Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021
Plötur ársins
Þótt fæstir séu að gefa út tónlist á föstu formi eru allir að gefa eitt-
hvað út. Á þessu ári hefur meira komið út en dæmi eru um áður, því
nærfellt 500 titlar eru á útgáfulista ársins, stundum bara eitt lag,
stundum sem samsvarar breiðskífu upp á gamla mátann og stund-
um margir klukkutímar af tónlist eða tilraunum. Árni Matthíasson
hlustaði á útgáfur ársins og valdi þær plötur sem honum þótti skara
fram úr í frumleika, listfengi eða undarlegheitum.
Eva Jóhannsdóttir,
sem gefur út tónlist
undir listamanns-
nafninu Eva808, hef-
ur búið og starfað
ytra á síðustu árum
og gefið úr margar
smáskífur. Þær hafa
vakið athygli í evr-
ópskum dans- og raftónlistarkimum, til að
mynda smáskífurnar Prrr og Exchange. Á
Sultry Venom, sem kom út í byrjun síðasta
árs, bregður fyrir ýmsum stílum og stefnum,
afbrigðum og útúrdúrum, en allt vel jarð-
tengt með þungum og þróttmiklum bassa.
Hlustið líka á Hverfisgötu, fyrstu plötu
Jóns Brynjars Óskarssonar, sem notar lista-
mannsnafnið NonniMal.
Raftónlist ársins
Það eru fleiri en Sól-
ey Stefánsdóttir sem
hafa áhyggjur af
hvert stefni með
kringlu heimsins sem
mannfólkið byggir
(sjá hér til hliðar). Á
Hlýnun veltir Tumi
Árnason líka fyrir sér
hlýnun jarðar og endalokum mannkyns; út-
rýmingu dýrategunda, eyðingarafli auðvalds
og græðgi, uppsprettu loftslagsbreytinga,
heimsslitum, aldauða og því hvernig við leys-
umst á endanum upp í ryk og draugagang.
Frábærlega spilað meistaraverk.
Hlustið líka á The Earth Grew Uncertain
með Ægi Sindra Bjarnasyni.
Tilraunir ársins
Stúlkunar í Gróu,
Fríða Björg Péturs-
dóttir, Hrafnhildur
Einarsdóttir og Kar-
ólína Einarsdóttir,
spila pönk, en á sinn
hátt; ekki bara hama-
gangur, heldur líka
laglínur og pælingar.
What I Like to Do, þriðja breiðskífa þeirra, er
um margt áþekk þeim sem þegar eru komn-
ar, en metnaðurinn er meiri. Þær halda enn í
galsann sem einkennir þær en gæta þess líka
að vera ekki of fágaðar, ekki of settlegar,
heldur passlega kærulausar. Láta allt flakka.
Hlustið líka á Tína blóm með Sucks to be
You, Nigel.
Pönk ársins
Þó finna megi sól og
gleði í tónlist Sól-
eyjar Stefánsdóttur
sækir hún líka í
myrkrið, veltir fyrir
sér skuggahliðum
lífsins og tilver-
unnar, dregur birtu
úr djúpunum.
Á breiðskífunni Mother Melancholia er
mikið undir, því Móðir Jörð, eða frekar Móðir
melankólía, er viðfangið, loftslagsvá, harð-
skeytt feðraveldi og framkoma okkar við
jörðina. Kemur ekki á óvart að dimmt sé yfir,
sum laganna líksöngur, önnur harmljóð eða
erfiljóð. Að því sögðu þá er engin uppgjöf í
spilunum: Gefist aldrei upp, syngur Sóley í
upphafslaginu.
Plata ársins
Páll Ívan Pálsson frá
Eiðum er afkastamik-
ill listmálari og tón-
listarmaður, einn af
stofnmeðlimum
S.L.Á.T.U.R.-hópsins,
hefur spilað með
fjölda hljómsveita og
gefið út framúrskar-
andi sólóplötur. Páll fetar oft ókannaðar slóð-
ir eins og til að mynda á plötunni The
Conspiracy of Beasts sem kom út í janúar sl.
Erfitt er að lýsa tónlistinni, leiðslukenndri
klifun sem seiðmaðurinn Páll Ívan leiðir, en
maður getur ekki hætt að hlusta.
Hlustið líka á spunaverkið Church / School
með Benna Hemm Hemm og Demantsbráðar-
sveitinni.
Furðuverk ársins
Þau Sindri Már Sin
Fang Sigfússon, Sól-
ey Stefánsdóttir og
Örvar Þóreyjarson
Smárason rugluðu
saman tónlistar-
reytum sínum á hinni
skemmtilegu breið-
skífu Team Dreams
sem gefin var út í mánaðarlegum skömmtum
fyrir þremur árum. Í janúar tóku þau upp
þráðinn og líkt og þá var afrakstrinum safn-
að saman á eina plötu í lok árs: Dream Is
Murder. Frábært framúrstefnulegt popp,
gegnsýrt þekkilegum trega.
Hlustið líka á Agalma-útgáfuröðina með
samstarfsspunakvöldum í Mengi.
Samstarf ársins
Í viðtali við Morgun-
blaðið þegar Nostal-
gia Machine kom út
kallaði Mikael Máni
Ásmundsson músík-
ina á henni „jarm-
tónlist“, blöndu af
djassi, rokki og im-
pressjónískri tónlist.
Má til sanns vegar færa, sérstaklega saman-
borið við plötuna Bobby, sem kom út á síðasta
ári og var mun meiri djassskífa en sú sem hér
er getið. Mikael hefur sýnt það og sannað að
hann getur spilað allskonar músík og gert
það vel, en aldrei hefur honum tekist eins vel
upp og núna.
Hlustið líka á Hits of Hist og.
Ekkidjass ársins
Teitur Magnússon er
einstakur í íslenskri
músík – það er enginn
að spila eins ljúfsúrt
popp og hann, þjóð-
legt og þægilegt, en
samt er alltaf eitt-
hvað sem kemur
manni á óvart, ein-
hver útsetning sem fer ótroðnar slóðir,
skældur gítar eða lunkin laglína. Á breiðskíf-
unni 33 fer Teitur á kostum, hvort sem það er
í gamla húsganginum Dýravísum eða í perl-
um eins og Líf í Mars, Sloppnum og Kysstu
kistubotninn.
Hlustið líka á samnefnda skífu Inspector
Spacetime.
Poppplata ársins
Þótt ekki séu nema
fjögur ár eða svo frá
því rapparinn Birnir
Sigurðarson vakti
fyrst verulega athygli
hefur hann sent frá
sér talsvert af tónlist,
smáskífur, stuttskífur
og breiðskífur, aukin-
heldur sem hann hefur verið tíður gestur
annarra listamanna. Síðasta breiðskífa hans,
Matador, sem kom út 2018, var þokkaleg, en
Bushido er framúrskarandi, fjölbreytt og
frumleg. Textarnir lyfta plötunni svo um
munar, opinskáir og einlægir. Vel gert.
Hlustið líka á Maldita með Countess
Malaise og Púströra fönk Ella Grill.
Hipphopp ársins