Fréttablaðið - 19.01.2022, Síða 8

Fréttablaðið - 19.01.2022, Síða 8
Það er stórt skref fyrir okkur að stíga inn á Bandaríkjamarkað og við horfum til þess að stækka fyrirtækið hratt á næstu misserum. Helgi Vífill Júlíusson n Skoðun MARKAÐURINN 19. janúar 2022 MIÐVIKUDAGUR magdalena@frettabladid.is Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð- ingur Íslandsbanka, segir að miklar líkur séu á því að fjölgun starfa verði að stórum hluta mætt með aðfluttu vinnuafli. Samtök atvinnulífsins kynntu á dögunum niðurstöður könn- unar sem náði til stjórnenda fjögur hundruð stærstu fyrirtækja lands- ins og var gerð um mánaðamót nóvember og desember 2021. Þar kom meðal annars fram að áætlað sé að starfsfólki fyrirtækja í heild fjölgi um 1,7 prósent á næstu sex mánuðum. „Ef vinnuaf lseftirspurnin er brotin niður í atvinnugreinar þá er fjölgunin ekki síst mikil í mann- virkja- og ferðaþjónustugreinum og þjónustugreinum almennt,“ segir Jón Bjarki og bætir við að þetta hafi verið þær greinar sem hafi verið í gegnum tíðina mannaðar með aðfluttu vinnuafli. Hann bætir einnig við að eftir því sem okkur fjölgi sé eðlilegt að störfum muni fjölga. „Til að halda í við mannfjölda- þróun þarf störfum að fjölga um góð 2.000 á ári til að halda hlut- fallinu stöðugu. Í stórum dráttum þá eru þessar niðurstöður í ágætis samræmi við það að ástandið sé að batna. Við sjáum það fyrir okkur að það muni áfram lækka jafnt og þétt og í lok árs verðum við komin með fulla atvinnu sem er einhvers staðar á bilinu 3-4 prósenta atvinnuleysi.“ Jón Bjarki segir jafnframt að mörg fyrirtæki virðist eiga í erfiðleikum með að fá starfsfólk til starfa. „Útlitið er óvissara því fyrirtækin eiga sum hver erfitt með að finna fólk til starfa þó að atvinnuleysi mælist nú 4,9 prósent. Þetta er þróun sem er sambærileg því sem hefur átt sér stað í öðrum löndum eins og víða í Evrópu og í Bandaríkjunum. n Fjölgun starfa mætt að miklu leyti með aðfluttu vinnuafli Jón Bjarki Bentsson, aðal- hagfræðingur Íslandsbanka Hugmyndir um að rekstur sam- félagsbanka hérlendis væri búbót fyrir heimilin eru óskhyggja. Slík- ar tilraunir hafa verið reyndar: Annars vegar með rekstri spari- sjóða og hins vegar Íbúðalána- sjóði. Þær gengu ekki eftir. Spari- sjóðir og Íbúðalánasjóður urðu að lúta í lægra haldi í samkeppni við einkabanka. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þing- kona Flokks fólksins, fór mikinn í útvarpsþættinum Bítið á Bylgj- unni á fimmtudaginn þar sem hún taldi að samfélagsbankar væru betur í stakk búnir til að þjóna samfélaginu. Í gagnrýni sinni á bankana tíndi hún til him- inháar tölur án þess að setja þær í samhengi við umfang rekstrar, eigna og arðsemi. Stór banki getur hagnast um tugmilljarða en engu að síður skilað lítilli arð- semi. Í umræðu um rekstur þarf að kunna að setja fjárhæðir í rétt samhengi. Um árabil var arðsemi banka ekki nægileg. Flokka má sparisjóði sem sam- félagsbanka því þeir hafa f leiri markmið en að hámarka hagnað eins og til dæmis að styrkja svæð- ið sem þeir starfa á með ýmsum hætti. Þeir eru þó ekki góðgerðar- stofnanir. Reksturinn verður að standa undir sér og sparisjóðir þurfa að hafa borð fyrir báru til að mæta áföllum í rekstri. Útlána- starfsemi er áhættusöm. Hérlendis hafa sparisjóðirnir átt tvö sóknarskeið. Hið fyrra á 19. öld fram til stofnunar Íslands- banka árið 1904 og hið síðara eftir afnám fjármagnshafta árið 1985. Blómaskeiðin eiga það sammerkt að á þeim tíma voru bankar ekki til staðar eða starfsemi þeirra var verulega heft. Sparisjóðirnir nutu því góðs af tómarúmi. Fyrir nokkru var umræða um að breyta Landsbankanum úr ríkisbanka í samfélagsbanka. Það er ólíklegt að hann myndi í þeirri mynd geta skákað einkabönkum í samkeppni um viðskipti. Það er enn fremur mikilvægt að hafa í huga að ríkisrekin útlánastarf- semi til að ná félagslegum mark- miðum hefur reynst illa. Eigið fé Íbúðalánasjóðs er neikvætt um ríflega 180 milljarða og ekki eru horfur á að staðan muni batna. n Samfélagsbankar Memento hyggst sækja fjármagn síðar á árinu og stefnir á frekari markaðssókn erlendis. Frá árinu 2017 hefur Memento fjárfest fyrir um 500 milljónir í innviðum. helgivifill@frettabladid.is  Tækni íslenska fjártæknifyrirtæk- isins Memento er hryggjarstykkið í nýrri bankaþjónustu hins banda- ríska Marygold&Co. sem hleypt var af stokkunum í október. Þetta segir Arnar Jónsson, framkvæmdastjóri Memento, í samtali við Markaðinn. „Það er stórt skref fyrir okkur að stíga inn á Bandaríkjamarkað og við horfum til þess að stækka fyrirtæk- ið hratt á næstu misserum,“ bætir hann við. Memento hyggst sækja fjármagn síðar á árinu og stefnir á frekari markaðssókn erlendis. Frá árinu 2017 hefur Memento fjárfest fyrir um 500 milljónir í innviðum. Sprot- inn hefur fengið styrki frá Tækni- þróunarsjóði, átt í samstarfi við Íslandsbanka um þróun á greiðsu- þjónustu Kass og átt í samstarfi við Marygold&Co. og nýtt þær tekjur til að þróa tæknina. Arnar segir að fjármálastarfsemi hafi tekið miklum breytingum á undanförnum árum, samhliða vax- andi umsvifum fjártæknifyrirtækja sem megi meðal annars rekja til þess að upplýsingar um viðskipta- vini séu ekki lengur læstar hjá bönk- um heldur geti f leiri fengið aðgang að þeim til að bjóða nýja þjónustu með leyfi viðskiptavina. „Lausnir Memento eru eins konar stafræn veski,“ segir hann. Fjártæknifyrirtækið tengi saman lausnir frá fjölda tæknifyrirtækja, sem myndi heild fyrir augum við- skiptavina. Til að mynda tengi Memento saman lausnir frá tíu fyrirtækjum fyrir Marygold&co. Notendaupplifunin sé jafnframt í höndum Memento. „Í veskinu eru til dæmis greiðslu- upplýsingar, auðkenni, reiknings- staða og þar er hægt að auka heimild á greiðslukortum. Þetta er kjarninn sem nýttur er í bankaþjónustu. Greinendur spá því að um helm- ingur jarðarbúa muni nota stafræn veski árið 2025. Fyrirtæki geta einn- ig nýtt lausnina til að halda utan um vildarkerfi sem eru í raun stór hluti af bankaþjónustu. Vildarkerfi Star- bucks er til að mynda afar umfangs- mikið,“ segir hann. Arnar segir að það sem verði byltingarkennt við lausn Memento sé að geta boðið fyrirtækjum upp á heildstætt bankaapp tengt greiðslu- korti, þar sem uppsetning taki ein- ungis um sólarhring. Um sé að ræða sambærilega þróun og átti sér stað í netverslunum. Áður fyrr urðu net- verslanir að þróa eigin kerfi, en nú sé auðvelt að hefja rekstur netversl- ana með tækni frá Shopify, Woo- Commerce og fleirum. Þröskuldur- inn til opna banka sé sömuleiðis nú mun lægri en áður. Tæknilega auðvelt sé að opna netbanka sem geri það að verkum að fjármála- fyrirtæki geti lagt meiri áherslu á markhópagreiningu og að finna sína sérstöðu og þjónusta þá við- skiptavini vel. Dæmi um slíkt er að tvær þjónustur voru nýverið gefnar út sem eru sérsniðnar að hinsegin samfélaginu í Bandaríkjunum og þjónustur sérsniðnar að krökkum, starfsmönnum ákveðinna fyrir- tækja og svo mætti lengi telja. Arnar segir að fjártæknifyrirtæki eigi almennt í nánu samstarfi. Hluti af markaðssókn Memento felst í því að treysta böndin við fyrirtæki sem bjóði upp á grunnbankatækniþjón- ustu en ekki notendaupplifun, við- mót og tengingar við fleiri kerfi. Með slíku samstarfi opnist margar dyr. n Íslensk tækni hryggjarstykki hjá bandarísku fjármálafyrirtæki „Lausnir Memento eru eins konar stafræn veski,” segir Arnar Jónsson, framkvæmdastjóri Memento. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Memento átti að verða banki Memento var stofnað árið 2014. Ári síðar gaf félagið út fyrsta íslenska vinagreiðsluappið, sem fékk nafnið Sway. „Upphaflega ætluðum við að reka banka og þróa nýjar lausnir á því sviði. Í ljós kom að við erum færari í að vinna með tækni en að sinna markaðs- og þjónustumálum. Við fórum því í samstarf við Íslandsbanka sem leigði tæknina frá okkur til að geta boðið upp á Kass appið. Við höfum getað þróað bankalausnina enn frekar í samstarfi við Mary- gold&co.“ segir hann. Starfsmenn eru tíu. Marygold&Co sniðið að þeim sem leggja ríka áherslu á sparnað Bandaríska fjármálafyrirtækið Concierge Technologies hóf, undir merkjum Marygold&Co. að bjóða bankaþjónustu til þeirra sem leggja ríka áherslu á sparnað til þess að geta farið snemma á eftirlaun, að sögn Arnars. Þjónusta Marygold&Co. er að öllu leyti stafræn. Bankinn rekur ekki bankaútibú heldur fer þjónustan fram í gegnum snjallsímaapp. Viðskiptavinir geta með auðveldum hætti sent greiðslur sín á milli, stýrt sparnaði og innleyst ávísanir á stafrænu formi. Aðspurður hvernig það kom til að Memento hóf að aðstoða Marygold&Co. segir Arnar að Bandaríkjamennirnir hafi sett sig í samband við íslenska fjártæknifyrirtækið þegar það hafi verið að kynna sér markaðinn. Eftirspurn eftir vinnuafli er ekki síst í mannvirkjagerð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.