Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1997, Blaðsíða 8
8
Klifur
Ammundar og spymti henni fast og
örugglega frá eyjunum. Fréttaskjóðan
stefndi til Reykjavíkur með jafnmikl-
um hraða og flugvél íslandsflugs sem
var á sömu leið. Eftir stutt samtal
við skelkaðan flugstjóra vélarinn-
ar (sem hafði aldrei séð fljúg-
andi, hvað þá talandi frétta-
skjóðu áður!) um óþægindi sem
farþegar í hjólastólum verða fyr-
ir er þeir fljúga með félaginu,
breytti skjóðan hneyksluð um
stefnu og hélt til Keflavíkur. Þar
skoppaði skjóðan inní íþróttahús
íslandsmeistara ÍBK í körfu-
bolta.
Tómstundaiðja á Suðurnesj-
um
Friðrik Arsæll formaður Suður-
nesjafélagsins var á staðnum, tók
skjóðuna upp og sagðist þurfa að
drífa sig upp í félagsheimili, því mik-
ið væri um að vera hjá þeim þessa
dagana. A leiðinni sagði Friðrik að
búið væri að koma upp svokallaðri
,,Tómstundaiðju“, þar sem fólk
getur mótað hinar ótrúlegustu
fígúrur úr gifsi. Einnig er ætlun-
in að koma upp smíðastofu og
er nú þegar búið að fjárfesta í
einhverjum „smíðatólum“. Jól-
in eru á næsta leiti og var verið
að undirbúa einn „jólaföndurs-
dag“ eða tvo þegar þetta er ritað.
Um daginn tók félagið á móti
Sjálfsbjargarfélögum úr Reykja-
vík. Voru spilin tekin upp og spiluð
félagsvist. Voru veitt verðlaun sem
voru meðal annars úr gifsi. Þegar
fréttaskjóðan spurði um úrslit, voru
svörin fá og aðallega brosað útí
annað. Eftir þessi orð tók hann
skjóðuna eins og alvanur körfu-
boltamaður og fleygði henni alla
leið til Reykjavíkur.
Reykjavík og Kanada
Þar greip Jóhannes Þór Guð-
bjartsson skjóðuna, alveg eins og
hann hefði aldrei gert annað alla
sína ævi. Hann sagði skjóðunni
að fyrir utan þetta „vanalega,"
þ.e.a.s. Briddskvöld á mánu-
dögum, opið hús á þriðjudög-
um, félagsvist á miðvikudögum
og tafl á fimmtudögum, þá hefði fé-
lagið farið í heimsókn til Suðumesja,
eins og áður hefur komið fram. Og
þegar skjóðan spurði Jóa um úrslit
var einnig lítið um svör, nema það að
hann brosti út í bæði. Þau „kíktu“ líka
upp á Vatnajökul á dögunum og verið
er að undirbúa ferð til Kanada næsta
sumar. Haldinn var félagsfundur og
tryggingamálin rædd til hlítar (verður
það nokkum tímann hægt?). Vatns-
endalandið er tilbúið eftir mikla
vinnu góðra manna, og verður það
vígt með pomp og prakt á afmælis-
degi félagsins á næsta ári. Að lokum
verður „Jólabasar“ 6. til 7. desember.
Við svo búið gekk Jóhannes yfir til
landsambandsins og afhenti undirrit-
uðum skjóðuna.
Endir og gleðileg jól
Fall er fararheill. Ritvillupúkinn og
frændur hans allir réðust harkalega að
fréttaskjóðunni í síðasta blaði. I síð-
ustu fréttaskjóðu var þetta ritað:
„Okkar félag á Húsavík brást skjótt
við og benti bæjaryfirvöldum á að nú
væri tækifærið til að leggja niður að-
gengilegar gangstéttar.“ Auðvitað átti
að standa þama; leggja aðgengilegar
gangstéttar sem og bæjaryfirvöld
gerðu, en ekki leggja þær niður. Það
hefði nú verið undarleg stefna hjá
bæjaryfirvöldum?
Fréttaskjóðan óskar öllum gleði-
legra jóla og farsæls komandi árs!
Á.Sal.
Halaleiirhópurinn
í fullum sítrúfta
Æfingar standa nú yfir
hjá Halaleikhópnuni á nýju
leikriti eftir Þorstein Guð-
mundsson. Leikritið sem
hlotið hefur nafnið Búktai-
arinn gerist baksviðs á ís-
lenskum skemmtistað fyrir
um þrjátíu árum. Búktalar-
inn sem kominn er á miðj-
an aldur rifjar upp þann
tíma sein hann var að byrja
að skemmta. Hann minnist
félaga sinna sem allir voru
skemmtikraftar; töfra-
menn, söngvarar eða fim-
leikafólk svo dæini sé tekið.
Fjöldi fólks kemur að sýn-
ingunni og er frumsýning
áætluð 16. janúar 1998 en
þá verða fimm ár liðin síð-
an Aurasálin, fyrsta sýning
Halaleikhópsins var frum-
Vefsíða Sjálfsbjargar í smíðum
í fyrra kom upp sú hugmynd
hvort ekki væri rétt að Sjálfsbjörg,
lsf. kæmi sér upp vefsíðu.
Snemma í vetur setti ég og Ragn-
ar Gunnar Þórhallsson, upp
ákveðin atriði sem þyrftu að vera á
slíkri vefsíðu, og var sú greinar-
gerð lögð fyrir framkvæmda-
stjóm. A undanfömum vikum hef-
ur verið unnið að smíði heimasíð-
unnar, og má segja að fyrsta út-
gáfa hennar sé komin á lokastig. A
heimasíðu Sjálfsbjargar verður að
finna almennar upplýsingar um
samtökin, einstök Sjálfsbjargar-
félög, stjóm samtakanna, upplýs-
ingar um Sjálfsbjargarhúsið,
stefnu samtakanna og fl.
Samtökin sóttu um til Intís að fá
eiginnafn á netinu og verður það
http://www.sjalfsbjorg.is. Nú er
þess að vænta að innan fárra vikna
verði vefsíðan komin á netið. Við
hönnun síðnanna hefur þess verið
gætt að nálgast megi upplýsingar
um ákveðin atriði sem t.d. snerta
aðila utan samtakanna, t.d. varð-
andi tryggingamál og þess háttar.
Einnig verða tengingar við Sjálfs-
bjargarfélögin, þ.e. þau þeirra sem
hafa vefsíður. Þá er ætlun okkar að
vera með tengingar við sambæri-
leg samtök erlendis þó svo að það
verði væntanlega ekki í fyrstu út-
gáfu, þá strax í næstu. Eins munu
verða tengingar við fréttahópa
(USENET groups) um fötlun og
skyld málefni.
Jón Eiríksson