Fréttablaðið - 19.01.2022, Síða 12

Fréttablaðið - 19.01.2022, Síða 12
Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs um þróunarsamvinnu Stjórnarráð Íslands Utanríkisráðuneytið© World Bank Photo Collection Hefur fyrirtæki þitt áhuga á að vinna að framgangi heims- markmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun? Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki sem veittir eru úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu. Fyrirtæki leggja þannig af mörkum við að draga úr fátækt og stuðla að sjálfbærni með eflingu atvinnu- og viðskiptalífs í þróunarlöndum. Um leið auka þau samkeppnishæfni sína á framtíðarmörkuðum. Sérstaklega er hvatt til þess að verkefni stuðli að jafnrétti kynjanna og að jákvæðum umhverfis- og loftslagsáhrifum. • Allar upplýsingar er að finna í verklagsreglum og lista yfir gjaldgeng samstarfslönd undir www.utn.is/atvinnulifssjodur • Umsóknir þurfa að berast í gegnum miðlæga þjónustugátt hins opinbera: www.island.is/atvinnulifssjodur • Styrkir verða auglýstir þrisvar sinnum á árinu 2022 með umsóknarfresti 3. febrúar, 3. maí og 3. október 2022. • Fyrirspurnir um sjóðinn skal senda á netfangið atvinnulifssjodur@utn.is magdalena@frettabladid.is Kormákur Geirharðsson, einn eig- enda Ölstofu Kormáks og Skjaldar, segir að aðgerðir stjórnvalda, sem kynntar voru á dögunum og er ætlað að koma til móts við fyrir- tæki vegna sóttvarnaaðgerða, séu illa ígrundaðar. Aðgerðirnar sem kynntar voru snúast um að stjórnendur vínveit- ingastaða hafi heimild til að fresta gjalddögum á sköttum og trygg- ingagjaldi. „Þetta er viðlíka því að pissa í skóinn sinn. Þetta mun bara gera það að verkum að við þurfum mjög langan tíma til að borga þau aftur upp því síðan þurfum við að borga næstu og erum því að borga tvö- falt,“ segi Kormákur og bætir við að það hafi verið afar óheppilegt að ríkisstjórnin hafi ákveðið að hækka áfengisgjöld nú um síðustu áramót. „Það sem þeir gera er að þeir hækka áfengisgjaldið enn frekar til að borga þetta upp. Þeir fengu 15 milljarða í áfengisgjöld í fyrra. Það er einfaldlega kominn tími til þess að aðrir en við og fólkið í land- inu blæðum fyrir þetta.“ Aðspurður hvaða aðgerðir hann myndi vilja sjá segir hann að stjórn- völd þurfi að greiða meiri styrki. „Við eigum ekki að þurfa að borga undir starfsfólk sem fær ekki að vinna sökum sóttkvíar eða einangr- unar. Ef við fengjum slíka styrki yrði ég nokkuð sáttur.“ Hann segir jafnframt að fyrir- komulag viðspyrnustyrkja hafi ekki verið ásættanlegt. „Þeir fundu tölu þannig að margir aðeins rétt slefa í það að uppfylla skilyrðin fyrir þessum styrkjum eða einfaldlega ná því ekki. Ef ég tek dæmi af okkur þá höfum við ekki fengið styrk í marga mánuði og ég þekki til margra sem hafa aldrei fengið styrk.“ n Segir aðgerðirnar illa ígrundaðar Kormákur Geir- harðsson, einn eigenda Ölstofu Kormáks og Skjaldar Andrea Róbertsdóttir er fram- kvæmdastjóri Félags kvenna í at vinnulíf inu . Hennar helstu áhugamál eru útivist og að berjast fyrir jafnrétti. Hún segir að þau bak- pokaferðalög sem hún hafi farið í séu afar eftirminnileg. Hver eru þín helstu áhugamál? Ég er virk manneskja í leik og starfi. Útivist, tónlist, myndlist, safnaheimsóknir erlendis, umhverf- ismál og samvera með vinum og fjölskyldu er mitt helsta áhugamál. Ég næri mig á marga vegu en útivera og samvera með mínum nánustu gefur mér mest. Hvernig er morgunrútínan þín? Stóru penslarnir eru þessir – spretta á fætur, bursta tennur, kaffi og bruna út í lífið. Fyrsta bílstjóra- vakt barnanna hefst þarna snemma á morgnana á virkum dögum og ég elska að vakna snemma um helgar. Hver hafa verið mest krefjandi verkefnin á undanförnum miss- erum? Margt að þakka fyrir en lífið er eitt stórt áhættuatriði um þessar mundir og ávallt plan A, B og C í öllu. Einn dagur getur verið eins og vika og að lágmarki þrjár árs- tíðir en það á við um alla bransa á tímum Covid. Sama hvernig ver- öldin vendist og snýst þá er ég að vinna með og þjónusta félagskonur FKA um land allt og atvinnulífið. Og er að elska það, landsbyggðadeildir FKA eru að springa út og fjölmargt á dagskrá næstu misserin. Heiðrum þrjár konur á morgun, 20. janúar 2022, þegar við uppljóstrum hvaða konur hljóta FKA viðurkenninguna, FKA þakkarviðurkenninguna og FKA hvatningarviðurkenninguna á Hringbraut. Þrjár magnaðar konur sem hafa verið konum í atvinnulíf- inu hvatning og fyrirmynd. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Fjölmargar en vegna þess að ég er að hlusta á þættina um Sonju Wendel Benjamínsson de Zorrilla þá dettur mér í hug ævisaga henn- ar, Sonja, sem var Fortuna Invest síðustu aldar. Það er líka kannski vegna þess að ég fór í húsið hennar við Hveragerði með Reyni Trausta- syni sem ritaði ævisögu hennar og þarna sátum við í bílnum hennar ef ég man rétt. Sonja var mögnuð kona og ég hef virkilega gaman af þessum þáttum. Hvaða áskoranir eru fram undan? Standa í lappirnar, standa með mannréttindum og tryggja að jafn- rétti liggi ekki mínútu lengur sem óhreyfð lagervara. Ótrúlega þakk- lát þeim sem ryðja brautir og fyrir þetta ómælda hugrekki sem er að birtast víða. Nú síðan er málið að byggja upp eftir tímabil í leik og starfi sem hefur einkennst af því að lifa af. Hver er þín uppáhaldsborg? Sú borg sem ég er í hverju sinni og vonlaust að gera upp á milli. Ég hef búið og starfað erlendis en einnig hef ég ferðast mikið og tel mig þann- ig hafa öðlast mikilvægt menningar- læsi. Ein með bakpoka ferðaðist ég til dæmis um Asíu í nokkra mánuði og að vera ein á bakpokaferðalagi á Indlandi getur verið aðgangshart umhverfi og mjög eftirminnilegt vægast sagt. n Bakpokaferðalögin eru eftirminnileg Fyrri störf: Tók við sem framkvæmdastjóri FKA haustið 2019 eftir að hafa starfað sem stjórnandi í fyrirtækjum og stofnunum. Starfaði um nokkurt skeið sem stjórnanda- ráðgjafi. Fjölbreytt verkefni stjórnunar, svo sem mannauðs- stjóri RÚV, framkvæmdastjóri hjá Kaffitári og forstöðumaður hjá Tali. Fréttamaður og þátta- stjórnun á Stöð 2. Almanna- og fjölmiðlatengsl ásamt kynn- ingar- og auglýsingamálum. Skipulag viðburða fyrir fyrir- tæki og sveitarfélög og fleira. Menntun: MA-diplóma í jákvæðri sálfræði. MS-gráða frá viðskipta- og hagfræðideild í mannauðsstjórnun (Háskóli Íslands). BA-gráða í félags- og kynjafræði (Háskóli Íslands). Fjölskylduhagir: Jón Þór Eyþórsson framkvæmdastjóri sambýlismaður og synirnir Dreki og Jaki. n Svipmynd Andrea Róbertsdóttir Andrea segir að sú bók sem hafi haft hvað mest áhrif á sig sé ævisaga Sonju Wendel Benjamínsson de Zorrilla. Kormákur segir að á svipuðum tíma og vínveitingastaðir fá að fresta greiðslu á sköttum hafi áfengisgjaldið verið hækkað. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR MARKAÐURINN 19. janúar 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.