Fréttablaðið - 16.02.2022, Page 17

Fréttablaðið - 16.02.2022, Page 17
Fyrsta plata djassgítaristans Hróðmars Sigurðssonar kom út síðasta haust og hlaut góðar viðtökur. Fram undan eru mörg spennandi verk- efni með ólíkum aðilum auk þess sem hann fer brátt að huga að næstu plötu. starri@frettabladid.is Djassgítarleikarinn Hróðmar Sigurðsson gaf út sína fyrstu plötu síðasta haust við góðar undir- tektir og er strax farinn að leggja drög að þeirri næstu. Frumraun hans er samnefnd honum og inni- heldur átta lög. „Tónlistinni mætti lýsa sem bræðingi af sálartónlist, latin- og djassmúsík þar sem hljóð- heimur hverfist um rafgítarinn og haganlega samofnar brassútsetn- ingar sem kallast á við kraumandi takt hjá ryþmasveit og má heyra innblástur frá hinum ýmsu tón- listarstílum.“ Hróðmar starfar bæði sem tón- listarmaður og tónlistarkennari og er meðlimur í ýmsum verkefnum og hljómsveitum ásamt því að starfrækja sína eigin hljómsveit. „Þar má meðal annars nefna hljómsveit Ingibjargar Turchi, Elvar Bragi Quintett, Fafla og Elísa- betu Ormslev. Síðan hef ég verið að leysa af í hljómsveitum í sýningum í Borgarleikhúsinu eins og 9 líf, Emil í Kattholti og Elly þegar hún var í gangi. Það er ótrúlega gaman að fá tækifæri til að starfa í svona fjölbreyttum verkefnum og mjög gefandi að fá að taka marga mis- munandi vinkla á tónlistarflutn- inginn, hvort sem það er í spuna- tónlist, leiksýningum, popptónlist eða bara hverju sem er.“ Blúsformið opnaði á spunann Hann segist snemma hafa heillast af gítarnum. „Þegar ég var ellefu ára gamall fékk ég gítar í afmælis- gjöf en hafði fyrir það lært aðeins á blokkflautu og trompet. Ég er sjálf- menntaður á gítarinn eða alveg þar til ég hóf nám við Tónlistar- skóla FÍH þegar ég var tvítugur.“ Það sem heillaði hann helst við gítarinn á þeim tíma voru gítarhetjur í hljómsveitum eins og Led Zeppelin, Guns N' Roses, Pink Floyd og AC/DC. „Ég var í unglingahljómsveitum þar sem við lékum lög aðallega eftir þessar sveitir og höfðum mjög gaman af. Þá var stefnan að sjálfsögðu tekin á að verða eins og þessar fyrirmyndir mínar í tónlistinni á þeim tíma.“ Seinna stofnaði hann blúshljómsveit með vinum sínum þegar hann stundaði nám við Menntaskólann að Laugarvatni. „Ég sökkti mér í blústónlistar- tungumálið og opnaði blúsformið mikið á þá spunatónlist sem ég fæst hvað mest við í dag.“ Djassinn á hug hans allan Djassinum og spunamúsík kynnt- ist hann svo fljótlega eftir að hann hóf nám í Tónlistarskóla FÍH. „Sú tónlist á hug minn allan þó ég taki þátt í hinum ýmsu verkefnum sem að falla ekki undir djasshattinn. Tónlistarskóli FÍH hjálpaði mér að öðlast tækni til að geta spilað hinar ýmsu stefnur og einnig kynntist ég mörgu góðu fólki sem ég vinn með í dag. Svo hefur metnaður minn farið meira í þá átt að skapa tónlist sjálfur og hjálpa öðrum með sín verkefni, frekar en að vera í einhverjum forgrunni, og að því einfaldlega að geta starfað við að spila og búa til tónlist.“ Þaulreynt aðstoðarfólk Gerð fyrstu plötunnar tók um eitt og hálft ár. „Lögin samdi ég flest í desember og janúar 2020 og flutti á tónleikum í febrúar sama ár. Hljóðritanir fóru svo fram í lifandi flutningi í júní og ágúst sama ár. Síðan tók við eftirvinnsla og hljóð- blöndun sem ég gaf mér góðan tíma í til þess að geta melt aðeins efnið og komið þessu frá mér þannig að ég yrði sáttur.“ Mannskapurinn á plötunni er ekki af verri endanum. „Utan mín voru með mér þau Ingibjörg Elsa Turchi á bassa, Magnús Jóhann Ragnarsson á hammondorgel og rhodes, Magnús Trygvason Eliassen á trommur, Kristofer Rodriguez Svönuson á slagverk, Elvar Bragi Kristjónsson á trompet og flugelhorn, Ingi Garðar Erlends- son á básúnu, Tumi Árnason á tenórsaxófón og svo Örn Eldjárn á pedal steel-gítar í lokalaginu. Þórdís Erla Zöega gerði síðan þetta geggjaða plötuumslag.“ Hróðmar er þegar byrjaður að semja og útsetja fyrir næstu plötu sem kemur líklega út á næsta ári. Fluguveiðin heillar Það er fátt sem kemst að í lífi Hróð- mars utan gítarinn og kennslan. „Ég á mér þó áhugamál sem hefur heltekið mig undanfarin ár og það eru fluguveiðar. Það er eitthvað svo stórkostlegt við það að vera í íslenskri náttúru á sumrin og kasta flugu fyrir fisk. Ég bíð því spenntur eftir næsta veiðitímabili.“ n Heillaðist snemma af gítarnum Hróðmar Sigurðsson gítarleikari. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Frumraun Hróðmars Sigurðssonar kom út í ágúst á síðasta ári. Hrafnhildur hefur starfað sem einkaþjálfari hjá World Class í um 17 ár. Hún þjáðist af ristilvandamálum og bak- flæði í áratugi vegna með- gönguógleði, sem orsakaði sjö mánaða uppköst. Fyrir þremur árum fór Hrafnhildur Hákonardóttir í ristilspeglun vegna óþæginda í ristli og meltingar- vandamála. „Ristillinn hafði verið til trafala í 25 ár frá því ég var ólétt. Á meðgöngunni ældi ég daglega í um sjö mánuði. Eins eðlilegur hlutur og ólétta er fyrir kvenlíka- mann eru sjö mánuðir af upp- köstum ekkert grín fyrir líkams- starfsemina. Ég hlaut af þessu varanlegar skemmdir á vélinda sem orsaka bakflæði. Einnig hafði þetta slæm áhrif á ristilinn, sem hafði þau áhrif að ég fór að finna fyrir verkjum í baki og líkamanum öllum. Ég hafði lengi tekið inn ýmis magalyf og alltaf þurft að passa hvað ég borðaði af hveiti- og mjólkurvörum, en það tók mig nokkur ár að átta mig á að þessar matartegundir færu illa í mig. Mér var ráðlagt að taka inn magnesíum til þess að koma jafn- vægi á meltinguna og róa ristilinn. Ég prufaði nokkrar tegundir en þær hentuðu mér ekki. Til allrar ham- ingju var mér bent á magnesíum með fjallagrösum frá ICEHERBS, en fjallagrös eru mjög mýkjandi. Nú hef ég tekið magnesíumblönduna í þrjú ár og aldrei liðið betur. Ég er komin með sléttan maga og meltingin er komin í hið stakasta lag. Með því að taka reglulega inn magnesíum með fjallagrösum get ég jafnvel leyft mér að svindla, því ég veit fátt betra en að geta fengið mér pasta og hvítlauksbrauð á góðum degi. Við bakflæðinu tek ég hóstamixtúru með fjalla- grösum frá ICEHERBS. Mixtúran er bragðgóð og mjúk í hálsi og hjálpar mér að sofa eins og engill,“ segir Hrafnhildur. Einstök blanda Magnesíumskortur er eitt stærsta lýðheilsuvandamál sem við glímum við í nútímanum. Magn- esíum er eitt mikilvægasta stein- efni í líkamanum og kemur við sögu í yfir 300 efnaskiptum, allt frá slökun vöðva- og taugakerfisins, virkni hjarta- og æðakerfisins og í upptöku steinefna. Magnesíum blandan frá ICEHERBS er einstök á heimsvísu og inniheldur magn- esíum citrate og handtínd, íslensk fjallagrös. Fjallagrösin og magn- esíumið virkar saman á einstakan hátt. Fjallagrösin mýkja melting- una og magnesíum eykur upptöku á steinefnum úr fjallagrösunum. Magnesíum citrate er eitt fárra bætiefna sem er gott að taka inn að staðaldri, en það er mjög erfitt að fá nægt magnesíum úr fæðunni. Þá er mælt með að þeir sem stunda líkamsrækt taki magnesíum reglu- lega. Áhrif magnesíums Magnesíum stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og er talið bæta gæði svefns og draga úr fótapirr ingi og sinadrætti. Þá stuðlar magn- esíum að því að draga úr þreytu og lúa. Magnesíum er einnig notað í meðhöndlun meltingarvandamála. Það eykur vatnsinntöku í melt- ingarkerfið sem auðveldar líkam- anum að melta og losa hægðir. Þá er magnesíum einnig hreinsandi og hefur góð áhrif á ristilinn. Það stuðlar líka að eðlilegri starfsemi taugakerfisins. Leyndarmál frá náttúrunni Fjallagrösin hafa öldum saman verið notuð sem náttúruleg heilsujurt á Íslandi. Þau eru rík af steinefnum og stuðla að heilbrigðri þarmaflóru. Þá eru fjallagrös vatnslosandi og minnka bjúg. Fjallagrös innihalda einnig trefjar sem mynda mýkjandi himnu á slímhúð í maga sem bætir og mýkir meltinguna. Hrein náttúruafurð Markmið ICEHERBS er að nýta náttúruauðlindir sem tengjast íslenskri hefð og sögu og vinna í hreina neytendavæna vöru fyrir viðskiptavini. „Við hjá ICEHERBS leggjum áherslu á að framleiða hrein og náttúruleg bætiefni sem byggja á sjálfbærri nýtingu nátt- úruauðlinda. Við viljum að vör- urnar okkar nýtist viðskiptavinum okkar, að virkni skili sér í réttum blöndum og að eiginleikar efnanna viðhaldi sér að fullu. Þá notum við enn fremur engin óþörf fylliefni.“ n ICEHERBS fæst í öllum betri mat- vöruverslunum, apótekum og heilsuvöruverslunum og í nýrri Kemur ró á ristilinn Magnesíum með fjallagrösum frá ICEHERBS hefur hjálpað Hrafnhildi Hákonar dóttur mikið. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Nánar á frettabladid.is ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 16. febrúar 2022

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.