Fréttablaðið - 19.01.2022, Qupperneq 17
Hvergi var
ávexti og
grænmeti
að finna á
kassasvæði
en í öllum
verslunum
var þar að
finna
óheilsu-
samlega
fæðu.
Birna
Þórarinsdóttir
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Nýleg rannsókn sýnir að
óheilsusamleg fæða fær tvö-
falt meira pláss en heilsu-
samleg fæða í matvöruversl-
unum. Hvergi var ávexti og
grænmeti að finna á kassa-
svæði en í öllum verslunum
var þar að finna óheilsusam-
lega fæðu og stundum mikið
af henni.
Það hendir sjálfsagt flest fólk á
lífsleiðinni að falla fyrir ýmsum
mishollum freistingum þegar
matvöruverslanir eru heim-
sóttar, sérstaklega undir lok dags
þegar hungrið sækir á. Sælgæti,
gos, snakk eða kex eiga það til
að detta í körfuna og fylgja með
innkaupum dagsins eða vikunnar
án þess að við hugsum mikið út
í það. Þetta hefur verið viðfangs-
efni Birnu Þórisdóttur, nýdoktors
við Félagsfræði-, mannfræði- og
þjóðfræðideild Háskóla Íslands og
rannsóknarsérfræðings við Heil-
brigðisvísindastofnun skólans, og
samstarfsfólks hennar í nýju rann-
sóknarverkefni undanfarið ár.
Árangursríkt samstarf
Birna segir hugmyndina að
verkefninu hafa kviknað á nám-
skeiðinu Áhrifavaldar næringar,
sem hún kennir ásamt Bryn-
dísi Evu Birgisdóttur, prófessor
í næringarfræði, og fleirum við
Háskóla Íslands. „Á námskeiðinu
eru skoðaðir þeir fjölmörgu þættir
sem stýra fæðuvali einstaklinga.
Tveir meistaranemar í næringar-
fræði, þau Perla Ósk Eyþórsdóttir
og Guðmundur Gaukur Vigfússon,
unnu verkefnið síðasta sumar
með stuðningi frá Nýsköpunar-
sjóði námsmanna undir leiðsögn
okkar Bryndísar Evu. Verkefnið
var samstarf Háskóla Íslands og
Krabbameinsfélags Íslands en með
heilsusamlegu mataræði og öðrum
heilsusamlegum lífsvenjum
minnka líkur á krabbameinum og
öðrum sjúkdómum.“
Fæðuumhverfið metið
Helstu markmið rannsóknarverk-
efnisins að hennar sögn voru að
þróa aðferð til að meta fæðuum-
hverfið í matvöruverslunum með
tilliti til lýðheilsu og nota svo
aðferðina til að fá upplýsingar um
stöðuna á Íslandi. „Með fæðuum-
hverfi í matvöruverslunum er átt
við meðal annars hilluplássið sem
ólíkar vörur fá að leggja undir
sig og staðsetningu, svo sem við
inngang eða kassasvæði, auk fleiri
þátta. Það hvort fæðuumhverfið
hvetur viðskiptavini frekar til að
kaupa heilsusamlegar eða óheilsu-
samlegar matvörur hefur áhrif
á mataræði, næringarástand og
heilsu.“
Óhollustan meira áberandi
Guðmundur og Perla, meistara-
nemarnir sem unnu verkefnið,
gerðu mælingar í tólf verslunum
fjögurra verslanakeðja. „Þær sýndu
meðal annars að óheilsusamlega
fæðan fékk að meðaltali tvöfalt
meira pláss en heilsusamlega
fæðan. Verslanir innan sömu keðju
voru svipaðar innbyrðis en það var
Óholl fæða fær meira pláss í matvöruverslunum
Aðstandendur rannsóknarinnar (f.v.): Birna Þórisdóttir, nýdoktor og sérfræðingur við HÍ, Guð-
mundur Gaukur Vigfússon og Perla Ósk Eyþórsdóttir, meistaranemar í næringarfræði við HÍ,
og Sigrún Elva Einarsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu. Á
myndina vantar Bryndísi Evu Birgisdóttur, prófessor í næringarfræði við HÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
mikill munur á milli keðja. Hvergi
var ávexti og grænmeti að finna á
kassasvæði en í öllum verslunum
var þar að finna óheilsusamlega
fæðu og stundum mikið af henni,
eða allt að 10 fermetra af hillu-
plássi. Rannsóknir sýna einmitt
að fólk sé líklegt til að kaupa vörur
sem eru staðsettar á kassasvæði án
þess að hafa endilega ætlað sér það
fyrir búðarferðina. Við inngang
og á gangendum, sem einnig eru
svæði sem geta haft töluverð áhrif
á kauphegðun viðskiptavina, var
að finna bæði heilsusamlega og
óheilsusamlega fæðu.“
Risastórt lýðheilsumál
Verslanakeðjurnar fjórar fengu
allar endurgjöf frá rannsakendum
og voru stjórnendur þeirra hvattir
til að gera breytingar sem styðja
við heilsusamleg innkaup. „Ég veit
ekki fyrir víst hvort breytingar
hafi verið gerðar en tel verk-
efnið leggja lóð á vogarskálar
jákvæðra breytinga. Við munum
halda áfram að vinna að því að
fæðuumhverfið styðji betur við
heilsusamlegt mataræði þjóðar-
innar, sem er einfaldlega risastórt
lýðheilsumál og þróun sem er að
eiga sér stað víða í löndunum í
kringum okkur.“ n
Sirrý Ágústsdóttir heyrði
fyrst af krafti túrmeriks árið
2015. Þá var hún í seinni
krabbameinsmeðferð sinni
og leitaði meðal annars
lausna við bjúgsöfnun. „Ég
er enn bólgusækin og fæ
auðveldlega bjúg og liðverki.
Þar finnst mér hjálpa mjög
að taka túrmerik og önnur
bætiefni,“ segir hún.
Sirrý greindist fyrst með leg-
hálskrabbamein árið 2010. „Ég
var nýbúin að eiga fjórða barnið
mitt svo þetta var ákveðið áfall,“
segir Sirrý. Fimm árum síðar
tók krabbameinið sig upp aftur.
„Ég fór í tvær þungar meðferðir
sem reyndu mjög á kroppinn.
Eftir svona harkalega meðferð
fer maður til dæmis á ótímabært
breytingaskeið. Einnig eykur með-
ferðin á beinþynningu og orsakar
bólgur í líkamanum. Það fylgja
miklir liðverkir og svefnraskanir.
Einnig fylgir léleg upptaka á bæti-
efnum í maga. Ég hætti til dæmis
alveg að framleiða B12 og þarf að
hafa fyrir því að halda vítamína-
og steinefnamagni í líkamanum í
lagi.“
Kynntist krafti túrmeriks
„Ég heyrði fyrst af túrmeriki
2015 frá vinkonu minni, Mörtu
Ernstsdóttur hlaupara og byrjaði
að taka það inn í olíuformi og í
hylkjum. Þegar ég prófaði túr-
merik frá ICEHERBS fann ég
hvað það fór vel í magann á mér
og mér leið vel af því. Túrmerik-
hylkin frá ICEHERBS eru kröftug
og ég fann mun á mér á sjötta eða
sjöunda degi, aðallega í bólgu-
söfnun. Hylkin fannst mér virka
vatnslosandi og ég fann fyrir mun
minni þrota í fingrum og fótum.
Áður var ég í vandræðum með að
hafa giftingarhringinn á mér. Ég
var með æxli vinstra megin upp
við sogæð og síðan hefur sogæða-
kerfið virkað illa. Ég bólgna því
almennt meira í vinstri helmingi
líkamans og túrmerik virðist
hjálpa mér að halda bólgum niðri.
Margar konur, og örugglega karlar
líka, glíma við bólgur og eru við-
kvæm fyrir bjúgsöfnun. Ég get
ímyndað mér að túrmerik frá ICE-
HERBS geti verið hjálplegt fyrir
mjög marga.“
Hraustari með ICEHERBS
„Regluleg inntaka bætiefna
hjálpar mér að vinna á sýkingum.
Eftir meðferðirnar er ég með
lélegt ónæmiskerfi, enda drepur
meðferðin hvítu blóðkornin sem
vernda okkur gegn ýmsum sýk-
ingum. Þarna skiptir auðvitað líka
máli gott og heilbrigt mataræði og
svo hreyfing.“
Lífskraftur Sirrýar
Sirrý stofnaði Lífskraft fyrir
rúmum tveimur árum. „Lífskraftur
er góðgerðarfélag sem hefur
staðið á bak við krabbameins-
deildina og meðal annars safnað
fyrir endurbótum á tækjakosti.
Við fórum í göngu á Hvannadals-
hnjúk og Vatnajökul fyrir ekki
svo löngu síðan. Ef faraldurinn
leyfir kynnum við fljótlega næsta
verkefni.
Ég sæki mikið í hreyfingu og
útivist og finn að það skiptir miklu
máli að taka rétt bætiefni þegar
ég er undir álagi. Bætiefnin frá
ICEHERBS virðast hafa þau áhrif
að ég verð sjaldan, eða eiginlega
aldrei veik. Þegar við Snjódrífurnar
vorum að æfa fyrir Lífskraft fann
ég augljósan dagamun á mér ef
ég gleymdi að taka inn túrmerik
og önnur bætiefni. Ég fékk ýmist
meiri bjúg, var stanslaust að fá
sinadrætti, var lengur að jafna
mig í vöðvunum eftir æfingar og
var almennt þreyttari. Orkan var
einfaldlega minni. Ég finn líka
mikinn mun á mér í vinnunni og
heima, en ég starfa hjá Epal og
stend í fæturna allan daginn. Svo
er ég með stórt heimili. Það skiptir
því miklu fyrir mig að gera allt sem
ég get til þess að vera heilsuhraust.
Mér líður vel í dag og ég lifi ekki
í ótta við að krabbameinið taki sig
upp að nýju. Ég nýt þess að vera til
alla daga og hef gaman af því að
stunda útivist og hreyfa mig. Heils-
an skiptir mig gríðarlega miklu
máli upp á að njóta þess að vera til,
að vera heilbrigð og hraust. Ég finn
líka að ég er öflugri ef ég er dugleg
að nýta mér þau úrræði sem mér
standa til boða, eins og að taka
inn bætiefni sem hafa áhrif á mína
heilsu.“
Árangursrík blanda
Túmerik hefur verið notað í
þúsundir ára til þess að
vinna gegn ýmsum
bólgum og sjúkdómum
en virka efnið kúrkúmín
er talið hafa sterk bólgu-
eyðandi og andoxandi
áhrif. Þá hafa bólgu-
eyðandi eiginleikar
túmeriks gefið sér-
staklega góða raun gegn
gigtarsjúkdómum og lið-
verkjum auk þess sem það
örvar blóðflæði og hefur
góð áhrif á húðvandamál
og sár. Blandan inniheldur
svartan pipar sem margfaldar
upptöku túrmeriks. Túrmerik
blandan frá ICEHERBS inni-
heldur fjallagrös en virkni
þeirrar lækningarjurtar hefur
gefið henni viðurnefnið ginseng
Íslands. Í fjallagrösum er að finna
svokallaðar betaglúkan trefjar sem
eru taldar aðstoða við þyngdartap,
draga úr bjúg, bæta meltingu og
styrkja þarmana, sér í lagi ristilinn.
Þau hafa meðal annars reynst
árangursrík gegn slímmyndun og
óæskilegum bakteríum. Fjalla-
grösin gera ICEHERBS blönduna
að ofurblöndu en þau hafa öldum
saman verið notuð sem náttúru-
leg og viðurkennd lækningajurt á
Íslandi. Þau eru rík af steinefnum
og eru talin auka skilvirkni í upp-
töku næringarefna sem gera bæði
innihaldsefnin sterkari saman. n
ICEHERBS fæst í öllum betri mat-
vöruverslunum, apótekum og
heilsuvöruverslunum. Sjá nánar á
iceherbs.is.
Fann lífskraft með túrmerikinu
Sirrý segir túrmerik hjálpa við að halda niðri bólgum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 19. janúar 2022