Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Page 16

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Page 16
Klifur úr geðfatlaða- og hreyfihamlaða geiranum aldrei getað byggt sig upp, hvorki eignalega eða tekjulega. Fyr- ir mér er dæmið afskaplega einfalt og þess vegna skil ég ekki þær áherslur sem eru í þjóðfélaginu í dag. Ég er auðvitað að verða gamall en ég á erfitt með að skilja það þjóð- félag sem setur verðbréfaviðskipti í öndvegi og gleymir að líta til þeirra sem hafa það lakast.“ Helgi segist hafa orðið fyrir mikl- um vonbrigðum sl. vetur með að verkalýðshreyfingin skyldi ekki vinna betur að þessum málum. „Mér finnst grátlegt að búið sé að ákveða kjör öryrkja út samningstímabilið og það eingöngu í prósentum. Kjör ör- yrkja eru á svo lágum grunni og því gefur prósentureglan af sér fáar krónur. Það er allt annað að setja 5% á 50 þúsund en á 100 þúsund, ég tala nú ekki um þegar talan er komin í 200 þúsund. Þeir sem eru lægst launaðir komast aldrei upp úr farinu með þessum hætti. Annað sem má nefna er skatturinn sem tekinn er af þessum strípuðu örorkubótum. Það er ekki vegna þess að bætumar hafi hækkað svo mikið heldur vegna þess að persónuafslátturinn hefur verið skilinn eftir. Þetta hefur verið vísvit- andi stefna og ég hef aldrei getað skilið af hverju verið er að teygja sig æ lengra niður í skatttökunni.“ Kjaramálin efst á baugi Aðspurður um helstu baráttumál ör- yrkja í dag, segir Helgi það fyrst og fremst vera kjaramálin. „Það dugar auðvitað ekki annað en að hafa það að minnsta kosti sem lágmarksmið- við að öryrkjar búi ekki við lakari kjör heldur en það fólk sem lifir á strípuðum kauptöxtum í landinu. Þetta er þeirra lifibrauð og mögu- leikar hinna verst settu til að hafa eitthvað meira en launafólk hefur með yfirvinnu og slíku em engir. Þeir sem verst em settir hafa ein- göngu þessar strípuðu tekjur og ekk- ert umfram það. I öðm lagi eru það atvinnumálin. Greiða þarf betur leið fatlaðra út á vinnumarkaðinn og byggja þannig starfsumhverfi að þeim sé gert kleift að vinna og að hafa einhvern afrakstur af þeirri vinnu. Ef menn missa meirihlutann af bótunum með því að vinna og það stendur ekkert eftir, jafnvel ekki fyr- ir kostnaðinum við að koma sér til og frá vinnu, þá er það bara mann- legt og eðlilegt að menn gefist upp á slíku. Það er miklu meira átak fyrir fatlaða að koma sér til og frá vinnu- stað, þannig að það er eðlilegt að þeir haldi sínum bótum þrátt fyrir það. Ég dáist oft að fólki hvað það vinnur mikið þrátt fyrir þessar skerðingar sem dynja yfir það í hvert skipti sem það fær launa- umslagið frá Tryggingastofnun. Það er beinlínis verið að hegna fólki fyr- ir að vinna. Eitt það mest knýjandi sem Öryrkjabandalagið getur gert í framtíðinni er að halda áfram að hamra á því að ná skerðingarmörk- unum eins mikið út og mögulegt er, þannig að menn finni einhvem til- gang í því að vinna. í þriðja lagi eru það menntunarmálin. Framtíðin liggur í aukinni menntun á öllum sviðum og gera þarf fólki kleift að taka sem bestan þátt. Við emm með Hringsjá, starfsþjálfun fatlaðra, sem er eins konar skóli er reynst hefur mörgum afar vel og komið mörgum út á vinnumarkaðinn. Tryggja þarf greiða aðgöngu í mennta- kerfið, það kostar sitt í dag og menn verða að hafa kjör til þess að geta það. Það er ótrúlegt að hingað skuli koma fólk er lokið hefur stúdentsprófi og er að fara í háskóla, sem spyr hvort það sé nokkur leið til þess að við getum veitt því styrk fyr- ir skólagjöldunum. Við höfum sem betur fer getað gert það, vegna þess að við emm með sérsakan námssjóð. Þetta er svo sem engin upphæð og ég veit að FBA-drengimir og aðrir brosa auðvitað að svona upphæðum og finnst bara hlægilegt að við skul- um vera að tala um einhvem 25 þús- und kall, en þetta fólk á hann bara ekki til. í fjórða lagi em það hús- næðismálin sem brýnt er að leysa. í dag eru um 400 einstaklingar á biðlista eftir húsnæði og það er auð- vitað mjög slæmt mál. Margir hverjir búa við skelfilegar aðstæður sem em ekki nokkrum manni bjóð- andi.“ Margir sigrar unnist Helgi segir að þrátt fyrir að kjör ör- yrkja séu ósæmandi með öllu, þá detti honum ekki í hug að segja að ástandið hér á landi sé alvont. „Sem betur fer nýtur vaxandi hópur ör- yrkja einhvers lífeyrissjóðs og at- vinnuþátttaka þeirra er mikil. Við höfum haft samstarf við stjómvöld um ýmis mál er náð hafa fram og munum halda áfram að knýja fram úrbætur. A sínum tíma tókst t.d. að koma á fót almennri löggjöf um málefni fatlaðra, þar sem markmiðs- greinar og tilgangsgreinar tryggðu fötluðum ákveðinn rétt. Það var mikill sigur. Ef menn hefðu hins vegar unnið af einlægri að þeim markmiðsgreinum sem þar voru settar þá væru kjör öryrkja snöggt- um betri í dag. Hjálpartækjamálin eru í góðu lagi hér á landi og fylli- lega sambærileg miðað við það sem gerist best á Norðurlöndum. Síðan má nefna önnur mál er náð hafa fram eins og t.d. það að nú fá öryrkjar út- borgað í byrjun hvers mánaðar eins og aðrir launþegar, í stað þess að fá út- borgað um miðjan mánuðinn. Þetta var mikið jafnréttis- mál. Stjórnvöld hafa sem betur fer sýnt málum sem þessum skilning. Það var einnig mikill sigur er starfsþjálfun fatlaðra komst á árið 1987. Þar hafa tugir manna fengið aðstoð við að komast út í lífið á nýjan leik. Yfir 70% af því fólki sem þar fer inn er annað hvort í námi eða starfi í dag og það er glæsilegur árangur.“ Fjölbreytt og gefandi starf Helgi segist hafa átt ánægjuleg ár hjá Öryrkjabandalaginu og að starf- ið hafi verið fjölbreytt og gefandi. „Það að vinna að málefnum fatlaðra „Innan okkar raða er hópur sem hefur það verulega slœmt, ein- staklingar sem lifa ekki bara við hung- urmörk margir hverj- ir, heldur eru þeir líka svo félagslega einangraðir.u 16

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.