Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1997, Blaðsíða 3
3
Klifcir______________________
Clnglingastarfið í vctur
Unglingastarfið byrjaði 9. okt-
óber í vetur á kynningar-
fundi, þar sem við fórum í
stutta hópleiki og ákváðum síðan
hvað við ætluðum að gera í vetur. Þar
kom meðal annars upp sú hugmynd
að halda Internetnámskeið, fara í
ferðalag og fleira.
Sautjánda október fengum við
okkur pizzu sem við bökuðum sjálf
og horfðum síðan á myndbandsspólu.
Þrítugasta október var fundur sem við
kölluðum þankaregn. Þar ræddum við
um Snæfellsjökul, en þangað ætlum
við að fara í vor. Við fengum hug-
myndir um hvernig við ætlum að
safna fyrir ferðinni. Síðan héldum við
kosningar. þar voru bomar upp hug-
myndir um hvað við ættum að kalla
okkur. Tvær hugmyndir voru jafnar
að stigum. Annars vegar var það
B.U.S.L. sem stendur annaðhvort fyr-
ir: Barna og unglingastarf Sjálfs-
bjargar eða Besti unglingahópur
Sjálfsbjargar. Hinsvegar var það
nafnið „Lífsglöð", sem lýsir hópnum
þó nokkuð vel. Akváðum við að kjósa
aftur síðar.
Attunda og níunda nóvember vor-
um við með tveggja tíma útvarpsþátt
á útvarpstöðinni „Þrumunni". Stöð
tvö kom í heimsókn seinni daginn og
gerði okkur landsfræg í fréttunum um
kvöldið.
Tuttugasta nóvember voru
leiðbeinendumir með „óvænt“ kvöld.
Er við mættum kom í ljós að þetta var
Gambíu kvöld. Tveir sjálfboðaliðar
frá Rauða krossinum (Jökull og
Nonni) sögðu frá reynslu sinni frá
Gambíu. Eldaður var gambískur mat-
ur og borðað með höndunum. Ekki
voru allir tilbúnir að borða þann mat!
Síðan var dmkkið te af gambískum
sið og fræðst um Gambíu.
Sjötta desember munum við fara á
Internetsnámskeið uppi í Tölvuhá-
skóla og síðan 18. desember munum
við halda litlu jólin!
Ef einhvem þama úti langar að
vera með okkur, þá þarf hann bara að
hringja í 552-9133 og tala við Lilju
eða Maríu.
Að lokum óskum við öllum gleði-
legra jóla og farsældar á nýju ári!
Unglingamir í B.U.S.L. eða Lífsglöð.
E.S. Ef einhver á of mikinn pen-
ing þarna úti, þá erum við að safna í
ferðalag upp á Snæfellsjökul!
FERÐASKRIFSTOFA
ÍSLANDS
Skógarhlíð 18 • sími: 562 3500
Ný stjórn Sjólfsbjargar í
Stykkishólmi
Fimmtudaginn 23. október síðastliðinn var kjörinn ný stjórn
Sjálfsbjargar, félags fatlaðra í Stykkishólmi. Hana skipa Ema Björg
Guðmundsdóttir, formaður; Margrét Kjartansdóttir, varaformaður; Eygló
Kristjánsdóttir, gjaldkeri og Björk Júlíusdóttir, ritari. Því miður höfum við
hjá Klifri ekki enn undir höndum ljósmynd af hinum nýju stjómar-
mönnum en vonandi verður hægt að bæta úr því við annað tækifæri.
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, óskar hinni nýju stjórn félagsins
velfamaðar í starfi í framtíðinni. Jafnframt er fráfarandi stjórn og for-
manni félagsins til margra ára, Lárusi Kr. Jónssyni, þakkað fyrir störf sín
í þágu Sjálfsbjargar á liðnum árum.
S.E.
Pétur litli hjólaði fyrir prestfrúnna
og datt og blótaði hressilega því
að hann hafði hruflað sig á oln-
boganum. Pétur litli, hreytti prest-
frúin út úr sér, þú kemst ekki til
himna ef þú segir svona Ijót orð.
Ég ætla ekki til himna segir Pétur
ég var á leiðinni til að kaupa
mjðlk.