsins og góðu orð-
spori. Íslenski hesturinn er elskaður og dáður um allan heim
og Íslandsstofa hefur varið miklum fjármunum í kynningu
hans með frábærum árangri. Tæplega 10% erlendra ferða-
manna koma hingað gagngert í þeim tilgangi að kynnast ís-
lenska hestinum og hestamannaleigur velta margfalt hærri
fjárhæðum en Ísteka. Augljóst er að við sem þjóð fórnum svo
miklu meiri hagsmunum fyrir minni ef þessi starfsemi verður
ekki stöðvuð strax.
Flokkur fólksins leggur nú í annað sinn fram frumvarp sitt á
Alþingi um bann við blóðmerahaldi. Þar er m.a. gert ráð fyrir
því að bændum, sem hafa haft tekjur af starfseminni, verði
bætt fjárhagstjónið sem þeir verða fyrir.
Það er löggjafans að stöðva þessa óverjandi illu meðferð á
fylfullum hryssum. Hér er um augljóst brot á dýravelferð að
ræða og okkur sem þjóð til ævarandi minnkunar. Ég trúi á
manngæskuna og að við flest látum okkur annt um velferð
dýra. Þannig muni árið 2022 verða ár mannúðar þar sem al-
þingismenn stöðva ómannúðlega meðferð á fylfullum hryssum
með algjöru banni á blóðmerahaldi.
Fyrir hönd Flokks fólksins þakka ég kjósendum okkar
ómetanlegan stuðning á árinu sem er að líða og óska lands-
mönnum öllum árs og friðar.
Áfram veginn til góðra verka!
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins
Morgunblaðið/Eggert
Mennska er dýrmætt leiðarljós
Stundum er talað um að mannlegur þroski sé
vegferð frá því að vera mannlegur til þess að
verða mennskur. Þá er vert að hafa í huga að
mennska snýst ekki síst um að koma í veg fyrir
þjáningar og hörmungar annarra.