Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Blaðsíða 7

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Blaðsíða 7
Klifur A œvintýraslóðum í Lególandi. Aðgengi fyrir hjólastóla í garðinum var hið ágœt- asta og þjónustan hreint út sagtfrábær. Hópurinn við upphaf ferðar, ló.júní. Það var næstum áþreifanleg spennan í loft- inu þegar unglingarnir, ásamt foreldrum, fóru að týnast inn í Sjálfsbjargarhúsið, þar sem lagt var afstað. hjóla og enn aðrir í körfubolta. Eftir hádegi var farið niður í bæ og kíkt á mannlífið. Þegar við komum til baka var sá sem fór til ömmu sinnar mætt- ur á svæðið. Amman bauð okkur í heimsókn, en því miður gátum við aldrei notið gestrisni hennar, þar sem of dýrt var að fá farartæki. Um kvöldið fóru nokkrir í strandblak og hinir hvöttu „sína“ menn til dáða. Nú þurftu Bryndís og Nolli að yfir- gefa okkur og halda til Kaupmanna- hafnar til að sinna vinnunni sinni. / Lególandi A mánudagsmorgun vöknuðu íbúar eins sumarhússins við „fagran" söng Sigvalda Búa leiðbeinanda. Lýsir það kannski best skapi hópsins þennan dag. Kannski ekki skrýtið, því eftir morgunmat var vígbúist, herklæðin voru stuttbuxur og bolur vegna þess að veðrið var frábært. Vopnin voru myndavélar. Nú átti að nema land í Lególandi Þar var hvert einasta tæki prófað, í frábæru veðri 30-35 gráður. Þess má geta hér að aðgengi fyrir hjólastóla í garðinum er hið ágætasta og þjón- ustan hreint út sagt frábær. Einn hópurinn fór að vísu í rússíbana, sem bilaði og þurfti örlitlar björgun- araðgerðir til að ná fólkinu úr hon- um, en hún var svo smávægileg og leyst vel af hendi af brosandi og glaðbeittu starfsfólki garðsins, að það varð bara úr skemmtileg lífs- reynsla. Þegar heim var komið um kvöldið, þurfti hvorki vögguvísur né svefnpillur til að fólk sofnaði. Á þriðjudeginum var frjáls dagur sem flestir nýttu til að vera úti við í einstakri veðurblíðu. Sumir voru einnig í skipulagsnefnd fyrir heim- sókn danskra unglinga úr nokkurs- konar dönsku „Sjálfsbjargarfélagi“ sem ætluðu að koma í heimsókn seinnipart þessa dags. Síðan þurfti að fara með einn ung- ling og einn leiðbeinanda, þá Bjama og Lalla til læknis. Bjama vegna flensu og Lalla vegna flugnabits. Dönsku „unglingarnir“ Klukkann fjögur komu dönsku „unglingamir“ ef unglinga skyldi kalla, því þau vom öll á aldur við leiðbeinendur hópsins. Einhver mis- skilningur hafði orðið, en við gerð- um gott úr því. Byrjuðum við á því að fara í ratleik, sem byggðist upp á því að þátttakendur þurftu að svara spumingum, sem tengdust báðum löndunum, þ.e.a.s. Danmörk og Is- landi. Þannig gátu þátttakendur lært ýmislegt um bæði löndin. Um kvöldið var haldin vegleg grillveisla að hætti Dana, þar sem allir skemmtu sér af hjartans lyst. I miðri veislu birtist Nolli. Hann hafði fengið frí frá vinnu til að vera með okkur það sem eftir lifði ferðar. Á miðvikudeginum var farið í gönguferð niður í bæ og einnig nið- ur á höfn. Síðar um daginn skipu- lögðu unglingamir kvöldvöku að hætti Buslara. Hún var haldin niður á ströndinni við opinn varðeld. Þar var fluttur leikþáttur, farið í leiki, nú og auðvitað sungið. Eftir kvöldvök- una fóm „sparkfræðingar“ hópsins og horfðu á einn EM knattspymu- leik. Mestan part miðvikudags eyddum við í Árhus, lögðum af stað strax eftir morgunmat. Þar má segja að verslunaræðið sem við bjuggumst við í fríhöfninni hafi brotist út. Því um leið og við skoðuðum borgina, t.d. ráðhúsið, var verslað af miklum móð enda útsölur út um allt (má ekki sleppa þeim!). I ráðhúsinu var einum leiðbeinanda næstum því vik- ið út fyrir að spila íslensku leik- skólalögin á risastóran flygil, Svo er sagt að unglingar séu slæmir! Um kvöldið þegar við komum heim héldu leiðbeinendur kvöld- vöku með miklum glæsibrag. Þau -framhald á bls. 9 7

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.