Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 39
STJÓRNMÁL 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021
Þ
ótt yfirstandandi veirustríð skyggi á flest annað í lok
árs standa Íslendingar og mannkynið allt andspænis
öðrum enn stærri áskorunum, sem eru ekki síður
flóknar.
Ísland
Ísland er gjöfult land og við höfum gott tækifæri til að skapa
samfélag þar sem öllum eru búin góð skilyrði. Við höfum tæki-
færi til að ráðast í djarfar aðgerðir til að tryggja betri framtíð.
Í krafti náttúruauðlinda hefur tekist að byggja upp ágætisvel-
ferðarkerfi, auk þess sem menntunarstig er hátt og launajöfn-
uður mikill í alþjóðlegu samhengi. Að meðaltali má segja að við
höfum það gott. En samt búa allt of margir við slæm kjör á Ís-
landi; öryrkjar, fjölmargir aldraðir auk þess sem þúsundir
barna búa við skort. Velsæld okkar og nálægð hvert við annað
ætti að koma í veg fyrir að við látum það viðgangast.
Við megum ekki sætta okkur við að aldraðir hafi ekki efni á
nauðsynlegri læknisþjónustu, öryrkjar horfi inn í tóman ísskáp
síðustu daga hvers mánaðar, fötluð börn og börn frá efnaminni
heimilum geti ekki notið tómstunda og að of lítið sé hirt um
sjúkdóma sem sjást ekki utan á fólki. Þá erum við nógu vel
sett til að taka á móti fleira fólki sem leitar hingað til lands í
sárri neyð. Okkur skortir ekki gæðin, við þurfum hins vegar að
skipta þeim jafnar.
Nýlega sá ég frétt um ríkan útgerðarmann sem tilkynnti um
stóra bókargjöf til allra leik- og grunnskóla landsins. Hann
sagði af því tilefni að það væri skynsamlegt að meira fé yrði
eftir hjá fyrirtækjunum, þannig að þau gætu varið meira fé í
samfélags verkefni, í stað þess að láta ríkisvaldinu það ein-
göngu eftir.
Þetta eru hættulegar hugmyndir og dæmi um hvernig lýð-
ræðið gæti orðið auðræði að bráð. Það er einmitt mjög óskyn-
samlegt að innheimta of lág auðlindagjöld og láta það vera háð
duttlungum einstakra auðmanna, hvernig samfélagið þróast.
Það er skynsamlegra að hér sé sanngjarnt skattkerfi; fyrir-
tæki greiði eðlilegt gjald fyrir afnot af takmörkuðum auðlind-
um og það sé í höndum lýðræðislega kjörinna fulltrúa að for-
gangsraða. Og stjórnvöld hafa ríkum skyldum að gegna þegar
kemur að því að skapa félagslegan stöðugleika og auka jöfnuð.
Reynsla síðustu tveggja ára sýnir okkur einmitt vel mikilvægi
sterkrar almannaþjónustu og samneyslu þegar óvænt áföll
dynja yfir.
Jörðin
En um leið og við verðum að jafna stöðu landsmanna þurf-
um við líka að horfast, af fullri alvöru, í augu við þá hættu sem
framtíðar kynslóðum er búin vegna ofbeitar okkar á jörðinni.
Lengst af í grandvaraleysi en í seinni tíð með fullri meðvitund
um afleiðingarnar.
Það er merkilegt að tilheyra lífi sem kviknaði vegna ein-
stakrar staðsetningar jarðarinnar í alheiminum. Og jafnvel
enn ótrúlegra að tilheyra þeim kynslóðum manna sem hafa bú-
ið við bestu skilyrðin í mannkynssögunni. Það væri þó dap-
urlegt að tilheyra einnig þeim kynslóðum sem hefðu það best
um alla ókomna framtíð. Það er þó ekki útilokað, ef ríki heims
ráðast ekki gegn loftslagsbreytingum af meiri krafti en hingað
til.
Mannkynið stendur andspænis risavöxnum siðferðisvanda
og Íslendingar eru ekki undanskildir. Stjórnvöld verða að
hvetja til hagkvæmrar skynsamlegrar byggðar, stórefla al-
menningssamgöngur, leiða græna umbyltingu atvinnulífsins,
efla alþjóðlegt samstarf og verja til alls þessa nægu fé.
Umheimurinn
Ný tækni og sífellt hraðari þróun hennar er að gjörbylta
samfélagi okkar og við verðum að sjá til þess að hún verði okk-
ur til góðs og í þágu allra.
Nýlega las ég bókina Framtíð mannkyns eftir Michio Kaku.
Hún fjallar um hugmyndir og leiðir til að gera nýja hnetti líf-
vænlega til búsetu manna. Vissulega ekki handan við hornið en
ótrúlega spennandi. Þessi áform hafa nú þegar hraðað merki-
legum nýjungum sem gagnast okkur í daglegu lífi, svo sem á
sviði læknisfræði og grænna orkugjafa en líka með hversdags-
legri hlutum, s.s. ryksuguróbótum og sjálfkeyrandi bílum.
En þótt það sé skemmtilegt að láta hugann reika, jafnvel til
fjarlægra vetrarbrauta, er líka nauðsynlegt að við lítum okkur
nær; veltum fyrir okkur tilverunni hér og nú.
Hvað knýr áfram hugmyndir um landnám í geimnum? Er
það fyrirsjáanleg fólksfjölgun, ævintýraþrá eða kannski
neyslufrekja nútímamannsins, sem hendir hugsunarlaust
gömlum, en nothæfum hlutum, þegar ný útgáfa kemur í sölu.
Að minnsta kosti er nærtækt að álykta að vitneskjan um hætt-
una af loftslagsbreytingum hvetji frekar til slíkra áforma en
hitt. Þó væri örugglega brýnna og augljósara að eyða meiri
kröftum í að gera jörðina byggilega um ófyrirséða framtíð.
Það er fjölmargt sem við gætum gert nú þegar en til þess þarf
vilja. Við þessi stórhuga áform vakna ekki síður flóknar sið-
ferðisspurningar. Hvaða þjóðfélagshópum er ætlað nema nýj-
ar jarðir og hverjum er ætlað að verða eftir á jörðinni og af
hverju einmitt þeim? Og í hvaða ástandi mun jörðin sem þau
erfa verða?
Vissulega getur tæknin orðið mannkyninu til mikilla heilla
og hún gæti eflaust opnað fámennri þjóð, í stóru landi, langt
frá mörkuðum, ótrúleg tækifæri. Þess vegna er skynsamlegt
að efla tækni og nýsköpun. En tækninni fylgja líka ógnir; ekki
síst í veruleika sem drifinn er áfram af sífellt meiri hraða. Því
þarf samhliða að auka framlag til hugvísinda og lista en ekki
draga úr því , eins og gert er í nýjum fjárlögum. Við erum
komin í verulega úlfakreppu þegar siðvitið nær í mesta lagi að
narta í hæla hugvitsins.
Horfurnar
Öll þau risaverkefni sem við stöndum andspænis verða aldr-
ei leyst nema við byggjum á gildum réttlætis og samhjálpar og
í miklu víðtækara alþjóðlegu samstarfi en áður hefur þekkst.
Það er því forgangsverkefni stjórnvalda að styrkja almanna-
þjónustu; koma á sanngjarnara skattkerfi og auka jöfnuð. Um
leið þarf að tryggja að nauðsynlegar aðgerðir gegn loftslags-
ógninni og sókn á tækniöld leiði ekki til aukins ójöfnuðar. Loks
þarf að breyta stjórnarskrá þannig að Ísland geti tekið þátt í
fjölþjóðlegu samstarfi í ríkari mæli en áður.
Þótt stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar sé fullur af góðum
fyrirheitum, m.a. varðandi þær áskoranir sem hér er fjallað
um, þurfa orðum að fylgja aðgerðir. Því miður gefa fyrstu fjár-
lög nýrrar ríkisstjórnar ekki mikil fyrirheit um að brýnustu
verkefnum Íslendinga verði sinnt af trúverðugleika. Það mun
því koma í hlut stjórnarandstöðunnar og almennings að halda
ríkisstjórninni við efnið: Það er hvorki réttlátt né efnahagslega
skynsamlegt að leyfa fátækt að þrífast í svo auðugu landi. Auk
þess ber okkur siðferðilega skylda til þess að skila jörðinni til
komandi kynslóða í sómasamlegu ástandi.
Við í Samfylkingunni sendum landsmönnum árnaðaróskir á
nýju ári og lofum því að vinna af heilindum í þágu almanna-
hags og sjálfbærrar framtíðar. Þá sendum við þakkir til allra
sem hafa staðið í eldlínunni, í tveggja ára snúinni baráttu við
veiruna: Sérfræðingum, framlínufólki og ekki síst almenningi
sem hefur sýnt ótrúlega samstöðu og erfiðum sóttvarnatak-
mörkunum skilning. Við erum vissulega ekki komin fyrir vind
og verðum því að þrauka enn um sinn. Ég er þó sannfærður
um að það mun takast fyrr en varir.
Gleðilegt ár.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar
Morgunblaðið/Eggert
Frá því smáa til hins stóra
Það er hvorki réttlátt né efnahagslega skyn-
samlegt að leyfa fátækt að þrífast í svo auðugu
landi. Auk þess ber okkur siðferðilega skylda til
þess að skila jörðinni til komandi kynslóða í
sómasamlegu ástandi.