Fréttablaðið - 19.01.2022, Side 16

Fréttablaðið - 19.01.2022, Side 16
Ingunn Júlía Ingimundar- dóttir og Ingvar Þór Bjarna- son eru tveir af starfsmönnum TRI. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK TRI verslun er þekkt fyrir frábært úrval Cube hjóla fyrir alla aldurshópa. Cube eru þýsk gæðahjól sem eru fáanleg í öllum verðflokkum, með eða án rafmagnsbúnaðar, og njóta mikilla vinsælda. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hjá TRI verslun færðu mikið úrval reiðhjólahjálma frá Cube. MYND/AÐSEND Hjá TRI verslun færðu mikið úrval fjallahjóla frá Cube. MYND/AÐSEND TRI vefverslun hefur tekið risa- stökk fram á við undanfarin tvö ár. Bæði hefur salan aukist mikið en ekki síður hefur stór hluti þjónustunnar við viðskiptavini færst þangað, segir Valur Rafn, markaðsstjóri TRI. „Það má segja að heimsfaraldurinn hafi átt stóran þátt í því. Í upphafi hans færðist verslun mikið á vefinn en utan þess hafa hjólreiðar og þátt- taka í alls kyns útivist aukist mikið meðal almennings. Við sjáum greinilega að sá hópur sem byrjaði að versla í vefverslun okkar í upp- hafi faraldursins og sótti þjónustu þangað, hefur haldið því áfram þótt aðstæður í samfélaginu hafi breyst við og við undanfarin tvö ár. Þessi þróun er vafalaust komin til að vera.“ Undanfarin tvö ár hafa því verið afar góð fyrir TRI, segir Valur. „Það er ekki bara salan sem hefur verið mjög góð á þessu tímabili heldur höfum við náð að þjónusta við- skiptavini okkar betur gegnum vefinn. TRI hefur alltaf lagt mikla áherslu á persónulega þjónustu en hún hefur í auknum mæli færst yfir á vefinn þar sem við getum leiðbeint hjólreiðafólki vel með góðum árangri. Sérlausnirnar okkar í vefversluninni svara líka mörgum spurningum, eins og stærðarreiknirinn sem reiknar út rétta stærð af hjóli svo dæmi sé tekið. Það má því segja að vefversl- unin okkar hafi slegið í gegn og sé í raun ótrúlega vel heppnuð miðað við hvað við erum lítið fyrirtæki.“ Gott úrval frá Cube TRI verslun er þekkt fyrir frábært úrval Cube hjóla fyrir alla aldurs- hópa. Cube eru þýsk gæðahjól sem eru fáanleg í öllum verðflokkum, með eða án rafmagnsbún- aðar. „Það sem hefur komið okkur skemmtilega á óvart er að Cube rafmagnshjólin hafa slegið í gegn en um 30% af sölu hjólanna eru rafmagnshjól. Fyrstu rafmagns- hjólin komu til okkar árið 2012 þannig að þetta hefur verið hröð þróun. Helsta snilldin við þessi hjól er að þau hafa hjálparmótor. Þannig er hægt að hjóla í vinnuna með hjálp mótorsins án þess að svitna. Á leiðinni heim er svo hægt að slökkva á honum og taka góða hreyfingu á sama tíma. Þetta eru mjög sniðug farartæki með drægni upp á allt að 70 km og jafnvel aðeins lengra við réttar aðstæður.“ Utan rafmagnshjóla býður TRI upp á frábært úrval af barnahjól- um og götuhjólum frá Cube auk alls kyns annarra týpa af hjólum. Trainerar slegið í gegn Trainerar hafa heldur betur slegið í gegn undanfarin tvö ár og sem fyrr hefur heimsfaraldurinn haft þar mikil áhrif, segir Valur. „Áður voru margir að æfa heima í bílskúrnum en þegar allt lokaði í upphafi Covid varð algjör bylting í sölu á trainer- um. Nýjustu tækin eru ótrúlega flott og það tekur bara um klukku- stund að stilla þeim upp heima. Í þeim er hægt að velja ýmsa við- burði til að taka þátt í, t.d. hjóla- keppnir eða fallegar hjólaleiðir til að hjóla eftir, hvort sem hjólarinn er einn á ferð eða með hjólavinum sínum. Íslendingar hafa tekið þessari vöru sérstaklega vel enda auðvelt að vera háður henni yfir íslenska veturinn þegar erfitt er að æfa hjólreiðar úti. Sölumenn okkar veita mjög góða ráðgjöf varðandi val á trainerum enda allt þaulvant hjólreiðafólk.“ Castelli slegið í gegn Castelli hjólreiðafatnaðurinn hefur verið mjög vinsæll hjá lands- mönnum undanfarin ár. Um er að ræða ítalskt merki í algjörum sér- flokki sem er auðþekkt á skemmti- legu lógói þar sem sporðdreki er í aðalhlutverki. „Við höfum aukið mjög vöruúrvalið frá Castelli undanfarin ár og bjóðum í dag upp á fatnað fyrir allar tegundir hjól- reiða. Þau sem hafa kynnst þessu merki einu sinni fara helst ekki til baka í önnur og ódýrari merki enda miklar gæðavörur. Castelli er sérvara sem fæst eingöngu hjá okkur og við erum mjög stolt af því að geta boðið íslenskum hjólurum upp á þetta frábæra merki.“ Nánari upplýsingar hjá TRI verslun: tri.is Það er ekki bara salan sem hefur verið mjög góð á þessu tímabili heldur höfum við náð að þjónusta viðskiptavini okkar betur gegnum vefinn. Valur Rafn 2 kynningarblað A L LT 19. janúar 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.