Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.02.2022, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 16.02.2022, Qupperneq 11
Uppáhaldsborgin mín er París. Síðan er Ronda á Malaga í miklu uppáhaldi, mjög rómantísk borg og góðir veitingastaðir. Ég reikna með að hún hafi verið að minna á að hún er viðskipta- ráðherra og þar með bankamálaráðherra Stefanía Óskarsdóttir MARKAÐURINNFRÉTTABLAÐIÐMIÐVIKUDAGUR 16. febrúar 2022 Anna Fríða Gísladóttir var nýlega ráðin til f lugfélagsins Play sem for- stöðumaður markaðsmála. Hún á fjölmörg áhugamál og stundar hlaup og bootcamp af kappi. Hver eru þín helstu áhugamál? Ég á mörg áhugamál og er því ágæt í mörgu en ekki yfirburðar í neinu. Áhugamálin eru meðal ann- ars matseld og hvers kyns hreyfing eins og hlaup, badminton, lyftingar, veiði, skíði, dans og gönguskíði. Hvernig er morgunrútínan þín? Þetta svar kann að hljóma eins og það sé samið sérstaklega fyrir Markaðinn, en svo er nú ekki. Lík- amsklukkan hjá mér er stillt þannig að ég vakna alltaf 6.30, þrjá daga í viku fer ég á hlaupa- og bootcamp- æfingu og hina dagana nota ég tím- ann á meðan allir eru sofandi til að liggja upp í rúmi í símanum, fá mér kaffi og græja svo soninn fyrir leik- skóla og skutla. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Þegar ég útskrifaðist fékk ég Lean In sem hefur með óbeinum hætti haft mikil áhrif á mig og sérstak- lega á þeim tíma. Í dag hefur hins vegar bókalestur fengið að víkja fyrir fræðipodcöstum. Það er þó á áætlun að bæta úr því. Hvaða áskoranir eru fram undan? Á næstu vikum mun ég hefja störf sem forstöðumaður markaðs- mála í geira sem ég hef ekki unnið í áður. Það verður góð áskorun sem ég hlakka mikið til að takast á við. Þar að auki er einkasonurinn að hefja koppaþjálfun sem verður líka ákveðin áskorun. Hvar sérðu þig eftir tíu ár? Ég tala af reynslu þegar ég segi að lífið er óútreiknanlegt. Það sem skiptir máli er að vera trú sjálfri sér og hafa gaman af lífinu. Rest redd- ast. Ef þú þyrftir að velja annan starfs- frama, hvað yrði fyrir valinu? Ætli það væri ekki eigin rekstur. Ég fæ reglulega fyrirspurnir á Instagram um uppskriftir að því sem ég elda þannig að kannski eitt- hvað tengt því. Hver er þín uppáhaldsborg? París. Síðan er Ronda á Malaga í miklu uppáhaldi, mjög rómantísk borg og góðir veitingastaðir sem skiptir mig máli því ég er mikill aðdáandi Tapas rétta, þannig það hentar mjög vel að nýi vinnustaður- inn, PLAY, fljúgi þangað.n Á fjölmörg áhugamál n Svipmynd Anna Fríða Gísladóttir Nám: BSc. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, með áherslu á markaðsfræði. Störf: Núverandi Brand and Campaign Manager hjá Bioeffect en var nýlega ráðin markaðsstjóri hjá flugfélaginu Play. Fjölskylduhagir: Í sambúð með Sverri Fal Björnssyni hagfræðingi og saman eigum við soninn Björn Helga. olafur@frettabladid.is Ummæli Lilju Daggar Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, í síðustu viku, um að ef bankarnir ekki tækju það upp hjá sjálfum sér að verja hluta hagnaðar til að bæta stöðu þeirra viðskiptavina sem verst stæðu kæmi til greina að setja á bankaskatt, hafa vakið athygli. Lilja hafði ekki rætt þetta í ríkis- stjórn og vöktu orð hennar gagn- rýni og viðbrögð stjórnarþing- manna og fleiri aðila, auk þess sem aðrir ráðherrar, meðal annars Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, sögðust ekki fylgjandi bankaskatti. Doktor Stefanía Óskarsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, telur ekki að ummæli Lilju breyti stöðu hennar í ríkisstjórn. „Ég reikna með að hún hafi verið að minna á að hún er við- skiptaráðherra og þar með banka- málaráðherra. Hún var búin að vera menntamálaráðherra í fjögur ár og eftir uppstokkunina á stjórnarráð- inu er hún menningarmálaráðherra, auk þess að fara með viðskipta- og bankamál. Hingað til hefur hún fyrst og fremst komið fram sem menningarmálaráðherra og sjálf var ég hálfpartinn búin að gleyma því að hún færi með viðskiptamál.“ Stefanía segir Lilju nú hafa minnt rækilega á sig sem viðskiptaráð- herra. „Með því að stíga svona fram greip Lilja gagnrýni frá stjórnar- andstöðunni á stjórnina og tillögur Kristrúnar Frostadóttur um vaxta- bætur og aðrar aðgerðir á lofti og sendi beint á bankana sem voru rétt að tilkynna tugmilljarða hagnað á síðasta ári.“ Stefanía segir það ávallt umdeilt meðal almennings þegar bankarnir skili miklum hagnaði og því sé þetta útspil Lilju til vinsælda fallið meðal almennings. „Svo sýnist mér hún hafa náð til bankamanna. Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, tók þessu ekki fráleitlega. Hann úti- lokaði ekki að nota mætti sérstaka skattheimtu til að aðstoða sérstak- lega þá sem standa illa.“ Stefanía segist túlka ummælin svo að Lilja sé að gera sig gildandi í umræðu um efnahagsmál. „Ég sé þó ekki að bankamálaráðherra fari að beita sér fyrir breytingum á bankaskatti í andstöðu við fjármála- ráðherra. Ég held að þetta sé miklu fremur til að minna ákveðna aðila á sig.“ Sigurður Ingi Jóhannsson inn- viða ráðherra hafði áður viðrað að taka húsnæðisliðinn út úr vísi- tölunni. Stefanía segir hugmyndum kastað fram, kannski í þeim tilgangi að eiga eitthvað uppi í erminni í við- ræðum við verkalýðshreyfinguna, en kjarasamningar eru lausir í haust. „Ég held að Lilja sé að minna á að hún sé ansi hörð og hiki ekki við að berjast. Hún stóð í ströngu inni í síðustu ríkisstjórn með stuðning við einkarekna fjölmiðla og mátti hafa fyrir því máli. Hún er að minna á að hún sé ekkert hrædd við að taka slaginn ef því er að skipta. Að mínu mati eru þetta skilaboð inn í ríkisstjórnina, en ekki síður til stjórnarandstöðunnar, bankanna og almennings.“ n Lilja er að minna á sig Anna Fríða Gísladóttir, forstöðumaður hjá PLAY. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kynningarfundur um Ölfusárbrú Samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir Vegagerðin boðar til opins kynningarfundar föstudaginn 18. febrúar kl. 10 um fyrirhugað útboð á samvinnuverkefninu Hringvegur um Ölfusá. Verkefnið felur í sér færslu Hringvegar norður fyrir Selfoss með byggingu nýrrar brúar á Ölfusá við Efri Laugardælaeyju. Fundurinn verður í beinu streymi sem má nálgast á vef Vegagerðarinnar. Fyrirspurnir í gegnum slido.com með aðgangsorðinu #olfusarbru magdalena@frettabladid.is Már Mixa, lektor við Háskólann í Reykjavík, segir í samtali við Markaðinn að þó svo að ávöxtun eigin fjár hjá bönkunum sé í hærri kantinum þá gefi hún ekki tilefni til að fara yfir um. „Arðsemin árið 2021 var góð hjá bönkunum en hún lá á bilinu 11-15 prósent og meðaltalið var 12,6 prósent. Það er samt sem áður ekki hægt að tala um það sem ofur- hagnað,“ segir Már og bætir við að ef litið sé á tölurnar þá gefi þær ekki til kynna að um okur bankanna sé að ræða né að þörf sé á sérstökum bankaskatti. „Mörgum verður tíðrætt um okurvexti hjá bönkunum en stað- reyndin er sú að vaxtamunur er að dragast saman. Hann er nú 2,5 pró- sent en var 3 prósent 2017. Vaxta- munurinn hjá bönkum í dag er sá lægsti síðan hrunið 2008 átti sér stað. Ef við berum saman arðsemi hjá bönkunum og hjá smásölufyrir- tæki á borð við Haga þá er arðsemi Haga á síðustu 5 árum töluvert hærri eða 14,8 prósent. Varla ætti að leggja sérstakan skatt á Bónus? Álagning Bónusverslana er afskaplega lág eða á svipuðum slóðum og hjá Wal-Mart í Bandaríkjunum. Það heldur enginn því fram að Bónus sé okurbúlla.“ Már segir jafnframt að staðan sýni svart á hvítu að ekki sé þörf á sérstökum bankaskatti. „Það má heldur ekki gleymast að það hefur lítið þurft að afskrifa síðastliðin ár. Þegar horft er á þessar tölur þarf líka að líta til lengri tímabila. Það gefur ekki rétta mynd að horfa til skamms tíma.“ n Bankarnir okra ekki Már Wolfgang Mixa, lektor við Háskólann í Reykjavík. MYND/HRINGBRAUT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.