Fréttablaðið - 16.02.2022, Page 6

Fréttablaðið - 16.02.2022, Page 6
Allt að 70 þúsund kort verða í boði í ár. Ég sé launamun meðal doktorsmenntaðra bæði innan og utan akademíu, óháð próf- sviði. Maya Staub, doktor í félags- vísindum Maya Staub, doktor í félags- vísindum, segir að niður- stöður rannsókna hennar á launamun kynjanna í akademíunni bendi til þess að launamunur doktors- menntaðra á Íslandi sé til staðar óháð prófsviði, bæði innan akademíunnar og á almennum vinnumarkaði. ninarichter@frettabladid.is JAFNRÉTTISMÁL „Þetta rímar mjög vel við mínar niðurstöður. Hún er að skoða akademíska starfsmenn og hvernig þetta akademíska fram- gangskerfi er, hindranirnar í því og starfsumhverfi háskólanna,“ segir Maya Staub, doktor í félags- vísindum, um niðurstöður nýrrar skýrslu sem Salome Steinþórsdóttir nýdoktor vann fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Niðurstöður skýrslunnar sýna að litlar breytingar hafi orðið síðustu fimm ár á stöðu kynjajafnréttis þegar kemur að framgangi aka- demískra starfsmanna háskóla. Maya varði doktorsritgerð sína fyrir skömmu, Starfsferilsþróun doktorsmenntaðra: Rannsókn á kynjuðu samhengi fjölskyldulífs og tekna meðal doktorsmenntaðra á Íslandi. Niðurstöður rannsókna Mayu herma að konur með dokt- orspróf á Íslandi séu með laun á pari við karla með BA-próf. „Launamunur doktorsmennt- aðra í Íslandi er til staðar óháð prófsviði og starfsvettvangi. Hann er að finna hvort sem er innan hug- og félagsvísinda eða raunvísinda og einnig bæði innan akademíu og á hinum almenna vinnumarkaði,“ segir Maya. Rannsóknir Mayu beinast meðal annars að því hvernig fjölskyldu- Íslenskar konur með doktorsgráður með laun á við karla með BA-próf Syrgja fallna félaga Lögreglufólk í Þýskalandi fylgdi félögum sínum síðasta spölinn í gær en þá voru borin til grafar þau Alexander og Yasmin sem voru skotin í lok janúarmánaðar. Þau höfðu stoppað bíl en ökumaðurinn og farþegi voru veiðiþjófar og skutu þau bæði án þess að hika. Óku svo á brott en voru handteknir skömmu síðar. Málið hefur vakið mikla reiði í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Litlar breyt- ingar hafa orðið síðustu fimm ár í kynjajafn- rétti er kemur að framgangi akademískra starfsmanna háskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY lífið blandast inn í starfið hjá fólki með doktorspróf. „Þannig að ég er bæði með fólk sem er að vinna innan háskólanna, akademíska starfsmenn, svo er ég líka með hina doktorsmenntuðu starfsmennina sem eru að vinna á almennum vinnumarkaði,“ segir hún. „Konur eru lengur að verða pró- fessorar. Það eru mun fleiri karlar í þessum prófessorastöðum, en það eru fleiri lektorar og aðjúnktar, en það eru lægri stöðugildin,“ segir Maya. Hún bendir einnig á launamun. „Ég sé launamun meðal doktors- menntaðra bæði innan og utan aka- demíu, óháð prófsviði. Bæði innan og utan félagsvísindanna.“ Maya segir að í störfum sem eru álitin hefðbundin karlastörf, sem fela í sér hugmyndir um til dæmis hverjir eru góðir í stærðfræði, sé það oft tengt karlmennskuhugmyndum. „Í þeim geirum er launamunur hærri, en þar sem konur eru fleiri,“ segir hún. Hún bendir á að þannig sé meiri munur í raunvísindunum en í félagsvísindunum. „En hann er samt til staðar hjá félagsvísindafólki.“ Að sögn Mayu eru heimilisstörf meðal þátta sem einnig komi við sögu. „Tími kvenna er miklu sund- urslitnari og þær eru miklu stress- aðri og með meira samviskubit yfir því þegar þær eru ekki heima,“ segir hún. „Það er mjög skýrt í mínum gögnum.“ n gar@gfrettabladid.is STJÓRNSÝSLA Umboðsmaðu r Alþingis segir að Vegagerðin hafi ekki farið að upplýsingalögum er umsækjanda um starf var synjað um afhendingu gagna sem tengdust ráðningarferlinu. Kona sem ekki fékk auglýst starf hjá Vegagerðinni vildi fá gögn um aðra sem sóttu um starfið. Vega- gerðin afmáði nöfn hinna umsækj- endanna úr gögnunum sem voru afhent. Þau lutu meðal annars að stigagjöf fyrir umsækjendur. Kvaðst Vegagerðin ekki sjá þýðingu þess að konan fengi upplýsingar um stigagjöf annarra og að takmarka bæri aðgang að þeim í ljósi einka- hagsmuna þeirra. Umboðsmaður Alþingis segir Vegagerðina ekki hafa sýnt fram á að afgreiðslan hafi verið í samræmi við reglur stjórnsýslulaga. n Upplýsingalögum var ekki fylgt Skúli Magnús- son, umboðs- maður Alþingis kristinnhaukur@frettabladid.is FERÐALÖG Evrópusambandið hefur ákveðið að leyfa 18 ára ungmennum frá EES-ríkjum og umsóknarríkjum ESB að taka þátt í Interrail-lottó- inu DiscoverEU. Hingað til hafa einungis ungmenni í ESB-ríkjum getað sótt um. Þau sem vinna fá 30 daga ferða- kort, sem gildir aðallega í lestir á meginlandi Evrópu. Einnig fá þau afsláttarkort sem hægt er að nota við matarinnkaup. Kortin verða að minnsta kosti 10 þúsund talsins og gætu orðið allt að 70 þúsund í ár. Við umsókn þurfa ungmennin að svara sex spurningum um evrópska sögu og menningu. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hefur lýst árinu 2022 sem ári æskunnar og áhersla verður á að koma ferðaþjónustunni aftur í gang eftir heimsfaraldurinn. Auk Íslendinga geta ungmenni frá Nor- egi, Liechtenstein, Tyrklandi, Serbíu og Norður-Makedóníu sótt um. Þau sem vinna fá einnig aðgang að sam- skiptakerfi DiscoverEU og geta haft samband við önnur ungmenni á sams konar ferðalögum. Mariya Gabriel, ráðherra nýsköp- unar, menningar, menntunar og æsku hjá Evrópusambandinu, kynnti útvíkkun verkefnisins í gær og hvatti ungmenni til að sækja um. Hugmyndin að DiscoverEU spratt árið 2014 frá tveimur ungum Þjóð- verjum, Vincent-Immanuel Herr og Martin Speer, en þeir stungu upp á að Evrópusambandið myndi gefa öllum 18 ára ungmennum í álfunni Interrail-kort. Þetta var talinn of stór biti fjárhagslega og núverandi verkefni var því málamiðlun. n Íslensk ungmenni fá boð ESB um Interrail-lotterí 6 Fréttir 16. febrúar 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.