Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Page 6

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Page 6
Klifur BUSL í Danaveldi Busl, unglingastarf Sjálfs- bjargar hóf Danmerkurför sína 16. júní s.l. Síðustu tvö árin hafði verið safnað til ferðarinn- ar af mikilli eljusemi t.d. með sund- maraþoni, bingói, leðurfata- og lyklakippusölu o.fl. Einnig fengum við marga styrki bæði frá opinberum og óopinberum aðilum. Þeir styrkir voru ómetanlegir og hefði ferðin aldrei orðið að veruleika án þeirra. Þökkum við þeim sem þar áttu hlut að máli. Undirbúningur ferðarinnar hófst um leið og ákvörðun var tekin um að fara. En hann byrjaði samt ekki af fullri alvöru fyrr en um áramótin síðustu (sem voru kannski alda- mót...). Akveðið var að feta í fót- spor íbúa Sjálfsbjargarheimilisins, en í tilefni af 25 ára afmæli þess sumarið 1998 var farið til Hou á Jót- landi. Þar er Egmont lýðháskóli þar sem margir fatlaðir hafa verið í námi enda aðgengi allt til fyrirmyndar. Hou er um 30 km. sunnar en Árhus. Nutum við góðs af þeirri ferða- reynslu. Að mörgu þurfti að hyggja fyrir ferðina. A tímabili leið þeim sem sá um að kaupa flugfarseðlana eins og verðbréfamiðlara á Wall Street. Þegar átti að kaupa þá, var mikið verðstríð milli ferðaskrifstofa og þurfti þá að finna út hvar og hvenær lægstu fargjöldin yrðu. Það gekk ágætlega. Miðamir lækkuðu að vísu um tvö þúsund krónur tveimur vik- um síðar, en ekki er hægt að vera al- vitur. Mikil spenna í loftinu Það var næstum áþreifanleg spennan í loftinu þegar unglingamir, ásamt foreldrum, fóru að týnast inn í Sjálfsbjargarhúsið, föstudagskvöld- ið 16. júní. Allir töluðu hver í kapp við annan og leiðbeinendur þutu fram og til baka, til þess að gera klárt fyrir brottför. Rútan kom skömmu síðar og fylltist næstum því samstundis af farangri og ferða- glöðu fólki. Þegar rútan lagði af stað slaknaði strax örlítið á spennunni og vomm við komin um hálf tíu leytið í Leif- stöð. Þar gekk allt snurðulaust fyrir sig, fyrir utan stórt vandamál sem kom upp varðandi rafmagnshjóla- stól. Er hér notað tækifærið til þess að benda Flugleiðum vinsamlegast á að kynna sér betur flutning á slík- um farartækjum. I fríhöfninni vakti það furðu meðal leiðbeinanda hvað unglingarnir voru rólegir í hinu dæmigerða kaupæði Islendinga. Flugvélin lagði af stað rétt eftir klukkan tvö um nóttina og notuðu sumir tækifærið til þess að leggja sig, en aðrir gátu ekki sofið fyrir til- hlökkun. Vélin lenti síðan klukkan sjö að dönskum tíma. Eftir að búið var að ná í farangurinn var haldið út í rútu sem beið okkar á flugvellin- um. Þar biðu einnig Nolli og Bryn- dís, leiðbeinendur sem hafa búið í Danaveldi í sumar. Eftir þriggja tíma akstur í rútunni, þar sem flestir sváfu (nema Nolli og Bryndís sem höfðu fengið eðlilegan nætursvefn) komum við á áfangastað. Þar var tekið hraustlega til „hádegismatar“ síns í Egmont lýðháskólanum. Síðan komum við okkur fyrir í sumarhúsunum þremur sem okkur hafði verið úthlutað. Það sem eftir lifði af þessum degi var notað til að hvíla sig eftir stranga ferð. Einn fór reyndar og heimsótti ömmu sína sem býr þama skammt frá og þeir allra hörðustu fóru og skoðuðu sig um. Nota ég hér lýsingu Lámsar úr blaðagrein, sem mun birtast í októ- berblaði Öryrkjabandalagsins til að lýsa skoðunarferð þeirra. „Er það alveg með ólíkindum hvað er mikið úrval af afþreyingu á þessum stað, þar á meðal; tennis- og körfubolta- völlur, rólur af öllum gerðum, m.a. ein fyrir hjólastól. Þama var föst bryggja með áfastri flotbryggju sem að sumir nýttu sér óspart til göngu- ferða og afslöppunar á milli stríða.“ / tennis, hjólreiðatúr o.fl. Á sunnudeginum eftir góðan svefn og morgunmat fóm allir og skoðuðu sig um, sumir fóm í tennis, aðrir að 6

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.