Fréttablaðið - 19.01.2022, Qupperneq 2
Leiktími í Smáralundi
Krakkarnir á leikskólanum Smáralundi í Hafnarfirði láta örlitla slyddu ekki skemma fyrir sér leiktímann, þótt ef til vill verði þeir að troða sér í úlpur og galla
áður en haldið er út í sandkassana. Spyrja má þó hvort hægt sé að moka í gaddfreðnum sandkassa með venjulegri plastskóflu! FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
birnadrofn@frettabladid.is
SAMFÉLAG Tæplega átján prósent
íbúa í Reykjavík þann 1. desember
síðastliðinn voru erlendir ríkis-
borgarar. Þetta kemur fram á vef
Þjóðskrár Íslands.
Hæsta hlutfall erlendra ríkisborg-
ara á Íslandi er í Mýrdalshreppi þar
sem 51 prósent íbúa er með erlent
ríkisfang. Næst hæst er hlutfallið í
Skaftárhreppi þar sem 32,4 prósent
íbúa eru erlendir.
Lægst hlutfall erlendra ríkisborg-
ara er í Skorradalshreppi og Skaga-
byggð, 3,3 prósent.
Þegar horft er til landshluta er
hæsta hlutfall íbúa með erlent rík-
isfang á Suðurnesjum, 23,5 prósent.
Lægst er hlutfallið á Norðurlandi
eystra, 8,6 prósent.
Alls búa rétt tæplega 55 þúsund
erlendir ríkisborgarar hér á landi. ■
Flestir af erlendu
bergi brotnir búa
í Mýrdalshreppi
14,6 prósent íbúa á Íslandi eru er-
lendir ríkisborgarar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Lagastuldarmálið um Söknuð
eftir Jóhann Helgason verður
sent til Hæstaréttar Bandaríkj-
anna með ósk um að það verði
tekið fyrir þar. Hann óskar
eftir fjárstuðningi frá STEFi.
gar@frettabladid.is
DÓMSMÁL „Mjög sterkar forsendur
eru fyrir því að Hæstiréttur taki
málið fyrir, en alltaf skal spyrja að
leikslokum,“ segir Jóhann Helga-
son, sem snýr sér nú til Hæstaréttar
Bandaríkjanna með lagastuldarmál
sitt um Söknuð.
Áfrýjunardómstóll í Kaliforníu
staðfesti í nóvember þá niðurstöðu
fyrri dómstóls að vísa bæri máli
Jóhanns frá dómi, þar sem í grein-
argerð tónlistarsérfræðings hans
hefði ekki verið gerður nægjanlegur
samanburður á lögunum Söknuði
og You Raise Me Up við eldri lög sem
komin væru í almannaeigu.
Bentu dómararnir þrír við áfrýj-
unardómstólinn á að þar sem dóm-
stóllinn í Kalforníu starfaði eftir
reglu sem útheimti slíkan saman-
burð gætu þeir ekki breytt þeirri
niðurstöðu að vísa málinu frá. Hins
vegar væru aðrir dómstólar í land-
inu sem beittu ekki þessari reglu
og að það væri aðeins Hæstiréttur
Bandaríkjanna sem gæti skorið úr
um hvorri aðferðinni ætti að beita.
Og þangað heldur Jóhann nú með
mál sitt, sem snýst um að You Raise
Me Up sé eftiröpun á Söknuði.
„Ef við höfum betur fyrir Hæsta-
rétti fer málið aftur á borð hins upp-
haflega dómara, Andre Birotte Jr. og
verður flutt fyrir framan kviðdóm,“
svarar Jóhann, um hvert framhald
málsins gæti orðið eftir niðurstöðu
Hæstaréttar.
Alls ekki er á vísan að róa með
að Hæstiréttur taki mál Jóhanns
fyrir. Aðeins ríf lega eitt hundrað
mál af þeim þúsundum sem berast
á hverju ári ná því. Til að Hæsti-
réttur taki mál til skoðunar þarf
það að uppfylla ákveðin skilyrði.
Misræmi í dómaframkvæmd hjá
dómstólum er á áhugasviði rétt-
arins. En það mun einmitt eiga við
í máli íslenska tónlistarmannsins,
ekki síst í ljósi þess að dómararnir
við áfrýjunardómstólinn hafi í raun
vísað honum á Hæstarétt og að auki
tiltekið í úrskurði sínum tvö nýleg
dómsmál þar sem sitt hvorri aðferð-
inni var beitt.
Útgjöld halda áfram að hlaðast
upp hjá Jóhanni. Í áranna rás hefur
Jóhann fengið samtals nokkur
hundruð þúsunda króna styrk frá
STEFi auk þess sem samtökin féllust
á það á árinu 2019 að greiða tónlist-
armanninum samtals 4,9 milljónir
króna fyrir fram í höfundarréttar-
gjöld, sem hann fær vegna spilunar
laga sinna á opinberum vettvangi.
Vegna þessa fyrirkomulags fær
Jóhann nú ekkert greitt frá STEFi
næstu árin þar til sú skuld er greidd.
Covid hefur leikið Jóhann grátt
fjárhagslega eins og marga aðra
tónlistarmenn og leitar hann nú
til STEFs um stuðning til að koma
máli sínu fyrir hæstarétt. Búast má
við að málið verði rætt á stjórnar-
fundi hjá STEFi í dag. „Öll aðstoð og
stuðningur í þessu ferðalagi er mik-
ils metinn,“ svarar Jóhann, spurður
hvort hann sé bjartsýnn á aðstoð frá
félögum sínum í STEFi. ■
Jóhann Helgason leitar til
Hæstaréttar Bandaríkjanna
Jóhann Helgason þarf nú að útvega tæpar tvær milljónir króna til að koma
máli sínu fyrir Hæstarétt í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Öll aðstoð og stuðn-
ingur í þessu ferðalagi
er mikils metinn.
Jóhann Helgason tónlistarmaður
kristinnpall@frettabladid.is
ÓLYMPÍULEIKAR Ísland mun eiga
fimm fulltrúa sem taka þátt í Vetr-
arólympíuleikunum í Peking eftir
rétt rúmar tvær vikur. Íþrótta- og
Ólympíusamband Íslands vonast
til að geta kynnt Ólympíufarana í
þessari viku en á næstunni fundar
stjórn ÍSÍ þar sem ákveðið verður
hvaða einstaklingar verða fyrir val-
inu. Þetta staðfesti Andri Stefáns-
son, framkvæmdastjóri ÍSÍ.
Snorri Einarsson, landsliðsmaður
í skíðagöngu, hefur þegar tryggt
sér þátttökurétt með stöðu sinni á
heimslistanum.
„Það er ekki búið að staðfesta
nafnalistann, það verður fundað
um það næstu daga og við kynnum
lokahópinn og keppnisgreinarnar
á föstudaginn í síðasta lagi,“ segir
Andri.
Stjórn ÍSÍ mun taka lokaákvörð-
un um hvaða einstaklingar verða
fyrir valinu meðal landsliðsfólks
Íslands í alpagreinum.
Opnunarhátíðin verður 4. febrú-
ar næstkomandi og er því ljóst að
allir Íslendingarnir sem fara fyrir
Íslands hönd þurfa að vera bólu-
settir.
Kínversk stjórnvöld gefa Ólymp-
íuförum kost á að taka út þriggja
vikna sóttkví þess í stað en það er
orðið of seint fyrir Íslendingana.
Tilkynnt var í vikunni að leikarnir
fari fram fyrir luktum dyrum. ■
Fimm Íslendingar keppa í Peking
Snorri Einarsson
2 Fréttir 19. janúar 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ