Mosfellsblaðið - 01.03.1999, Page 11
Páll Helgason spilar undir og stjómar söng Vorboðans, kórs aldraðra.
Þorrablót aldraðra
Þann 7. febrúar s.l. var haldið árlegt
þorrablót fyrir eldra fólkið í Mosfells-
bæ og nágrannasveitarfélögunum. Var
það haldið í Hlégarði við frábæra mat-
seld Vignis Kristjánssonar og hans
fólks. Að blótinu stóðu að venju
Soroptimistaklúbburinn, Lions, Kiw-
anis og Rauði kross Kjósarsýslu. Var
fólkið sótt og ekið heim sem þess
óskaði. Veislustjóri var Salóme Þor-
kelsdóttir. Vorboðinn söng, danssýning
var undir stjóm hjónanna Guðlaugar og
Ragnars, sem eru danskennarar aldr-
aðra og leynigestur mætti, það var
Diddú. Síðan var dansað og var þetta
hin besta skemmtun að venju.
Gefur lil tílcniefhavama
Svavar Sigurðsson lifir fyrir að veija
ungmenni gegn fíkniefnavandanum.
Hann safnar fé til vímuefnavama og
gefur tæki og búnað aðallega til lög-
reglu og tollgæslu og framlagið er
komið á fimmtu milljón til þessara að-
ila. - Nú á dögunum gaf hann lögregl-
unni í Mosfellsbæ tölvumyndavél
(digital) , sem hún er þegar farin að
notá og er þetta sjötta myndavélin sem
hann gefur lögreglunni á landinu. Enn-
fremur gaf hann foreldravaktinni í
Ottó í
Naustanesi
telcur á hús
Mosfellsbæ GSM síma, en bæjaryfir-
völd höfðu ekki orðið við ósk þar að lút-
andi.
Ityrrðarstundir í
Lágafellsldrkju
Kyrrðarstundir em í Lágafells-
kirkju alla fimmtudaga kl. 18:00. I
erli dagsins getur verið mjög róandi
að setjast þar, njóta tónlistar, hlusta
á falleg orð og biðja. Kirkjan er ein-
staklega falleg og hrein unun að
sitja og horfa fram í kórinn, þar
sem eitt fellur að öðm og úr verður
mikið listaverk.
Fermingarkveoja
frá Hosverjum
Nú þegar fermingar fara í hönd, er
ekki úr vegi að minna á fermingar-
skeyti skátafélagsins Mosveija, en þau
hafa verið vaxandi þáttur í fjáröflunar-
starfsemi skáta. Með því að notafæra
sér af skeytaþjónustu Mosveija geta
bæjarbúar stutt við starfsemi þeirra.
Málefnið er sannarlega gott. Ef hægt er
að tala um forvamarstarf meðal bama
og unglinga, er óhætt að fullyrða að
skátastarfíð setur varanlegt mark á
hvem þann sem tekur þátt í því, eink-
um að því er varðar kynni af heilbrigðu
og ábyrgu félagsstarfi og þjálfun í því
að fást við ýmis konar kreijandi verk-
efni við fjölbreyttar aðstæður.
Skátastarfið hefur verið öflugt síðustu
mánuði og Mosveijar eins og aðrir skát-
ar undirbúa sig af kappi undir væntan-
legt landsmót skáta á sumri komanda.
Það er helst úr starfseminni að ffétta, að
auk reglulegra útivistarleiðangra fór
fram vígsla nýliða í Lágafellskirkju þ.
22. febrúar s.l. þar sem um 22 nýliðar
vígðust til skátastarfsins, en 22. febrúar
er fæðingardagur Baden Powell, stofn-
anda skátahreyfingarinnar og alþjóð-
legur hátíðisdagur skáta. Framundan er
mikið starf fram á vor: Ferð í Amarset-
ur 12. og 13. mars, leikur við Hafravam
10. apríl og ferð í KSÚ skálann að Úlf-
ljótsvatni 21. - 23. maí svo eitthvað sé
nefnt.
Lag upp t göngu og útilegu að Hrolli við Hafravatn, eina af vetrarbœkistöðvum Mosverja. Efri
röðf.v.: Hrafn, Jens og Yngvi. Fyrirframan þá f.v. eru Fífa, Hálfdán og Halldór.
Bændurnir Ottó og Þorbjörg í
Naustanesi hafa fengið eina dýrateg-
und í viðbót til að annast um. Þegar átti
að taka hestana heim í haust fylgdi gæs
nokkur hestunum. Þegar hestarnir
vom reknir af stað fylgdi gæsin hestun-
um. Gæsin fylgdi hestunum heim í
Naustanes og vék ekki frá þeim. Undi
hún hag sínum vel í nærvem hestana
og vaggaði á milli fóta þeirra eins og
ekkert væri. Hestamir virðast líka taka
nærvem hennar vel og hnusa að henni
svona öðm hveiju. Þegar nokkrir hest-
ar vom teknir á hús fylgdi gæsin með,
en hún hefur hlotið nafnið Pegasus.
Húsnæði óskast
3-4 herbergja húsnæði
óskast til leigu í Mosfellsbæ,
strax eða sem allra fyrst.
Reglusemi og öruggum
greiðslum heitið.
fers\ur
OH
freistandi
Vinsamlegast hringið í síma
899-5181.
MosfellsblaAið O