Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1997, Page 13

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1997, Page 13
Klifur 13 Mcigleiðlngar sjdlfboðaliða í CIRKÍ-R. Hvemig stendur á því að ég er leiðbeinandi í unglingastarf- inu í Sjálfsbjörg og kem frá Ungmennahreyfingu Reykjavílcur- deildar Rauða Kross Islands (sem hér eftir verður talað um sem URKÍ-R)? Jú, á fundi hjá einum hóp í URKI- R í vor var „auglýst“ eftir fólki sem hafði áhuga á að verða leiðbeinendur í unglingastarfi hjá Sjálfsbjörg lsf. í samstarfi við Ný-ung. Mig langaði til þess að prófa því ég hef áður unnið með „krökkunum“ í Ný-ung, en það var þegar við héldum erótískt kvöld fyrir tveimur árum. Mér fannst mjög gaman að vinna með þeim og þetta var upplagt tækifæri að endurnýja kynnin. Ég vissi fyrst ekkert útí hvað ég var að fara, ekki til hvers var ætlast af leiðbeinendunum frá URKI-R hvort við værum bara hjálparmenn til að aðstoða þá unglinga sem þyrftu á að- stoð að halda. En það skýrðist síðan seinna meir. URKI-R leiðbeinendumir em hjálparmenn og aðstoða þá krak- ka sem þurfa einhverja aðstoð. Við komum hins vegar líka með reynsl- una úr okkar félagi, en þar hefur t.d. verið unglingastarf í tvö ár. Einnig emm við náttúrulega leiðbeinendur jafnt á við þau í Ný-ung. í haust var haldið leiðbeinenda- námskeið fyrir okkur leiðbeinenduma í unglingastarfinu í Sjálfbjörg og Rauða Kross leiðbeinendur, sem komu víðs vegar af landinu. Þar vor- um við minnt á okkar eigin unglings- ár og svo það sem flestir unglingar em að glíma við í dag. Nú nýverið var einnig haldið hjálp- arliðanámskeið sem leiðbeinendum frá URKÍ-R var boðið á, en þar var talað um hin ýmis mál sem fatlaðir glíma við og hvernig við eigum að bera okkur að við að veita okkar að- stoð. Þetta námskeið var mjög gott og á eftir að nýtast mér mjög vel í ung- lingastarfinu, sérstaklega þar sem við ætlum að reyna að komast á Snæfells- jökul í vor en það verður mjög spenn- andi að takast á við það. Við stefnum að því að hafa veturinn í unglinga- starfinu spennandi og hafa í bland fræðslu og skemmtun. Linda Björk Hallgrímsdóttir.

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.