Fréttablaðið - 19.01.2022, Síða 29
Hún átti það líka oft til
að leggjast upp á
borðin hjá þeim sem
voru á kafi í lærdómi á
Háskólatorgi og ósjald-
an ofan á fræðibæk-
urnar.
Jón Atli Bene-
diktsson, rektor
Háskóla Íslands
Rósalind rektor, kötturinn
sem getið hefur sér frægðar á
háskólasvæðinu og víðar, er
öll. Jón Atli Benediktsson,
rektor Háskóla Íslands, minn-
ist kisunnar með hlýju.
odduraevar@frettabladid.is
Daglegur viðburður í lífum nem-
enda Háskóla Íslands undanfarin
ár hefur verið að sjá og fylgjast með
kisunni Rósalind rektor spóka sig
á háskólasvæðinu. Svo þekkt var
Rósalind að hún átti sitt eigið myllu-
merki á samfélagsmiðlum.
Rósalind var einstaklega gæf og
þekkt fyrir að vera óhrædd við að
leggja undir sig kennslustofur: uppi
á borðum og við fætur. Margir hafa
enda ítrekað lýst því yfir að Rósa-
lind hreinlega eigi háskólann og
þannig festist rektorstitillinn við
kisu.
Jón Atli, rektor mannfólksins við
HÍ, var meyr þegar hann var beðinn
um að rifja upp kynni sín af einni
frægustu kisu landsins. „Kötturinn
Rósalind auðgaði svo sannarlega
lífið á háskólasvæðinu með návist
sinni, sem einkenndist oftast af
yfirvegun í bland við mátulegt
æðruleysi. Eins og háttar til með
háskólaborgara hafði hún dálæti á
bókum og sótti í að vera innan um
sem flestar þeirra. Þess vegna virtist
á stundum sem hún væri hluti af
öflugu starfsliði Bóksölunnar,“ segir
Jón Atli og heldur áfram:
„Hún átti það líka oft til að leggj-
ast upp á borðin hjá þeim sem voru
á kafi í lærdómi á Háskólatorgi og
ósjaldan ofan á fræðibækurnar, en
þá lygndi hún bara aftur augunum
og virtist sjúga í sig þekkinguna,
svona eins og henni væri fullkunn-
ugt um að þekkingin væri gjaldmið-
ill framtíðarinnar. “
Mætti á skrifstofuna til Jóns
Jón segir líklega ekki hafa farið fram
hjá neinum að Rósalind hafi ekki
ætlað sér neitt minna en rektors-
embættið við Háskóla Íslands.
„Hún hafði ekki lengi vanið
komur sínar á háskólasvæðið þegar
hún birtist einn daginn í Aðalbygg-
ingunni eins og hún hefði hér lykla-
völd og tiplaði rakleiðis inn á skrif-
stofu mína og kom sér þar fyrir, eins
og þetta væri nákvæmlega sá staður
sem henni væri ætlaður. Rósalind
var að sjálfsögðu afar vel tekið af
okkur á rektorsskrifstofunni, eins
og raunar var hátturinn um allar
byggingar, því Rósalind var yfirleitt
kærkominn gestur.“
Þakklát Rósalind
Þá segir Jón Atli að Rósalind hafi
á sinn þátt tekið þátt í starfsemi
skólans með ýmsum hætti. „Þegar
við héldum háskóladaginn síðast
var hún mætt í árdagsins roða á
Háskólatorg til að taka þátt í undir-
búningi. Þegar allt var að verða klárt
og bæklingum hafði verið raðað
snyrtilega á langborð við inngang-
inn, stökk hún þangað upp og lagðist
kyllif löt á borðið innan um bækl-
ingana. Hún ætlaði ekki að missa af
neinu og vildi vera öldungis viss um
að þúsundir gesta fengju réttar leið-
beiningar um nám við hæfi,“ segir
rektorinn um læðuna og kollega.
„En nú kemur hún því miður ekki
oftar til okkar þessi fallega læða, hún
Rósalind rektor, og munu margir
sakna hennar, því hún lýsti oft upp
daginn hérna á háskólasvæðinu.
Við hugsum til hennar með hlýju
og söknuði og líka með þakklæti. “ n
Rektor minnist Rósalindar
Rósalind rektor hafði góðar gætur á konungsríki sínu á Háskólatorgi þar sem fáir efuðust um völd hennar.
Jón Atli rektor,
Steinunn Gests-
dóttir, að-
stoðarrektor, og
Rósalind rektor
á góðri stundu.
MYNDIR/AÐSENDAR
Háskólasvæðið
og nágrenni var
allt undir hjá
Rósalind.
Rektorinn aflaði
sér þekkingar af
einurð og hóg-
værri festu.
Lokaðir gluggar
stöðvuðu ekki
háskólaköttinn
sem virtist alltaf
finna smugu.
Engin skúmaskot, skrifstofur eða borð voru Rósalind óviðkomandi.
MIÐVIKUDAGUR 19. janúar 2022 Lífið 25FRÉTTABLAÐIÐ