Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.01.2022, Qupperneq 29

Fréttablaðið - 19.01.2022, Qupperneq 29
Hún átti það líka oft til að leggjast upp á borðin hjá þeim sem voru á kafi í lærdómi á Háskólatorgi og ósjald- an ofan á fræðibæk- urnar. Jón Atli Bene- diktsson, rektor Háskóla Íslands Rósalind rektor, kötturinn sem getið hefur sér frægðar á háskólasvæðinu og víðar, er öll. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, minn- ist kisunnar með hlýju. odduraevar@frettabladid.is Daglegur viðburður í lífum nem- enda Háskóla Íslands undanfarin ár hefur verið að sjá og fylgjast með kisunni Rósalind rektor spóka sig á háskólasvæðinu. Svo þekkt var Rósalind að hún átti sitt eigið myllu- merki á samfélagsmiðlum. Rósalind var einstaklega gæf og þekkt fyrir að vera óhrædd við að leggja undir sig kennslustofur: uppi á borðum og við fætur. Margir hafa enda ítrekað lýst því yfir að Rósa- lind hreinlega eigi háskólann og þannig festist rektorstitillinn við kisu. Jón Atli, rektor mannfólksins við HÍ, var meyr þegar hann var beðinn um að rifja upp kynni sín af einni frægustu kisu landsins. „Kötturinn Rósalind auðgaði svo sannarlega lífið á háskólasvæðinu með návist sinni, sem einkenndist oftast af yfirvegun í bland við mátulegt æðruleysi. Eins og háttar til með háskólaborgara hafði hún dálæti á bókum og sótti í að vera innan um sem flestar þeirra. Þess vegna virtist á stundum sem hún væri hluti af öflugu starfsliði Bóksölunnar,“ segir Jón Atli og heldur áfram: „Hún átti það líka oft til að leggj- ast upp á borðin hjá þeim sem voru á kafi í lærdómi á Háskólatorgi og ósjaldan ofan á fræðibækurnar, en þá lygndi hún bara aftur augunum og virtist sjúga í sig þekkinguna, svona eins og henni væri fullkunn- ugt um að þekkingin væri gjaldmið- ill framtíðarinnar. “ Mætti á skrifstofuna til Jóns Jón segir líklega ekki hafa farið fram hjá neinum að Rósalind hafi ekki ætlað sér neitt minna en rektors- embættið við Háskóla Íslands. „Hún hafði ekki lengi vanið komur sínar á háskólasvæðið þegar hún birtist einn daginn í Aðalbygg- ingunni eins og hún hefði hér lykla- völd og tiplaði rakleiðis inn á skrif- stofu mína og kom sér þar fyrir, eins og þetta væri nákvæmlega sá staður sem henni væri ætlaður. Rósalind var að sjálfsögðu afar vel tekið af okkur á rektorsskrifstofunni, eins og raunar var hátturinn um allar byggingar, því Rósalind var yfirleitt kærkominn gestur.“ Þakklát Rósalind Þá segir Jón Atli að Rósalind hafi á sinn þátt tekið þátt í starfsemi skólans með ýmsum hætti. „Þegar við héldum háskóladaginn síðast var hún mætt í árdagsins roða á Háskólatorg til að taka þátt í undir- búningi. Þegar allt var að verða klárt og bæklingum hafði verið raðað snyrtilega á langborð við inngang- inn, stökk hún þangað upp og lagðist kyllif löt á borðið innan um bækl- ingana. Hún ætlaði ekki að missa af neinu og vildi vera öldungis viss um að þúsundir gesta fengju réttar leið- beiningar um nám við hæfi,“ segir rektorinn um læðuna og kollega. „En nú kemur hún því miður ekki oftar til okkar þessi fallega læða, hún Rósalind rektor, og munu margir sakna hennar, því hún lýsti oft upp daginn hérna á háskólasvæðinu. Við hugsum til hennar með hlýju og söknuði og líka með þakklæti. “ n Rektor minnist Rósalindar Rósalind rektor hafði góðar gætur á konungsríki sínu á Háskólatorgi þar sem fáir efuðust um völd hennar. Jón Atli rektor, Steinunn Gests- dóttir, að- stoðarrektor, og Rósalind rektor á góðri stundu. MYNDIR/AÐSENDAR Háskólasvæðið og nágrenni var allt undir hjá Rósalind. Rektorinn aflaði sér þekkingar af einurð og hóg- værri festu. Lokaðir gluggar stöðvuðu ekki háskólaköttinn sem virtist alltaf finna smugu. Engin skúmaskot, skrifstofur eða borð voru Rósalind óviðkomandi. MIÐVIKUDAGUR 19. janúar 2022 Lífið 25FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.